Morgunblaðið - 29.07.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 29. JÚLÍ
C 21
Nýgræðingur-
inn í mafíunni
I gamanmyndinni Nýgræðingurinn eða „The Fresh-
man“, sem nú hefur verið frumsýnd í Bandaríkjunum
og kemur í Stjörnubíó áður en langt um líður, leikur
Marlon Brando persónu sem talar og lítur út eins og
Don Vito Corleone úr Guðföðurnum en heitir Carmine
Sabatini.
Marlon Brando og Matthew Broderick í „The Fresh-
man“, eins og Don Corleone..
sem lifir á litlum villisvínum I Daginn eftir að tökum á
og öðrum sérstæðum dýra- myndinni lauk í ágúst í
tegundum. | fyrra lenti Brando saman
Finnskur hasarmaður
Árið 1986 sýndi Laugarásbíó myndina „Born
American", eina aiiélegustu bíómynd sem sýnd var hér
á landi það árið, um þrjá unga Bandaríkjamenn er
villtust yfir finnsku landamærin til Rússlands og skutu
sér leið þaðan út.
Sá er meira að segja maf-
íuhöfðingi líka en
myndin, sem Andrew Berg-
man leikstýrir og skrifar, er
um ungan nema í kvikmynd-
askóla sem tekur að vinna
fyrir mafíuna. Neminn er
leikinn af Matthew Brod-
erick. „Hver sem skrifar
handrit fyrir Marlon ætti að
láta athuga kollinn á sér,“
segir Bergman um hinn sér-
vitra stórleikara. Hann sendi
honum engu að síður hand-
ritið til yfirlestrar fyrir
nokkrum árum og viti menn,
Brando hringdi um hæl og
var mjög hrifinn en hafði
uppi efasemdir um að hann
gæti leikið gamanhlutverk.
Mér fannst þú bráðfyndinn
sem Jor-El í Ofurmenninu,
sagði Bergman þá við hann
og þar með gaf Brando sig.
Tilurð myndarinnar má
rekja til þess er Bergman las
frétt í blaði um mafíósa í
New York sem árið 1984
reyndi að smygla til landsins
þriggja metra langri eðlu,
Leikstjórinn var finnskur,
Renny Harlin að nafni,
og ef eitthvað var að marka
þessa fyrstu bandarísku
mynd hans hefði átt að
senda hann aftur til vatna-
landsins með flugpósti. En
aldeilis ekki. Renny Harlin
hefur unnið sig svo hratt
upp í Hollywood að fáu er
til jafnað. Hann vakti fyrst
athygli fyrir almennileg
vinnubrögð þegar hann leik-
stýrði fjórðu martröðinni á
Álmstræti, metsölumynd-
inni í flokknum, og nú hefur
hann gert „Die Hard 2“, sem
tekið hefur verið opnum
örmum vestra, og aðra sum-
armynd, Ævintýri Ford Fa-
irlane, með nýju goði,
Andrew Dice Clay. Næsta
mynd hans er „Gale Force“,
þriller sem gerist í fellibyl
í Flórída og svo er hann
farinn að framleiða myndir
líka.
Virðist langt um liðið síð-
an Harlin skrifaði 12 hand-
rit heima í Finnlandi og fékk
ekki styrk finnska kvik-
myndasjóðsins út á neitt
þeirra. Þess vegna fór hann
til Hollywood og þar kunna
menn að meta hann. Hann
er 31 árs og segist hafa
verið bíósjúkur frá fimm ára
aldri og þegar valið stóð á
milli læknaskóla og kvik-
við framleiðendur myndar-
innar vegna peningamála
og úthúðaði henni í frægu
viðtali, sem fljótlega vakti
heimsathygli. „Hún er hryll-
ingur,“ sagði hann. „Hún á
eftir að fá vænan skell en
eftir þetta ætla ég að setj-
ast í helgan stein. Ég er
búinn að fá mig fullsadd-
an.“ Hann endaði á að
segja að hann vildi að hann
hefði ekki lokið ferli sínum
á svona lélegri mynd.
