Morgunblaðið - 08.08.1990, Side 52
UÝTT SÍWAHÚMER
AUGLÝSINGAD01DAR_
69*111
nr0iwí»laliil>
Kringlan 5
Sími
692500
S1Q.VAOIPALMENNAR
MIÐVIKUDAGUR 8. AGUST 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Frá slysstaðnum 15 kílómetra sunnan við bæinn Vara.
Morgunblaðið/L. Backström
T>rír íslendingar létust í
umferðarslysi í Svíþjóð
Mannskæðasta umferðarslys í Svíþjóð á þessu ári
ÞRÍR íslendingar, Elín Halla Gunnarsdóttir, 29 ára, Sigurður Sig-
urðsson, 26 ára, og Sigurjóna Örlygsdóttir, 26 ára, létust í umferðar-
siysi í Svíþjóð á sunnudag, um 15 kílómetra sunnan við bæinn Vara
^iorður af Gautaborg. Sænsk hjón létust einnig í slysinu og tólf ára
íslenskur drengur slasaðist alvarlega og lá í gær á gjörgæsludeild
sjúkrahúss en var talinn úr bráðri lífshættu. Þetta er mannskæðasta
umferðarslys sem orðið hefur í Svíþjóð á þessu ári.
íslendingarnir fjórir voru á ferð
ásamt fimm löndum sínum í tveim-
ur bílum og voru á leið til Gauta-
borgar eftir þjóðvegi sem nefnist
E-3. Móts við smábæinn Eling, um
fimmtán kílómetrum sunnan við
Vara, mættu þau bíl á leið frá
Gautaborg. Sá sem þar sat undir
stýri virtist missa vald á bifreið sinni
sem fór út fyrir veginn og á vegar-
öxl. Þegar maðurinn reyndi að
sveigja bílnum inn á veginn aftur
valt hann og fór yfir á öfugan veg-
pírhelming, í veg fyrir bíla íslending-
anna.
Bílarnir þrír rákust saman. ís-
lendingarnir, sem létust, voru í
fremri bílnum og einnig pilturinn
sem slasaðist. í hinum bílnum voru
fimm íslendingar, hjón með barn
og tveir drengir, sonur konunnar
sem lést og sonur hjónanna sem
létust. Flestir þeirra sem í aftari
bílnum voru hlutu einnig meiri eða
minni áverka, að sögn Þórðar Ein-
arssonar, sendiherra íslands í
Svíþjóð. í bflnum sem slysinu olli
voru sænsk hjón, fjörutíu og fimm
ára gömul, og létust þau samstund-
is. Sendiráðinu höfðu seint í gær
ekki enn borist fullnaðarupplýsing-
ar um slysið.
Elín Halla Gunnarsdóttir var
fædd 1961. Hún lætur eftir sig eig-
inmann og ungan son. Hjónin Sig-
urður Sigurðsson og Sigutjóna Ör-
lygsdóttir voru bæði fædd 1964.
Þau láta eftir sig ungan son. Fólkið
hafði allt nýlega flust til Svíþjóðar
og bjó í Angered, úthverfi Gauta-
borgar.
Islandsmet
hjá Einari
EINAR Vilhjálmsson setti Islands-
met í spjótkasti á alþjóðlegu móti
í Malmö í Svíþjóð í gærkvöldi.
Einar kastaði 85,28 metra en
gamla metið, sem hann átti sjálfur,
var 84,66 metrar. Eftir þetta kast
er Einar í 5. sæti yfir bestu spjótkast-
ara^ heims.
Á mótinu sigraði Einar m.a. tvo
fyrrum heimsmethafa, Jan Zelezny
frá Tékkóslóvakíu og Patrick Boden
frá Svíþjóð.
Sjá nánar íþróttablað Cl.
Tekjur af
ferðamönn-
um 80 millj-
ónir á dag
ERLENDIR ferðamenn, sem
komu til íslands í nýliðnum
mánuði, voru 33.529, um 4,1%
fleiri en í fyrra. Ferðamálaráð
telur gjaldeyristekjur af ferða-
mönnum í júlímánuði nema að
minnsta kosti 2,5 milljörðum
króna, eða yfir 80 miiijónum á
dag.
Magnús Oddsson, settur ferða-
málastjóri, var spurður hvernig
þessi tala væri reiknuð út. Hann
sagði að samkvæmt upplýsingum
Seðlabanka og Þjóðhagsstofnun-
ar væru gjaldeyrisskil vegna
ferðaþjónustu á síðasta ári 10
milljarðar króna. Þessar tekjur
koma af um 130.000 ferðamönn-
um, sem komu til landsins á ár-
inu. Fjöldinn, sem kom í júlí í ár,
um 33.000, er hér um bil íjórð-
ungur af heildarfjöldanum í fyrra,
og Magnús sagði að því.hefði
verið deilt í gjaldeyristekjurnar á
síðasta ári með fjórum. Miðað er
við árið í fyrra, og því eru raun-
tekjur í ár af ferðamönnum vænt-
anlega enn hærri.
