Morgunblaðið - 02.09.1990, Síða 15
MORGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. SÉPTÉMBÉR 1990
15
hæfileika sem þeir búa yfir og allt
sem í kringum þá er í umhvefinu til
að kveikja líf í leiknum og skapa
samstæðan heildarsvip."
Voight hreppti Óskarsverðlaunin
fyrir hlutverk sitt í „Coming Home“.
Breytti það einhveiju í lífi hans?
„Óskarinn breytti engu, ég var sami
maðurinn en aðeins svolítið frægari.
Frægðin getur ruglað þig en það var
gott að vita að kollegar mínir í kvik-
myndaiðnaðinum höfðu þessar mæt-
ur á mér og sýndu það ineð veitingu
Óskarsins og þannig tók ég honum
fyrst og fremst.“
Voight hefur unnið með mörgum
fremstu leikstjórum heims eins og
Kaufman, Schlesinger, John Boor-
man, Hal Ashby, Franco Zeffirelli
en þegar hann er spurður með hverj-
um best hafi verið að vinna vill hann
ekki gera upp á milli þeirra og ein-
angra einhveija eina reynslu frá
annarri. „Góður leikstjóri hjálpar þér
alltaf," segir hann. „Þeir hafa hug-
sýn og þeir starfa í samvinnu. Hefur
þú fundið lausnina í dag _eða hef ég
fundið hana? spyija þeir. Ég hef allt-
af gert myndir með góðu fólki,“
bætir hann við.
Hvernig líst honum á Hollywood
í dag þegar framhaldsmyndir og
aðrar þúsundmilljónamyndir beijast
um dollarana og allt snýst um pen-
inga sem aldrei fyrr? „Málið er að
þótt nú sé ekki hugsað um annað
en peninga í Hollywood er virkilega
til fóllc þar ennþá sem getur gert
góðar myndir án þess að vera sífellt
að hugsa um dollara og gróða. En
fólk tengist ekkj bíómyndum á sama
hátt og áður. Ég nefni oft myndir
Freds Astairs sem dæmi um léttar
og elskulegar og öðruvísi myndir og
líka myndir Franks Capra sem áttu
stóran hlut í manni. Eg lít frekar
aftur til gömlu meistaranna því þeir
eiga betur við mig en þeir sem eru
að gera myndir í dag.“ Talið barst
að himinháum launum stórstjarn-
anna í Hollywood og Voight sagði
að nú væri útilokað að gera litlar,
ódýrar myndir með bitastæðum
stjörnum eins og í þá daga þegar
hann var að byrja ferilinn. „Leikar-
arnir verða að fara að gera myndir
fyrir minni pening og þróunin hlýtur
að yerða sú á endanum."
Á níunda áratugnum hefur lítið
til Voight spurst nema hann lék óf-
rýnilega persónu sem brýst út úr
fangelsi og stelur lest sem stefnir á
sífellt meiri hraða inní eilífðina í
mynd Andrei Konchalovskys,
„Runaway Train". Þegar hann er
spurður að því hvað hann hafi verið
að gera allan þennan tíma talar
hann um að hafa sinnt börnunum
sínum tveimur mikið. Þau séu efst
á blaði. Einnig segist hann hafa
barist fyrir málstað minnihlutahópa
í Bandaríkjunum eins og uppgjafa-
hermanna frá Víetnam („Fæddur
4. júlí var frábær mynd“) og indíána-
þjóðflokka. („Þegar ég hugsa um
indíánana til dæmis hvarflar þessi
spurning oft að mér: Voru þessi þjóð-
félög sett hér á jörðina í þeim eina
tilgangi að láta iðnaðarþjóðfélögin
traðka á þeim?“) Hann er umhverfis-
verndarsinni í húð og hár og talar
mikið um hvernig betur megi hlúa
að jörðinni og hvernig maðurinn
verður að lifa í sátt við hana og
umgangast af virðingu.
Voight þekkti lítillega til íslands
áður en hann kom hér því fyrir
meira en áratug kom bróðir hans,
Barry, sem er landfræðingur, hingað
til lands og hreifst mjög af landi og
þjóð og sendi Jon íslendingasögum-
ar sem leikarinn segist hafa lesið
nokkuð í. Til að mynda kannaðist
hann vel við Egils sögu. Annars
sagði hann þekkingu sína yfirborðs-
kennda. „Ég þekki tölfræðina, veit
að þið lifið á fiskveiðum. En ég þekki
nokkra íslendinga og það eru ákaf-
lega hlýlegir menn. Maður hefur
kynnst þeim — eins og Árna Samú-
elssyni — á kvikmyndahátíðum og
sölusýningum erlendis og ég get
sagt þér að þeir eru mjög vinsælir
þar.“
í Ijósi þessara breyttu aðstæðna hafa Flugleiðir nú gert flugáætlun til
Amsterdam og Hamborgar sem gildir fyrir komandi viku. Verið er að
vinna að gerð flugáætlunar fyrir næstu tvo mánuði.
