Morgunblaðið - 06.10.1990, Page 41

Morgunblaðið - 06.10.1990, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990 41 HLUTVERKASKIPTI Kynbomban Basinger snýr sér að poppinu að vakti ekki litla athygli er leikkonan og kynbomban Kim Basinger og hinn sérvitri poppsnillingur Prince tóku sam- an og varði samband þeirra í nokkra mánuði. Því lauk síðan með hvelli og yfirlýsingum Bas- inger um sérvitringsleg uppá- tæki popparans. Síðan er tals- vert vatn runnið til sjávar og Basinger tekin saman við leikar- ann Alec Baldwin. Hallast marg- ir að því að hún hafí siglt inn í llf Prince undir fölsku flaggi og raunveruleg ætlun hennar hafí verið að nema eins mikið um popptónlist á eins skömmum tíma og frekast var kostur og hvergi hefði hún getað ratað í betri smiðju heldur en hjá meist- aranum Prince. Þetta telja menn nú vera að sannast vegna þess að skyndilega er Basinger farin að þreifa fyrir sér sem söngkona. Basinger syngur töluvert í nýjustu kvikmynd sinni, „The Manying Man“ þar sem hún ieikur á móti fyrrnefndum Bald- win. Er hennar eigin rödd notuð í söngatriðunum, sem ekki er algengt hjá leikkonum, og flestir gagnrýnendur virðast sammála um að hún hafí ljómandi rödd og ágæta tækni. Plötufyrirtækið „Giant Records". í Hollywood hefur falast eftir samningi við Basinger og er talið að hún fari í hljóðver í byijun næsta árs og hljóðriti hljómplötu með frum- sömdu efni. Á nýlegri frumsýningu vestur í Hollywood gerðist það meðal annars markvert að Basinger mætti ekki í æpandi kynbombu- klæðnaði eins og hún hefur jafn- an gert við slík tækifæri, heldur í leðurfötum að hætti poppara og þótti það vera til marks um breyttar áherslur ungfrúarinnar. Kim Basinger í kyn- bombuhlutverkinu. Tlutancv Heílsuvörur nútímafólks Vertu öruggur! Veldu GoldStar! GoldStar símkerfin eru hvarvetna viöur- kennd fyrir gæöi og hugvitsamiega hönnun. • Ótal möguleikar fyrir allar stærðir fyrirtækja. • Vönduð uppsetning og forritun. 100% þjónusta. • Tugir ánægðra notenda. • Síðast en ekki síst: Frábært verö. KRISTALL HF. SKEIFAN 11B - SÍMI 685750 Ath! GoldStar síminn m/símsvara á kr.9.952.- Efþú hittirfœrðu milljónir Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.