Morgunblaðið - 08.08.1990, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990
51
4-
Hrafnseyri við Arnarfjörð.
Hrafnseyri;
10 ár frá opnun safns
Jóns Sigurðssonar
Þingeyri.
TÍU ár eru liðin frá því að safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri var
opnað almenningi, af Vigdísi Finnbogadóttur forseta. Það var hennar
fyrsta verk í embætti. Sama dag vígði Sigurbjöm Einarsson biskup
kapelluna á Hrafnseyri er reist var til minningar um Dóru Þórhalls-
dóttur forsetafrú.
Sumarbúðastarfíð í Ölveri 50 ára
Kaffisala verður um næstu helg’i
Sumarbúðirnar í Ölveri undir Hafnaríjalli. Morgunbtaðið/PÞ
Það er líklegt að
mörg „fyrrverandi
börn“ sem dvalið
hafa í sumarbúðun-
um komi á kaffisöl-
una og þá verður
nóg af rjómanum og
randabrauðinu á
borðum.
Að undirlagí Hrafnseyrarnefndar
var safninu komið á fót, en sú nefnd
hefur starfað síðan lýðveldið var
stofnað 1944 og mikil hátíð var hald-
in á Hrafnseyri í úrhellisrigningu.
Veðrið skartaði sínu fegursta er
forsetinn var heiðursgestur á staðn-
um árið 1980 og fjöldi manns sótti
Hrafnseyri heim þann dag víðast
hvar af Vestfjörðum, auk hóps brott-
fluttra Dýrfírðinga.
Hrafnseyrarnefnd hefur haft allan
veg og vanda af uppbyggingu staðar-
ins, meðtalið safnið, sem aðallega
byggist upp á myndum úr lífi Jóns
Sigurðssonar forseta og sjálfstæðis-
baráttu hans við Dani, auk nokkurra
persónulegra muna úr eigu hans.
Um 20.000 manns hafa skoðað
safnið sl. 10 ár og metaðsókn hefur
verið í sumar. Hrafni Sveinbjarnar-
syni, fyrsta menntaða lækni lands-
ins, var reistur veglegur minnisvarði
er Læknafélag íslands gaf steindan
glugga í kapelluna, verk listamanns-
ins Steinþórs Sigurðssonar.
Núverandi formaður Hrafnseyrar-
nefndar er Þórhallur Ásgeirsson, er
tók við af föður sínum Asgeiri Ás-
geirssyni, fyrrvérandi forseta 1973.
Aðrir í nefndinni eru, Jón Páll
Halldórsson,. ísafirði, Ágúst Böðv-
arsson frá Hrafnseyri, Halldór Kristj-
ánsson frá Kirkjubóli í Bjarnadal og
Matthías Bjamason alþingismaður.
Núverandi safnvörður er Rósa
Gunnarsdóttir. Á hveiju sumri er
efnt til Hrafnseyrarhátíðar að undir-
lagi nefndarinnar og staðarhaldara,
Hallgríms Sveinssonar og konu hans,
Guðrúnar Steinþórsdóttur.
Sóknarpresturinn messar þann
dag, listamenn sækja staðinn heim
og skemmta og fræða gesti og þeim
fjölgar ár frá ári er njóta gestrisni
hjónanna þar í mat og drykk auk
annars sem er á boðstólum þann 17.
júní.
- Hulda.
Á ÞESSU ári er sumarbúða-
starfíð í Ölveri undir Hafnar-
fjalli í Borgarfirði 50 ára. Verð-
ur þeirra tímamóta minnst með
kaffísölu um næstu helgi, þ.e.
11. til 12. ágúst. Verður stand-
andi hlaðborð frá því á liádegi
á laugardegi og fram á sunnu-
dagskvöld, þannig að menn ættu
að geta fundið tíma til þess að
líta í sumarbúðirnar, jafnt fyrr-
verandi starfsfólk og börn, sem
sum hver eru orðin stór eftir
50 ár, og aðrir velunnarar.
