Morgunblaðið - 03.10.1990, Síða 52
PC MAGAZINE UM ÍBM C éjSfof iorrtiitihfahiíi KringlanS'jÉgkgfr, bnni s&Mmm m 692500 ilMrl
„ÞETTA ER simE1L.iviennar
FRAMTÍÐIN"
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTOBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Dræm veiðiígóða veðrinu
Morgnnblaðið/Árni Sæberg
Það var heldur dauft hljóðið í trillukörlum á Faxaflóanum í gær, því I 600 kíló að landi á mánudag, en í gær veiddust örfáir ýsutittir og
þeir höfðu lítið fengið. Bjargfugl RE 55, sem er í forgrunni, kom með I koli. Brandur RE 99 hafði einnig lítið upp úr krafsinu.
Samanburður á lífskjörum og lífsháttum á Norðurlöndunum:
íslendingar hafa meira fyrir
lífsgæðunum en nágrannarnir
Nýtt álver:
Orkuverð-
ið liggur
ekkifyrir
- segir Páll Pét-
ursson
PÁLL Pétursson formaður
þirigflokks Framsóknarflokks-
ins segir að engin endanleg
ákvörðun liggi fyrir um eitt eða
neitt varðandi álsamningana
utan að Atlantsálshópurinn vilji
aðeins reisa álverið á Keilis-
nesi. Hann segir að á þing-
flokksfundi Framsóknarflokks-
ins í gær hafi komið fram alvar-
legar athugasemdir við flesta
þætti málsins.
„Þetta er ekki komið á þann
rekspöl að hægt sé að skrifa undir
eitt eða neitt. Það liggur ekki fyr-
ir endanleg ákvörðun um neitt
nema staðarval, en það liggur fyr-
ir fullyrðing um að þeir vilji ekki
vera annars staðar en á Keilis-
^jiesi. Þá þarf að taka afstöðu til
þess hvort við samþykkjum það
eða ekki. En raforkuverðið er laust
og stjórn Landsvirkjunar hefur
ekki fjallað um raforkusamning-
inn, þótt drög að honum hafi verið
kynnt henni. Skattamálin eru óráð-
in og umhverfismálin sömuleiðis,"
sagði Páll.
Hann sagðist vilja taka það
skýrt fram að iðnaðarráðherra
myndi á fimmtudag ekki skrifa
undir bindandi samning um álver,
heldur frekar viljayfirlýsingu um
að kanna hvort grundvöllur sé fyr-
ir samningi. „Það er nánast ekkert
annað en að iðnaðarráðherra lýsir
þarna vilja sínum til að byggja
-slver á Keilisnesi og skrifar undir
eitthvað prívatbréf eða fundargerð.
Ég veit ekki hvort það er liður í
því að hann er að leita sér að kjör-
dæmi, en þetta eru vinnubrögð sem
ekki er beint hægt að taka alvar-
lega,“ sagði Páll.
Páll Pétursson situr einnig í
stjórn Landsvirkjunar. Hann sagði
að boðað hefði verið til fundar þar
á fimmtudag og hann sagðist gera
ráð fyrir að þar verði orku-
sölusamningurinn tekinn til byij-
unarumræðu.
ÞJÓÐARTEKJUR á mann eru
með hæsta móti á Islandi, miðað
við Danmörku, Svíþjóð, Noreg
og Finnland. Hins vegar þurfa
Islendingar að hafa meira fyrir
því að ná sambærilegum lífskjör-
um og nágrannaþjóðirnar.
Grunnkaup er Iægst á Islandi,
en með mikilli atvinnuþátttöku
og löngum vinnutíma tekst ís-
lendingum að nokkru að jafna
metin í tekjum einstaklinga og
fjölskyldna. Á móti vegur að
. skattar eru lægstir á Islandi, sem
gerir ráðstöfunartekjur fjöl-
skyldna hér sambærilegar við
það sem er í hinum löndunum.
Þetta kemur fram í nýju riti eft-
ir dr. Stefán Ólafsson, þar sem
borin eru saman lífskjör og lífshætt-
ir á Norðurlöndunum. Þar segir
einnig, að tiltölulegar háar ráðstöf-
unartekjur endurspeglist í mikilli
einkaneyslu á íslandi. Útgjöld
vegna einkaneyslu eru þegar á
heildina er litið hátt hlutfall af þjóð-
artekjum hér á landi. íslendingar
eiga mikið af sumum tegundum
varanlegs neysluvarnings, til dæmis
fólksbifreiðum og ýmsum húsbún-
aði, en sumarhúsaeign er meiri í
Svíþjóð og Noregi en hér á landi.
