Morgunblaðið - 03.10.1990, Síða 50
-so
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTOBER 1990
W'S
ÍSLENSKI HANDBOLTINN
4. UMFERÐ
03.10. Valur-Fram
Kl. 18:30
íþróttahúsið Hlíðarenda
03.10. Stjarnan-Selfoss
Kl. 20:00
íþróttahúsið Ásgarði, Garðabæ
03.10. K,R-Grótta
Kl. 20:00
Laugardalshöll
03.10. Haukar-IR
Kl. 20:00
íþróttahúsið Strandgötu, Hafn.
03.10. IBV-KA
Kl. 20:00 .
íþróttahús Vestmannaeyja
04.10. Víkingur-FH
Kl. 20:00
Laugardalshöll
5. UMFERÐ
06.10. Fram-Stjarnan
Kl. 16:30
Laugardalshöll
06.10. Selfoss-Víkingur
Kl. 16:30
Iþróttahúsið Selfossi
06.10. IR-IBV
Kl. 16:30
íþróttahús Seljaskóla
06.10. Grótta-Haukar
Kl. 16:30
Iþróttahúsið Seltjarnarnesi
06.10. Valur-KA
Kl. 16:30
Iþróttahúsið Hlíðarenda
07.10. FH-KR
Kl. 20:00
íþróttahúsið Kaplakrika
VÁTRVfifJNGAFÉLAe ÍSL4NDS HF
X
HANDKNATTLEIKUR
Alfreðí
heimsliðið
Leikið í Svíþjóð og Noregi
Alfreð Gíslason, Jan Kállmann og Magnus Wis-
lander eru einu Norðurlandabúamir, sem valdir
voru í heimsliðið í handknattleik vegna t-veggja leikja
gegn Norðurlandaúrvalinu í byrjun næsta árs. 8. jan-
úar verður leikið í Stokkhólmi í tilefni 60 ára af-
mælis sænska handknattleikssambandsins og daginn
eftir í Osló.
15 leikmenn voru valdir í heimsliðið: Markverðirnir
Lorenzo Rico Diaz, Spáni, og Mirko Basic, Júgó-
slavíu; hægri hornamennirnir Jochen Fraatz, Þýska-
landi, og Alexander Karsakíewíc, Sovétríkjunum;
vinstri hornamennirnir Mihaly Ivancsik, Ungverjal-
andi, og Jae Won Kang, Suður-Kóreu; línumennirnir
Jaime Puig, Spáni, og Ioan Mocanu, Rúmeníu; rétt-
hentu skytturnar Alfreð Gíslason, íslandi, og Frank-
Michael Wahl, Þýskalandi,; örfhentu skytturnar Alex-
ander Tútsjkín, Sovétríkjunum, og Marian Dimitru,
Rúmeníu; og leikstjórnendumir Zbigniev Tzuczynski,
Póllandi, Magnus Wislander, Svíþjóð, og Jan Káll-
mann, Finnlandi.
Alfreð er fjórði íslendingurinn sem valinn er í heims-
liðið í handknattleik. Hinir eru Gunnlaugur Hjálmars-
son eftir HM 1961, Sigurður Gunnarsson eftir OL
1984 og Þorgils Ottar Mathiesen eftir B-keppnina
1989, en hann er sá eini, sem hefur leikið með liðinu
— hinir komust ekki, þegar til kom.
Evrópukeppni meistaraliða:
Proleter Zrenjanik, Júgóslavíu - SC Pogon Zabrez, Póllandi
Dinamo Astrakhan, Sovétríkjunum - Grasshoppers, Sviss
Cividin Pallam. Triest, Ítalíu - Steaua Búkarest, Rúmeníu
Drott, Svíþjóð - Stavenger, Noregi
Benfica, Portúgal - US Nimes, Frakklandi
Grosswallstadt, Þýskalandi - Dukla Prag, Tékkóslóvakíu
Sittardia, Hollandi - Barcelona, Spáni_
Biskúileri Eskisehir, Tyrklandi - FH, Islandi
Evrópukeppni bikarhafa:
Girondins de Bordeaux, Frakklandi - Bidasoa, Spáni
Magdeburg, Þýskalandi - Teka, Spáni
Vogel-Pumpen, Austurríki - Karvina, Tékkóslóvakíu
Medveszak Zagrep, Júgóslavíu - Haðoel Ramat-Gan, ísrael
SKA Minsk, Sovétríkjunum - Vaev-Bramac Veszprem, Ungveijalandi
Hermes Den Haag, Hollandi - Milbertshofen, Þýskalandi
Sandefjord, Noregi - Dinamo Bukarest, Rúmeníu
Halk Bankasi Ankara, Tyrklandi - Saab, Svíþjóð
IHF-keppninni:
Redbergslid, Svíþjóð - Benissieux Lyon, Frakklandi
Arcelik SC Istanbúl, Tyrklandi - Bratislava, Tékkóslóvakíu
Essen, Þýskalandi - Baja Mare, Rúmeníu
Helsingör, Danmörku - CSKA Moskva, Sovétríkjunum
Porto, Portúgal - Atletico Madrid, Spáni
Borac Banjaluka, Júgóslavíu - Herstal, Belgíu
Empor Rostock, Þýskalandi - Waalwikk, Hollandi
Krasnodar, Sovétríkjunum - Volksbank Vín, Austurríki
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Óbreyttur hópur
til Spánar
Islenska landsliðið mætir því
spænska í Sevilla eftir viku í
forkeppni Evrópumótsins. Bo Jo-
hansson, landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu, valdi sömu 16 leikmennina
og fyrir leikinn gegn Tékkum í
síðustu viku. Þorri leikmanna fer
héðan á föstudagsmorgun í beinu
ieiguflugi til Malaga, Guðni Bergs-
son, Sigurður Jónsson og Sigurður
Grétarsson leika með félagsliðum
sínum á laugardag og koma til
Spánar á sunnudag og Olafur Þórð-
arson, sem leikur með Brann á
sunnudag, kemur til liðs við hópinn
seinni partinn á mánudag.
