Morgunblaðið - 03.10.1990, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTOBER 1990
^ Gvendi Annst aiþeirzettu
7hugc< þaé s/eppct fdeinum mánn-
verum aftur út i £>fóg -"
... þegar hann hefur ekki
orð á því hvað hún hefur
fitnað.
TM Rag. U.S. Pai Off.—all rights reserved
° 1990 Los Angeles Times Syndicate
Ékki fleiri verðlista ...
Ég- held að konan hans sé
komin heim af kvennaráð-
stefnunni . . .
Þessir hringdu ...
Sölumiðstöðin borgi
Guðmundur hringdi:
„Ég hef verið að velta því fyrir
mér hvers vegna Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, sem græðir
svo mikið, er ekki iátin aðstoða
fyrstihús sem ganga illa. Af
hverju á fólkið alltaf að borga?
Það er verið að taka erlend ián
til að bjarga frystihúsum en ég
tel miklu eðlilegra að Sölumið-
stöðin myndi taka á sig að styrkja
þau.“
Takmörkuð trygging
Ferðalangur hringdi:
„Ég fór í utanlandsferð ásamt
fjölskyldu minni fyrir nokkru og
greiddum við helming fargjaldsins
með Vísa til þess að fá ferðatrygg-
inguna sem þeir bjóða uppá. Af-
greiðlumaðurinn sagði: Nú eru þið
tryggð í bak og fyrir, og héldum
við einnig að svo væri. I ferðinni
urðum við fyrir smá óhappi er son-
ur okkar fór úr axlarlið og varð
þess vegna óvinnufær í þrjár vikur
eftir að heim var komið. Við framví-
suðum læknisvottorði en þá kom í
ljós að tryggingin nær aðeins yfír
hjúkrunarkosnað ef maður slasast
erlendis og hún nær alls ekki yfir
farangur. Kaupa verður viðauka-
tryggingu til að vera fulltryggður.
Margir standa hins vegar í þeirri
trú að tryggingarnar sem Vísa býð-
ur séu fullkomnar tryggingar, enda
ekki annað að skilja á auglýsingun-
um.“
Hjól
Hvítt BMX-hjól var tekið í Blika-
hóium 4 hinn 26. september og er
þess sárt saknað. Vinsamlegast
hringið í síma 74485 ef það hefur
einhvers staðar komið fram.
Góð þjónusta
Einar S. Jónsson hringdi:
„Ég og nokkrir kunningjar mínir
höfum þurft að hafa tölvert mikil
viðskipti við Bflabúð Benna og hafa
það verið sérpantanir á ýmsum
varahlutum. Vil ég koma á fram-
færi sérstöku þakklæti fyrir þjón-
ustuna þarna. Þeir sýna alveg sér-
staka lipurð við sérpantanir og þjón-
ustan er tiltöluiega ódýr.“
Hvers vegna greiðslukort
Auðun Bragi hringdi:
„í auglýsingum frá Ríkisútvarp-
inu er verið að hvetja fólk til að
greiða afnotagjöld með greiðslu-
kortum. Er ekki nóg að áminna
fólk um að greiða afnotagjöldin?
Er það tilgangurinn að fá sem flesta
til að nota greiðslukort? Ég kæri
mig ekkert um þessi greiðslukort
og kemst vel af án þeirra.“
Páfagaukur
Páfagaukur í óskilum. Upplýs-
ingar í síma 610791.
Betri fern-
ur utan höf-
uðborgar-
svæðisins
Til Velvakanda.
Mjólkursamsalan starfar undir
þessu nafni víða um landið og setur
m.a. nýmjóik og urídanrennu á
markaðinn í pappafernum. Ein-
hverra hluta vegna eru fernurnar
sem seldar eru utan höfuðborgar-
svæðisins, þessar til hægri á mynd-
inni, miklu betri.
Það vill svo til, að alls staðar
erlendis þar sem samkeppni ræður,
eru svona lagaðar hyrnur á mark-
aðnum og það er einfaldlega vegna
þess, að þær rúmast betur í ísskáp-
um, það er miklu betra að opna og
loka þeim og síðast en ekki síst,
þá sóðast ekki niður í hvert skipti
sem maður hellir úr þeim, eins og
þeim sem höfuðborgarsvæðinu eru
skammtaðar og sjá má vinstra
megifí á myndinni.
Því spyr ég viðkomandi aðila hjá
Mjólkursamsölunni: 1. Hefur eng-
inn kvartað við ykkur yfir þessu
áður? 2. Ef svo er, hversvegna er
ekkert gert í málinu? 3. Getum við
hár á SV-horninu fengið þessar
landsbyggðarhyrnur keyptar hér?
Mjólkurþambari
Orð í eyra Sverris Storm-
skers og Leifs Reynissonar
Til Velvakanda
í Morgunblaðinu 13. sept. sl.
skrifa“Sverrir Stormsker og Leifur
Reynisson opið bréf til Áma Helga-
sonar. Þar finna þeir hvöt hjá sér
að gagnrýna skoðanir hugsjóna-
mannsins Árna Helgasonar. Þeir
spyrja Árna: Hefurðu heyrt þessa
vísu Árni minn?
