Morgunblaðið - 09.10.1990, Page 24
MÓRGUNBLÁÐÍÐ ÞRÍÍ)jubÁöt>R k' OlÍTÓBlÍR 1990'
Islandsvika hald-
in í Tammerfors
Islandsvinafélagið Islandia og nýja ráðstefnuhúsið í Tammerfors
í Finnlandi standa fyrir Islandsviku, dagana 19. til 24. október nk.,
sem verður viðamesta Islandskynning sem fram hefur farið í Finn-
landi fram til þessa. Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, mun
verða viðstödd setningu kynningarinnar, en forsetinn verður útnefnd-
ur heiðursdoktor við Tammerfors háskóla, sunnudaginn 21. október.
Á þriðja hundrað íslendingar fara
til Tammerfors vegna þessara há-
tíðarhalda. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra og Jón Sig-
urðsson viðskipta- og iðnaðarráð-
herra verða viðstaddir íslandsvik-
una. Jafnframt mun biskup Islands,
herra Ólafur Skúlason, og séra Sig-
urður Guðmundsson vígslubiskup
verða með í för, en sungin verður
hámessa á íslensku og finnsku í
dómkirkjunni í Tammerfors.
Sinfóníuhljómsveit íslands, sem
er að leggja upp í hljómleikaför um
Norðurlönd, byijar þá ferð í Tamm-
erfors, en aðalhljómsveitarstjóri
sinfóníunnar er Finni, Peter Sakari
og Tammerfors eru bernskuslóðir
Smáörk nr. 2 gefin út í tilefni
af degi frímerkisins.
Dagnr frí-
merkis-
ins í dag
í DAG 9. október er dagur
frímerkisins. Dagsins hefur verið
minnst frá 1961 með sérstökum
stimpli, sem hefur verið notaður
á pósthúsum borgarinnar.
Frá 1986 hefur verið gefin út
smáörk með yfirverði til styrktar
frímerkjasöfnun í landinu. í ár er
gefin út smáörk númer 2 vegna
ffimerkjasýningarinnar NORDIU
’91 sem haldin verður i Laugardais-
höll 27.—30. júní nk. í tilefni dags-
ins mun Félag frímerkjasafnara
hafa opið hús í félagsheimili
frímerkjasafnara að Síðumúla 17 í
Reykjavík. Þarna gefst almenningi
kostur á að kynnast starfi
frímerkjasafnara og til sýnis verða
allir þeir sérstimplar, sem notaðir
hafa verið á Degi frímerkisins til
þessa. Húsið verður opið frá klukk-
an 20.00-22.00.
Kór Langholtskirkju byijar
hljómleikaför sína um Suður-Finn-
land með því að syngja við hámessu
í dómkirkjunni í Tammerfors.
Ísiensk fyrirtæki, SÍS og Frost-
mar o.fl. aðilar hafa gefið íslenskan
mat, sem hafður verður á boðstólum
á meðan að kynningarátkið stendur
yfir.
Norræna húsið hefur tekið virkan
þátt í undirbúningi menningar-
vikunnar hér á íslandi, undirbún-
ingsfundir hafa nú um eins árs
skeið farið fram í húsinu, starfsfólk
hússins undir forysstu Lars-Áke
Engblom hefur annast skipulagn-
ingu ýmissa atriða sem koma við
sögu á íslandsvikunni, boðið
íslenskum rithöfundi til Finnlands,
annast uppsetningu landkynningar
í sýningarsölum Tammerforshúss-
ins og uppsetningu bókasýningar í
borgarbókasafninu í Tammerfors.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur fer
með 20 manns til Tammerfors, jafn-
framt verða haldnar ýmsar ráð-
stefnur sem tengjast íslandi á með-
an kynningardagamir standa yfir.
Þannig verður haldið vinabæja-
mót, en þar munu mæta fulltrúar
frá þremur íslenskum sveitarfélög-
um ásamt fulltrúum finnskra sveit-
arfélaga sem eiga vinabæi á íslandi.
Ráðstefna um versiun og við-
skipti landanna verður haldin þar
sem Jon Sigurðsson viðskiptaráð-
herra og Pertti Salolainen við-
skiptaráðherra Finna lýsa efnahag
og viðskiptalífi landanna.
íslenskir rithöfundar, tónlistar-
menn o.fl. koma fram við ýmis
tækifæri ýmist í Tammerfors-húsi
eða í háskólanum.
Aila dagana verður rekið sérstakt
kaffihús, Kaffe Reykjavík, í Tamm-
erfors-húsinu, þar sem almenningi
gefst kostur á að kaupa íslenskar
veitingar, en kaffístofa Norræna
hússins mun sjá um reksturinn.
Aðrar sýningar á vegum Norræna
hússins verða sýningar á íslenskri
grafík,_ ljósmyndasýning um stríðs-
árin á íslandi og sýning á íslenskum
steinum.
