Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/
STOFNAÐ 1913
228. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Blóðug átök í Jerúsalem:
19 arabar skotnir á
Musterishæðinni
Talið er að um 3.000 arabar
hafi safnast saman á Musterishæð-
inni og létu þeir gijóti rigna yfir
þúsundir gyðinga sem voru við
bænagjörð við -grátmúrinn sem er
á hæðinni. Spurst hafði út að
strangtrúaðir gyðingar hygðust
ganga fylktu liði á hæðina og hefja
Fimmta ein-
vígi Karpovs
og Kasparovs
New York. Reuter.
Heimsmeistaraeinvígið í skák
milli Garrí Kasparovs heims-
meistara og Anatólíjs Karpovs
hófst í gærkvöldi í New York.
Þar verða fyrstu tólf skákirnar
tefldar en seinni tólf skákirnar í
Lyon í Frakklandi. Sá vinnur sem
fyrr hlýtur 12 */z vinning. Sigur-
vegarinn fær jafnvirði um 110
milljóna íslenskra króna í sinn
hlut en sá sem tapar hlýtur 65
miHjónir króna.
Hér er um að ræða fimmta ein-
vígi kappanna um heimsmeistaratit-
ilinn. Samtals hafa Kasparov, sem
er 27 ára gamall, og Karpov, sem
er 39 ára gamall, teflt 131 skák
innbyrðis. Kasparov hefur unnið 19
skákir og Karpov 17 en 95 skákum
lauk með jafntefli.
Skákkapparnir fara ekki einungis
ólíkar leiðir á skákborðinu; Karpov
er félagi í sovéska kommúnista-
flokknum en Kasparov hefur nýlega
tekið þátt í stofnun Lýðræðisflokks
Rússlands. Fyrir einvígið núna sak-
aði Kasparov aðstoðarmann Karpovs
um að reyna að múta sínum mönnum
til að fá upplýsingar um undirbúning
heimsmeistarans. Karpov hefur
vísað þessu á bug.
Sjá „Tölvur eiga ...“ á bls. 29.
framkvæmdir við byggingu sam-
kunduhúss. Musterishæðin er heil-
ög í hugum bæði múslima og gyð-
inga. Hugðust arabarnir hindra það
og reyndu að stökkva gyðingunum
á flótta með gijótkasti.
Leiðtogi Palestínumanna á Vest-
urbakkanum, Faisal al-Husseini,
var handtekinn í mótmælunum og
hefur honum verið gefið að sök að
hafa hvatt til óeirðanna.
Abu Sharif, einn af leiðtogum
PLO, krafðist þess að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) verndaði
Palestínumenn á hernumdu svæð-
unum í ísrael og skipaði ísraelum
jafnframt að heíja brottflutning
sveita sinna af svæðunum.
Javier Perez de Cuellar fram-
kvæmdastjóri SÞ sagði að sér virt-
ist ísraelar hafa gengið fram af
helst til mikilli hörku. Francois Mitt-
errand Frakklandsforseti sagði at-
burðinn minna menn enn einu sinni
á nauðsyn þess að leiða deilur ísra-
ela og araba til lykta með samning-
um.
Reuter
Neyðarástand skapaðist á sjúkrahúsum í austurhluta Jerúsalem í gær er þangað var komið með tugi
manna sem særðust er her- og lögreglumenn leystu upp mótmælaaðgerðir araba á Musterishæðinni í
Jerúsalem í gær. Hér er komið með ungan Palestínumann á sjúkrahús.
Fyrsta íraska flutninga-
skipið tekið á Persaflóa
London. Reuter.
BRESKIR, bandarískir og ástralskir sjóliðar fóru um borð í íraskt
flutningaskip, Tadmur, á Persaflóa og sneru því til hafnar þegar í
ljós kom að farmur skipsins braut í bága við viðskiptabann Samein-
uðu þjóðanna. Skipstjóri Tadmurs sinnti stöðvunarboði breskrar frei-
gátu, Brazen, og kom því ekki til þess að skotið væri að skipinu.
Hins vegar lét skipstjóri annars
flutningaskips, A1 Wasitti, ekki
segjast og hægði ekki á ferðinni
fyrr en bresk, bandarísk og áströlsk
hersKip höfðu skotið yfir stefni þess
undan Múskat, höfuðborg Ómans.
Sjóliðar fóru um borð en eftir fjög-
urra stunda rannsókn á farmi skips-
ins var því leyft að halda áfram
ferðinni.
