Morgunblaðið - 06.10.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
33
í.............-
KENNSLA
Frá Háskóla íslands
Læknadeild
Próf fyrir læknakandídata með
erlend háskólapróf
Skrifleg próf í heilbrigðisfræði og félagslækn-
isfræði verða haldin 27. október 1990
kl. 9.00-11.00 í gamla Verslunarskólanum
við Grundarstíg.
Munnlegt próf í réttarlæknisfræði verður
!haldið sama dag kl. 13.00-15.00 í rann-
sóknastofu Háskólans við Barónsstíg.
Þeir, sem óska eftir að gangast undir þessi
próf, sendi skriflega umsókn ásamt prófskír-
teini til skrifstofu læknadeildar Háskóla ís-
lands, Vatnsmýrarvegi 16, fyrir 16. október
1990.
Upplýsingar um námsefni gefa forstöðu-
menn viðkomandi kennslugreina.
LÖGTOK
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að und-
angengnum úrskurði verða lögtök iátin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjald-
enda, en á ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum
liðnum^frá birtingu auglýsingar þessarar, fyr-
ir eftirtöldum gjöldum:
Virðisaukaskatti fyrir maí og júní 1990, söiu-
skatti fyrir júní og júlí 1990 svo og söluskatts-
hækkunum álögðum 10. ágúst 1990 til 3.
október 1990, gjaldföllnu vörugjaldi af inn-
lendri framleiðslu, gjaldföllnum launaskatti,
gjaldföllnum skemmtanaskatti og ógreiddum
aðflutningsgjöldum.
Reykjavík, 6. otkóber 1990.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
ATVINNUHUSNÆÐI
Til leigu í Mjódd
100-300 ferm. á 2. hæð. Lyfta er í húsinu.
Þetta er góður staður fyrir hvers konar þjón-
ustuaðila. Þarna eru allir bankar, pósthús,
SVR, lyfjabúð, verslanir, alls konar þjónusta.
Næg bílastæði og sívaxandi umsvif.
Nánari upplýsingar í síma 620809.
SJÁLFSTJEÐISFLOKKURINN
F É L A C, S S T A R F
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vörn
Hádegisfundur laugardaginn 6. október kl. 12.00 á Hótel KEA.
Fundarefni:
1. Fyrirlesari: Nanna Yngvadóttir.
2. Önnur mái.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði boðar til fundar þriðju-
daginn 9. október 1990 kl. 20.301 Sjálfstæðishúsinu við Strandgötu.
Dagskrá: Davíð Oddsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir
stjórnmálaviöhorfin, Jóhann G. Bergþórsson, bæjarfulltrúi, ræðir
bæjarmál. Greint verður frá fundi kjördæmisráðs.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Kjördæmisráð
Vesturlands
Fundur verður haldinn á Hótel Borgarnesi 10. október kl. 20.00.
Tekin verður ákvörðun um framboðsmál.
Hvað veist þú um stjórnmál
t.d. alþingiskosningar?
Kynntu þér starfsemi Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins, sem er
kvöld- og helgarskóli og hefst 29. október - 8. nóvember.
Innritun og upplýsingar daglega í síma 82900 (Þórdís).
Bæjarmálefni
Fundur um bæjar-
málefni verður hald-
inn sunnudaginn 7.
október kl. 10.30 í
Sjálfstæðishúsinu,
Heiðargerði 20.
Báejarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins
mæta á fundinn.
Allir velkomnir.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi.
FUS, Baldur - Seltjarnarnesi
Aðalfundur
Aðalfundur FUS,
Baldurs á Seltjarn-1
arnesi verður hald- j
inn laugardaginn 6. [
október nk. á Aust-
urströnd 3, kl. [
16.00.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Venjuleg aðal-1
fundarstörf.
3. Önnur mál.
Fundarstjóri Davið Stefánsson, formaður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna.
Gestur fundarins: Petrea Jónsdóttir, bæjarfulltrúi.
Stjórnin.
Hafnarfjörður - haustblót
Sjálfstæðismenn í
Hafnarfirði efna til
haustblóts í Skút-
unni föstudaginn
12. október sem
hefst með fordrykk
kl. 19.30. Glæsileg-
ur kvöldverður.
Heiðursgestur: Sr.
Hjálmar Jónsson frá
Sauðárkróki.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi til kl. 3.00.
Veislustjóri: Árni Johnsen.
