Morgunblaðið - 09.10.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
25
Tuttugri látnir í um-
ferðarslysum á árinu
Ellefu hinna látnu 25 ára eða yngri, þar af fjögur börn 2-15 ára
TUTTUGU íslendingar hafa látist
í 16 umferðarslysum hér á landi
fyrstu níu mánuði ársins. Sex
manns á aldrinum 11-25 ára hafa
látist í fjórum umferðarslysum í
Arnessýslu. Fjórir hafa látist í
tveimur slysum í Húnavatnssýsl-
um. Þijú banaslys hafa orðið inn-
an borgarmarka Reykjavíkur og
tvö skammt utan borgarinnar.
Fjórir hinna látnu voru gangandi
vegfarendur, þar af þijú börn á
aldrinum 2-11 ára. Tveir létust
í bifhjólaslysi; einn hinna látnu
var hestamaður, sjö voru farþeg-
ar í bilum og sex ökumenn. I fyrra
voru höfðu 19 látist í fjórtán slys-
um eftir níu mánuði.
Fyrsta banaslys ársins varð þann
18. mars í Árnessýslu, milli Hrauns-
ár og Stokkseyrar. Þar beið 15 ára
gömul stúlka bana er bíll, sem hún
var farþegi í, valt.
Þann 4. apríl lést 41 árs gamall
maður þegar bíll sem hann ók hafn-
aði á ljósastaur á Vesturlandsvegi,
við Gagnveg, skammt vestan við
Keldnaholt.
11 ára gamall drengur beið bana
þegar hann varð fyrir vélsleða á
veginum við Nesjavallavirkjun þann
5. apríl.
Tveggja ára drengur lést er hann
varð fyrir bíl í Funabergi í Hafnar-
fírði 2. maí.
Tveir ungir menn, 20 og 21 árs
gamlir, biðu bana er bifhjóli sem
þeir voru á var ekið á bíl við Hvera-
gerði þann 6. maí.
Sex dögum síðar, þann 12. maí
biðu tveir ungir menn, 19 og 25
ára, bana þegar bíl sem annar þeirra
ók var ekið út í Ölfusá, skammt frá
húsi KÁ á Selfossi.
22 ára gamall maður beið bana
þann 26. maí þegar bíll sem hann
ók lenti út af veginum og út í Þor-
valdsá á Ársskókgsströnd.
17 ára stúlka beið bana er bíll sem
hún ók valt á Skagastrandarvegi
þann 2. júní.
Þrennt, 63 ára karl og tveir far-
þegar hans, 59 og 68 ára gamlar
konur, biðu bana í árekstri skammt
norðan Reykjaskóla við Hrútafjörð
þann 9. júní.
27 ára gamall maður beið bana
þegar bíll sem hann ók valt á Vestur-
landsvegi við Tíðaskarð í Kjós þann
28. júlí.
Þann 3. ágúst beið 52 ára gamall
maður bana þegar hann varð fyrír
flutningabíl við Sementsverksmiðju
ríkisins á Akranesi.
79 ára gamall maður lést þann
17. ágúst af áverkum sem hann
hiaut í árekstri, sem bíll sem hann
var farþegi í lenti í, á mótum Bú-
staðavegar og Suðurhlíðar í
Reykjavík.
46 ára gömul kona beið bana í
áreksti á Suðurlandsvegi við Sand-
skeið þann 16. september. Konan
var farþegi í bíl á vesturleið. Slysinu
olli ökumaður jeppabifreiðar á aust-
urleið og er sá grunaður er um ölvun.
Sjö ára gömul stúlka lést á Borg-
arspítalanum þann 25. september
af áverkum sem hún hlaut er hún
varð fyrir bíl á Suðurgötu móts við
Háskóla íslands, þann 13. septem-
ber.
23 ára gamall maður beið bana
er bíll, sem hann var farþegi í, lenti
út af vegi á Tjörnesi 29. september.
34 ára gamall hestamaður beið
bana er vörubíll ók á hann og hesta
hans á þjóðveginum í Stafholts-
tungum þann 30. september.