Flugleiðir hafa átt gott samstarf
við undirbúningsaðila vikunnar og
bjóða leiguflugvél til fararinnar.
Finnskir skólanemar sækja ísland
heim á meðan íslandskynningin fer
fram í Finnlandi, en um 150 Finnar
koma til íslands.
(Fréttatilkynning)
Þrír valdir í heiðursráð
krabbameinsfélagsins
DAVÍÐ Ólafsson, Ottó A. Michelsen og Tómas Árni Jónasson hafa
verið valdir í heiðursráð Krabbameinsfélags íslands, en það er æðsta
viðurkenning sem félagið veitir. í ráðinu eru „heiðursfélagar sem
til þess eru valdir fyrir frábært starf í þágu félagsins", eins og segir
í reglum um ráðið. Þremenningunum voru afhent skrautrituð heiður-
skjöl i móttöku í kjölfar formannafundar krabbameinsfélagsins, sem
haldinn var í Hafnarfirði á föstúdaginn.
Davíð Ólafsson fyrrverandi
seðlabankastjóri sat í vísindaráði
krabbameinsfélagsins frá stofnun
þess, 1985, og þar til á þessu ári.
Síðustu tvö árin var hann formaður
ráðsins. Þá hefur hann lagt félaginu
lið á ýmsan annan hátt.
Ottó A. Michelsen fyrrverandi
forstjóri var virkur þátttakandi í
skipulagi Þjóðarátaks gegn krabba-
meini árið 1982 í Reykjavík og söfn-
unar meðal fyrirtækja í kjölfar þess
átaks. Hann var fremstur í flokki
þegar krabbameinsfélaginu var af-
hent verðmæt tölvugjöf er félagið
flutti í Skógarhlið 8 haustið 1984.
Þá vann hann að undirbúningi þjóð-
arátaksins 1986 og veitti söfnunar-
nefnd Bústaðasóknar forystu í þjóð-
arátakinu 1990.
Tómas Árni Jónasson yfírlæknir
var í stjórn Krabbameinsfélags Is-
lands í ellefu ár, frá 1979 til 1990,
og í stjórn Krabbameinsfélags
Reykjavíkur í fimmtán ár, þar af
formaður frá 1979 til 1988.
Áður hafa fjórir verið valdir í
heiðursráð krabbameinsfélagsins.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, og verndari félagsins var
kjörin í ráðið fyrst allra, á 35 ára
afmæli félagsins árið 1986. Hjörtur
Hjartarson fyrrverandi forstjóri,
stjómarmaður félagsins 1952-
1987, var kjörinn í ráðið á aðal-
fundi 1987. Ólafur Bjarnason fyrr-
verandi prófessor var formaður fé-
lagsins 1973-1979, og Gunniaugur
Snædal prófessor var formaður fé-
lagsins 1979-1988; þeir voru kjöm-
ir í ráðið haustið 1988.
(Fréttatilky nn ing)
Morgunblaðið/Emilía
Kristinn Karlsson félagsfræðingur, Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri og Stefán Ólafsson for-
stöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Islands kynna niðurstöður lífskjarakönnunar á Norðurl-
öndum á blaðamannafundi.
Lífskjör á Norðurlöndum:
Svíar að tapa forystunni
Norðmenn og Islendingar að ná þeim,
en Finnar eru enn aftastir í röðinni
SVÍAR hafa ekki lengur þá afgerandi forystu sem þeir höfðu,
varðandi betri lífskjör en aðrar þjóðir, miðað við niðurstöður
könnunar um lífskjör og lífshætti á Norðurlöndum, sem sagt var
frá hér í blaðinu á dögunum. Á flestum sviðum hafa Islendingar
og Norðmenn komið allnærri þeim eða standa þeim framar, hins
vegar eru Finnar enn aftastir hvað lífskjörin varðar, eins og í
fyrri könnunum. Þetta kom fram á blaðamannafundi, þar sem
niðurstöður voru kynntar ásamt þremur ritum sem gefin hafa
verið út um þær. Fram kom, að það sem einkum einkennir Islend-
inga í niðurstöðunum er, að sjálfsbjargarviðleitni, mikill metnað-
ur í einkaneyslu og vilji til að leggja hart að sér virðist hafa
hafa skipað veigamikinn sess í þeim árangri sem Islendingar
hafa náð i eflingu efnalegra lífskjara.
I samantekt Félagsvísinda-
stofnunar um niðurstöður segir
meðal annars að mikil breyting
hafí orðið á kjörum Islendinga á
þessari öld. í upphafi aldarinnar
hafí þjóðin að öllum líkindum ver-
ið ein hinna fátækustu í Evrópu.
