Morgunblaðið - 06.10.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
29
Þrjár konur leigja verslun KEA á Hauganesi:
Nauðsynlegt að hafa
verslun á staðnum
NESKAUP er heiti á nýrri verslun sem þrjár ungar konur á Hauga-
nesi hafa tekið á leigu af Kaupfélagi Eyfirðinga. Verslunin var opnuð
í gær og lagði þangað fjöldi manns leið sína. Sett hefur verið upp kaf-
fitería í versluninni og í kjallaranum er keramikverkstæði.
„Við erum mjög ánægðar með við-
tökurnar, okkur hefur verið afar vel
tekið. Það hefur komið mikill fjöldi
fólks í verslunina og margir fært
okkur blóm í tilefni dagsins," sagði
Soffía Ragnarsdóttir sem ásamt
Björk Bijánsdóttur og Soffíu Jóns-
dóttur leigja verslunarreksturinn.
Hrepparnir framan
Akureyrar:
Kosið um sam-
einingu í dag
„Það er nauðsynlegt að hafa versl-
un á staðnum og því tókum við okk-
ur til og ákváðum að skella okkur út
í þetta þegar kaupfélagið ætlaði að
hætta verslunarrekstri hér. Ég er
bjartsýn á framtíðina því okkur hefur
verið afar vel tekið,“ sagði Soffía.
Búið er að gera kaffiteríu í versl-
uninni, þar sem fólk getur sest niður
og spjallað yfir kaffibolla og nýbök-
uðu brauði. „Við viljum hafa líf í
versluninni og vonumst til að trillu-
karlar og þeir sem vinna í fískverkun-
inni héma komi í kaffi til okkar,“
sagði Soffía. I kjallara verslunarinn-
ar er starfandi keramikverkstæði
Kolbrúnar Ólafsdóttur og eru munir
hennartil sýnis og sölu í versluninni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þrjár ungar konur á Hauganesi hafa tekið verslun Kaupfélags Ey-
firðinga á staðnum á leigu. A myndinni eru frá vinstri Kolbrún Olafs-
dóttir sem rekur keramikverstæði sitt í kjallara verslunarinnar,
Björk Brjánsdóttir, Soffía Ragnarsdóttir, Soffía Jónsdóttir og Hilm-
ir Sigurðsson sem vár fyrsti viðskiptavinur verslunarinnar.
Sæplasts-
bréfin
uppseld
HLUTABRÉF sem seld voru í
hlutafjárútboði Sæplasts hf. á
Dalvík eru uppseld, en síðustu
bréfin voru seld í gær, föstudag.
Hlutabréfín voru að nafnvirði 6.
milljónir króna og sölugengið var
6,8, þannig að alls voru seld hluta-
bréf í fyrirtækinu fyrir 40,8 millj-
ónir króna.
Sölutími bréfanna var 12 dagar
og sagði Jón Hallur Pétursson hjá
Kaupþingi Norðurlands að það
teldist gott þar sem um væri að
ræða fyrirtæki sem óþekkt væri á
verðbréfamarkaði. Bæði einstakl-
ingar og fyrirtæki keyptu hlutabréf
og seldist um einn þriðji hluti á
Norðurlandi, en tveir þriðju hlutar
á höfuðborgarsvæðinu, að sögn
Jóns Halls.
KJÖRFUNDIR vegna sameining-
ar Hrafnagilsshrepps, Saurbæjar-
hrepps og Öngulsstaðahrepps í
eitt sveitarfélag hófust kl. 10 í
morgun, laugardag. Kosið er á
þremur stöðum i hreppnum og eru
um 650 manns á kjörskrá. Sam-
hliða kosningunum verður einnig
í gangi skoðanakönnun um tillög-
ur að nafni á væntanlegt nýtt
sveitarfélag, en borist höfðu tæp-
lega 50 hugmyndir.
Stígandi útflutningur á vatni:
Akva sendir 18 stóra gáma vest-
ur til Bandaríkjanna fyrir jólin
Sannfærður um að vatnsútflutiiingnr á góða framtíð fyrir sér, segir Þórarinn E. Sveinsson
VATNSÚTFLUTNINGUR Akva hf. á Akureyri hefur verið stígandi
og er nú verið að senda alls átján 40 feta gáma af vatni pökkuðu hjá
fyrirtækinu vestur um haf til Bandaríkjanna þar sem það fer í dreif-
ingu á svæðinu frá Washington til Flórída. Átöppun er í fullri keyrslu
og hafa verið settar upp tvær vaktir í pökkun, en miðað er við að
vatnið verði allt komið á áfangastað í byijun desember sem þýðir að
senda verður síðustu gámana héðan í byrjun nóvember.
