Morgunblaðið - 09.10.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
15
Tillaga borgar-
fulltrúa minni-
hlutans:
Laun starfs-
fólks dag-
vista verði
endurmetin
BORGARFULLTRÚAR minnihlu-
taflokkanna í borgarstjórn
Reykjavíkur lögðu fram tillögu á
borgarsljórnarfundi á fimmtu-
daginn um að skipaður verði
starfshópur til að endurmeta
launakjör starfsfólks á dagvistar-
heimilum borgarinnar. Tillögunni
var vísað frá að tillögu borgar-
stjóra, sem sagði, að í tillögunni
fælist, að starfshópnum yrðu falin
þau verkefni, sem afgreidd væru
í kjarasamningum.
Ólín Þorvarðardóttir, borgarfull-
trúi Nýs vettvangs, flutti tillöguna
um starfshópinn. I máli hennar kom
fram, að hlutverk starfshópsins ætti
að vera tvíþætt; annars vegar að
taka fyrir ákveðna þætti í starfsemi
dagvistarheimila borgarinnar, sem
kölluðu á endurmat og launaleiðrétt-
ingu hið fyrsta og hins vegar að
hefjast handa við heildarmat á störf-
um fóstra og ófaglærðs starfsfólks.
Hún sagði að þótt mannaráðningar
hjá Dagvist barna hefðu líttillega
glæðst væri það ekki nóg til að stytta
biðlista eftir dagheimilis- og leik-
skólarýmum og ekki væri seinna
vænna að ráða á því bót.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, flutti
frávísunartillögu við tillögu fulltrúa
minnihlutaflokkanna. Hann sagði að
í henni fælist, að starfshópurinn
ætti að fjalla um þau atriði, sem
gengið væri frá í samningum stéttar-
félaga og borgarinnar. Sagði hann
að í þessum tillöguflutningi fælist
því mikið vantraust á stéttarfélögin
og teldi hann ólíklegt að þau myndu
fagna því að vera svipt samningsum-
boði með þessum hætti.
Frávísunartillaga borgarstjóra var
samþykkt eftir nokkrar umræður
með 10 atkvæðum sjálfstæðismanna
gegn 5 atkvæðum borgarfulltrúa
minnihlutaflokkanna.
HOMELITE
VATNSDÆLUR
KEÐJUSAGIR
RAFSTÖÐVAR
PÚRr
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11
- •
i
■
Beint leiguflug til Kanaríeyja í vetur
Þegar harðir vetrarvindar blása á Fróni í vetur er freistandi að bregða sér til
Kanaríeyja þar sem sólin skín alltaf skært og heit golan leikur um drifhvítar
strendurnar. Á Kanaríeyjum er sumar og sól guíltryggt allan veturinn .
Úrval-Útsýn býður 3ja vikna ferðir á mjög hagstæðu verði til Playa del
Ingles og Maspalomas á Kanaríeyjum í allan vetur.
'
Dæmi um verð: ^
Jólaferö -frá kr. C>3* 400
á mann miðað við 2 saman í íbúð. Brottför 19. desember.
Janúarferö-frá kr.
á mann miðað við 2 saman í íbúð. Brottför 9. janúar.
69.700
Liprir og traustir fararstjórar, þær Rebekka Kristjánsdóttir og Auður
Sæmundsdóttir þekkja hvern krók og kima og sjá til þess að ferðin verði
sem ánægjulegust og minnisstæðust.
Baðaðu þig í suðrænni sól í vetur. Komdu til Kanaríeyja.
Pa