Morgunblaðið - 06.10.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
17
Stjómkerfi Evr-
ópubandalagsins
eftir Sigurrós
Þorgrímsdóttur
Evrópubandalagið er stöðugt að
verða sterkara. Samvinna meðal
aðildarríkjanna eykst sífellt og æ
fleiri ríki sækja um aðild að banda-
laginu. í dag eru aðildarríki EB
tóif: Belgía, Bretland, Danmörk,
Grikkland, Frakkland, Holland, ír-
land, Ítalía, Lúxemborg, Portúgal,
Spánn og Vestur-Þýskaland. Nú
hafa Austurríkismenn og Tyrkir
einnig sótt um aðild en óvíst er
hvenær eða hvort þessi ríki fá aðild.
í þeirri miklu umræðu, sem nú
á sér stað um Evrópubandalagið,
tel ég rétt að skýra í stuttu máli
hver sé forsaga slíkrar samvinnu
meðal hinna vestrænu þjóða Evr-
ópu, hverjar séu helstu stofnanir
bandalagsins og hvernig uppbygg-
Jngu og ákvárðanatöku er háttað
innan þess.
Aðdragandi að stofnun EB
Eftir síðari heimsstyijöldina jókst
áhugi meðal ríkja í Vestur-Evrópu
að auka samvinnu sín á milli, eink-
um á sviði efnahagsmála. Arið 1951
stofnuðu því sex ríki í Evrópu,
Belgía, Frakkland, Holland, italía,
Lúxemborg og V-Þýskaland, með
sér markaðsbandalag, sem nefnt
var Kola- og stálbandalagið.
Næsta skref var stigið árið 1957
þegar þessi sex framangreindu ríki
náðu samkomulagi um stofnun
Efnahagsbandalags Evrópu (EBE)
og einnig um stofnun Kjarnorku-
bandalags Evrópu (KBE). Sáttmál-
ar þessara bandalaga voru undirrit-
aðir í Róm og tóku gildi 1958.
Kallst þeir einu nafni Rómarsátt-
málinn. Árið 1967 voru þessi þijú
bandalög síðan sett undir eina sam-
eiginlega yfirstjórn og stjórnstofn-
anir þeirra sameinaðar. Allt frá
þeim tíma hafa þessi bandalög
starfað sem eitt bandalag, sem
nefnt eru Evrópubandalagid.
Stjórnstofnanir
Meginstofnanir Evrópubanda-
lagsins eru ólíkar að gerð og upp-
byggingu. Annars vegar eru hinar
svonefndu yfirþjóðlegu stofnanir og
hins vegar stofnanir sem tengdar
eru ríkisstjómum aðildarríkjanna
beint. Þær stofnanir, sem eru í bein-
um tengslum við ríkisstjórnir aðild-
arríkjanna, eru leiðtogaráðið og
ráðherraráðið. Þær stofnanir, sem
kallaðar eru yfirþjóðlegar, eru aftur
á móti framkvæmdastjórnin, Evr-
ópuþingið og Evrópudómstóllinn.
Ástæða þess að þessar stofnanir
em kallaðar yfirþjóðlegar er m.a.
vegna þess að aðildarríkin hafa fal-
ið þessum sameiginlegu stofnunum
meðferð nokkurra málaflokka.
Stofnanirnar geta tekið ákvarðanir
um þessa málaflokka, sem em bind-
andi fyrir aðildarríkin. Fulltrúarnir,
sem í þeim sitja, eiga að vera óháð-
ir þeim ríkjum er þeir koma frá og
er þeim ætlað að hafa hagsmuni
bandalagsins fyrst og fremst að
leiðarljósi við ákvarðanatöku innan
viðkomandi stofnunar. Þeir fulltrú-
ar er sitja í leiðtogaráðinu og ráð-
herraráðinu eru aftur á móti einnig
Sigurrós Þorgrímsdóttir
„Þrátt fyrir hið yfir-
þjóðlega yfirbragð
framkvæmdastjórnar-
innar, Evrópuþingsins
og Evrópudómstólsins
er valdsvið þeirra mjög
takmarkað. í raun er
valdið að mestu í hönd-
um leiðtogaráðsins og
ráðherraráðsins, sem
eru í beinum tengslum
við ríkisstjórnir aðild-
arríkjanna.“
meðlimir í ríkisstjórnum aðildarríkj-
anna. Fulltrúar þessara ráða þurfa
því að gæta hugsmuna viðkomandi
ríkis um leið og þeim er ætlað að
tryggja framgang markmiða EB
og gæta hagsmuna þess.
Leiðtogaráðið
Leiðtogaráðið er einn æðsti
ákvörðunaraðilinn innan Evrópu-
bandalagsins, og þar hafa mikil-
vægustu pólitísku ákvarðanit-
bandalagsins verið teknar. Þátttaka
ráðsins í stefnumótun og ákvarð-
anatöku er þó bundin við tiltölulega
fá en mikilvæg mál. í leiðtogaráðinu
sitja forseti Frakklands, forsætis-
ráðherrar annarra aðildarríkja og
forseti framkvæmdastjórnar banda-
lagsins. Sú regla hefur gilt innan
leiðtogaráðsins að samþykki allra
leiðtoganna þarf þegar ákvörðun
er tekin.
