Morgunblaðið - 06.10.1990, Qupperneq 52
f
VOLVO
Besti vinur sjómannsins!
LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 1990
Bensínlítrinn í 56,80 krónur:
Bensíngjald hækkar en innflutn-
ingstollar lækka tímabundið
Áskrifendur spari-
skírteina ríkissjóðs:
Greiða ekkert
þjónustugjald
ÞEIR áskrifendur spariskírteina
ríkissjóðs hjá Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, sem óska að
greiða bréfin með greiðslukorti,
þurfa ekki að greiða 1,5% þjón-
ustugjald greiðslukortafyrir-
tækjanna. Að sögn Péturs Krist-
inssonar, framkvæmdastjóra
Þjónustumiðstöðvar ríkisverð-
bréfa, er ástæðan fyrir þessu
hagstæðir samningar sem náðst
hafa við greiðslukortafyrirtæk-
in.
„í þessum viðskiptum gildir
ákveðið sölulaunafyrirkomulag, og
► ^við erum að spara okkur sölulaunin
með því að fá áskrifendur, en það
sem við greiðum greiðslukortafyrir-
tækjunum er mun minna en það
sem við þyrftum að borga í sölu-
laun. Við erum því ekki með þessu
að eyða almannafé í óþarfa,“ sagði
Pétur.
Sérstakt átak stendur nú yfir í
áskriftarsölu spariskírteina, og á
hálfum mánuði hafa um 500 nýir
áskrifendur bæst við þá 4.000 sem
fyrir voru.
Útvarpsráð:
Þáttur um
Dalai Lama
endurfluttur
ÚTVARPSRÁÐ ályktaði á
fundi sínum í gær að útvarps-
þáttur um Dalai Lama, sem
var fluttur í útvarpi sl. laugar-
dag og þá styttur án samráðs
við höfund, verði fluttur aftur
óstyttur næstkomandi sunnu-
dagskvöld.
I ályktun útvarpsráðs segir
að þau vinnubrögð sem viðhöfð
voru við flutning þáttarins séu
hörmuð, og nauðsynlegt er að
leiðrétta þau með því að endur-
taka þáttinn óstyttan. Ályktunin
var samþykkt samhljóða.
SAMKVÆMT ákvörðun verð-
lagsráðs hækkar verð á blýlausu
bensíni í dag um 9,2%, eða úr 52
kr. lítrinn í 56,80 kr. Þá hafa olíu-
félögin ákveðið 11,3% hækkun á
súperbensíni, eða úr 56,50 kr.
lítrinn í 62,90 kr. Bensíngjald
hækkar í dag um 6%, og nemur
hækkun bensínverðs af þeim sök-
um 1,38 kr. á hvern lítra. Stefnt
er að því að innflutningstollar af
bensíni verði lækkaðir til áramóta
úr 50% í 30-35%, þannig að tekjur
ríkisins af bensíntollum verði
óbreyttar að krónutölu.
Ríkisstjórnin hefur veitt fjármála-
ráðherra heimiid til að lækka álagn-
ingu innflutningstolla á bensíni, og
mun hann leggja fyrir Alþingi frum-
varp um tímabundna lækkun á
bensíntollum til 31. desember næst-
komandi. Hlutur ríkisins af tollum
og virðisaukaskatti af innflutnings-
verði á bensíni mun því ekki hækka
frá því sem gilti til 1. október, og
er reiknað með að bensínverð haldist
óbreytt út þetta ár komi ekki til frek-
ari hækkunar á olíuverði á heims-
markaði. Ef ekki hefði verið tekið
tillit til ákvörðunar um tímabundna
tollalækkun hefði verð á bensíni
hækkað í 60,10 kr. lítrinn, og sam-
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
kvæmt því verður ríkið af um 50
milljóna króna tekjum á mánuði.
Veittur er gjaldfrestur á innflutn-
ingsgjöidum af olíu, og er því unnt
að gera ráð fyrir að lög um tíma-
bundna tollalækkun verði afturvirk
frá_ 1. október.
í dag gengur í gildi 6% hækkun
bensíngjalds, en samkvæmt upplýs-
ingum fjármálaráðuneytisins nemur
hækkunin með virðisaukaskatti 1,38
kr. á hvern lítra. Gert var ráð fyrir
þessari hækkun í forsendum ijárlaga
og átti hún að taka gildi 1. júlí, en
var þá frestað. Tekjur ríkissjóðs af
hækkun bensíngjaldsins nema um
22 milljónum króna á mánuði.