Ibúar Hrafnagilshrepps kjósa um
sameininguna í félagsheimilinu
Laugaborg, íbúar Saurbæjarhrepps
í Steinhólaskála og íbúar Önguls-
staðahrepps í Freyvangi.
Valin hafa verið 14 nöfn úr þeim
tillögum sem bárust og geta kjósend-
ur valið eitthvert þeirra í skoðana-
könnuninni, en endanlegt val á nafni
sveitarfélagsins er í höndum þeirra
sveitarstjóma sem nú sitja. Þau nöfn
sem til greina koma og eru með í
skoðanakönnuninni eru Eyjafjarðar-
hreppur, Eyjafjarðarbyggð, Eyja-
fjarðarsveit, Framfjarðarbyggð,
Framijarðarhreppur, Grundarþing,
Helgahreppur, Helgamagrabyggð,
Kerlingarhreppur, Kristneshreppur,
Staðarbyggð, Sunnusveit, Vaðla-
hreppur og Vaðlaþing.
Þórarinn E. Sveinsson fram-
kvæmdastjóri sagði að búið væri að
senda af stað sjö gáma í þessari og
síðustu viku og verið yæri að vinna
í þá ellefu sem eftir er að senda.
Um er að ræða fyrstu sendinguna
undir breyttu nafni og í nýjum um-
búðum. Ahersla er nú lögð á Akva-
nafnið og á nýju umbúðunum hefur
mynd af tignarlegu fjalli leyst vatns-
glas af hólmi. Vatninu er pakkað
bæði í 0,5 lítra og 0,2 lítra umbúðir.
„Það er töluverður mannskapur í
vinnu við pökkunina, við erum að
keppast við að fylla þá gáma sem
eftir er að senda út, en samkvæmt
samningum eiga þeir allir að vera
komnir til Bandaríkjanna á fyrstu
dögum desembermánaðar," sagði
Þórarinn. Tvær vaktir eru í 'gangi í
pökkuninni og eru fimm starfsmenn
á hverri vakt, en þeir eru eingöngu
í því að pakka vatninu í kippur.
Bæði er um að ræða starfsmenn
mjólkursamlagsins og einnig hafa
skólakrakkar sem unnið hafa hjá
samlaginu að sumrinu fengið þar
vinnu. Unnið er við pökkun vatnsins
frá kl. 7 að morgni til kl. 10 á kvöld-
in._
í lok þessa mánaðar eru væntan-
legar vélar sem sjá um að raða fem-
unum og verða þær þá settar upp
og prófaðar, en Þórarinn sagði að
fyrirtækið yrði klárt í slaginn á nýju
ári.
„Ég er sannfærður um að útflutn-
ingur vatns á góða framtíð fyrir sér
og ég minnist þess að fyrir nokkrum
árum sögðu mér aldnir Hollendingar
sem unnu við útflutning landbúnað-
arvara að eftir nokkur ár yrði vatn
á heimsmarkaði dýrmætara en
mjólk. Því til sönnunar sögðu þeir
að er þeir voru ungir piltar í hjól-
reiðaferð í heimalandi sínu komu
þeir á bóndabæ og báðu bónda að
gefa sér vatnsglas, en hann kvaðst
selja það og nefndi háa upphæð.
Þannig gekk þetta alllengi og á
fimmta bænum keyptu þeir sér
vatnsglas á því verði sem upp var
sett. Þegar menn eru orðnir nógu
aðþrengdir verður vatnið að gulli,“
sagði Þórarinn.
BINGO
_________Hefst kl. 13.30____________ j
Aðalvinninqur að verðmæti_________ |í
100 bús. kr. I!
--------------r.-3------------------
Heildarverðmæti vinninqa um — TEMPLARAHOLUN
_________300 bús. kr._______________ Eiríksgötu 5 — S. 20010
Hestamenn
Til sölu eru folöld. Mæður þeirra
eru ættaðar frá Kolkuósi undan
Funa og Stíganda 625. Faðir
þeirra er Valur undan Þætti 722
frá Kirkjubæ.
Upplýsingar gefur Ragnar Bene-
diktsson í síma 95-12635.
