Morgunblaðið - 09.10.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTOBER 1990
19
r
enda eða á að stefna að mismun-
andi skólum með ólík inntökuskil-
yrði?
2. Á að stefna að auknum tengsl-
um við atvinnulífið og hvernig?
3. Hversu víða á að bjóða upp á
hliðstætt nám sem krefst mikils og
dýrs búnaðar?
4. Hve mikil á samræming náms
að vera bæði hvað varðar innihald,
námskröfur og próf?
5. Er hægt að gera kerfið skilvirk-
ara og auka þannig laun kennara
án þess að kostnaður af skólahaldi
aukist?
íslenskir framhaldsskólar hafa
verið í deiglunni í rúman áratug.
Menntamálaráðuneytið hefur horft
upp á ýmsar tilraunir hér og hvar.
Margt hefur verið gert sem til heilla
horfir en oftast skipulagslaust eða
-lítið. Fáir vita af því sem í raun
er að gerast nema þeir sem næst
standa. Kennslubókaútgáfa er í
hreinum ólestri og kostnaður stjam-
fræðilegur (a.m.k. á sænskan mæli-
kvarða) sem framhaldsskólanem-
endur þurfa að bera. Kennarastéttin
er hundóánægð. Ef ekkert er að
gert sýnist mér stefna í hið mesta
óefni. Spurningin er bara sú: Hver
á að gera hvað?
Hefjumst handa
Allir eru sammála um að stefna
beri að sem bestum skilyrðum til
þroska fyrir æskuna. Vítin eru mörg
að varast og þróunin undanfarið
uggvænleg. Styrkja ber þær stofn-
anir áhugamanna og hins opinbera
sem hér geta helst reist rönd við.
Vinna þarf að almennum skilningi
fyrir því að hér er m.a. um fyrir-
byggjandi starf að ræða. Arðsemi
góðra skóla eða æskulýðsfélaga
hvers kyns verður aldrei mæld.
Hvað sparar það þjóðfélaginu að
aðeins einn unglingur, sem annars
færi inn á afbrota- eða eiturlyfja-
brautina verður að nýtum þjóðfé-
lagsþegn. Það er mikilvægt aðfylgja
eftir markmiðunum um „framhalds-
skóla fyrir alla“ með víðtæku, sam-
ræmdu þróunarstarfi. í þessu efni
getum við mikið lært af frændum
vorum Svíum.
í næstu pistlum mun ég gera
grein fyrir þróunarstarfi í einstökum
framhaldsskólum, bæði því sem vel
hefur tekist og eins hinu, sem miður
hefur gengið. Sofum ekki á verðin-
um, hefjum þjóðfélagsumræðu um
framhaldsskólann. STRAX!
Höfundur er skólameistari
Menntaskólans á Egilsstöðum og
er í ársleyfi frá störfum. Hann
stundarnám í
Gautaborgarháskóla íSvíþjóð.
Útreikningur
vaxtakostnaðar
eftir Gunnar
Tómasson
í grein sinni um „Horfur í efna-
hagsmálum" í Morgublaðinu 22.
ágúst sl. gagnrýndi höfundur m.a.
vinnubrögð starfsmanna Seðla-
banka íslands og Þjóðhagsstofnun-
ar við útreikning hlutfalls áfallins
vaxtakostnaðar í landsframleiðslu.
Að gefnu tilefni skal hér bent á
grein hagfræðinga Seðlabankans,
þeirra Bjarna Braga Jónssonar og
Kristjóns Kolbeins, um viðfangs-
efnið í 1.-2. hefti Fjármálatíðinda
1990, þar sem fram kemur að
starfsmenn Þjóðhagsstofnunar eiga
ekki aðild að málinu.
„Allar lagfæringar frá efni Þjóð-
hagsstofnunar,“ segja þeir Bjami
Bragi og Kristjón, „eru að sjálf-
sögðu á okkar ábyrgð og hagfræði-
deildar, en um leið réttar og eðlileg-
ar að okkar mati í samhéngi þessa
verks.“
Mat seðlabankamanna á „réttum
og eðlilegum" vinnubrögðum við
útreikning vaxtakostnaðar gengur
þvert á mat annarra fremstu sér-
fræðinga heims á vettvangi þjóð-
hagsreikninga, sem hinir fyrr-
nefndu segjast vilja vísa af villu-
brautum á eigin veg.