Tadmur er fyrsta íraska skipið
sem reynir að sigla með ólöglegan
farm fram hjá hinni öflugu flota-
deild sem komin er til Persaflóa til
Bandaríkin:
Fulltrúadeildin samþykk-
ir nýtt fiárlagafrumvarp
Washington. The Daily Telegraph.
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings samþykkti í gær fjár-
lagafrumvarp næsta fjárlaga-
árs og búist var við því að öld-
ungadeildin gerði það einnig.
Ekki var vitað í gærkvöldi
hvort George Bush Banda-
ríkjaforseti væri sáttur við
nýju fjárlögin en mikill styrr
hefur staðið um þau svo mán-
uðum skiptir.
Repúblikanar i fulltrúadeild-
inni greiddu flestir atkvæði gegn
fjárlagafrum-
varpinu í gær.
Það er að mörgu
leyti líkt frum-
varpi því sem
fulltrúadeildin
felldi á fimmtu-
daginn var, t.d.
er kveðið á um
að ijárlaga-
hallinn verði skorinn niður um
500 milljarða dala næstu fímm
árin. Hins vegar fá ýmsar þing-
nefndir, þar sem demókratar eru
í meirihluta, aukið svigrúm ti! að
ákveða skattahækkanir. Einnig
er dregið úr niðurskurði til heil-
brigðismála.
Agreiningurinn um íjárlögin
hefur leitt til þeirrar óvenjulegu
stöðu að útgjöld ríkisins nema til
allra nauðsynlegustu þarfa eins
og varnarmála hafa verið stöðv-
uð. Á föstudag, degi eftir að full-
trúadeildin felldi frumvarp stjórn-
arinnar, samþykkti þingið aukaf-
járlög til þess að brúa bilið þang-
að til ný fjárlög tækju gildi. Bush
neitaði hins vegar að undirrita
aukafjárlögin með fyrrgreindum
afleiðingum. Þetta gerði hann til
þess að setja aukinn þrýsting á
þingmenn um að samþykkja fjár-
lög í anda frumvarps ríkisstjórn-
arinnar. Ekki var vitað í gær-
kvöldi hvort forsetinn hygðist
halda fyrri afstöðu sinni til streitu
en það myndi fela í sér gífurlega
röskun á starfsemi hins opinbera
í Bandaríkjunum strax í dag þeg-
ar fólk mætir aftur til vinnu að
lokinni þriggja daga helgi.
þess að framfylgja viðskiptabanni
SÞ á írak vegna innrásarinnar í
Kúvæt. Á þeim tíma sem liðinn er
frá innrásinni hefur farmur 208
skipa verið skoðaður.
Margaret Thatcher forsætisráð-
herra Bretlands og George Bush
Bandaríkjaforseti gáfu til kynna um
helgina að írakar myndu hverfa
með innrásarheri sína frá Kúvæt
og ekki þyrfti að koma til hernað-
arátaka við Persaflóa. Sérlegur
sendimaður Míkhaíls Gorbatsjovs
sovétleiðtoga tók í sama streng eft-
ir viðræður við Saddam Hussein
íraksforseta og aðra leiðtoga lands-
ins, en í leiðinni samdi hann um
að þriðjungur 5.000. sovéskra
tæknimanna og hernaðarráðgjafa
fengju að fara frá Irak í þessum
mánuði.
Qaboos soldánn af Óman var
ekki jafn bjartsýnn á friðsamlega
iausn stríðsástandsins við Persaflóa
í gær og sagði leiðtóga ýmissa
arabaríkja vilja jafna um íraka með
hernaðaraðgerðum þar sem tveggja
mánaða viðskiptabann og tiiraunir
til að leysa deiluna um Kúvæt eftir
pólitískum leiðum hefðu engu áork-
að.
Henry H. Mauz yfirmaður banda-
ríska flotans á Persaflóa sagði að
írakar gerðu sér grein fyrir því að
flutningaskip kæmust ekki lengur
til hafnar með ólöglegan farm og
lægju því tugir íraskra skipa við
festar utan við flóann.
Jerúsalem. Reuter.
ÍSRAELSKAR her- og lögreglusveitir skutu a.m.k. 19 Palestínumann
á Musterishæðinni í austurhluta Jerúsalemborgar í gær er þar kom
til átaka vegna fyrirhugaðrar byggingar samkunduhúss gyðinga á
hæðinni. Óttast var að tala fallinna ætti eftir að hækka.