Miðaverð aðeins kr. 3.000,-. Forsala aðgöngumiöa í Sjálfstæðishús-
inu laugardaginn 6. október kl. 10.00 til 13.00. Miðapantanir hjá
Mjöll Flosadóttur í síma 51149 og Pétri Rafnssyni í síma 54998.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði.
Borgarnes
Viðtalstími bæjarfulltrúa
I vetur verða viðtalstímar bæjarfulltrúa
fyrsta mánudag hvers mánaðar. ( þessum
viðtalstímum gefst Borgnesingum kostur á
að spjalla við bæjarstjórnarfulltrúa og vara-
menn ásamt nefndamönnum flokksins.
Fyrsti fundurinn verður haldinn mánudag-
inn 8. október kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu
við Brákargötu. Allir velkomnir.
o
'
FUS, Suðurlandskjördæmi
Stofnfundur
kjördæmissamtaka
Stofnfundur kjördæmissamtaka félaga ungra sjálfstæðismanna í
Suðurlandskjördæmi verður haldinn sunnudaginn 7. október kl. 14.00
í Sjálfstæðishúsinu, Austurvegi 38, Selfossi.
Gestir fundarins verða Davíð Stefánsson, formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna, Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður, og Vikt-
or Borgar Kjartansson, formaður kjördæmissamtaka ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjaneskjördæmi.
Dagskrá fundarins:
1. Tillaga um stofnun samtakanna.
2. Lagasetning.
3. Kosning formanns.
4. Kosning stjórnar.
5. Önnur mál.
Félög ungra sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi:
Eyverjar, Vestmannaeyjum,
Fjölnir, Rangárvallasýslu,
Hersir, Árnessýslu,
FUS, Hveragerði.
Aðalfundur félags
sjálfstæðismanna í
Bakka- og Stekkjahverf i
verður haldinn í Val-
höll laugardaginn
13. október kl.
11.00 árdegis. Dag-
skrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Fundarstjóri: Óskar
V. Friðriksson.
Gestur fundarins:
Magnús L. Sveins-
son.
Stjórnin.
Reykjaneskjördæmi
prófkjör
Kjördæmisráð sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjördæmi hefur ákveð-
ið að viðhafa prófkjör um val frambjóðenda á framboðslista Sjálfstæð-
isflokksins við næstu alþingiskosningar í Reykjaneskjördæmi. Próf-
kjörið mun fara fram eigi síðar en 10. nóvember nk og mun verða
samkvæmt c-lið 2. greinar prófkjörsreglna Sjálfstæðisflokksins. Hér
með auglýsir kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi
eftir framboðum í prófkjöri og er fiokksbundnum sjálfstæðismönnum
heimilt að gera tillögu til kjörnefndar enda skal slík tilllaga borin fram
af minnst 20 flokksmönnum. Enginn flokksmaður getur mælt með
fleirum en fjórum slíkum framboðstillögum. Kjörnefnd er heimilt að
tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar ef ástæða þykir til. Fram-
boðum skal skilað til kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins að Hamraborg
1 í Kópavogi milli kl. 17.00 og 18.00 mánudaginn 15. október nk.,
en þann dag rennur framboðsfrestur út. Frambjóðendur skulu skila
með framboðinu mynd til kjörnefndar.
Nánari upplýsingar veitir formaður kjörnenfdar Bragi Mikaelsson,
Birkigrund 46, Kópavogi, sími 42910.
Kjörnenfd Sjálfstæðisflokksins i Reykjaneskjördæmi.
Vesturland
Aðalfundur
kjördæmissamtaka ungra
sjálfstæðismanna
Aðalfundur kjör-
dæmissamtaka
ungra sjálfstæðis-
manna á Vestur-
landi verður haldinn
laugard. 6. október
í sundlauginni á
Hvanneyri kl. 18.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
2. Önnur mál.
Á eftir verður snæddur kvöldverður í Bændaskólanum. Áhugasamir
eru hvattir til að skrá sig hjá formönnum aðildarfélaga sinna. Gestur
fundarins verður Davíð Stefánsson formaður SUS. Fundarstjóri Guð-
laugur Þór Þórðarson 1. varaformaður.
Stjórnin.
Félag sjálfstæðismanna íVestur-
og miðbæjarhverfi
Aðalfundur
Félag sjálfstæðismanna í Vestur- og mið-
bæjarhverfi heldur aðalfund fimmtudaginn
11. október nk. í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
kl. 20.30 stundvíslega.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.