Morgunblaðið - 09.10.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
Akranes:
Is-Arctic kaupir niður-
suðuverksmiðju Arctic
Stefnt að því að framleiðsla geti haf-
ist eftir um það bil hálfan mánuð
NÝSTOFNAÐ hlutafélag, Is-Arctic hf., hefur gert samning við
Landsbanka íslands um kaup á niðursuðuverksmiðjunni Arctic á
Akranesi. Samningurinn er að sögn Ottars Ingvarssonar, fram-
kvæmdastjóra, gerður með nokkrum fyrirvörum en Ottar sagðist
í samtali við Morgunblaðið vonast til að hægt yrði að hefja fram-
leiðslu í verksmiðjunni eftir um það bil hálfan mánuð.
Tveir hluthafar, þeir Óttar og
Eyþór Ólafsson fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lag-
metisins, standa að Is-Arctic en
að sögn Óttars, sem skrifaði undir
samninginn fyrir hönd hlutafé-
lagsins, er meiningin að franskt
dreifingar- og sölufyrirtæki, Spec-
ialim sarl í París, gerist hluthafi
í félaginu á næstunni.
Óttar sagði að fyrirtækið hefði
fengið vilyrði frá bæjarstjórninni
á Akranesi um áfslátt .á gjöldum
af starfseminni. Þá benti hann á
að gera þyrfti lagfæringar á hós-
næði verksmiðjunnar til þess að
vinnsluleyfí Ríkismats sjávaraf-
urða fengist og hægt væri að hefja
framleiðslu í verksmiðjunni. Ráð-
gert er að framleiða í henni kavíar
og niðursuðuvörur.
Aðspurður sagðist Óttar vera
bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins.
„Við höfum nú þegar gert ramma-
samninga með þeim fyrirvara að
framleiðslán fari í gang,“ sagði
Óttar, „og höfum þannig tiyggt
söluna næstu mánuði. Við von-
umst svo til þess að framleiðslan
geti farið í gang eftir um það bil
hálfan mánuð.“ I máli Óttars kom
einnig fram að Ásgeir Eiríksson,
rekstrarhagfræðingur, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri verk-
smiðjunnar.
Gert er ráð fyrir að fastir starfs-
menn í verksmiðjunni verði 15 til
25.
Morgunblaðið/Sverrir
Viðskiptaviðræður íslendinga ogSovétmanna hafnar
Almennar viðskiptaviðræður íslendinga og Sovét-
manna hófust í Borgartúni 6 í gær og myndin var
tekin við það tækifæri. í íslensku viðræðunefndinni
eru Sveinn Á. Bjömsson í utanríkisráðuneytinu, sem
er jafnframt formaður nefndarinnar, Jón Ógmundur
Þormóðsson skrifstofustjóri viðskiptaráðuneytisins,
Björn Tryggvason aðstoðarbankastjóri Seðlabank-
ans, Jóhann R. Benediktsson sendiráðsritari í ut-
anríkisráðuneytinu, Benedikt Sveinsson fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar Sambandsins,
Einar Benediktsson framkvæmdastjóri Síldarútvegs-
nefndar, Garðar Sverrisson framkvæmdastjóri Sölu-
samtaka lagmetis, Geir A. Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri Marels, Gísli Guðmundsson forstjóri
Bifreiða og landbúnaðarvéla, Gylfí Þór Magnússon
framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, Magnús Ásgeirsson hjá Olíufélaginu hf. og
Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss hf. Formaður sov-
ésku nefndarinnar er Y. Ledentsov.
Sex tilboð hafa borist í
Hvaleyri hf. í Hafnarfirði
Blaðamaður
Morgunblaðs-
ins íIrak
Blaðamaður Morgunblaðs-
ins, Jóhanna Kristjónsdóttir,
hefur fengið vegabréfsáritun
til Iraks og er nú komin til
Bagdad til fréttaöflunar fyrir
blaðið. Vegna þess hve _tal-
samband er erfítt við írak
reyndist ókleift að koma frétt-
um frá henni til íslands í gær.
ALfstaða til tilboðanna tekin 1 þessari viku
SEX TILBOÐ hafa borist í Hvaleyri hf. í Hafnarfirði, þar á meðal
frá Hval hf., og afstaða til þeirra verður að öllum líkindum tekin í
þessari viku, að sögn Jóhanns Bergþórssonar forstjóra Hagvirkis.
