Morgunblaðið - 06.10.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
Vinnuvélaeigendur hjá Reykjavíkurborg:
Mótmæla árangurs-
lausum viðræðum
VINNUVÉLAEIGENDUR í þjónustu Reykjavíkurborg'ar efndu til
mótmæla í gærmorgun fyrir framan skrifstofur borgarverkfræð-
ings í Borgartúni. Alls voru þar um 30 vinnuvélar og eigendur
þeirra en þeir mótmæltu árangurslausum samningaviðræðum við
borgaryfirvöld. Að sögn Hersis Oddsonar, forstjóra Vélamiðstöðvar
Reykjavíkurborgar krefjast þeir 38% hækkunar á taxta fyrir vinnu-
vélar sínar.
Ágúst Lúðvíksson, talsmaður
vinnuvélaeigenda, sagði að við-
ræðunefnd á vegum borgarinnar
hefði tekið illa í kröfur vinnuvéla-
eigenda og jafnvel misboðið þeim
með því að mæta ekki á samninga-
fundi. „Þetta vandamál má eigin-
lega rekja til ársins 1985 þegar
yerðlagning á þessari þjónustu var
gefin fijáls. Síðan hefur forstjóri
Vélamiðstöðvar í umboði borgar-
yfirvalda tekið sér vald verðlags-
stjóra í hendur og ákveðið okkar
taxta sjálfur. Taxtinn er nú 1.360
kr. á klukkustund en síðan gefur
hann sjálfum sér 10% afslátt af
sínum eigin útreikningum. Þessu
mótmælum við,“ sagði Ágúst.
Ágúst sagði að Félag vinnuvéla-
eigenda gæfí út rekstrarkostnað-
arskrá og samkvæmt þeirri skrá
væri rekstrarkostnaður fyrir slíkar
vélar 2.012 kr. á tímann. Jafn-
framt hefðu vinnuvélaeigendur
fengið rekstrarráðgjafarfyrirtækið
Hagvang til að reikna út rekstrar-
kostnað vinnuvéla og niðurstaðan
hefði verið mjög svipuð og fram
kemur í skrá Félags vinnuvélaeig-
enda. Vinnuvélaeigendur hefðu
boðið borginni 15% afslátt af þess-
um taxta en því ekki verið tekið.
Hersir Oddsson, forstjóri Véla-
miðstöðvarinnar sagði að ágrein-
Vinnuvélaeigendur mótmæla fyrir utan skrifstofur borgarstjórnar í gær.
ingurinn fælist fyrst og fremst í
útreikningi á nýtingartíma vél-
anna. „Þeir reikna sína taxta út
frá því að nýtingartíminn sé 1.600
klukkustundir á ári en athuganir
okkar sína að viðskipti okkar við
þá flesta eru um 2.300 klukku-
stundir á ári. Einnig er samanburð-
ur við vélavísitölu sem Hagstofan
reiknar út fyrir Vegagerðina og
Verktakasambandið 3,7% hærri
vinnuvélaeigendum í þjónustu
borgarinnar í hag. Þá hefur kaup-
liður gröfumanna verið hækkaður
um 15% frá því í mars 1988 með
greiðslu flokkstjóraálags,“ sagði
Hersir. Hann sagði hækkunar-
beiðni vinnuvélaeigenda ekki for-
svaranlega og Vélamiðstöðin hefði
því ekki boðið þeim neitt á móti.
VEÐUR
Hvammstangi:
VEÐURHORFUR í DAG, 6. OKTÓBER
YFIRLIT í GÆR: Milli Jan Mayen og N-Noregs er 974ra mb lægð
á hreyfingu norðaustur en 990 mb lægð um 200 km suöur af Vest-
mannaeyjum þokast austur og grynnist. Á morgun myndast hæðar-
hryggur fyrir vestan landiö.
SPÁ: Norðlæg átt, víðast goia en kaldi við norðausturströndina.
Dálítil él við norðausturströndina en annars þurrt og vfða bjart
veður um landið sunnanvert. Hiti 0-3 stig norðanlands en allt að
8 stigum á Suðausturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hægt suðvestlæg átt með súlöl
um sunnanvert iandið en þurrt og bjart veður norðaustantil. Hlýn-
andí veður.
HORFUR Á MÁNUDAG: Sunnan- og suðvestanótt, viða ookkuð
stíf. Þurrt á Norðaustur- og Austurlandi en rigning í öðrum lands-
hlutum. Hiti 5-10 stig.
TAKN:
Heiðskírt
_____'4
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
\ Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
V Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 ígæraðísL tíma
hhi veður
Akureyri 0 skýjað
Beykiavik 7 heiðskírt
Algarve 28 fóttskýjað
Ameterdam ll4l rigning
Barcelona 14 heiftskirt
Berlín 16 skýjaft
Chicago 13 skýjaft
Feneyjar 14 rigning
Frankfurt liil skýjaö.
Qlasgow 15 skilrá sfÓ.kist.
