Morgunblaðið - 06.10.1990, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.10.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTOBER 1990 25 Færeyjar: Kosið ta Lög- þingsins 17. nóvember Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen ^ Bruun fréttaritara Morgunblaðsins. ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til þingkosninga í Fær- eyjum 17. nóvember en sam- þykkt var í fyrra dag að leysa upp lögþingið vegna stjórnar- kreppu. Það hefur aðeins einu sinni áður átt sér stað í 40 ára sögu heimastjórnar í Færeyjum að þing hafi verið leyst upp. Jogvan Sundstein lögmaður, leiðtogi Þjóðveldisflokksins, reyndi til hins ítrasta að fínna aðrar leiðir út úr stjórnarkreppunni en að efna til kosninga. Sundstein reyndi árangurs- laust að mynda nýja stjórn með ýmsum formerkjum og biðlaði á síðustu stundu í fyrradag til Jafnaðarmannaflokksins, sem synjaði málaleitan hans. Flokk- urinn hefur verið í stjórnarand- stöðu frá því í kosningunum 1988 og nýtur nú mests fylgis færeysku flokkanna, samkvæmt nýjum könnunum á fylgi þeirra. Antwerpen: Alexander Noble ofursti, leiðtogi uppreisnarmanna á Filippseyjum, ræðir við blaðamenn í gær. Filippseyjar: Uppreisnarmönn- um stökkt á flótta Cagayan De Oro, Filippseyjum. Reuter. HUNDRUÐ uppreisnarmanna í stjórnarher Filippseyja flýðu borgina Butuan á eynni Mindanao í gær er loftárás var gerð á Bancasi-herstöðina sem þeir höfðu haft á valdi sínu í sólar- hring. Loftárásin á herstöðina var gerð á tveimur T-28 flugvélum úr seinna stríðinu. Flugu þær 11 ferð- ir með sprengjur og eyðilögðu aðalbyggingu herstöðvarinnar og rafveitu með þeim afleiðingum að hún varð sambandslaus við um- heiminn. Nokkrum klukkustund- um eftir að þeir höfðu flúið her- stöðina voru uppreisnarmennirnir sagðir á bak og burt úr hinni 157.000 manna borg, sem þeir höfðu haft á valdi sínu. Talsmenn stjórnarhersins sögð- ust reiðubúnir að láta einnig til skarar skríða gegn uppreisnar- mönnum sem hafast við í herstöð í borginni Cagayan De Oro, sem er 800 km suðaustur af höfuðborg- inni, Manillu. Þar er bækistöð upp- reisnarforingjans, Alexanders Noble ofursta. Noble ræddi við blaðamenn í gær og sagðist reiðubúinn að láta lífið fyrir málstað sinn. Hann vill stofna sjálfstætt lýðveldi á eynni Mindanao, næst stærstu eynni í Filippseyjaklasanum, og hefur sent sendiráðum erlendra ríkja í Manilla bréf þar sem hann fer fram á að það hljóti alþjóðlega viðurkenningu. Sagðist Noble vilja fá Corazon Aquino forseta til fund- ar við sig og semja við hana um stofnun ríkis á Mindanao. Yfirmenn hersins segja upp- reisn Nobles lið í áframhaldandi tilraunum til þess að steypa Aqu- ino en hún hefur staðið sex bylt- ingartilraunir af sér frá því hún komst til valda árið 1986. Hætta af strandi amm- oníaksskips afstaðin Brussel. Reuter. ÞÝSKT tankskip með ammoníaksfarih var dregið af strandstað í ánni Scheldt 10 km utan við borgina Antwerpen í Belgíu. Fyrstu fregnir hermdu að skipið hefði sokkið og brotnað og væri mikil hætta á að eiturský myndaðist og legðist yfir borgina en þær reyndust rangar. Libby> Stórgóða tómatsósan Tankskipið var með 10.700 tonna ammoníaksfarm innanborðs og voru átta dráttarbátar notaðir til þess að draga það á flot. Meðan á því stóð varð að loka allri skip- aumferð um ána. Engar skemmdir sáust á skipinu og engin hætta talin lengur á mengunarslysi vegna strandsins. Hætta var talin á ferðum ef of mikil slagsíða kæmi á skipið á út- flæðinu. A strandstað hallaðist þða 10-15 gráður en er þannig úr garði gert að það á að geta staðið af sér allt að 25 gráðu slagsíðu án þess að kælibúnaði, sem heldur ammon- íakinu -33 gráðu köldu, sé nokkur hætta búin. Tankskipið heitir Bussewitz og er frá austurhluta hins sameinaða Þýskalands. Á VÖNDUÐUM TEPPUM FYRIR STIGAHÚS OG SKRIFSTOFUR TEFLON Gram Teppi HEPPAVERSUIN FRHHHKS BERTELSEN FÁKAFENI 9 - SÍMI 686266 ELSTA TEPPAVERSLUN LANDSINS AUK hf. 103.2/SfA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.