Morgunblaðið - 06.10.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
47
9
I
-i
J
Þessir hringdu
Fást miðarnir
endurg-reiddir?
Kristbjörg hringdi:
„Eins og kunnugt er varð
ekki af tónleikum Whitesneke í
Reiðhöllinni vegna þess að
söngvarinn veiktist en sagt var
að miðarnir yrðu endurgreiddir.
Sonur keypti miða á tónleikana
en það ætlar að ganga illa að
fá þá endurgreidda. Fyrirtæki
sem nefndi sig Snjóboltinn stóð
fyrirtónleikahaldinu en það virð-
ist vera gufað upp og búið er
að aftengja símann sem það
auglýsti. Sá aðili sem seldi okkur
miðana sagðist hafa fengið þau
svör frá þessum mönnum að það
ætti að auglýsa í blöðum hvenær
og hvar miðar yrðu endurgreiddir.
Ég hef ekki séð að staðið hafi ver-
ið við það og vil nú forvitnast um
hvort einhver getur greitt fyrir okk-
ur í þessu máli.“
Kápa
Kápa var tekin í misgripum fyrir
aðra í sal Söngskólans í apríl. Upp-
lýsingar í síma 15404 eftir kl. 18
eða í síma 602685 á daginn.
Köttur
Kötturinn Moli, sem er rauðbrúnn
á lit og 7 mánaða gamall, fór að
heiman frá sér að Laugarnesvegi
fyrir hálfum mánuði. Hann var vel
og með endurskinshálsól. Vinsam-
legast hringið í síma 670285.
Kettlingur
Þriggja mánaða kassavön læða
fæst gefins. Upplýsingar í síma
98-22779
Spark
Til Vetvakanda.
Mér skilst að íþróttafréttamenn
ríkissjónvarpsins séu og hafi ein-
göngu stundað bolta-íþróttir. Enda
hafa fréttamyndir af- frjálsum
íþróttum goldið þess. Þess vegna
mælist ég til og veit að þar tala
ég fyrir munn, skrifa fyrir hönd,
mörg þúsund keppenda og velunn-
ara fijálsraíþrótta, að eftirleiðis ríki
jafnræði á þessu sviði. Til að mynda;
einn þeirra manna sem flytja frétt-
ir af íþróttum sé eða hafi verið títt
nefndur íþróttamaður.
Gullöld fijálsra íþrótta á íslandi
er hægt að endurreisa, nægur er
efniviðurinn, en einungis með því
að gamlir garpar haldi vöku sinni,
og fjölmiðlar láti sitt ekki eftir
liggja.
Gömul kempa
»
»
»
Fjármálaráð-
herra svari
fyrir sig
Til Velvakanda.
Ég vil þakka Drífu Hilmarsdóttur
fyrirspum sína í opnu bréfi til þín
ijármálaráðherra Ólafur Ragnar
Grímsson undir fyrirsögninni, —
Tapast hafa 245 þúsulídir — sem
birtist í Morgunblaðinu þann 27.
september síðastliðinn.
Við sem urðum þolendur hinna
afturvirku skattalaga á sama hátt
og Drífa Hilmarsdóttir, bíðum eftir
svari þínu, fjármálaráðherra.
Lárus Jóhannsson
5WR5TT
IRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEl
Opiö bréf til Ólafs Ragnai-s Gríinssonar fjármálaráðherra
Tapast hafa 245 þúsundir!
eftirDrífu
Hilmarsdóttur
Þú sem Qármálaráðherra ert
mikill áhrífavaldur f lífi mfnu, eins
annarra lslendinga. Þannig hef-
til dæmis sakleysislegt ákvæði f
skattalögum sem þú mæltir fyrir
og samþykkt voru á Alþingi f fyrra
gjörbreytt högum minum — til hins
verra. Það sama gildir um fjölda
annarra sem voru svo ólánssamir
að skipta um húsnæði á árinu 1989
og treystu þágildandi lögum. Þetta
ákvæði kostaði mig 245 þúsund
krónur sem ég átti rétt á f vaxtaaf-
Ltt þegar ég skipti um húsnæði.
Slfk fjárhæð skiptir miklu máli
fyrir vepjulegt launafólk, ekki sfst
þegar það hefur f fullum rétti gett
ráð fyrir henni f sínum fjárhagsá-
ætlunum.
Ég seldi fbúðina mfna f mars
-J89 og keypti aðra á sama tfma.
Ég fór varlega, vissi hver greiðslu-
gcta mfn var, og fór að margitrek-
aðri hvatningu stjómvalda um að
reisa mér ekki hurðarásumöxlf
húsnæðiskaupum. Einmitt vegna
þess hve vel ég kynnti mér málin
vissi ég að ég átti rétt á vaxtaaf-
slætti vegna lána sem sá sem keypti
af mér íbúðina tók yfir.
Samkvæmt skattalögum átti ég
að fá 245 þúsund krónur f ágúst á
þessu ári f vaxtaafslátt. Ég fékk
hinsvegar ekki krónu. Ástæðan var
sú að eítir að ég skipti um hús-
næði var lögunum um þessi mál
breytt, og þau látin gilda frá ára-
mótum 1988-1989.
Það sem geröist var einfaldlega
að stjómvöld hirtu af mér, og Öðrum
sem voru svo ólánssamir að skipta
um fbúð á þessum tfma, stórfé —
með lögum sem giltu aftur f tfmann.
Og gagnvart þvf er maður algjör-
lega vamariaus. Ég gat ekki vitað,
þegar ég skrifaði undir kaupsamn-
inginn, að grundvellinum undan
honum yrði sfðar kippt burtu á Al-
þingi.