Brando sá eftir öllu saman
tíu dögum seinna og sendi
fjölmiðlum tilkynningu þar
sem sagði að hann hefði
haft rangt fyrir sér.
Öll helstu kvikmyndaver-
in í Hollywood höfðu neitað
að taka þátt í gerð „The
Freshman“ þar til Tri-Star
kom til skjalanna. Enda er
þetta árstíð „áhættuleikara
sem hent er í gegnum stór-
ar rúður,“ eins og Bergman
orðar það.
Renny Harlin; Finni á
uppleið.
myndaskóla hikaði hann
ekki andartak.
Fólk
■ Haft var samband við
Kvikmyndasíðu og bent á
að ekki væri rétt að kalla
krimmann Mumbles, sem
Dustin Hoffinan leikur í
Dick Tracy, Mumblarann,
eins og gert var hér í síð-
ustu viku, heldur Muldrar-
ann og skal tekið undir það.
■ „Die Hard 11“ tók inn
60 milljónir dollara fyrstu
sýningarvikuna og sló út
Fullkominn hug, sem á
nokkrum vikum hefur tekið
inn 104 milljónir. Dick
Tracy var síðast þegar
fréttist komin í 90 milljónir.
■ Paul Verhoeven tekur
sér frí frá framtíðarþriller-
um í bili til að leikstýra
myndinni Konur fyrir So-
vereign Pictures. Hún er
byggð á sögu Bakkusar-
skáldsins Charles Bukow-
ski.
■ Ékki færrí en tvö hand-
rit eru nú í undirbúningi
fyrir „Beetlejuice 2“ en í
öðru þeirra, sem Jonathan
Gems („White Mischief1)
skrifar, er Bjölludjúsinn
fluttUr til Hawaii. Hitt
skrifar Batman-höfundur-
inn Warren Skaaren.
■ Leikstjórinn góði Ric-
hard Donner hefur hafið
undirbúning að „Leathal
Weapon 3“, sem hann seg-
ist aldrei hafa búist við að
gera.„En ég bjóst heldur
aldrei við númer 2,“ segir
hann. Tökur geta hafist um
leið og Mel Gibson og
Danny Glover eru tilbúnir.
Robin Will-
iams; kal-
eiksmynd.
KVIKMYNDIR™™!
Er handritshöfundurinn ab verba stjamanf
175 miUjónirfyrir
handrit
'ið óháða kvikmynd-
afyrirtæki New
Líne Cinema, sem fræg-
ast er fyrir Maitraðirnar
á Álmstræti. hefur boðið
Grétari Hjarlarsvni bíó-
sljóra í Laugarásbíói
myndina Leðurféaið lii
sýninga en hún er nýjust
úr flokki myndanna um
Texas.
Grétar hefur ákveðið
að taka myndína ekki til
aýninga. „Þetta er svo
bióðugt og andstyggi-
legt,“ sagði hann í sam-
tali og bætti við að hann
saei „ekki iilganginn með
að vera að sýna þetta."
Sagt var um Léðurfé-
sið þegar hún var frum-
sýnd i Bandaríkjunum
að hún væri upphafið að
nýrri roð framhaids-
mynda um keðju-uigar-
morðingjann
og tæki við
af Álm-
st rætisroð-
inni hjá
New Líne.
öruggt. Fyrir þetta verð
getur höfundurinn verið viss
um að bíómynd verður gerð
úr handritinu en áður gátu
handrit flækst árum saman
á milli framleiðenda án þess
endilega að úr því yrði kvik-
mynd.
