Morgunblaðið - 09.10.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
5
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Njarðvík:
Nýr tengivegur
á milli hverfa
Keflavík.
NÝR tengivegur á milli Innra-
og Ytra-hverfis í Njarðvík var
opnaður við hátíðlega athöfn á
sunnudaginn. Aður þurfti að fara
um Reykjanesbraut til að komast
á milli hverfanna, en nú er þess
ekki þörf lengur. Lúðrasveit
Tónlistarskóla Njarðvíkur lék við
athöfnina og síðan lýsti Krislján
Pálsson bæjarstóri framkvæmd-
um í stuttu máli. Sóknarprestur-
inn, séra Þorvaldur Karl Helga-
son, flutti bæn og að því loknu
opnaði Jakob Snælaugsson hús-
vörður í Njarðvíkurskóla og íbúi
í Innra-hverfinu nýja veginn.
fjöldi gesta var viðstaddur og
bauð bæjarstjórnin öllum í kaffi í
safnaðarheimilinu að athöfninni
lokinni. Kostnaður við vegagerðina
er um 23 milljónir sem skiptist til
helminga á milli ríkis og Njarðvík-
urbæjar. _ BB
Forraaður
ráðherra-
ráðs EFTA
í heimsókn
DAGANA 8.-9. október er staddur
hér á landi Jean-Pascal Dela-
muraz, efnahags- og viðskiptaráð-
herra Sviss, en hann er formaður
ráðherraráðs Fríverslunarsam-
taka Evrópu (EFTA) fram til ára-
móta.
Tilgangur heimsóknarinnar er að
ræða við utanríkisráðherra um stöð-
una í samningaviðræðum EFTA-ríkj-
anna og Evrópubandalagsins. Hann
mun einnig eiga fund með forseta
íslands, forsætisráðherra, sjávarút-
vegsráðherra, viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra og fjármálaráðherra.
Ók út af
vegi og í á
MAÐUR slasaðist mikið og var
fluttur með þyrlu til Reykjavíkur
eftir að bíll sem hann ók lenti
út af vegi og hafnaði í Fitjá í
Húnavatnssýslu aðfaranótt
sunnudags.
Kona sem var farþegi í bílnum
slapp með lítilsháttar meiðsli, að
sögn lögreglu. Að sögn lögreglu á
Blöndósi var maðurinn talinn á
góðum batavegi í gær.
Verið velkomin í mjög ánægjuiegan reynsluakstur faxafen 8. sími 91 • 68 ss 70
Bmsugí
gervihnattadiskana er hægt ab fá meb
snúningstjakki sem skiptir sjálfvirkt á milli
gervihnatta, til móttöku á enn fleiri
sjónvarpsstöbvum. Allur okkar búnabur
eru viburkenndur af Pósti og síma.
Sækjum um öll leyfi! Munib ab panta fyrir
IO. október
Við kynnum nú Daihatsu Appiause með sítengdu aidrifí og er
hann eins vei búinn tii vetraraksturs á íslandi og nokkur
fólksbifreið getur verið.
nsr 1600 rúmsentímetra, 16 ventla, 105 hestafla vél með beinni innspýtingu og
fullkominni mengunarvörn.
i®- Sítengt aldrífmeð driflæsingu á afturhásingu og slúðurkúplingu sem sér um að
dreifa afli á milli fram- og afturhásingar eftir álagi hverju sinni.
isr Völ<va- og veltistýri.
Sjálfstæð fjöðrun á hverju hjóli.
bs> Samlæsingar á öllum hurðum.
csr Rafdrifnar rúður og speglar.
i®" 14 tommu álfelgur.
ísamanburði við keppinautana þá býður Dalhatsu Applause upp á mjög mikinn
staðalbúnað, t.d. driflæsingu á afturhásingu. Okkur er því mikil ánægja að I<ynna
Daihatsu Appiause með sftengdu aldrifí á frábæru verði:
Kr. 1.186.000 stgr. á götuna
Við vitum hvað keppinautarnir kosta
og við hvetjum eindregið til verðsamanburðar.
Nýr DAIHATSU APPLAUSE 4x4