Þessi nýja flugáætlun miðast fyrst og fremst að því að raska sem
minnst áætlun þeirra farþega sem þegar hafa þantað flug til
Amsterdam og Hamborgar.
I
I
I
I
1
I
Laugardagurinn 1. september.
Flug FÍ 504 til Amsterdam/Kölnar og flug FÍ 505 frá Amsterdam til Keflavíkur: Brottför Fí 504
frá Keflavík er kl. 23.30, komið til Amsterdam kl. 04.35. Þaðan verður farþegum til Kölnar ekið
með rútu (u.þ.b. 3 klst.). Brottför FÍ 5Ö5 frá Amsterdam er kl. 05.35 og vélin lendir síðan í
Keflavík kl. 06.50.
Sunnudagurinn 2. september.
Flug FÍ 504 til Amsterdam/Hambocgar og flug Fl 505 frá Amsterdam til Keflavíkur:
Brottför Fl 504 frá Keflavík er kl. 18.10, komið er til Amsterdam kl. 23.15. Þaðan verður
farþegum ekið til Hamborgar með rútu (u.þ.b. 4 klst.), þar sem flugvöllurinn í Hamborg er
lokaður á þessum tíma.
Brottför FÍ 505 frá Amsterdam er kl. 00.15 og vélin lendir í Keflavík kl. 01.30.
Mánudagurinn 3. september.
Flug FÍ 504 til Amsterdam og flug Fí 507 frá Amsterdam til Keflavíkur:
Brottför FÍ 504 frá Keflavík er kl. 13.15, komið er til Amsterdam kl. 18.20.
Brottför Fí 507 frá Amsterdam er kl. 19.20 og komið verður til Keflavíkur kl. 20.35.
Þriðjudagurinn 4. september.
Flug FÍ 502 til Amsterdam og flug FÍ 503 frá Amsterdam til Keflavíkur:
Brottför Fl 502 frá Keflavík er kl. 07.25, komið er til Amsterdam kl. 12.30.
Brottför Fí 503 frá Amsterdam er kl. 13.30 og vélin lendir síðan í Keflavík kl. 14.45.
Miðvikudagurinn 5. september.
Flug Fl 504 til Amsterdam og flug FÍ 505 frá Amsterdam til Keflavíkur:
Brottför FÍ 504 frá Keflavík er kl. 17.20, komið er til Amsterdam kl. 22.15.
Brottför FÍ 505 frá Amsterdam er kl. 23.15 og komið er til Keflavíkur kl. 00.20.
Fimmtudagurinn 6. september.
Flug Ff 510 til Amsterdam, Hamborgar og Keflavíkur:
Brottför Fl 510 frá Keflavík er kl. 07.25, komið er til Amsterdam kl. 12.20.
Brottför frá Amsterdam er klukkan 13.30, komið er til Hamborgar kl. 14.30.
Brottför frá Hamborg er kl. 15.20 og komið er til Keflavíkur kl. 16.25.
Föstudagurinn 7. september.
Flug FÍ 502 til Amsterdam og flug Fl 503 frá Amsterdam til Keflavíkur:
Brottför FÍ 502 frá Keflavík er kl. 07.25, komið er til Amsterdam kl. 12.20.
Brottför FÍ 503 frá Amsterdam er kl. 13.30 og vélin lendir í Keflavík kl. 14.35.
Laugardagurinn 8. september.
Flug Fl 432 til Glasgow og Amsterdam og flug Ff 505 frá Amsterdam til Keflavíkur:
Brottför FÍ 432 frá Keflavík er kl. 16.05, komið er til Glasgow kl. 19.15.
Brottför frá Glasgow er kl. 20.05 og komið til Amsterdam kl. 22.25.
Brottför FÍ 505 frá Amsterdam er kl. 23.25 og komið er til Keflavíkur kl. 00.40.
Ath. allar tímasetningar eru miðaðar við staðartíma.
Starfsfólk Flugleiða mun að vanda kappkosta að veita farþegum
sínum sem besta þjónustu á þessum nýju áfangastöðum. Flugleiðir
munu vera með sérstaka starfsmenn á Schiphol flugvellinum í
Amsterdam, Eddu Bogadóttur, og flugvellinum í Hamborg,
Hans Saetran. Þau munu aðstoða farþega Flugleiða við að endur-
skrifa farseðla, ef þörf er á, og leita lausna á öllum þeim vandamálum
sem upp kunna að koma.
Allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Farskrárdeild Flugleiða
í síma 690300.
FLUGLEIÐIR
Þegar ferðalögin liggja í loftinu
I
1
I
I
I