Þessi könnun og fyrri slíkar
bera meðal annars saman ein-
kenni fólksfjölda og fólksflölda-
breytinga, efnaleg lífskjör eins og
laun, tekjur, einkaneyslu, launa-
tengd fríðindi og fleira, atvinnu
og vinnutíma, vinnuaðstæður,
húsnæðisaðstæður og húsbúnað,
frístundaiðju, fjölskyldulíf og fé-
lagsleg tengsl, þátttöku í félags-
og stjómmálastarfi, persónulegt
öryggi, menntun, heilsufar og af-
stöðu til lífskjara.
Samkvæmt niðurstöðunum
hafa lífskjör íslendinga breyst
skjótar en algengt er meðal ná-
grannaþjóðanna og búa íslending-
ar nú við lífskjör sem jafnast á
við það sem best er meðal ná-
grannaþjóðanna á Norðurlöndum.
Hins vegar hafa íslendingar meira
fyrir öflun efnalegra lífskjara
sinna en nágrannaþjóðirnar. Það
er sagt tengjast annars vegar
skipan kjaramálanna hér á landi,
meirí barneignum meðal íslend-
inga og þar með stærri fjölskyld-
um, meiri atvinnuþátttöku fjöl-
skyldufólks og löngum vinnutíma
við öflun fjölskyldutekna. Hins
vegar er opinber forsjá á sviði
velferðarmála heldur veigaminni
hér á landi en hjá frændþjóðunum,
„sem reyndar ganga óvenju langt
í þeim efnum miðað við þjóðirnar
á Vesturlöndum. Þó er opinber
forsjá á sviði heilbrigðismála mik-
il hér á landi. Sjálfsbjargarvið-
leitni, mikill metnaður í einka-
neyslu og vilji til að leggja hart
að sér virðist hafa skipað veigam-
ikinn sess í þeim árangri sem ís-
lendingar hafa náð í eflingu efna-
legra lífskjara. Þá eru þjóðfélags-
aðstæður og lífshættir á íslandi
einnig hagstæðir fyrir suma fé-
lagslega og heilsufarslega þætti
lífskjaranna," segir í samantekt
Félagsvísindastofnunar.
Hallgrímur Snorrason hag-
stofustjóri, Kristinn Karlsson yfír-
félagsfræðingur Hagstofunnar og
Stefán Ólafsason forstöðumaður
Félagsvísindastofnunar kynntu
niðurstöður og ritin sem birta
þær. Þar er um að ræða Lífskjör
og lífshætti á Norðurlöndum, bók
eftir Stefán Ólafsson, Iðunn gefur
út, Lífskjör og lífshætti á Islandi,
eftir sama höfund, Félagsvísinda-
stofnun og Hagstofan gefa út og
loks grein eftir Stefán Ólafsson,
greinin er bókarkafli úr ritinu
Welfare Trends in Scandinavia,
og er nafn greinarinnar The Mak-
ing of the Icelandic Welfare State:
A Scandinavian comparison.
Meginniðurstaða þessarar
könnunar, sem fram fór 1988 og
er ein viðamesta þjóðfélagskönn-
un sem hér hefur verið gerð, er
sú, að sögn þeirra Hallgríms, Stef-
áns og Kristins, að lífskjör eru
góð á íslandi. Þeir segja að þótt
lífskjörum hafi hrakað nokkuð frá
1988, breyti það ekki í aðalatrið-
um þeirri meginniðurstöðu.
„Breytingin frá 1988 þar til nú
er einkum sú, að nú þurfum við
að hafa heldur meira fyrir þessum
lífskjörum,“ sagði Stefán Ólafs-
son.
Meðal þess sem fram kemur í
niðurstöðum er að þrefalt algeng-
ara er að Islendingar vinni auka-
vinnu heldur en hinar Norður-
landaþjóðirnar, vinnutími í heild
er lengstur hér, Islendingar eiga
lang oftast í erfiðleikum með að
láta tekjur duga fyrir útgjöldum,
þeir hafa meiri aðgang að bíl en
hinar Norðurlandaþjóðirnar, eiga
helmingi fleiri myndbandstæki,
skreppa mun meira frá í vinnunni
og eru frændræknari en hinar
þjóðimar. Þá kemur fram að flest-
ir Islendingar segjast vera haldnir
langvarandi sjúkdómum og kvill-
um, en þrátt fyrir það er líkams-
ástand þeirra betra en hinna þeg-
ar spurt er um úthald og getu til
ýmissa verka.
Félagar í heiðursráði Krabbameinsfélags íslands ásamt formanni félagsins, frá vinstri: Davíð Ólafsson,
Ottó A. Michelsen, Vigdís Finnbogadóttir, Tómas Árni Jónasson, Ólafur Bjarnason og Almar Grímsson
formaður. Hjörtur Hjartarson og Gunnlaugur Snædal voru fjarverandi.