Ráðherraráðið
Ráðherraráðið er sú stofnun inn-
an Evrópubandalagsins, sem fer
með æðsta ákvörðunarvaldið og er
ein allra valdamesta stofnun banda-
lagsins. Ráðið er aðalhandhafi lög-
gjafarvalds bandalagsins og gerir
einnig formlega samninga fyrir
hönd bandalagsins við ríki utan
þess þó samningagerðin sé í hönd-
um framkvæmdastjórnar. Ráð-
herraráðið er skipað 12 ráðherrum,
einum frá hveiju aðildarríki. Oftast
eru það utanríkisráðherrar land-
anna er sitja í ráðinu en þó er það
breytilegt eftir málefnum hvaða
ráðherrar sitja í því. Til að mynda
ef taka á fyrir landbúnaðarmál þá
skipa landbúnaðarráðherrar aðild-
arríkjanna ráðið og sama gildir um
aðra fagráðherra. Meðlimir ráð-
herraráðsins hafa neitunarvald inn-
an ráðsins í málefnum, sem talin
eru varða grundvallarhagsmuni við-
komandi aðildarríkis. Aftur á móti
eru mál er snerta innri markað
bandalagsins beint afgreidd með
meirihlutasamþykki innan ráðsins.
Framkvæmdastj órnin
Hlutverk framkvæmdastjórnar
EB innan stjórnkerfis bandalagsins
er margþætt. Hún sinnir m.a. ýms-
um framkvæmdavalds- eða stjórn-
störfum innan bandalagsins, undir-
býr stefnumótun fyrir bandalagið
og leggur fram tillögur fyrir ráð-
herraráðið. Framkvæmdastjórnin
er skipuð 17 mönnum, sem eru til-
nefndir af ríkisstjórnum aðildarríkj-
anna til fjögurra ára í senn. Stærri
þjóðirnar,’Bretland, Frakkland, ít-
alía, Spánn og Vestur-Þýskaland,
eiga tvo fulltrúa hvert en smærri
aðildarríkin einn fulltrúa hvert.
Hver fulltrúi í framkvæmdastjórn-
inni fer með ákveðinn málaflokk
fyrir hönd bandalagsins svo sem
utanríkismál, landbúnðarmál, iðn-
aðarmál o.s.fiv.. Því hafa fulltrúar
í framkvæmdastjórninni fengið í æ
ríkara mæli á sig ákveðna ráðherra-
ímynd, þó vald þeirra sé ekki það
sama og ráðherra í ríkisstjórnum
aðildarríkjanna.
Evrópuþingið
Þingmenn Evrópuþingsins eru
kosnir í beinum kosningum í aðiid-
arríkjunum. Þetta er því eina stofn-
unin innan EB, sem hefur beint
umboð þegna aðildarríkjanna. Á
þinginu sitja 518 þingmenn og er
þingsætunum skipt á milli aðild-
arríkjanna nokkurn veginn í hlut-
falli við íbúafjölda þeirra. Nú eru
starfandi átta þingflokkar og
stjórnmálahreyfingar á Evrópu-
þinginu. Síðast var kosið til Evrópu-
þingsins 1989 og er kjörtímabilið
fimm ár. Þó þingið sé kosið í beinum
kosningum hefur það ekki þau völd
sem þjóðþing aðildarríkjanna hafa.
Þingið hefur ekki löggjafarvald
heldur er það fyrst og fremst ráð-
gefandi gagnvart ráðherraráðinu
og framkvæmdastjórninni. Skylt er
þó að leggja ýmsa málaflokka fyrir
þingið til að fá álit þess. Annað
mikilvægt hlutverk þingsins er að
hafa eftirlit með störfum fram-
kvæmdastjórnarinnar og hefur það
heimimld til að lýsa vantrausti á
hana. Þingið þarf að staðfesta aðild
nýrra ríkja að bandalaginu og sam-
þykkja samninga við önnur ríki til
að slíkir samningar öðlist gildi.
Evrópudómstóllinn
Evrópudómstólnum er ætlað að
tryggja að lögum og reglum Evr-
ópubandalagsins sé framfylgt sam-
kvæmt Rómarsáttmála. Hann er
eini dómstóll bandalagsins og hefur
hann aðeins eitt dómstig og er end-
Málverkauppboð á sunnudag
29. málverkauppboð Gallerís
Borgar haldið í samvinnu við
Listmunauppboð Sigurðar Bene-
diktssonar hf. fer fram í Súlna-
sal Hótel Sögu sunnudaginn 7.
október 20.30.
Um 60 verk verða boðin upp,
flest öll eftir þekkta listamenn þar
af mörg eftir „gömlu meistarana".