Hamborg 13 skýjaft
LaaPalmas vantar
London 16 rlgning
tosAngeles 18 heiftskfrt
Uixemborg 13 skýjaft
Madrid 20 heiftskírt
Maiaga 24 skýjað
Mailorca vantar
Montreal 1 vantar
NewYork vantar
Orlando 24 þokumófta
París 18 skýjaft
Róm 24 hálfskýjaft
Vfn 13 afskýjaft
Washington vantar
Winnipeg 4 skúr
Helsinki
Kaupmannahöfn
Narssarssuaq
Nuuk t
Osló 10
Stokkhólmur 12
Þórshöfn 8
vantar
10 skýjað
13 '
Bjarni Þór Einarsson
ráðinn sveitarsljóri
Hvammstanga.
Á fundi sveitarstjórnar Hvammstangahrepps s.l. fimmtudag var Bjarni
Þór Einarsson fyrrverandi bæjarstjóri á Húsavík ráðinn sveitarstjóri
á Hvammstanga. Sautján umsóknir höfðu borist en þar af óskuðu 8
nafnleyndar.
Aðrir umsækjendur voru: Finnur
Jónsson, Stykkishólmi, ívar H. Frið-
þjófsson, Garðabæ, ívar JÓnsson,
•Akureyri, Júlíus Már Þórarinsson,
iAkranesi, . Kristján Björnsson,
•Hvammstanga, Páll Hlöðversson,
Akureyri, Ragnar Jörundsson,
Súðavík, Sig. Ómar Hauksson, Sigl-
ufirði og Sigursveinn Agnarsson,
Reykjavík en aðrir höfðu óskað nafn-
leyndar.
Oddviti og fulltrúi G-lista, Guð-
mundur Haukur Sigurðsson, skýrði
frá ákvörðun meirihluta sveitar-
stjórnar um að ráða Bjama Þór til
starfa. Fulltrúar L-listans, minnihlut-
ans, gagnrýndu vinnubrögð meiri-
hluta við ráðninguna en fyrsti maður
L-lista Kristján Björnsson, var einn
af umsækjendum. Ráðning Bjarna
Þórs var síðan samþykkt með öllum
greiddum atkyæðum.
Bjprni Þór Einarsson er fæddur
árið 1948 og nam byggingartækni-
fræði vð Tækniskóla Islands. Hann
starfaði við Trésmiðjuna Víði árin
1972-1979 en réðist þá sem tækni-
fræðingur til Húsavíkurkaupstaðar
og var þar bæjarstjóri frá 1987 til
1. september 1990. Bjarni er
Vestur-Húnvetningur að ætt. Kona
hans er Arndís Jónsdóttir og eiga
þau þijú böm.
Karl
Alþjóðlega bókasýningin í Frankfurt;
Tölverður áhugi á
íslenskum bókum
FÉLAG íslenskra bókaútgcfenda er nú í fyrsta sinn með sérstakan
sýningarbás á alþjóðlegu bókasýningunni í Frankfurt, en auk þess er
Alnienna bókafélagið og Iceland Review með sérstakan sýningarbás á
sýningunni eins og verið hefur undanfarin ár.
Sýningin, sem hófst á miðvikudag-
inn og lýkur næstkomandi mánudag,
er sú stærsta sinnar tegundar sem
haldin er árlega í Evrópu, og er
áætlað að um 60 þúsund gestir komi
á hana daglega. Að sögn Heimis
Pálssonar, framkvæmdástjóra Pé-
lags íslenskra bókaútgefenda, hefur
verið töluverður áhugi á íslenskum
bókum á sýningunni, og hafa margir
lagt leið sína í íslensku sýningarbás-
aná til að skoða bækur.
„Þetta er í fyrsta skipti sem Félag
íslenskra bókaútgefenda er með sam-
eiginlegan sýningarbás héma til
reynslu, og líst okkur nokkuð vel á
það sem af er.“
50 ára afmæli Islensk-
ameríska félagsins
ÍSLENSK-AMERÍSKA félagið heldur upp á 50 ára afmæli sitt í dag
og verður af því tilefni athöfn við styttu Leifs Eiríkssonar á Skóla-
vörðuholti kl. 15. Félagið var stofnað vorið 1940 og fyrsti formaður
þess var Sigurður Nordal. Núverandi formaður er Ólafur Stephensen.
Stjórn félagsins lagði í upphafi
áherslu á að meginmarkmið félags-
ins yrði að greiða götu íslendinga
til náms í Bandaríkjunum, jafnframt
því sem félagið yrði vettvangur fé-
lagslegra samskipta íslendinga og
Bandaríkjamanna búsettra á Islandi
svo og að stuðla að auknu sam-
starfí þjóðanna á sviði menningar-
mála.
Thor Thors sjóðurinn hefur verið
hornsteinn Islensk-Ameríska félags-
ins frá því hann var stofnaður árið
1965. Sjóðurinn er í vörslu American
Scandinavian Foundation í New
York og frá stofnun hans hefur ver-
ið úthlutað styrkjum til 339 íslenskra
námsmanna og 33 bandarískra
námsmanna á Islandi, alls að upp-
hæð 478 þúsund bandaríkjadala.