Lastaranum líka ei neitt
lætur hann ganga róginn.
Finni hann iaufblað fölnað eitt
þá fordæmir hann skóginn.
Nú vil ég spyija þá Sverri og
Leif hvort þeir hafi heyrt þessa vísu
sem Árni Helgason gerði fyrir 35
árum:
Hófdrykkja er heldur flá
henni er valt að þjóna.
Hún er bara byijun á
að breyta manni í róna.
Árni Helgason hefur í mörg ár
varað konur og menn við skaðsemi
víns og mun hann halda því áfram
þrátt fyrir steinkast.
Nú vil ég biðja Sverri og Leif að
lesa neðanskráð orð.
Þegar ofdrykkjumaðurinn situr á
ölstofu þá leggur hann þar inn:
1. Peninga sína og tapar þeim.
2. Tíma sinn og tapar honum.
3. Sjálfsstjórn sína og tapar henni.
4. Heimilisánægju og tapar henni.
5. Farsæld konu sinnar og barna
og tapar henni.
Ekki er þessi viðskiptastaður
góður þar sem alls staðar er tap
en aldrei vinningur.
Garði 30. sept. 1990, Njáll
Benediktsson.
HÖGNI HREKKVÍSI
,,HeR. BIZTO AUsruœLEMStrAN
STAÐA iaTÍ M.A . .. KLeTTATVALLATÍM A • • •
K.YRÆAH AFSTi'/WA- •
Víkverji skrifar
Umræður hafa orðið um það,
hvers vegna Morgunblaðið
noti ritháttinn íraskur en ekki
írakskur eins og sumum finnst rétt.
Hefur verið hringt til blaðsins að
þessu tilefni og sagt, að þarna sé
um villu að ræða og á förnum vegi
hafa lesendur rætt málið við blaða-
menn.
Ekki er unnt að kveða svo fast
að orði að annar hvor rithátturinn
sé rangur en að mati Víkveija styðst
það við sterkari rök að rita íraskur
en írakskur og nægir að vitna til
tveggja nærtækra fordæma. Við
ritum reykvískur en ekki reyk-
víkskur og við ritum bandarískur
en ekki bandankskur. 1 báðum til-
vikum hefur verið fellt niður k sem
er hljóðlaust í framburði.
xxx
Víkveiji hefur oftar en einu sinni
gert aðkomuna að Reykjavík
um Öskjuhlíðina að umtalsefni. Er
stöðugt unnið að frágangi á þessu
svæði eftir hinar miklu fram-
kvæmdir við Bústaðaveginn. Hefur
því verkið miðað vel og nú er að
kappi unnið að vegagerð að Perl-
unni, sem stendur efst á hæðinni.
Vegna hreinleika hennar og fegurð-
ar í holtinu sjálfu er mikilvægt að
vel verði að þessu öllu staðið og í
samræmi við nútímakröfur um virð-
ingu fyrir umhverfinu.
Athygli Víkveija hefur verið vak-
in á því, að það stingi dálítið í stúf
við annað sem þarna er að gerast,
hve tafsamt það virðist vera að
ljúka við byggingar á athafnasvæði
Landleiða við Bústaðaveg. Þar blasi
auk þess langferðabflar, sem hafa
verið teknir úr notkun, eða jafnvel
bílhræ við augum vegfarenda.
Víkverja sýnist unnið að endurbót-
um á Landleiðasvæðinu. í sömu
andrá er astæða til að vekja at-
hygli á hve Valsmenn standa mynd-
arlega að öllu á íþróttasvæði sínu
við Hlíðarenda.
xxx
Viðskiptavinur fríhafnarinnar í
Leifsstöð hringdi í Víkveija á
dögunum og kvartaði undan því,
hve erfitt væri að fá upplýsingar í
gegnum síma í fríhöfninni um verð
á varningi hennar eða aðra þjón-
ustu sem þar væri veitt.
Sagði viðmælandi Víkveija, að
hann hefði hringt þangað þrisvar
sinnum sama daginn í því skyni að
fá upplýsingar, sem hann taldi
liggja á lausu hjá afgreiðslufólki,
en alltaf fengið þau svör, að hann
yrði að hringja síðar. Flestir versl-
unarmenn hafa líklega einfalda
skýringu á þessari upplýsinga-
tregðu starfsmanna í fríhöfninni
eða áhugaleysi á að greiða sam-
stundis úr vanda viðskiptavinarins:
hér er um einokunarfyrirtæki að
ræða.
Víkveiji heyrði einu sinni þá
sögu, að ekki væri unnt að fá
ákveðna tegund af sherrýi í fríhöfn-
inni af því að það seldist svo mikið
af henni! Gerðist það ekki um tíma,
að ríkið ákvað að hætta að selja
bjór í fríhöfninni, af því að það seld-
ist svo mikið af honum? Menn þurfa
ekki að fara til kommúnistaríkjanna
fyrrverandi til að kynnast afleiðing-
um ríkiseinokunarinnar. Þær eru
alls staðar hinar sömu.