„Því miður hafa alþjóðlegir þjóð-
hagsreikningastaðlar enn ekki tekið
á þessum vanda,“ segja þeir félagar
til nánari útskýringar og láta þar
með að því liggja að brátt kunni
að bregða til betri vegar með glám-
skyggni hinna erlendu lærifeðra
íslenzkra þjóðhagsreikningsmanna!
„Þar sem hér eru raunvextir til
meðferðar er fjárhæð þeirra, en
ekki nafnvaxta, dregin frá lands-
tekjum til að fá fram þjóðartekjur,“
segir einnig í grein hagfræðinganna
til réttlætingar þeirri samsuðu hag-
stæðra á föstu verðlagi („raun'-
vaxta") og verðlagi hvers árs (ann-
arra tekjuliða), sem réttnefnd var
„rugl“ í fyrri grein höfundar.
Að lokum skal getið þeirrar meg-
inreglu faglegra vinnubragða við
gerð þjóðhagsreikninga, sem segir
„viðbót framleiðslustyrkja" við
„markaðsvirði" vera ófrávíkjanleg-
an lið í áætlun „tekjuvirðis (factor
cost),“ svo enn sé vitnað til orða
Bjarna Braga og Kristjóns.
5 daga helgarferð til
MALLORKA
BEINTLEIGUFLUG
Brottför miðvikudag 31. okt. - Heimkoma 4. nóv.
ÓTRÚLEGT VERÐ:
kr. 23.800, (4 í íbúð)
kr. 26.700, (3 í íbúð)
kr. 29.500, ( 2 í íbúð)
Buið er í glæsilegu íbúðahóteli í baðstrandar- og
verslunarborginni Magaluf rétt við höfuðborgina
Palma.
Þama er sjórinn, sólskinið og skemmtanalífið eins
og fólk vill hafa það.
Á Mallorka gerir fólk sérlega hagstæð innkaup og
vetrarvörumar eru í miklu úrvali í glæsilegum
verslunarhúsum. Á Mallorka kaupa Parísarbúar
frönsku tískuvömmar Ódýrara en heima hjá sér.
Farþegar okkar fá afsláttarkort í stærsta
vöruhúsinu.
íslenskir fararstjórar. Fjölbreyttar skemmti- og
skoðunarferðir.
PANTIÐ SNEMMA, ÞVÍ NÚ KOMAST FÆRRI EN VILJA
— Fllir.FERDIR
= SDLRRFLUG
Vesturgötu 12 - Sími 620066 og 15331
Gunnar Tómasson
„Höfuiidi er algjör ráð-
gáta hvers vegna hlið-
stæð rök falla fyrir
daufum eyrum seðla-
bankamanna á vett-
vangi fjármagnsmark-
aðar.“
Af reglunni leiðir m.a. að opin-
berir „framleiðslustyrkir" reiknast
til tekna/kostnaðar í íslenskum
landbúnaði, slíkt hið sama myndi
gilda varðandi útreikning vaxta-
tekna/vaxtakostnaðar í mynd
„verðbóta", sem greiddir væru fjár-
magnseigendum af almannafé.
Ágætir kollegar höfundar við
Seðlabanka íslands myndu ekki
lækka mat sitt á tekjum, kostnaði
í landbúnaði þótt „framleiðslustyrk-
ir“ yrðu felldir niður gegn samsvar-
andi hækkun útsöluverðs landbún-
aðarafurða til neytenda. Höfundi
er algjör ráðgáta hvers vegna hlið-
stæð rök falla fyrir daufum eyrum
seðlabankamanna á vettvangi fjár-
magnsmarkaðar.
Mistök eru mannleg. „Villugjarnt
kann að vera í svo flóknum útreikn-
ingurn" segja þeir Bjarni Bragi
Jónsson og Kristjón Kolbeins um
eigin vinnu og hafa þar lög að
mæla.
Höfundur er hagfræðingur.
ÐUR OFAR ÖÐRUM
-nýir og glæsilegir réttir
HtlíiNÚ AUCLÝSINGASTOfA