Hagvirki á 50 milljóna króna hlut í Hvaleyri hf., Jón S. Friðjónsson,
forstjóri Hvaleyrar, 5 milljóna króna hlut og Samherji hf. á Akur-
eyri 50 milljóna króna hlut. Jóhann segi'r að rætt hafi verið um að
bæði Hagvirki og Samheiji drægju sig út úr rekstri Hvaleyrar.
Jóhanh Bergþórsson segir að
segir Jón Guðmundsson.
Guðrún Lárusdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stálskipa hf. í Hafn-
arfírði, segist ekki hafa gert tilboð
í Víði HF. „Það væri slæmt að missa
kvóta Víðis frá Hafnarfírði, þar sem
skipið hefur landað miklu af sínum
afla á fiskmarkaðinum í Hafnar-
fírði, auk þess sem erfitt er fyrir
hafnfirska sjómenn að fá vinnu.
Við höfum hins vegar ekki bolmagn
til að kaupa Víði, Fyrir skipið fengj-
ust í mesta lagi 60-70 milljónir
króna ef það væri selt kvótalaust
úr landi,“ segir Guðrún Lárusdóttir.
segir
Hagvirki vilji selja sinn hlut í Hval-
eyri fyrst og fremst vegna þess að
fyrirtækið hafi fengið sænsk-norsk-
an samstarfsaðila, sem vilji að Hag-
virki einbeiti sér að verktakastarf-
semi. Jóhann segir að eignir Hval-
eyrar hf. verði annaðhvort seldar í
heilu lagi eða bútum en fyrirtækið
Skotið á gæsir
við Suðurgötu
ÞRJÁR gæsir, ein dauð og tvær
særðar, fundust á túni við Suður-
götu í gær. Ekki er vitað hver
hlut átti að máli en för eftir
jepþabifreið fundust í grasinu.
Áflífaþurfti særðu gæsirnarþeg-
ar lögreglan kom á vettvang um
klukkan 18.15 í gærkvöld. Talið er
líklegt að skotið hafí verið á gæsim-
ar úr bifreið en ekki er vitað hveij-
ir þar vom að verki.
Tvær gæsanna vom merktar.
á frystihús í Hafnarfírði og togar-
ann Víði HF, sem er með 2.200
tonna aflakvóta í þorskígildum.
Verðmæti kvótans er 264 milljónir
króna miðað við 120 krónur fyrir
kílóið af „varanlegum“ aflakvóta.
Jóhann segir hugsanlegt að aðili
utan Hafnarfjarðar kaupi Víði HF
en bæjaryfírvöld í Hafnarfírði hafi
verið látin vita af því að ætlunin
væri að selja hlut Hagvirkis í Hval-
eyri. „Hins vegar er ekkert leyndar-
mál að það hefur verið vandamál
að manna frystihús Hvaleyrar,"
segir Jóhann Bergþórsson.
Jón Guðmundsson, forstjóri
Sjólastöðvarinnar hf. í Hafnarfirði,
segist hafa áhyggjur af því að Víðir
HF verði seldur frá Hafnarfírði en
fullyrðir að Sjólastöðin hafi ekki
gert skriflegt tilboð í skipið. „Við
höfðum ekki áhuga á því verði, sem
menn töldu sig geta fengið en það
hefði alveg komið til greina að
kaupa bæði frystihúsið og Víði,“
Síldarsöltun hefst í dag
SIGÞÓR ÞH veiddi 25-30 tonn af stórri síld í Norðfirði og Mjóafirði
aðfaranótt mánudags og síldin verður söltuð hjá Tanga hf. á Vopna-
firði í dag. Þetta er fyrsta síldin, sem söltuð er á þessari vertíð en
hún verður söltuð á bæði Rússlands- og Norðurlandamarkað. í næstu
viku á að taka til starfa á Vopnafirði fiskimjölsverksiniðja, sem
Tangi hf. á 26% hlut í.
Halldóra HF landaði rúmlega 30
tonnum af stórri og fallegri síld hjá
Síldarvinnslunni hf. í Neskaupstað
á sunnudag en skipið fékk aflann
við Hvalbakshall í Bemfjarðarál
aðfaranótt sunnudags. Þetta er
fyrsta sfldin, sem er landfryst á
þessari vertíð en hún er fryst á
bæði Japans- og Evrópumarkað og
í beitu, að sögn Magnúsar Magnús-
sonar frystihússtjóra Sfldarvinnsl-
unnar. Hann segir að fituinnihald
sfldarinnar sé mjög gott, eða
17-18%. Magnús segir að svipað
verð fáist fyrir heilfrysta sfld í Evr-
ópu og í fyrra, eða 450 sterlings-
þund fyrir tonnið.
