Morgunblaðið - 06.10.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
41
HLUTVERKASKIPTI
Kynbomban Basinger
snýr sér að poppinu
að vakti ekki litla athygli er
leikkonan og kynbomban
Kim Basinger og hinn sérvitri
poppsnillingur Prince tóku sam-
an og varði samband þeirra í
nokkra mánuði. Því lauk síðan
með hvelli og yfirlýsingum Bas-
inger um sérvitringsleg uppá-
tæki popparans. Síðan er tals-
vert vatn runnið til sjávar og
Basinger tekin saman við leikar-
ann Alec Baldwin. Hallast marg-
ir að því að hún hafí siglt inn í
llf Prince undir fölsku flaggi og
raunveruleg ætlun hennar hafí
verið að nema eins mikið um
popptónlist á eins skömmum
tíma og frekast var kostur og
hvergi hefði hún getað ratað í
betri smiðju heldur en hjá meist-
aranum Prince. Þetta telja menn
nú vera að sannast vegna þess
að skyndilega er Basinger farin
að þreifa fyrir sér sem söngkona.
Basinger syngur töluvert í
nýjustu kvikmynd sinni, „The
Manying Man“ þar sem hún
ieikur á móti fyrrnefndum Bald-
win. Er hennar eigin rödd notuð
í söngatriðunum, sem ekki er
algengt hjá leikkonum, og flestir
gagnrýnendur virðast sammála
um að hún hafí ljómandi rödd
og ágæta tækni. Plötufyrirtækið
„Giant Records". í Hollywood
hefur falast eftir samningi við
Basinger og er talið að hún fari
í hljóðver í byijun næsta árs og
hljóðriti hljómplötu með frum-
sömdu efni.
Á nýlegri frumsýningu vestur
í Hollywood gerðist það meðal
annars markvert að Basinger
mætti ekki í æpandi kynbombu-
klæðnaði eins og hún hefur jafn-
an gert við slík tækifæri, heldur
í leðurfötum að hætti poppara
og þótti það vera til marks um
breyttar áherslur ungfrúarinnar.
Kim Basinger í kyn-
bombuhlutverkinu.
Tlutancv
Heílsuvörur
nútímafólks
Vertu öruggur!
Veldu GoldStar!
GoldStar símkerfin
eru hvarvetna viöur-
kennd fyrir gæöi og
hugvitsamiega
hönnun.
• Ótal möguleikar fyrir
allar stærðir fyrirtækja.
• Vönduð uppsetning og
forritun. 100% þjónusta.
• Tugir ánægðra notenda.
• Síðast en ekki síst:
Frábært verö.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Ath! GoldStar síminn
m/símsvara á kr.9.952.-
Efþú hittirfœrðu milljónir
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.