Vélagslíf
□ GIMLI 5999008107 = 1
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Vetrarstarfið er hafið. Fyrsti
fundurinn verður í Félagsheimil-
inu á Baldursgötu 9 miðviku-
dagskvöldið 10. okt. kl. 20.30.
Rætt verður um vetrarstarfið,
basarinn og leikhúsferð. Tekið í
spil. Kaffiveitingar. Félagskonur
fjölmennið.
Bænastaðurinn,
Fálkagötu 10
Sunnudagaskóli sunnudaga kl.
10.30 á Fálkagötu 10.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3S11798 19533
Sunnudagsferðir7. okt.
1. Kl. 08 Þórsmörk - haustlita-
ferð. Síðasta dagsferðin í ar.
Nú skartar Þórsmörkin sínum
fegurstu haustlitum. Verð 2.000
kr. (hálft gjald fyrir 7-15 ára).
2. Kl. 10.30 Leggjabrjótur.
Gengin gamla þjóðleiðin úr Hval-
firði til Þingvalla. 5-6 klst.
ganga. Verð 1.200 kr.
3. Kl. 13.00 Heiðmörk - Frið-
land Reykvíkinga 40 ára. Sjá
auglýsingu annars staðar í dálk-
inum.
Brottför í ferðirnar frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin.
Ferðafélag Islands.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Sunnudagur7. okt. kl. 13
Heiðmerkurdagur
Haustlitaferö í tilefni 40 ára af-
mælis Heiðmerkur og þar með
skógarreits FÍ. Vígður verður eir-
skjöldur með áletrun til minning-
ar um Jóhannes Kolbeinsson,
sem stjórnaði skógræktarferð-
um FÍ. frá upphafi til 1976. Vign-
ir Sigurðsson frá Skógræktarfé-
lagi Reykjavíkur mun fræða um
skógrækt í Heiðmörk. Gengið
verður um fallega skógarstíga í
skógarreit F(. og nágrenni. Létt
fjölskylduganga. Haustlitirnir
skarta sínu fegursta. Enginn
ætti að láta sig vanta. Verð 500
kr., frítt fyrir 15 ára og yngri m.
foreldrum sinum. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin, kl. 13, en þátttakendum
gefst einnig kostur á að koma
á einkabílum. Allir velkomnir!
Gamla þjóðleiðin frá Hvalfirði
til Þingvalla (Leggjabrjótur) kl.
10.30, en haustlitaferð að Þing-
vallavatni er frestað vegna
Heiðmerkurdags. Þórsmörk í
haustlitum kl: 08. Gerist félagar
í Fi. Fyrsta myndakvöld vetrarins
er miðvikudagskvöldið 10. okt. í
Sóknarsalnum, Skipholti 50a, kl.
20.30.
Fjölmennið.
Ferðafélag íslands.
'líftnvdt fe^
ÚTIVIST
GRÓFIHNII • REYKJAVÍK • SÍMlAÍMSVARI 14601
Sunnudagur 7. okt.
Kl. 09.00: Reykjavikurgangan
2. ferð: Krappinn - Keldur:
Gangan hefst við Fiská. Gengið
upp með Rangá og Tungufoss
skoðaður og einnig Skútufoss i
Fiská. Gönguglöðum gefst kost-
ur á að ganga á Árgilsstaðafjall.
Haldið áfram upp Krappann og
aö Keldum.
Kl. 13.00: Köldunámur-
Lambafellsgjá
Ný og skemmtileg gönguleið um
hrikalegt landssvæði suð-vestur
af Sveifluhálsi. Létt ganga fyrir
alla fjölskylduna.
Sjáumst!
Útivist.
fomhjólp
í dag er opið hús í Þríbúðum frá
kl. 14.00-17.00. Að vanda sjá
Dorkaskonur um veifingar og
barnagæslu. Þá verður almenn-
ur söngur kl. 15.30 en reynslan
hefur sýnt að flestir reyna að
vera með í honum. Líttu við í
dag og vertu með.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Safnaðarsamkoma kl. 11.
Ræðumaður Sam Glad. Barna-
gæsla. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðumaður Indriði
Kristjánsson.
Sunnudagaskóli kl. 16.30.
Mánudagur: Biblíuskólinn,
Völvufelli. Nýr áfangi hefst kl.
19.30. Námsefni: Ræðu-
mennska.
Systrafundur i Fíladelfíu kl.
20.30.
Miðvikudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Föstudagur: Æskulýðssam-
koma kl. 20.30.
Laugardagur: Bænastund kl.
20.30.