Morgunblaðið - 09.10.1990, Síða 7
FLEXON
Við veftum þér
allar tœknllegar
upplýsingar
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
SiMI (91)20680* FAX (91) 19199
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTOBER 1990
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
VESTUR-ÞÝSKUR
HÁGÆÐA
DRIFBÚNAÐUR
DRIF-
OG
FLUTNINGSKEÐJUR
Allar stœrðir
Hagstœtt verð
Morgunblaðið/Ingvar
Bifreiðin skall á valtaranum eftir að ökumaðurinn hafði misst
stjórn á henni.
Bandaríkja-
menn í bílslysi
TVEIR Bandaríkjamenn úr Varn-
arliðinu á Keflavíkurflugvelli slö-
suðust mikið þegar bíll sem þeir
voru í ók á kyrrstæðan valtara á
Reykjanesbraut, skammt norðan
Vogaafleggjara á sunnudags-
morgun.
Mennirnir voru á leið til Reykja-
víkur. Reykjanesbrautin var hál
vegna mikillar rigningar. Við skil á
veginum þar sem mætast nýmalbik-
aður kafli og uppfræst eldra slitlag,
missti ökumaðurinn vald á bílnum
sem rann stjórnlaust á valtara sem
stóð við brún vegarins. Mennirnir
tveir sem í bílnum voru slösuðust
mikið; farþeginn á baki en ökumað-
urinn hlaut áverka á baki, bijósti,
höndum og fótum.
Fimmtíu og
fimm með
HlV-smit
Þrír hafa látist á árinu
FIMMTIU og fimm Islendingar
hafa greinst með smit af völdum
HlV-veirunnar fram að 30. sept-
ember sl. og er sá fjöldi óbreyttur
frá því um mánaðamótin júní og
júlí í sumar. Af þeim hafa 14
greinst með alnæmi og átta af
þeim eru látnir.
í skýrslu frá landlæknisembættinu
kemur fram að kynjahlutfall HIV-
smitaðra og alnæmissjúklinga er u.
I þ.b. ein kona á móti hveijum sex
körlum. Flestir smitaðra eru sam-
kynhneigðir karlar (37), þá koma
fíkniefnaneytendur (7 karlar og 1
kona) og blóðþegar (4) sem allir eru
konur. Fjórir gagnkynhneigðir ein-
staklingar (1 karl og þijár konur)
hafa greinst með smit af völdum
HlV-veirunnar. Einn samkynhneigð-
ur fíkniefnaneytandi hefur greinst
með smit en smitleiðir tveggja ein-
staklinga eru óþekktar.
Flestir þeirra, sem greinst hafa
með smit, eru á aldrinum 20 til 29
ára.
Glitnirhf
Gefur þínu fyrirtæki forskot
I hrakningum á vél-
arvana gúmmíbáti
VILTÞÚ STYRKJA SAMKEPPNISSTÖÐU ÞÍNA?
TVEIR menn lentu í hrakningum á vélarvana gúmmíbáti á leið
milli Akraness og Reykjavíkur á sunnudag. Bátinn, sem hvorki var
búinn árum, neyðarmerkjum, ljósum, né fjarskiptabúnaði, rak að
landi á Kjalarnesi og komust mennirnir í land og gátu gert vart við
sig á bæ þar um klukkan hálfellefu að kvöldi. Þá var hafin víðtæk
leit að þeim með þátttöku fjögurra slysavarnasveita.
Glitnir gerir þér það kleift!
Þegar valið stendur um fjármögnun býður Glitnir fyrirtæki þínu möguleika sem
geta skipt sköpum. Möguleika sem auðvelda þér fjárfestingu í tækjum og búnaði,
á afgerandi hátt.
Kostir fjármögnunar hjá Glitni:
• Þú nýtir staðgreiðsluafslátt með fullri fjármögnun.
• Þú færð fjármögnun á samkeppnishæfum kjörum.
• Þú átt kost á iánstíma sem hentar fjárfestingunni.
• Þú endurgreiðir í takt við væntanlegar tekjur af fjárfestingunni.
• Þú skerðir ekki lausafjárstöðu fyrirtækisins.
Glitnir býður eftirtalda fjármögnunarkosti:
• Fjármögnunarleigu: Tveggja til sjö ára samningur þar sem
fjárfestingin er afskrifuð á samningstímanum.
• Kaupleigu: Tveggja til sjö ára samningur, hliðstæður fjárfestingarláni.
• Greiðslusamning: Stuttur samningur I 6 til 18 mánuði með
óverðtryggðum greiðslum. Hentar vel við smærri fjárfestingar.
1 • Erlend lán: Lánstími eftir vali, til allt að 7 ára.
Þú getur náð forskoti í samkeppni með hagkvæmri fjárfestingu. Ræddu
málin við okkur - með réttri fjármögnun geturðu náð árangri sem um munar.
Mennirnir höfðu ásamt, tveimur
öðrum siglt til Akraness frá Reykja-
vík fyrr um daginn. Á leið þangað
varð vart gangtruflana í 35 hest-
afla vél bátsins og varð úr að
tvennt fór með Akraborg síðdegis
aftur til Reykjavíkur en mennirnir
tveir afréðu að sigla. Þegar þeir
höfðu ekki náð til hafnar klukkan
hálfníu, um tveimur klukkustund-
um á eftir áætlun, var Slysavarna-
félaginu gert viðvart og hófst þegar
leit með þátttöku sveita frá Reykja-
vík, Seltjarnarnesi, Kjalarnesi og
Akranesi. Myrkur var þá skollið á.
Um klukkan hálfellefu bárust boð
um að mennirnir væru komnir fram
heilir á húfi á Kjalarnesi. Vél báts-
ins hafði stöðvast norður af Engey
og hafði bátinn rekið fyrir hag-
stæðri vindátt, suðvestan 4-6 vind-
stigum, að hentugum lendingarstað
án þess að mennirnir hefðu nokkurn
búnað sem gæti gert þeim kleift
að hafa áhrif á hvort og hvar bát-
inn bæri að landi. Þeir voru
kiæddir í vinnuflotgalla og vel á sig
komnir eftir volkið.
VDDAF.29.1 / SÍA