Morgunblaðið - 29.09.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990
35
Jimi Hendrix yngri
Fyrir stuttu var tuttugasta
ártíð gítarleikarans snjalla
Jimis Hendrix. Keppust menn
víða um heim við að lýsa kynnum
sínum af Hendrix eða tónlist
hans. Lítið var hinsvegar getið
um son Jimi Hendrix og alnafna,
sem alinn er upp í Svíþjóð og
hafði engin kynni af hinum
fræga föður sínum, sem lést þeg-
ar sonurinn var eins árs.
Jimi Hendrix yngri, sem er
21 árs, er afar líkur föður sínum
í útliti. Hann státar sig ekki af
faðerninu, vill reyndar vera kall-
aður Peter frekar en Jimi, og
ekki vita nema nánustu kunn-
ingjar hverra manna hann er.
Hann segir tuttugustu ártíðina
hafa verið eins og hvern annan
dag, utan að hann hafi þurft að
standa í ströngu við að neita
viðtölum við blaðamenn úr ýms-
um áttum. Hann féllst þó á að
veita Aftonbladet sænska viðtal,
sem hér er byggt á.
Ekki hefur faðernið fært Jimi
Hendrix yngri fúlgur, því þó
hann sé viðurkenndur einkason-
ur Hendrix, þá féll arfurinn, um
100 milljónir dala, í hendur föður
Jimis eldri (og afa þess yngri)
og er uppurinn í dag. Jimi segist
vinna sem sendill til að afla skot-
silfurs, en hann býr með móður
sinni í lítilli blokkaríbúð í Stokk-
hólmi.
Jimi yngri segist vera mú-
síkalskur, en hann hyggst ekki
leggja fýrir sig tónlistina, þó
hann viðurkenni að hafa verið
talinn liðtækur söngvari sem
táningur. Hann segist þó hlusta
mikið á tónlist, og þá helst nýja
popptónlist, en plötur Jimis eldri
segist hann hlusta á einnig, þó
ekki eins mjög og þegar hann
var yngri. Víst er að frægðin
freistar hans ekki, enda sannað-
ist rækilega á föður hans að sitt-
hvað er gæfa eða gjörvileiki.
Aftenposten/Stefan Holgersson
Jimi Hendrix yngri.
Reportagebild/Pár-Magnus Ström
ffclk f
fréttum
HJÓNABAND
Vill að símverðir
í Kreml þekki sig
Kazimiera Prunskiene, hinn 47 ára gamli
forsætisráðherra Litháens, hefur haft
í mörg horn að líta í seinni tíð, sérstaklega
þó eftir að Litháar ákváðu að segja skilið
við Moskvuvaldið. Kazimiera gaf sér þó tíma
frá stjómmálastörfum fyrir skömmu til að
gifta sig. Gekk hún að eiga æskuvin sinn
Algimantis Tarvidas, fimmtugan líffræðing.
Þrátt fyrir venjur um hið gagnstæða hefur
Kazimiera ekki í hyggju að taka sér ættar-
nafn eiginmannsins, því hún vill vera örugg
Kazimiera Prunskiene, um að konurnar á símanum hjá Gorbatsjov
hinn harðduglegi forsæt- séu ekki í neinum vafa um það hver sé að
isráðherra Litháens. hringja í hann.
Mulgrove t.h. ásamt Reyni Daníel Gunnarssyni skólast)ora Oldu-
selsskóla.
VINATENGSL
Tengir skóla og borgir
vinaböndum
Jim Mulgrove heitir Breti sem var
staddur hér á landi fyrir
skömmu til þess að skoða sjávarút-
vegssýninguna. Hann er formaður
skipulagsþróunardeildar borgar-
ráðsins í Hull City. Annað starf
hans er að efla tengsl Hull við
ýmsar valdar borgir og koma á vin-
áttuböndum milli skóla erlendis og
í Hull. Þegar Mulgrove var hér á
landi stofnaði hann til slíkra kynna
milli Olduselsskóla annars vegar og
Kingston High School og Tilbury
Primary School hins vegar.
Auk þess hefur Mulgrove komið
á tengslum Hull við ýmsar borgir,
svo sem Reykjavík, Rotterdam,
Raleigh í Norður-Karólínu, Free-
town í Sierra Leone og Port of
Niigava í Japan. Mulgrove hitti frú
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands, að máli er hann dvaldi hér-
lendis og lét hafa eftir sér að forset-
inn hefði lýst miklum áhuga á verk-
efnum sínum og hvatt sig til að
gefa hvergi eftir og halda strikinu.
Frumsýning í kvöld
Glettin saga um sálina hans
Jóns og Gullna liðið.
Sóngvarar:
Björgvin Halldórsson, Eva Ásrún Albertsdóttir,
Eyjólfur Kristjánsson, Karl Örvarson, Sigríður Bein-
teinsdóttir og Stefán Hilmarsson.
Jón Kjell-Seljeseth stjórnarsjö manna rokkhljóm-
sveit sem samanstendur af „Stjórninni" og fleirum.
Tólf manna trítilóður dansflokkur undir stjórn Hel-
enu Jónsdóttur danshöfundar stígur skrefí rétta átt.
Tónlistarstjórn: Björgvin Halldórsson.
Leikstjóri: Björn G. Björnsson.
Glæsilegur, níurétta matseðill.
Borðapantanir ísíma 687111.
Stóra sviðið:
UPPLYFTING
og Sigrún Eva Ármannsdóttir skemmta.
Flækingarnir og Anna Vilhjálms skemmta íÁsbyrgi.
Blúsmenn Andreu skemmta íCafé íslandi.
Snyrtilegur klæðnaður (gallaklæðnaður bannaður).