Morgunblaðið - 02.09.1990, Síða 34
MORGÚNBLAÐIÐ ATVIIMIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990
f 34
ATVINNUAI IYSINGAR
Efþú
ert hress, áhugasöm og með ferskar hug-
myndir og langar til að prófa eitthvað nýtt,
er þessi auglýsing einmitt fyrir þig. Okkur á
Ósi vantar sem fyrst fóstru eða starfsmann
með uppeldismenntun eða starfsreynslu. Ós
er lítið og heimilislegt dagheimili þar sem
dvelur 21 barn, 4 fóstrur og matráðskona.
Ós er á Bergþórugötu 20 og er rekið af for-
eldrum.
Upplýsingar gefur Sigþrúður í síma 23277
og á kvöldin Kristín í síma 27481.
Símavarsla
íbifreiðaumboði
Eitt af stærstu bifreiðaumboðum landsins
vill ráða starfsmann á skiptiborð. Vel kemur
til greina að skipta starfinu í tvö hálfsdags-
störf þ.e. frá kl. 9-13 og kl. 13-18.
Áskilið er að viðkomandi sé stundvís, reglu-
samur og hafi gott viðmót.
Boðið er upp á starf í nýjum, björtum húsa-
kynnum í sívaxandi fyrirtæki.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 1.
október.
Umsóknir sendist á auglýsingadéild Mbl. fyr-
ir 8. september merktar: „D - 13391“.
Framleiðslustörf
Álafoss hf. óskar eftir starfsfólki til starfa í
verksmiðju fyrirtækisins í Mosfellsbæ.
Um er að ræða eftirtalin störf:
J banddeild:
Störf við framieiðslu ullarbands.
Unnið er á tvískiptum vöktum.
í fatadeild:
Við þvott á voðum.
Einnig á saumastofu og við frágang á treflum.
Á báðum deildum er unnið eftir bónuskerf-
um. Ókeypis rútuferðir á milli Mosfellsbæjar
og Reykjavíkur/Kópavogs.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannahald í
síma 91-666300.
ÁLAFOSS
Shell
Verkstæðisformaður
Bifreiðaeftirlit
Skeljungur hf., Skerjafirði,
vill ráða verkstæðisformann til starfa.
Starfssvið: Daglegur rekstur bifreiðaverk-
stæðis, eftirlit með bifreiðaeign og skyld
störf.
Leitað er að bifvélavirkjameistara með
starfsreynslu við viðgerðir á vörubifreiðum
og stórum bifreiðum. Starfið krefst ferðalaga
innanlands. Einhver enskukunnátta er nauð-
synleg.
Umsóknir og allar nánari upplýsingar fást
á skrifstofu okkar, Tjarnargötu 14, til 6.
sept. nk.
GlJÐNT TÓNSSON
RÁÐCJÓF & RAÐNI NCARUÓN LISTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22
Iðnskólinn í Reykjavík
Rafvirki
Skólinn óskar að ráða rafvirkja til viðhalds
og viðgerða.
Skriflegar umsóknir berist skólanum fyrir 7.
sept. nk. Upplýsingar ekki veittar í síma.
Múrarar
- verkamenn
Vandvirkir múrarar, eða menn, vanir múr-
verki, óskast nú þegar, ásamt nokkrum
verkamönnum. Örugg vetrarvinna og góðar
vinnuaðstæður.
Upplýsingar á skrifstofutíma í símum 84542
og 685583 virka daga frá kl. 9.00-17.00.
ŒpSteintak hf
VERKTAKI BÍLDSHÖFÐA 16, 112 REYKJAVÍK
Þroskaþjálfar
og annað uppeldismenntað starfsfólk
Styrktarfélag vangefinna óskar að ráða
áhugasamt starfsfólk nú þegar eða eftir nán-
ara samkomulagi í eftirtaldar lausar stöður
á stofnunum félagsins:
Bjarkarás, hæfingarstöð, Stjörnugróf 9.
Þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% starf.
Lyngás, dagheimili, Safamýri 5. Þroskaþjálfa
eða meðferðarfulltrúa.
Lækjarás, þjálfunarstofnun, Stjörnugróf 7.
Þroskaþjálfa og meðferðarfulltrúa.