Má þar nefna stóra olíumynd frá
höfninni eftir Snorra Arinbjarnar,
tvær gamlar vatnslitamyndir eftir
Ásgrím Jónsson önnur frá 1906,
stór olíumynd frá Húsafelli eftir
Ásgrím, hringlaga litla vatnslita-
mynd eftir Kjarval, módelmynd eft-
ir Gunnlaug Blöndal, nokkrar
myndir eftir Jón Engilberts og Þor-
vald Skúlason og stóra olíumynd
af Gullfossi eftir Jón Stefánsson.
Af yngri höfundum má nefna:
Sverri Haraldsson, Kristján Davíðs-
son, Eirík Smith, Erró, Jóhannes
Geir, Pétur Friðrik, Ágúst Petersen,
Hafstein Austmann, Karl Kvaran,
Magnús Kjartansson, Steinþór Sig-
urðsson, Veturliða Gunnarsson,
Sigurð K. Árnason og Svein Björns-
son.
Uppboðsverkin verða sýnd í Gall-
erí Borg við Austui-völl 5., 6. og
7. október frá kl. 14—18, þar verð-
ur tekið á móti forboðum einnig er
hægt að bjóða í verkin símleiðis.
(Fréttatilkynning)
C
ÞEGNAR AÐILDARRÍKJANNA
D
PJÓÐPINB
RIKISSTJORNIR
LEIÐT06ARÁÐIÐ
skipaó 12 teðtogum
}
RÁÐHERRARÁÐIÐ
12 róóherrar OogqjafarvaW)
bete
kosniog
o tfllögugeró
FR AI1K VÆI1D ASTJÓRNIN
SkipuB 17 mönnum fráaðildarríkjunum
1
I
samróð
EVRÓPUPIN6IÐ 518þingmenn (ráögjafarþing)
Bretl. 81 Frakkl. 81 Italía 81 V-þýsk 81 Spánn 60 Holland 25
Belgia 24 Orikkl. 24 Portúg. 24 Danm. 16 Irland 15 Luxemb. 6
EVRÓPUDÓnSTÓLLINN
skipaður 13dómurum
}
VSÞ/1990
anlegt úrskurðarvald. Dómstóllinn
er skipaður 13 dómurum, einum frá
hveiju aðildarríki. Þeir eru tilnefnd-
ir af aðildarríkjunum og kosnir til
sex ára í senn af ráðherraráðinu.
Þrettándi dómarinn getur komið frá
hvaða aðildarríki sem er og á hann
að tryggja að ekki sé jöfn tala dóm-
ara í dómstólum. Hlutverk dóm-
stólsins er margþætt og sinnir hann
í raun hlutverki margra ólíkra dóm-
stóla. Geta einstaklingar, aðild-
arríki og stofnanir bandalagsins
lagt mál sín fyrir dómstólinn og
fengið úrlausn sinna mála.
Lokaorð
Hér að framan hafa aðeins verið
teknar fyrir þær stofnanir, sem
margir telja að séu þær mikilvæg-
ustu í stjórnkerfi Evrópubandalags-
ins. En auk þeirra starfa fleiri mikil-
vægar stofnanir og nefndir á vegum
■EB til dæmis nefnd fastafulltrú-
anna, efnahags- og félagsmála-
nefndin, Fjárfestingarbankinn og
fleiri, sem ekki verða tíundaðar hér.
Þrátt fyrir hið yfirþjóðlega yfir-
bragð framkvæmdastjórnarinnar,
Evrópuþingsins og Evrópudóm-
stólsins er valdsvið þeirra mjög tak-
markað. I raun er valdið að mestu
í höndum leiðtogaráðsins og ráð-
herraráðsins, sem eru í beinum
tengslum við ríkisstjórnir aðild-
arríkjanna. Ráðherraráðið er einn
aðalhandhafi löggjafarvaldsins og
leiðtogaráðið tekur allar meirihátt-
ar ákvarðanir fyrir bandalagið. Þó
er rétt að hafa í huga að hinar yfir-
þjóðlegu stofnanir eru ekki með
öllu valdalausar og í vissum mála-
flokkum hafa þær töluverð völd.
Höfundur er
stjómmálafræðingur.
TIL SÖLU
Haf beitarstöð þrotabús Vogalax hf.
við Vogavík, Vatnsleysustrandarhreppi,
ásamt endurheimturétti á laxi
Um er að ræða: Seiðaeldisstöð með öllum útbúnaði,
7500 rúmmetra eldisrými, klakhús, rafstöðvarhús, skrif-
stofuhús, móttökumannvirki, geymsluþrær og slátur-
hús, sleppilón, ferskvatns- og sjóborholur með dælum.
í stöðinni eru 2 millj. sumaralinna seiða og kiakfiskur
er gefur 10 millj. hrogna.
Upplýsingar veita bústjórar þrotabúsins: Ingi H. Sig-
urðsson hdl., Vatnsnesvegi 14, Keflavík, sími 92-14142
og Steingrímur Eiríksson hdl., Ármúla 13a, Reykjavík,
sími 679040.