Upphaf sumarstarfsins í Ölveri
má rekja til þess, að Kristrún Ól-
afsdóttir, ekkja Jóns Hallgrímsson-
ar í Fróni á Ákranesi, byrjaði með
stúlknastarf árið 1940 í skátaskála
undir Akrafjalli. Var Kristrún með
starfið þar til ársins 1952, en þá
flutti hún það í Ölver þar sem það
hefur verið hvert sumar síðan.
Keypti Kristrún húsakost í Öl-
veri af sjálfstæðismönnum, sem
ráku þar skemmti- og veitingastað.
Að sögn Sveinbjargar Arnmunds-
dóttur, núverandi forstöðukonu,
hefur Kristrún gert þetta starf í
Ölveri að ævistarfi sínu og lagt
alla sína fjármuni í uppbyggingu
á staðnum. Síðast seldi hún íbúðar-
húsið sitt á Akranesi til þess að
stækka við húsnæðið í búðunum,
tók lán og borgaði af því með elli-
lífeyrinum.
Á mörgum fyrstu árunum var
um sjálfboðaliðavinnu að ræða og
allt fram á þennan dag er mikil
vinna gefin. Hefur það að sjálf-
sögðu flýtt mikið fyrir uppbygg-
ingu staðarins og yrði of langt
mál að telja upp alla þá, sem gefið
hafa vinnu við starfið og uppbygg-
ingu.
Sumarbúðirnar í Ölveri hafa
ekki notið neinna opinberra styrkja
nema smá styrks frá Akranessbæ
undanfarin ár. Á síðustu árum
hafa farið fram gagngerar endur-
bætur á húsnæðinu og það stækk-
að að mun. Fleiri svefnherbergi og
nýjar snyrtingar ásamt tvöföldun
á setustofu á efri hæð. Sagði
Sveinbjörg, að hún vonaðist til
þess að sjá fram úr skuldunum,
en þessar framkvæmdir hafa verið
fjárfrekar. Hæfist þetta í gegn
með hjálp Guðs og góðra manna.
Má nú telja, að staðurinn uppfylli
þær kröfur, sem gerðar eru til
sumarbúða í dag, en þær kröfur
hafa verið hertar mjög undanfarin
ár.
Sveinbjörg sagði, að Kristrúnu
yrði aldrei fullþakkað þetta braut-
ryðjendastarf fyrir æsku Akraness
og ætti þessi kona skilið viðurkenn-
ingu fyrir sitt starf, sem aldrei
verður metið tii fjár. Kristrún er
núna 83 ára, aldin og dvelst á
dvalarheimilinu Höfða á Akranesi.
Vænta allir, að hún geti fengið að
sjá árangur erfiðis síns eftir 50
ára starf um næstu helgi, þegar
kaffisalan verður, með því að geta
verið hér í Ölveri þá.
Vildi Sveinbjörg að síðustu
þakka öllum þeim, sem lagt hefðu
þessu starfi lið í gegnum árin —
ekki síst landeigenduin —. sem
reynst hafa sumarbúðunum frá-
bærlega vel og sýnt starfínu mik-
inn skilning. Sagðist Sveinbjörg
hlakka til þess að sjá sem flesta á
kaffisölunni um næstu helgi.
- PÞ.
IIM ÚRVAL AF DÝNUM?
vali og með frágangi eftir þínu höfði. Hér eru nokkur dæm[um verð á óklæddum svampdýnum:
„Eggjabakkadýna
Heilsuyfirdýna,
loftræstirog einangrar.
Einstökfjöðrun
//
VERÐ
5.998,-
7.997,-
10.282,-
7.686,-
10.248,-
13.176,-
4.200,-
5.040,-
6.160,-
13.709,-
17.568,-
160
8.960,-
18.278,-
23.424,-
útbúum að sjálfsögðu dýnuver og klæðum með áklæði af lager
©ða tillögðu efni. Bjóðum einnig uppá hundruð mismunandi áklæða
með pöntunarþjónustu okkar. LÍTTU INN OG KYNNTU ÞÉR ÚRVALIÐ
SNÆIANÐ
SKEIFAN 8-108 REYKJAVIK SIMI 685588