Sambýli Víðihlíð 5 og 7. Þroskaþjálfa í 60%
starf.
Upplýsingar gefa viðkomandi forstöðumenn
eða launafulltrúi á skrifstofu félagsins á Há-
teigsvegi 6.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Aðstoð við aldraða
Langar þig að starfa með öldruðum?
Okkur bráðvantar áhugasamt og gott fólk til
starfa, sem fólgin eru í hverskonar aðstoð
og félagslegri samveru á heimilum aldraðra.
Vinnutími er sveigjanlegur frá kl. 09.00-
17.00 og gæti meðal annars hentað náms-
fólki.
Hafðu samband sem fyrst og kynntu þér
starfið.
Nánari upplýsingar veita forstöðumenn og
verkstjórar heimaþjónustu á eftirtöldum
Aflagranda 40
Bólstaðarhlíð 43
Hvassaleiti 56-58
Norðurbrún 1
Seljahlíð
Vesturgötu 7
stöðum:
s. 622571 millikl. 10og12.
s. 685052 millikl. 10og 12.
s. 679335 milli kl. 10 og 12.
s. 686960 milli kl. 10og 12.
s. 73633 milli kl. 10 og 12.
s. 627077 millikl. 10og12.
Sjúkraliðar
Laust er starf sjúkraliða við þöðun. Um er
að ræða 50% vinnu. Upplysingar veitir for-
stöðumaður í síma 685052.
ÍFélagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500
Störf með unglingum
Unglingaathvörfin í Reykjavík óska eftir
starfsmönnum í 46% kvöldstarf.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
og/eða reynslu sem nýtist í skapandi með-
ferðarstarfi með unglingum.
Umsóknarfrestur er til 11. september nk.
Nánari upplýsingar gefa forstöðumenn í síma
20606 og 75595 eftir hádegi virka daga.
Félagsráðgjafastarf
- meðferðarvinna
Laus er staða félagsráðgjafa við vistheimili
barna hjá Reykjavíkurborg. í starfinu felst
mikil meðferðarvinna með fjölskyldum og
handleiðsla. Nauðsynlegt er að viðkomandi
hafi reynslu af þessu sviði. Til greina kemur
að ráða starfsmann með aðra háskólamennt-
un á sviði uppeldis- eða sálarfræði.
Umsóknem ber að skila fyrir 1. október.
Nánari upplysingar gefur Helga Þórðardóttir,
félagsráðgjafi, í sima 678500.
LANDSPÍTALINN
Hjúkrunarfræðingar
dagvinna
í kjölfar skipulagsbreytinga á skurðdeild
Landspítala vantar okkur hjúkrunarfræðinga
til starfa á hausti komandi. Æskilegt er að
viðkomandi hafi lokið sérnámi í skurðhjúkr-
un. Að öðrum kosti er eins árs starfsreynsla
skilyrði. Skipulögð aðlögun og starfsþjálfun
er í boði í a.m.k. þrjá mánuði og tekið mið
af þörfum hvers og eins. Þeir, sem vilja kynna
sér þetta starf, frekar hafi samband við
Bergdísi Kristjánsdóttur eða Ástu B. Þor-
steinsdóttur, hjúkrunarframkvæmdastjóra, í
síma 601300 eða 601000.
Umsóknum fylgi upplýsingar um nám og fyrri
störf og berist skrifstofu hjúkrunarforstjóra.
Reykjavík, 2. september 1990.
LANDSPÍTALINN
Öldrunarlækningadeild v. Hátún
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á morg-
un- og kvöldvaktir. Eingöngu morgunvaktir
eða eingöngu kvöldvaktir koma einnig til
greina. Ráðningartími og vinnuhlutfall eftir
samkomulagi.
Hjúkrunarstjóri óskast til starfa nú þegar
v. afleysinga í 2 mánuði í 40-60% starfshlut-
fall. Um er að ræða eingöngu næturvaktir
frá kl. 23.00-09.00.
Aðstoðardeildarstjóri óskast til starfa,
80-100% starfshlutfall. Æskilegt að störf
gætu hafist sem fyrst.
Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir.
Einnig á næturvaktir eingöngu. Starfshlutfall
eftir samkomulagi.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir
Guðrún Karlsdóttir, hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, í síma 602266/601000.
Reykjavík 2. september 1990.