Morgunblaðið - 06.10.1990, Side 9

Morgunblaðið - 06.10.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990 9 ..— .............i—— | Hraðlestrarnámskeið. ..með ábyrgð! Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn? Vilt þú verða mikið betri námsmaður og auðvelda þér nám- ið með auknum lestrarhraða og bættri námstækni? Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum? Vilt þú hafa betri tíma til að sinna áhugamálunum? Svarir þú játandi, skaltu skrá þig á hraðlestrarnámskeið. Næsta námskeið hefst laugardaginn 13. október. Skráning alla daga í síma 641091. Ath. VR og mörg önnur félög styrkja þátttöku félaga sinna á námskeiðunum. H R AÐLESTR ARS KOLIN N nn io ára ss Skrifstofa stuðningsmanna Geirs H.Haarde í prófkjöri sjálfstœðismanna opnar á morgun,sunnudag, kl. 15, að Túngötu 6. Allir velkomnir í síðdegiskaffi. Skrifstofan verður opin virka daga kl. 17 - 21 og kl. 14-18 um helgar. Símar:24527 og 24597 yvWNDAMOB Álsamkomulag staðfest Flæðisker og glæpurinn í Staksteinum er stiklað á samþykkt fram- kvæmdastjórnar Sambands ungra fram- sóknarmanna um álmálið, svo og grein, sem einn af frammámönnum Alþýðu- bandalagsins á Neskaupstað hefur ritað í Austurland, þar sem veizt er að þing- manni flokksins, Hjörleifi Guttormssyni. Átökin magn- ast Átökin innan Alþýðu- bandalagsins magnast með hverjum deginum sem líður. Deilurnar inn- an flokksins um álmálið hafa brotist út á opinber- um vettvangi. Þar takast á tvær fylkingar fyrst og fremst. Stuðningsmenn formannsins, Óiafs Ragn- ars Grímssonar, og skoð- anabræður þeirra Svav- ars Gestssonar og Steingríms J. Sigfússon- ar, varaformanns. Ólafsliðið er yfirleitt fylgjandi byggingu ál- versins, en gamla kommaklíkan, undir for- ystu Svavars og Steingríms J., er enn sem fyrr andvíg stóriðju og raunverulegum þjóðfé- lagsbreytingum. Þessi hópur hamast því gegn byggingu álversins. Einn hávaðasamasti andstæð- ingur þess er þingmaður Austurlands, Ifjörleifur Guttormsson. En afstaða hans á ekki einskorðaðan stuðning flokksmanna í kjördæminu. Það má glöggt sjá af grein Snorra Styrkárssonar, hagfræðings á Neskaup- stað, sem hann ritar í flokksblaðið Austurland. Útlendinga- hatur og land- ráð Snorri segir í grein sinni, að á Islandi búi íslenzkir vinstrimenn við kreppu í pólitísku lífi. Þeir hafa verið og séu í tilvistarkreppu. Sundr- aðir og ótrúlega áhrifa- litlir. Austfirzkir vinstri- menn, fijálslyndir og víðsýnir, verði að staldra við. Hvert vilji þeir fara og hver séu þeirra mark- mið? Snorri spyr, hvort ekki sé timi til korninn að stokka spilin upp. Síðar í grein sinni seg- ir Snorri orðrétt: „Nú eru hins vegar blikur á lofti. Ákveðinn hópur manna ætlar sér að sprengja ríkisstjórn- ina. Til þess á að nota gamlar iummur. Utiend- ingahatur og landráða- kenningar eru dregnar fram í dagsljósið. Fram- arlega í þeim hópi er einn þingmanna Austurlands. Beitt verðúr mörgum og margvíslegum útreikn- ingum til að sanna land- ráðstefnuna — til þess verður fenginn hópur gamalreyndra sérfræð- inga í slikum hlutum." Stokkað upp I lok greinarinnar læt- ur Snorri Styrkársson til skarar skríða gegn þing- manni Alþýðubandalags- ins, IJjörleifi Guttorms- syni, og segir: „Nú þurfum við svo sannarlega að stokka upp spilin. Er ekki rétt að byija núna og finna nýja fleti í framboðsmál- um með austfirzka hags- muni að leiðarljósi." Af þessu má ljóst vera, að á meðan Iijörleifur Guttormsson hamast í höfuðborginni gegn ál- verinu þá flæðir undan honum í kjördæminu. Það verður fróðlegt að fylgjast með því, hvort Hjörleifur dagar uppi á fiæðiskeri sínu sem nátt- tröll vegna ótrúlegs aft- urhalds í þjóðmálum. Vaxtar- broddurinn í öllum stjómmála- flokkum er það að sjálf- sögðu miga fólkið sem er vaxtarbroddurinn. Það hefur ætið verið ein- kenni á unga fólkinu, að það hefur verið róttæk- ara í þjóðfélagsmálum en þeir sem eldri eru og reyndari. Unga fólkið knýr á um breytingar — róttækar breytingar í samræmi við hugsjónir sinar og æskuhita. Unga fólkið í Fram- sóknarflokknum virðist þó vera undantekning hér á. í stað kröfu um róttækar þjóðfélags- breytingar virðast ungir framsóknarmemi vilja afturhvarf til fortíðar. Afturhald í þjóðfélags- málum virðast þeirra ær og kýr. Þetta má ráða af samþykkt fram- kvæmdastjómar Sam- bands ungra framsókn- armanna um álmálið. Glæpurinn Foringjar ungra fram- sóknarmanna gerðu eft- irfarandi ályktun á fundi sínum sl. fimmtudag: „Fnunkvaimdastjóm SUF telur að ekki skuli ganga til samninga um byggingu nýs álvers á Keilisnesi. Fram- kvæmdastjóm SUF ítrekar þá skoðun stjórn- ar SUF að stóriðja eigi ekki að rísa á suðvestur- homi Islands vegiui þeirrar gífurlegu byggðaröskunar sem slík staðsetning veldur. Réttlætaniegt hefði verið að reisa álver utan suðvesturhomsins til að hamla gegn þeirri óæski- legu byggðaþróun sem orðið hefur undanfarin ár, ef slíkt bryti ekki í bága við umhverfissjón- armið. Nú er komið í Ijós að umhverfisspjöll vegna álvers em töluverð, þrátt fyrir að það rísi á Keilis- nesi. Glæpuriim er því tvöfaldur, verði álverið reist. Nær væri að veita þvi fjámiagni sem Islending- ar leggja til álvers, beint eða óbeint, til að byggja upp atvinnustarfsemi á iandsbyggðinni og stuðla þannig að jafnvaigi í byggðaþróun á íslandi. SUF vekur einnig at- hygli á að með byggingu álvers veikjum við hina hreinu ímynd landsins. Sú ímynd er forsenda uppbyggingar íslands sem ferðamannalands og framleiðslulands ómeng- aðra afurða.“ FLUGLEIÐIR Fljótari en Dikk Treisí kallar á Gómes... Dikk kallar á Gó-Go Gómes... Hann er ekki hér! Gó-Gó er farinn til Parísar að sjá Kan-Kan stúlkurnar í Rauðu Myllunni, enda verðið aðeins frá kr. S5.S80.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.