Skriður að komast á samn-
inga um Hvalfj ar ðargöng
Bæjaryfirvöld á Akranesi, Sementsverksmiðjan á Akranesi og
Járnblendiverksmiðjan hafa átt í viðræðum við fulltrúa samgöngu-
ráðuneytis um gerð jarðganga undir Hvalfjörð. Tveir fundir hafa
verið haidnir og Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi kveðst bjart-
sýnn á að frumsamkomulag náist á þriðja fundi þessara aðila sem
haldinn verður næstkomandi fimmtudag. Yrði þar um að ræða
samkomulag um stofnun hlutafélags sem sæi um framkvæmdir og
rekstur ganganna.
Fulltrúar bæjaryfírvalda á Akra-
nesi, Sementsverksmiðjunnar og
Jámblendiverksmiðjunnar lögðu
fram drög að samkomulagi á fyrsta
fundi sínum með fulltrúum sam-
gönguráðuneytis fyrir nokkrum
vikum. í þeim var gert ráð fyrir
stofnun, _hlutaf41ags_ sem sæi um
framkvæmdir við jarðgöng undir
Hvalfjörð og rekstur þeirra til 30
ára með innheimtu veggjalds. Þar
lýstu þessir aðilar sig reiðubúna
til að hafa forgöngu um stofnun
félags sem stæði fyrir undirbún-
ingsrannsóknum gegn því að hljóta
fyrrgreind réttindi. Samkvæmt
eldri útreikningum em þ_ndirbún-_
ingsrannsóknir taldar kosta 5Ö-SÖ
milljónir króna.
„Það voru minniháttar breyting-
ar sem samningahópur ríkisins
lagði til á síðasta fundi sem hald-
inn var fyrir hálfum mánuði. Þeir
vildu að félagið sæi um rekstur
ganganna í 25 ár í stað 30 ára og
auk þess aðra útfærslu á því hver
réttur félagsins yrði til fram-
kvæmda," sagði Gísli Gíslason.
Hann sagði að í samningsdrög-
unum hefði einnig verið nánari
útfærsla á uppgjöri félagsins þar
sem tekið væri tillit til ákveðinna
afskriftareglna sem um málið
gilda. ........... r..............
Um 550 innbrot og þjófnaðir í bíla
í Reykjavík það sem af er árinu:
Bílrúður brotnar og-
verðmætum stolið
FÆRST hefur í vöxt að brotist sé inn í bíla við fjölfarna staði
um hábjartan dag og stolið úr þeim verðmætum. Um helgina
voru fjögur slík tilvik kærð til lögreglunnar í Reykjavík. 306
slík tilvik hafa verið kærð á þessu ári til RLR auk 247 tilvika
þar sem stolið hefur verið úr bílum án þess að skemmdum sé
valdið.
- I hádeginu á sunnudag var
brotin hliðarrúða í nýlegum Volvo
sem stóð við Sundlaugarnar í
Reykjavík og tekin úr aftursæti
hans svört skjalataska.
Með líkum hætti var brotist inn
í bfl við Ármúla og þaðan stolið
tösku með ávísanahefti og ýmsum
gögnum.
Læknistösku var stolið úr læst-
um bfl við Laugaveg 137.
Þá var brotist inn í bfl á Sel-
tjamarnesi og úr honum stolið
skjalatösku með námsbókum.
Að sögn Helga Daníelssonar,
j([fírlögregluþjóns_ hjá RLR, va.r
tilkynnt um 33 innbrot í bfla í
septembermánuði einum og höfðu
306 kærur af þessu tagi borist
það sem af er árinu. Að auki höfðu
borist 247 kærur vegna þjófnaða
úr bílum þar sem spjöll höfðu
ekki verið unnin. Stolið er hvers
konar verðmætum, radarvörum,
myndavélum, skjalatöskum, út-
vörpum auk þess sem oft er miklu
tjóni valdið með því að bijóta rúð-
ur bflanna. Rannsóknarlögreglan
vill brýna fyrir fólki að skilja ekki
verðmæti eflir í bílum, jafnvel
þótt læstir séu.