Ferðamenn, sem komu til
landsins á fyrstu sjö mánuðum
ársins, eru 88.507 talsins, 4,1%
fleiri en í fyrra.
Fyrsta íslenska skipið
fer á loðnuveiðar í dag
Norsk skip veiða stóra og fallega loðnu norður af Langanesi
HÓLMABORG SU, skip Hraðfrystihúss Eskiljarðar hf., fer á loðnu-
veiðar í dag, miðvikudag, að sögn Emils Thorarensen útgerðarstjóra
fyrirtækisins. Hólmaborgin er því fyrst íslenskra skipa til að fara á
loðnuveiðar á þessari vertíð. Norsk og færeysk skip hafa verið á
loðnuveiðum um 100 sjómílur norður af Langanesi undanfarið og
fengið 20-150 tonn á sólarhring, að sögn Landhelgisgæslunnar.
Scala-óperan:
Spreytir sig í
óperu Verdis
GUÐJÓN Óskarsson bassasöngv-
ari, sem nú starfar við óperuna í
Osló, hefur verið beðinn að syngja
til reynslu í Scala-óperunni í
Mílanó í haust með samning við
óperuna í huga.
Guðjón sagðist í samtali við Morg-
unblaðið hafa sungið til reynslu fyrir
stjórnendur Scala í byijun júlí. Síðan
hafi hann verið beðinn um að koma
aftur um mánaðamótin október/nóv-
ember og syngja til reynslu hlutverk
Inquisitore í óperu Verdis, Don Carlo,
sem sett verður upp veturinn 1992.
Loðnan er fryst um borð í mörg-
um norsku skipanna og eitt þeirra
frysti loðnu inni við Þórshöfn á
Langanesi í gær. Skipstjórar á
norsku loðnuskipunum segja að
þeir hafi verið að veiða stóra og
fallega fjögurra ára gamla loðnu
og að þessi vertíð líti mun betur
út en síðasta haustvertíð, sem var
mjög léleg. Tuttugu norsk skip
mega veiða loðnu í íslensku lögsög-
unni á sama tíma en fimm fær-
eysk. Norskt skip fékk fyrstu loðn-
una á vertíðinni um 150 sjómílur
norður af Sléttu 27. júlí.
Nú fást um 8 Bandaríkjadalir
fyrir prótíneininguna af loðnumjöli
og 250-270 dalir fyrir tonnið af
loðnulýsi. I lok síðustu vertíðar
fengust um 7 dalir fyrir prótín-
eininguna af mjöli og 200-240 dalir
fengust fyrir lýsistonnið á síðustu
vertíð, að sögn Jóns Ólafssonar
framkvæmdastjóra Félags
íslenskra fiskmjölsframleiðenda.
Jón sagði að olíukaup væru
10-15% af rekstrarkostnaði loðnu-
verksmiðjanna, þannig að verð-
hækkun á olíu væri mjög slæm fyr-
ir verksmiðjurnar. Þá hefði meiri-
hlutinn af lýsinu verið seldur í
Bandaríkjadölum en dalurinn hefur
lækkað um 6-7% gagnvart íslensku
krónunni frá því að síðustu loðnu-
vertíð lauk.
Loðnukvótinn er 600 þúsund
tonn á þessari vertíð og þar af
mega íslensk skip veiða 468 þúsund
tonn en þau veiddu um 660 þúsund
tonn á síðustu vertíð. Heildarkvót-
inn á þessari vertíð verður hins
vegar endurskoðaður eftir haust-
leiðangur Hafrannsóknastofnunar
en venjulega er farið í leiðangurinn
í október eða nóvember. Norsk skip
mega veiða 66 þúsund tonn á ver-
tíðinni. Grænlendingar fá einnig 66
þúsund tonna kvóta en þeir eiga
hvorki loðnuskip né loðnuverksmiðj-
ur.
„Af þessum 66 þúsund tonnum
Grænlendinga fær Evrópubanda-
lagið 40 þúsund tonn til að fram-
selja ríkjum í bandalaginu en Fær-
eyingar hafa alltaf nýtt Evrópu-
bandalagskvótann," sagði Jón Ól-
afsson.
„Grænlendingar hafa selt Færey-
ingum 13 þúsund tonn, það er að
segja helminginn af þeim 26 þúsund
tonna kvóta, sem þeir segjast selja
sjálfir. Þá hafa Grænlendingar selt
Einari Guðfinnssyni hf. í Bolung-
arvík 6.500 tonn og Norges Silde-
salgslag 6.500 tonn en Norges Sil-
desalgslag hefur með loðnuveiðar
Norðmanna að gera. Landssam-
band íslenskra útvegsmanna hefur
hins vegar engan kvóta keypt af
Grænlendingum núna en á síðustu
vertíð keypti LÍÚ 21 þúsund tonn
af þeim og Einar Guðfinnsson hf.
10 þúsund tonn,“ sagði Jón.