Morgunblaðið - 29.09.1990, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Sjálfstædisflokksins í Reykjavík
Leikhús og leik-
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum í vetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 29. september verða til viðtals Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar, í borg-
arráði, formaður stjórnar Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, og Jóna Gróa Sigurðardóttir, for-
maður atvinnumálanefndar, stjórn heilsugæslu miðbæjarumdæmis, menningarmálanefnd, bygg-
ingarnefnd aldraðra.
Sœvar Karl Ólason
SÆVAR KARL & SYNIR
húsgagnrýni
eftirSúsönnu
Svavarsdóttur
Eitthvert írafár virðist hafa
gripið um sig meðal leikhússfólks,
vegna gagnrýni minnar á sýningu
Þjóðleikhússins, „Örfá sæti laus.“
Á mig er deilt fyrir að rökstyðja
ekki gagnrýni mína, kveðið upp
úr með það að leikhúsfólk eigi
kröfu á að fá faglega umfjöllun
og einnig hef ég heyrt að sýningin
eigi að vera eins og hún er, gagn-
rýnendur hafi bara misskilið hana.
Þess hefur einnig yerið krafist að
ég biðji afsökunar og jafnvel hef
ég heyrt þær raddir að ég eigi að
víkja úr stöðu leiklistargagnrýn-
anda við Morgunblaðið.
I fyrsta lagi hef ég hvorki hugs-
að mér að víkja úr stöðunni né
biðjast afsökunar, því í gagnrýni
minni fólust eðlileg viðbrögð við
þeirri sýningu sem ég sá. Og hvern
ætti ég að biðja afsökunar? Höf-
undana? Eða leikarana?
Ég held það sé alveg ljóst, að
hvort sem ég bæði höfunda afsök-
unar eða viki úr stöðunni mundi
það ekki breyta sýningu Þjóðleik-
hússins — hún væri jafn ósamboð-
in því góða húsi'eftir sem áður.
Það er ekki í mínum verkahring
að biðja leikarana afsökunar, því
ekki skrifaði ég verkið. Leikarar
Snæ-
kóróna
Philadelphus
coronarius
Blóm vikunnar
Umsjón: Agústa Björnsdóttir
184. þáttur
Snækóróna er fínlegur hvít-
blómstrandi runni sem á heim-
kynni suður um Evrópu frá Ítalíu
allt til Kákasus og verður á heima-
slóðum um 3 metrar á hæð. Hún
er með elstu ræktuðum garðrunn-
um og heitin eftir konungi sem
uppi var 300 árum fýrir Krists
burð, síðara nafnið er dregið af
latneska orðinu corona = krans
eða sveigur og bendir til notkunar
plöntunnar í þá veru á öldum áð-
ur. Hér á landi er snækórónan
jafnan 1-2 m á hæð og getur orð-
ið æði bústin og mikil fyrirferðar
svo nauðsynlegt er að ætla henni
gott rými ef hún á að njóta sín
vel. Hún blómstrar nokkru eftir
mitt sumar. Leggirnir eru frekar
grannir og mikið greindir, grá-
brúnir að lit, laufið er frekar smá-
gert og ljóst, egglaga með nokkuð
áberandi æðastrengjum. Blómin
allstór koma mörg saman í klösum
og verður snækórónan, við góð
skilyrði, svo alþakin blómum að
því er líkast sem hvítum möttli
hafi verið steypt yfir hana. Blómin
ilma sætt og unaðslega en er hún
stundum nefnd ilmsnækóróna, og
fyrir kemur raunar að henni sé
ruglað saman við jasmínu, ein-
hveija þekktustu ilmjurt allrá
tíma.
Mjög miklar kynbætur hafa
verið gerðar á snækórónunni allt
frá síðustu aldamótum, aðallega í
Frakklandi, og einn þekktasti kyn-
blendingurinn þaðan er Phil. lem-
oinei „Mont Blanc“, sem mun hafa
gefist allvel hér á landi. Kynbætur
á henni hafa og verið gerðar við
landbúnaðarháskólann í Ási í Nor-
egi og þaðan er kominn kynblend-
ingurinn „Ás“ sem hefur spjarað
sig vel þar i landi og víðar um
Norðurlönd.
LAGERÚTSALA
HIÁ SÆVARIKARLI í DAG, 29. SEPT.
P.s. Verslanir okkar eru annars troðfullar af nýjum haust- og vetrarvörum.
Verðið er ótrúlegt.
Jakkaföt frá kr. 3.000
og kvenfatnaður á öðru
eins ótrúlegu verði.
Opiðfrá kl. 10-17.
Fyrstu 3 Burberrys
f rakkarnir ókeypis.