Þegar eftirspurnin eftir
góðum handritum er orðin
svona mikil og fjárhæðirnar
svona háar geta handrits-
höfundarnir sett ákveðin
skilyrði í kaupsamningana
eins og t.d. hver leikstýri
myndinni, hver framleiði og
hver fari með aðalhlutverk-
ið. Þetta þýðir aukin völd
til höfundanna, en það getur
líka farið á versta veg eins
og sannaðist þegar súper-
framleiðendurnar Peter
Guber og Jon Peters hjá
Columbia Pictures, sem
sakaðir eru um að hafa byij-
að kapphlaupið um handrit-
in, keyptu handrit af byij-
andanum David Mickey
Evans á 75 milljónir króna
og gerðu hann sjálfan að
leikstjóra en urðu að reka
hann eftir aðeins þrjár vik-
ur.
milljónir króna fyrir handri-
tið „Basic Instinct“, sem er
þriller í anda „Sea of Love-
“og „Fatal
Attracti-
on“.
Aldrei fyrr
í sögu
kvikmynd-
anna hefur
annar eins
peningur
verið sett-
ur í handrit. Nokkrum mán-
uðum áður hafði öðrum
handritshöfundi verið borg-
aðar rúmar hundrað milljón-
eftir Arnald
Indtiðason
Hetju- og heimskulegar dáðir
Tökur standa nú yfir á nýjustu Robin Williams myndinni í New
York en hún heitir „The Fisher King“ og er leikstýrt af Terry
Gilliam úr Monty Python genginu.
Ihenni leikur Jeff
Bridges töffaralegan
útvarpsmann, sem verð-
ur valdur að nokkrum
morðum með því að
eggja bilaðan hlust-
anda, en eitt fórnar-
lamb morðingjans
er eiginkona Will-
iams í myndinni.
Williams leikur
prófessor í miðald-
afræðum og hann sendir
Bridges í leit að morðingjanum
svo útvarpsmaðurinn megi
„bæta fyrir ráð sitt með því að
drýgja hetjulegar, heimskulegar
og óeigingjarnar dáðir“, eins og
Gilliam segir.
Það má furðulegt teljast að
ekki er nema ein veruleg tækni-
brella í allri myndinni (Gilliam
gerði áður Ævintýri Munchaus-
en, sællar minningar) en það er
rauður riddari sem birtist í
miðri Manhattan. „Eftir Munc-
hausen vil ég ekki koma nálægt
tæknibrellum," segir Gilliam.
„Ég er niðurbrotinn maður.“
Ein af dáðum Bridges er að
hafa upp á töfrabikar eða með
öðrum orðum að finna hinn heil-
aga kaleik í New York árið
1990. „Ég held það sé þess
vegna sem ég hreppti leikstjóra-
starfið.
Éggeri kaleiksmyndir,“ segii'
Gilliam.
Aðrir leikarar í myndinni eru
Tom Waits og Amanda Plum-
mer.
HANDRITSHÖFUNDAR
kvikmyndanna hafa frá
upphafi verið í litlum met-
um, óþekktir, áhrifalausir
og illa Iaunaðir en það er
heldur betur að breytast.
Vestur í Hollywood er far-
ið að bjóða í þá eins og
stórstjörnurnar og launin
eru að komast upp í
stjörnuflokkinn.
Nýlega greiddi fyrirtækið
Carolco (Fullkominn
hugur) handritshöfundinum
Joe Eszterhas litlar þijár
milijónir dollara eða um 175
ir króna fyrir handrit og á
annan tug handritshöfunda
hefur fengið borgað fyrir
handritin sín eins og stór-
stjörnurnar, prímadonnur
bíómyndanna, fengu í laun
fyrir nokkrum árum.
Hinar stóru tölur fylgja
nýju fyrirkomulagi sem er
að verða æ meira áberandi
í Hollywood. í stað þess að
kvikmyndaverin ráði höf-
unda til að skrifa handrit
eftir ákveðnum hugmynd-
um eða höfundarnir bjóðist
til að skrifa handrit eftir
eigin hugmyndum ef ein-
hver vill borga þeim fyrir,
eru handritshöfundarnir
teknir til við að fullklára
handritin sín, sem þeir gera
að eigin frumkvæði, og
setja þau á markað. Ef kvik-
myndaverunum líst vel á eru
þau greinilega tilbúin að
fara upp í þrjár milljónir
dollara til að yfirbjóða
keppinautana. Og eitt er