Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.08.1990, Blaðsíða 1
 MENNING LISTIR P PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990 BLAÐ ÍJ VIÐTAL VIÐ HAFLIÐA HALLGRÍMSSON SELLÓ- LEIKARA OG TÓNSKÁLD VIÐTAL: ELÍN PÁLMADÓTTIR Á Skálholtstónleikum um helg- inaverða nær eingöngu flutt verk eftir Hafliða Hallgrímsson tón- skáld. Hann er kominn heim til þess að stjórna flutningi verk- anna og hefur undanfarna viku dvalið austur í Skálholti við æf- ingar með Hljómeyki og hljóð- færaleikurum. Tónleikarnir í Skálholtskirkju heljast bæði laugardag og sunnudag klukkan þrjú síðdegis. Báða dagana sama dagskrá, sem eingöngu er helguð verkum Hafliða. Og á tónleikum kl. 5 á laugardag flytur gítarleik- arinn Einar Kristján Einarsson • Jakobsstigann eftir Hafliða, auk annarrar alþjóðlegrar tónlistar. Og í messunni kl. 5 á sunnudag er að venju m.a. flutt úrval úr tónleikum helgarinnar. í stuttri bæjarferð náðum við tali af tón- skáldinu Hafliða Hallgrímssyni og spurðum hann fyrst um verk- in sem flutt verða í Skálholts- kirkju, sum í frumflutningi. Sönghópurinn Hljómeyki frumflytur m.a. verk sem Hafliði nefnir TRIPTYCH, en það merkir þrískipt altaris- mynd. Hamrahlíðarkór inn hefur flutt tvo þætti verksins áður, en það er í þremur þáttum og nú frumflutt í heild. „Þetta verk tileinka ég blindri konu, Mary Mill- er, sem ég bjó hjá í 10 ár í Lon- don. Hún var sú manneskja sem í mínum huga kemst næst því að • vera dýrlingur. Verkið er samið eftir að hún dó og ég hefí verið að vinna að því síðan 1986,“ segir Hafliði og heldur áfram:„Þetta verk er byggt á tveimur ljóðum eftir Salvatore Quasimoto. Aðaluppi- staðan er eitt frægasta Ijóð hans, sem flestir þekkja. Textinn er flutt- ur á ensku. Hann fjallar um dauð- ann og í upphafi segir eitthvað á þessa leið í lauslegri þýðingu á íslensku: Allir eru einir á hjarta jarðar. Ljóstraðir geisla sólar. Og skyndilega er komið kvöld. Einnig flytur Hljómeyki undir stjórn Hafliða fjögur þjóðlög, sem hann hefur útsett fyrir kór. Var útsetningin tileinkuð Hamrahlíð- arkórnum, sem hefur flutt þessi lög þannig erlendis. I upphafi þessara tónleika í Skál- holtskirkju, sem helgaðir eru tón- skáldinu Hafliða Hallgrímssyni, mun Helga Ingólfsdóttir leika verk- ið Strönd, sem samið er fyrir semb- al og tileinkað Helgu og semballeik hennar, að því er Hafliði tjáir okk- ur. „Strönd er nafnið á húsi Heigu á Álftanesinu. Og verkið fjallar um útsýnið úr glugganum hennar, hljóðið frá hafinu og úr sembalnum hennar. Þetta er ofið saman. Helga frumflytur nú verkið í þessum bún- ingi hér á landi. Fyrir átta árum lék hún 20 mínútna verk með þessu heiti. En við endurskoðun fannst mér aðeins þriggja mínútna kafli vera einhvers virði og nú hefur það verið stytt og endurbætt.“ Næst munu þeir Kolbeinn Bjarnason og Hafliði Hallgrímsson leika verk fyrir flautu og selló, sem hefur verið flutt víða. „Þetta er sjávar-næturijóð,“ segir Hafliði þegar hann er spurður hvers konar verk þetta sé. En í kynningu á nýútkominni hljómplötu, þar sem hann flytur þetta verk með Philippu Davies segir að verk þetta hafi hann samið í apríl 1975 í Aldeburgh nálægt ströndinni í Suffolk. Hann kveðst hafa komið þangað með kammersveitinni sinni til upptöku á óperunni Dauðinn í Feneyjum eftir Britten, svo að hann hafði sjávar- , hljóðið í eyrunum frá morgni til kvölds. Þegar hann svo nokkrum vikum síðar tók til við að vinna að þessu verki hafi frá fyrstu tónum legið ljóst fyrir að hann var rifja upp og vísa til sjávarins og strand- arinnar við Aldeburgh. Segir hann að verkið hafi markað upphaf að metnaðarfyllri og einbeittari stíl í tónsmíðum hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.