Morgunblaðið - 03.10.1990, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem meÖ heim-
sóknum, gjöfum og öörum innileik glödduö
mig á nírœÖisafmœli rrtínu þann 20. september
s/.
Björg Valdimarsdóttir.
Þakka öllum þeim, sem sýndu mér vinarhug
með kveðjum, gjöfum og blómum á nírœöis-
afmœli mínu 21. september sl.
Guð blessi ykkur öll.
Guörún Ólafsdóttir,
Seljahlíð.
Hjartansþakkir fceri égöllum þeim, sem minnt-
ust mín á sjötugsafmœlinu. Þakka kveðjur, gjaf-
ir og samfagnaÖ.
Vinátta ykkar snart mig djúpt.
Grímur Jónsson,
Lyngbergi 53,
Hafnarfirði.
Sendi œttingjum, vinum og félagasamtökum
hugheilar þakkir fyrir kveðjur, blóm og gjafir
á 85 ára afmœli mínu.
Fel ykkur góöum guði.
Jóna Vilhjálmsdóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig á 85 ára afmœli mínu 18. september.
GuÖ blessi ykkur öll.
Soffia Árnadóttir,
Furugerði 1.
# GÍTARSKÓLINN
Hólmaseli 4-6 (Tónskóli Eddu Borg), sími 73452
SÍMANÚMER
73452
Getum ennþá bætt við nemendum á eftirtalin nám-
skeið: byrjendur, blús og heavy metal.
Innritun oq upplýsinqar virka daga milli
kl. 13.30 og 19.00.
• 12 vikna námskeið
• Stúdíóupptaka í lok námskeiðs
• Bandaríski gítarleikarinn Cris Ambler
Kennarar:
Umhverfisslys
í Hafnarfirði
eftir Krisiján Bersa
Ólafsson
Margt er vel um skipulag og
útlit Hafnarfjarðarbæjar. En þó
hafa þar stundum orðið hörmuleg
umhverfisslys og byggingum verið
komið upp sem flestum ber saman
um eftir á að aldrei hefði átt að-
reisa. Frægasta dæmið er sjálfsagt
hús Dvergs hf. við Lækjargötu, en
raunar er „Kaupfélagsblokkin“
svonefnda í svokölluðum Norð-
urbæ engu skárri; hún skemmir
nefnilega þá fallegu mynd sem
annars gæti blasað við þegar horft
er af útsýnisstöðum, eíns og t.d.
Hamrinum, í norður- og vesturátt.
Nú sýnist mér að verið sé að
efna til nýrrar hörmungar á þessu
sviði. í blöðunum um síðustu helgi
birtust flennistórar auglýsingar
um húsnæði í nýju íbúðahverfi í
Hafnarfirði, á Fjárhúsholtinu suð-
austur af bæjarhúsunum á Set-
bergi. Þar virðast eiga að rísa röð
margra hæða fjölbýlishúsa efst
uppi á holtinu. Ef slík hús verða
byggð þar hlýtur það að breyta
verulega sjóndeildarhring þeirra
sem hingað til hafa fengið að hafa
holtið óspillt fyrir augunum — og
ekki síður hinna sem hafa iðulega
fengið sér útsýnisgöngu eftir holt-
inu endilöngu og fengið í friði að
njóta þeirra útsýnar sem nú er
verið að bjóða einstökum mönnum
til einkaafnota.
Það er svo mál út af fyrir sig
að þessari væntanlegu byggð virð-
ist hafa verið gefíð nafnið Set-
bergshlíð og það heiti skráð með
risastöfum á forljótt skilti sem
Öflug rykwgg!
VS91153
• Stillanlegur sogkraftur
(250- 1100 W).
• 4 fylgihlutir í inn-
byggðu hólfi.
• Fjórföld sýklasía í
útblæstri.
• Sjálfinndregin snúra
og hleðsluskynjari.
I* SIEMENS framleiðsla
tryggir endingu og gæði.
Verð kr.16.700,-
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
M
hefur verið sett upp í brekkunni.
Með þessari nafngift er verið að
flytja til örnefni, og ætti það at-
hæfí í rauninni að varða við lög,
eins og hver önnur fölsun. Set-
bergshlíð er nefnilega til í Set-
bergslandi, en hún er talsvert inn-
ar en Fjárhúsholtið; hún er ekki
einu sinni næsta holt við það, því
að á milli kemur Svínholt (og svona
innan sviga finnst mér að því náfni
hefði þá fremur átt að stela en
hinu; það hefði átt betur við).
Ég skal játa að mér líður svol-
ítið illa yfír því að þurfa að setjast
niður til að skrifa þetta. Ég hef
áður kvartað opinberlega út af
hafnfirskum skipulagsmálum, en
þá hef ég verið að tala máli stofn-
unar sem mér hefur verið trúað
fyrir að stjóma. Núna er ég að
tala einkalega (prívat), og ég er
alinn upp við það viðhorf að einka-
hagsmunir hljóti jafnan að víkja
fyrir almennum hagsmunum. Hins
vegar er ég ekkert viss um að
einkahagsmunir þeirra sem fá —
fyriÞ æma borgun væntanlega —
að horfa niður eftir holtinu til mín
séu neitt merkilegri en þeir einka-
hagsmunir mínir að fá að halda
áfram að horfa á þann sjóndeildar-
hring sem ég ólst upp við og hef
fengið að horfa á meginhluta
ævinnar.
Nú segja sjálfsagt skipulagsyfir-
völd í Hafnarfírði að þessi ráðgerða
byggð sé samkvæmt einhveiju
skipulagi sem einhvern tímann
hafí verið samþykkt og það borið
undir nágranna og hagsmunaaðila
á fundi, eins og lög gera ráð fyrir.
Ég dreg ekki í efa að það hafi
verið gert, en sá fundur hefur þá
farið fram hjá mér, enda sennilega
ekki verið ítarlega auglýstur frem-
ur en aðrir fundir sem skipulags-
yfírvöld bæjarins halda til þess eins
að fullnægja lagaboðum en ekki
til þess að taka mark á athuga-
semdum.
Og þá er komið að lokakafla
þessara umkvartana. Enn er það
Hjólsagarblöð
þau endast!
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 -REYKJAVÍK - SlMI 687222 -TELEFAX 687295
Kristján Bersi Ólafsson
„Ég er alinn upp við það
viðhorf að einkahags-
munir hljóti jafnan að
víkja fýrir almennum
hagsmunum.“
útsýnið úr glugganum mínum sem
málið snýst um. Hér beint á móti,
hinum megin við Lækinn, er nú
verið að byggja sambýlishús, ekk-
ert ósnoturt hús í sjálfu sér, á lóð
sem Steinullarverksmiðjan stóð á
forðum. Hús þeirrar verksmiðju
voru engin augnaprýði og er ekk-
ert við því að segja að þau væru
rifin og önnur hús reist á lóðinni.
Fyrir nokkrum árum voru komnar
upp hugmyndir um slíkt og teikn-
ingar lagðar fyrir tilhlýðilegar
nefndir og í framhaldi af því hald-
inn sérstakur fundur í Hafnarborg
— menningarmiðstöð Hafnfirðinga
— til að kynna teikningu af hús-
GoldStar símkerfin
eru hvarvetna viður-
kennd fyrir gæði og
hugvitsamlega
hönnun.
• Ótal möguleikar fyrir
allar stærðir fyrirtækja.
•'Vönduö uppsetning og
forritun. 100% þjónusta.
• Tugir ánægðra notenda.
• Síöast en ekki síst:
Frábært verö.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Ath! GoldStar síminn
m/símsvara á kr.9.952.-