Þetta er svipað þvf að f dag yrðu
sett lög um nýjan skatt uppá 250
þúsund krónur á alla þá sem skiptu
um húsnæði. Og þau lög tækju gildi
frá og með sfðustu áramótum. Eða
þá að allir þeir sem hafa keypt sér
greiða t.d. 100 þúsund i séretakan
skatt sem komið væri á núna.
Um þetta hefur verið nokkuð
fjalfað f Qölmiðlum og meðal ann-
ars kom fram á Alþingi frumvarp
að lögum sem miðaði að þvf að
þetta afturvirknisákvæði yrði fellt
úr skattalögunum - en það dagaði
uppi. Þá hefur þú verið spurður um
þetta f sjónvarpi. Þú svaraðir þvf
þá til að máiið yrði athugað, og að
vel mætti bæta fólki það tjón sem
það hefði orðið fyrir af þessum sök-
um.
Siðan er liðinn einn mánuður, og
enn bólar ekkert á aðgerðum. Þvf
spyr ég ráðherrann: Hvemig geng-
ur að kanna þetta mál? Hefurðu
ennþá áhuga á þvf að bæta það tjón
sem þú ollir mér og fjölda annarra
sakleysingja, sem halda að þeir
geti treyst lögum landsins? Hvemig
ætlar þú að gera það?
Þar sem (jöldi fólks f sömu spor-
um og ég treystir þvf að þessi mis-
tök verði leiðrétt þá vonast ég eftir
svari hið fyrsta.
Drifa Hilmarsdóttir
„Hvernig gengur að
kanna þetta mál? Hef-
urðu ennþá áhuga á því
að bæta það tjón sem
þú ollir mér og fjölda
annarra sakleysingja,
sem halda að þeir geti
treyst iögum landsins?
Hvernig ætlar þú að
gera það?**
Hjartans þakkir og kveöjur sendi ég öllum, sem
með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeyt-
um, glöddu mig á nírœöis afmœli mínu 30.
september sl.
Jörína G. Jónsdóttir.
OPIÐ LAUGARDAGA FRA KL. 10-16
LONDON
AUSTURSTRÆT114 - S. 14260
I
I
I
)
I
I
H
Leggið útibú-
ið ekki niður
Til Velvakanda.
I langa tíð hefur ekki verið fram-
ið jafn ómannúðlegt verk og það
sem íslandsbanki ætlar að gera
núna. Að leggja niður útibú bank-
ans í Drafnarfelli í Fellahverfi. Hér
býr fólk, sem komið er á efri ár, í
tuga ef ekki í hundraða tali. Þetta
fólk þráir það eitt að geta bjargað
sér sjálft á meðan stætt er. Nú er
þessu fólki vísað út í kuldann. Því
er ætlað að fara norður í Lóuhóla
í hvaða veðri sem er, snjó og hálku
til að borga sína reikninga og fleira.
Við sem eldri erum höfum ekki
þann sið, að standa ekki í skilum,
ef við getum annað.
Iðnaðarbankinn fékk leyfi á sín-
um tíma til að byggja og reka þenn-
an banka í Drafnarfelli í Fella-
hverfi. Með það að leiðarljósi, að
starfa hér um ókomin ár. Það hefur
verið mikil og góð þjónusta fyrir
allan þann mannfjölda sem hér býr.
Nú á að taka þetta frá okkur.
Hvernig geta eða vilja forráðamenn
Islandsbanka framkvæma svo mik-
ið óréttlæti. Að hafa ekki nema einn
banka, norður f Lóuhólum fyrir
Fella- og Hólahverfi, þar sem búa
fleiri þúsund manns.
En lítum niður Laugaveginn og
gamla Miðbæinn. Þar eru bankar
næstum því á hveiju götuhorni.
Þaðan er fólkið að mestu leyti flutt
í burtu. Nei, við í Fellahverfí mót-
mælum öll þessari aðför. Ef til vill
erum við líka svo litlir kúnnar að
það sé lítil eftirsjá í okkur. Ég býst
líka við að árslaun okkar ellilífeyris-
þega frá Tryggingastofnun ríkisins,
séu ekki meira en mánaðarlaun eins
bankastjóra, ef ekki minna.
Svo eru líka fleiri bankar. í
Mjóddinni eru bæði Landsbankinn
og Búnaðarbankinn. Það er ekki
lengra að fara í þá. Ég efast ekki
um að þar yrði okkur vel tekið. Ég
hef áður skiþt við Búnaðarbankann
og líkaði það vel.
Að síðustu vona ég að netið sem
þeir eru að mynda utanum íslands-
banka verði með það stórum möskv-
um að maður geti skriðið út um
þá. Vonandi verður einhver annar
banki svo vinsamlegur að stofna
hér útibú fyrir okkur í Fellahverfi.
Gömul húsmóðir.
-------------
Reiðhjól
Til Velvakanda.
Nýlega var stolið tveim reiðhjól-
um úr húsagarði í Vesturbænum.
Annað er hvítt BMX TEAM hjól
með rauðum púðum og hitt er
grænleitt Kalkhoff karlmannshjól
með ryðguðu krómstýri. Er það til-
finnanlegt tap fyrir eina fjölskyldu
að verða fyrir þessu. Ef einhver
hefur orðið var við hjólin þá er sá
hinn sami beðinn að hringja í síma
14887 eða 697302.
Olga Sverrisdóttir.
ilegar standklukkur
Nýkomnar handútskornar standklukkur í mörgum gerðum.
Hægt er að velja um tvo hljómfagra klukkuslætti í hverri klukku
(Lady of Fatima og Westminster).
Verð frá 106.000.,"
Marco,
Langholtsvegi 111, sími 680690.