Hækkun á bensínverði nú er áætl-
uð jafngilda 0,40% hækkun fram-
færsluvísitölu, en hækkunin hefði
orðið 0,65% ef fyrirheit um tíma-
bundna tollalækkun hefði ekki komið til.
Verðlagsráð:
Notkun gjald-
skrár fasteigna-
sala bönnuð
VERÐLAGSRÁÐ hefur samþykkt
að banna útgáfu og notkun gjald-
skrár, sem Félag fasteignasala
hefur gefið út og farið eftir und-
anfarið eitt og hálft ár.
Samkvæmt lögum fá fasteignasal-
ar 2% sölulaun, en auk þess hafa
þeir gefið út sérstaka gjaldskrá með
ýmsum gjöldum. Málefni fasteigna-
sala hafa verið til umfjöllunar hjá
Verðlagsstofnun frá því þeir hækk-
uðu gjaldskrána 1. júlí síðastliðinn
og var útgáfa hennar bönnuð á fundi
verðlagsráðs í gær.
Viðræður um orkuverð til nýs álvers:
Til greina kemur að Landsvirkjun
skipi sérstaka samning'amenn
JÓHANNES Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjunar, segir að til
greina komi, sérstaklega með tilliti til umræðna, sem farið hafa
fram um hlut fyrirtækisins í samningum um orkusölu til nýs ál-
vers, að stjórn Landsvirkjunar skipi sérstaka samningamenn af sinni
hálfu til að fylgjast með samningunum héðan í frá og til loka.
Stjórnarfundur verður í Landsvirkjun í næstu viku.
„Þessir samningar, sem farið samningum. Framvinda þessara
hafa fram um orkumál, ei-u hluti máia hefur verið kynnt jafnóðum
af heildarsamningum, sem fyrst og
fremst hafa verið unnir af ráð-
gjafa- og samninganefnd iðnaðar-
ráðuneytisins, sem ég hef verið
formaður fyrir,“ sagði Jóhannes í
samtali við Morgunbiaðið í gær.
„í viðræðum um orkusamning-
inn höfum við notið aðstoðar og
þátttöku forstjóra og starfsmanna
Landsvirkjunar eins og eðlilegt er,
en að mínu mati er það samninga-
nefnd iðnaðarráðuneytisins, sem
hefur borið heildarábyrgð á þessum
stjórn Landsvirkjunar, sem að lok-
um verður að sjálfsögðu að taka
afstöðu til málsins."
Jóhannes sagði að sá áfangi, sem
nú hefði náðst varðandi orkumálin,
þýddi að búið væri að komast að
hugsanlegum samningsgrundvelli
aðiia um ýmis atriði samningsins.
„Hins vegar eru mörg atriði, sem
miklu máli skipta, enn óafgreidd
og sum ekki nema lítið rædd af
ýmsum ástæðum. Það hvarflaði
aldrei að mér að það væri tíma-
bært fyrir stjórn Landsvirkjunar
að áiykta á þessu stigi málsins um
hluta samningsgerðar, sem hún
þarf svo að taka afstöðu til sem
heildar á síðari stigum málsins.
Hér er eingöngu um að ræða
áfanga í samningsgerð, og ég held
að það væri alveg óvenjulegt að
aðili, sem á að taka endanlega af-
stöðu til máls, taki formlega af-
stöðu til áfanga í samningsgerð,"
sagði hann.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
sagði í samtali við blaðið í gær að
hann teldi að Landsvirkjun hefði
komið eðlilega að samningaviðræð-
um um nýtt álver. „Eg ber auðvit-
að ábyrgð á samningunum í heild
sem iðnaðarráðherra, en eðlilega
hefur það verið þannig að samning-
arnir um orkuverðið hafa verið á
vegum Landsvirkjunar," sagði
hann. Hann sagði það vera mál
Landsvirkjunar hvort hún skipaði
sérstaka samningamenn, en hann
efaðist ekki eitt andartak um um-
boð forráðamanna fyrirtækisins.
Iðnaðarráðherra hitti í gær for-
mann og varaformann Sjálfstæðis-
flokksins, þá Þorstein Pálsson og
Davíð Oddsson, að máli.
Aðspurður hvort hann hefði ósk-
að stuðnings sjálfstæðismanna við
að koma álmálinu í gegn á Alþingi
sagði hann: „Ekki sérstaklega, en
að sjálfsögðu hlýt ég sem iðnaðar-
ráðherra að leita eftir svo víðtæk-
um stuðningi sem auðið er við svo
mikilvægt mál.“
Sjá einnig fréttir af
álmálinu á bls. 22.