Eftirtaldir leikmenn fara því að
öllu óbreyttu tii Spánar:
Bjarni Sigurðsson Val, Birkir
Kristinsson Fram, Atli Eðvaldsson
KR, Guðni Bergsson Tottenham,
Sævar Jónsson Val, Þorgrímur Þrá-
insson Val, Ólafur Þórðarson
Brann, Sigurður Jónsson Arsenal,
Rúnar Kristinsson KR, Pétur
Ormslev Fram, Kristján Jónsson
Fram, Sigurður Grétarsson Gras-
hoppers, Arnór Guðjohnsen And-
erlecht, Ragnar Margeirsson KR,
Pétur Pétursson KR, og Anthony
Karl Gregory Val.
íslandsmótið íhandbolta
VflLUR - FRAHI
á Hlíðarenda í kvöld kl. 18.30.
Valurer
IBESTAI
liðið.
Egill
Amasonhf
PARKEI
Alfreð Gíslason leikur með heimsliðinu í Stokkhólmi
og Osló - í byijun janúar.
Evrópukeppnin:
FH-ingar til
Tyrklands
Framstúlkurnarfá norsku
^ meistarana Byasen
Islandsmeistarar FH drógust gegn tyrkneska
liðinu ETI Biskúileri Eskisehnir í 16-liða
úrslitum Evrópukeppni meistaraliða og þurfa
FH-ingar að leika fyrri leikinn í Tyrklandi.
Tyrkneska liðið sló Hapoei Rishon frá ísrael út
í fyrstu umferð.
Framstúlkurnar mæta norska liðinu Byasen
í Evrópukeppni meistaraliða og leika fyrst í
Noregi. Norsta liðið er talið eitt af sterkustu
félagsliðum Evrópu og sat liðið yfir í 1. umferð.
Alfreð Gíslason leikur rneð Bidasoa gegn
Bordeaux í Evrópukeppni bikarhafa og Teka,
sem Kristján Arason leikur með, mætir Magde-
burg. Sigurður Sveinsson leikur með Atletico
Madrid gegn Portó í IHF-keppninni.
tofÓOK
FOLK
■ í FYRRI leik Fram og
Djurgárden fengu ijorir Svíar
gult spjald fyrir grófan leik. Engu
að síður var í flestum sænsku blöð-
unum talað um mjög grófan leik
íslenska liðsins, en lítið gert úr brot-
um Svíanna. Tónninn fyrir leikinn
í dag virðist vera sá að Djurgárden
verði að leika að mikilli hörku og
sækja að krafti.
■ TAP Djurgárden gegn Fram
var reiðarslag fyrir sænska knatt-
spyrnu, enda hefur hún verið álitin
heldur betri en sú íslenska. Önnur
úrslit á Evrópumótunum voru ekki
til að bæta úr skák. Norrköping
gerði jafntefli gegn Köln á heima-
velli, 0:0, GAIS tapaði fyrri
Torpedo Moskvu, 4:1, á útivelli
og Malmö FF sigraði Besiktas Ist-
anbul naumlega á heimavelli, 3:2.
■ OG þnð var ekki til að létta
lund Svía er Fram sigraði Polizen
í Evrópukeppni meistaraliða kvenna
í handknattleik. Tvö töp fyrir
íslenskum liðum á tveimur vikum
er full mikið af því góða að mati
Svía.
■ DOMARI leiksins í dag kemur
frá Finnlandi og vekur það nokkra
athygli, enda Finnar grannar Svía
og heppilegra hefði verið að finna
dómara utan Norðurlandanna.