Algengara er einnig að Finnar eigi
sumarhús en íslendingar, en hins
vegar eiga þeir miklu sjaldnar ýms-
an annan þann varning, sem íslend-
ingar eiga í miklum mæli á heimil-
um sínum. „Því má segja, að þótt
grunnkaup sé lægst á íslandi, þá
takist íslendingum að skipa sér á
bekk með hinum þjóðunum á Norð-
urlöndum í eignarhaldi á ýmsum
efnalegum gæðum,“ segir í bókinni.
Þá kemur einnig fram, að hús-
næðisaðstæður Islendinga eru með
því besta sem þekkist á Norðurlönd-
unum, svipaðar og í Svíþjóð. Norð-
menn og Danir búa einnig vel, en
á heildina litið virðast íslendingar
standa þeim framar hvað húsrými
og húsbúnað snertir. Stefán bendir
á, að þessi útkoma sé sérstaklega
athyglisverð fyrir þær sakir, að hér
á landi hafi sjálfsbjargarstefna ver-
ið veigameiri þáttur í húsnæðisöflun
en í hinum löndunum.
„Það virðist eitthvað losaraleg
rannsókn hafa legið að baki fullyrð-
inga um 450 milljóna króna tap ríkis-
sjóðs á hækkuninni," sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, en VMSÍ
óskaði eftir fundi með ráðherrunum
til að ítreka kröfur sem það hefur
gert um að tekjur ríkisins ykjust
ekki í kjölfar olíuverðshækkana. Að
sögn Guðmundar kom fram hjá ráð-
herrunum að verðlagsráðsákvörðun
í ritinu kemur einnig fram, að
íslendingar hafa haft minna at-
vinnuleysi á undanförnum áratug-
um en hinar þjóðirnar, en vegna
mikillar vinnu er tómstundastarf
hér minna. Öryggi er hér meira
gegn afbrotum og árásum af hendi
samborgaranna, menntunarstig er
hátt og heilsufar með því besta sem
þekkist í heiminum.
um nýtt bensínverð yrði fresfað þar
til niðurstaða könnunar lægi fyrir
og ríkissjóður hygðist ekki auka
tekjur sínar með aukinni skatt-
heimtu í kjölfar olíuverðshækkunar.
Ekki væri útilokað að hlutfall gjalda
til ríkissjóðs af olíu- og bensínverði
yrði óbreytt að krónutölu ef nákvæm
athugun leiddi í Ijós að til þess væri
svigrúm. Hins vegar kallaði slíkt á
lagabreytingar.
Veittist að manni o g
stakk hann með hnífi
Keflavík.
NORSKUR þyrluflugniaður var stunginn með hnífi af Austurríkis-
manni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi. Maðurinn var fluttur í sjúkrahúsið í Keflavík þar sem
hann gekkst undir aðgerð í nótt og mun hann ekki í lífshættu.
Hinn maðurinn er í haldi hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli.
Mennirnir voru að koma frá
Grænlandi með Flugleiðavél og
var ferðinni heitið til Danmerk-
ur. Stungumaðurinn olli ónæði í
vélinni á leiðinni frá Grænlandi
og þá sérstaklega þyrluflug-
manninum. Flugstjórinn óskaði
eftir að lögregla fylgdist með
manninum á meðan höfð yrði
viðkoma í Keflavík. Tveir vopn-
aðir lögreglumenn fylgdust með
honum, en þegar farþegar voru
á Ieið um borð í vélina aftur gekk
hann skyndilega að Norðmannin-
um og stakk hann í magann.
Að sögn Óskars Þórmundsson-
ar yfirlögregluþjóns rannsóknar-
Iögreglunnar á Kefíavíkurflug-
velli var í gær lítið vitað um
ástæðu árásarinnar. Stungumað-
urinn mun hafa dvalið hér á landi
um tíma en haldið til Grænlands
fyrir nokkru og er talið að menn-
irnir hafi ekki þekkst. Hnífurinn,
sem talið er að hann hafi komist
með í gegnum vopnaleit á Græn-
landi, var með um 6 cm blaði.
-BB
Olíuverð:
Ráðherrar lofa VMSÍ að
kanna áhrif hækkana
FORSÆTIS-, iðnaðar- og fjármálaráðherrar lýstu því yfir á fundi
með forsvarsmönnum Verkamannasambands Islands í gærmorgun,
að sögn Guðmundar J. Guðinundssonar formanns Verkamannasam-
bands Islands, að áhrif af óbreyttri skattheimtu á olíu og bensín í
kjölfar olíuverðshækkana væru ekki að fullu könnuð og lýstu ráðherr-
arnir því yfir að ríkissljórnin inundi láta kanna málið ofan í kjölinn
næstu daga og gera verkamannasambandinu grein fyrir niðurstöðum.