Sóknarpresturinn að Bergþórshvoli;
Eggert Haukdal kærður vegna
ummæla í nafnlausu dreifibréfi
„Astæðan væntanlegt prófkjör,“ segir Eggert
LÖGMAÐUR Páls Pálssonar, sóknarprests að Bergþórshvoli, hefur
kært Eggert Haukdal, alþingismann, til ríkissaksóknara vegna um-
mæla sem er að finna í nafnlausu dreifibréfi sem dreift var um Rang-
árvallasýslu á sl. vori og sumri og Páll telur ærumeiðandi. Segir í
bréfi frá Joni Oddssyni, lögmanni Páls, að Eggert Haukdal hafi dreift
þessu bréfi, sem ber yfirskriftina „Greinargerð um skólamál í Vestur-
Landeyjum haustið 1988“, og jafnframt viðurkennt í fjölmiðlum að
vera höfundur að því. Eggert Haukdal segir ástæðu þess að þessi orð
hans séu rifjuð upp núna vera að í uppsiglingu sé prófkjör.
í bréfi lögmannsins segir að um-
bjóðandi hans sé opinber starfsmað-
ur og hafi ekki haft afskipti af
hreppsmálum eða þeim deilum sem
dreifibréfíð snúist um. Hins vegar
hafi hann áður orðið fyrir „aðkasti
og ærumeiðandi aðdróttunum frá
hr. alþingismanni Eggert Haukdal.“
Hafi Páll á sínum tíma fallið frá
málarekstri á hendur Eggert vegna
tilmæla frá biskup.
Ummælin í dreifibréfinu sem kært
er út af eru eftirfarandi: „Svo sem
kunnugt er barði og hrakti séra
Páll barn Guðrúnar fyrir nokkrum
árum grátandi frá sínum bæ og fyr-
irskipaði því að koma þangað aldrei
framar. Fylgdi hann þeirri aðgerð
eftir með símtali við móðurina: Von-
andi er að Guðrún hafi ekki við þann
atburð lært að beija og hrekja frá
sér börn, þó það væri kannski til
eftirbreytni fyrir hana úr því að þessi
„hákristilegi" maður, séra Páll notar
þá aðferð."
Lögmaður Páls krefst þess að
ákæruvaldið hlutist til um opinbert
mál á hendur Eggert Haukdal og
ómerkingu fyrrnefndra ummæla. Þá
krefst hann að alþingismanninum
verði gert að greiða Páli skaða- og
miskabætur að upphæð 600 þúsund
krónur auk vaxta og málskostnaðar.
„Ég kem ekki nálægt þessum
málum hans Eggerts Haukdals og
vil það ekki,“ sagði Páll Pálson,
sóknarprestur að Bergþórshvoli þeg-
ar þetta var borið undir hann.
Morgunblaðið bar þessa kæru lög-
manns Páls einnig undir Eggert
Haukdal, alþingismann, og sagði
hann: „Állt er þetta nú mál hvim-
leitt. Páll kærði mig líka margsinnis
fyrir nokkrum árum en kærulátun-
um linnti þegar biskup skipaði rann-
sóknarnefnd til að athuga málið.
Lagði hún til við biskup að séra
Páli yrði gefinn kostur á að segja
af sér og í öðru lagi að mál hans
færi fyrir kirkjudóm. Páll lofaði þá
bót og betrun fyrir biskup. Hann
lofaði að vera góða barnið og hætta
að kæra.
Það var um þetta leyti, þegar
kærurnar voru i hávegum, sem hann
tók svona á þessu barni, barni syst-
urdóttur minnar, hrakti það grátandi
frá sínum bæ og fyrirskipaði að
koma aldrei til sín aftur og leika við
son sinn. Kallaði hann móðurina til
sín og jós yfir hana skömmum. Þetta
var í almæli í sveitinni á sínum tíma.
Af hveiju kærði Páll ekki þá? Það
var kannski vegna þess að þá hafði
hann svo mikið að gera í öðrum
kærum. Nú eru þess orð mín í í
tveggja ára gömlu dreifibréfi send í
Dagblaðið rétt fyrir prófkjör. Um
leið og þessi menn í sveitinni eru
að senda þetta til Dagblaðsins eru
þeir um leið að rifja upp þetta mál
sem var úr sögunni og Páll lofaði á
sínum tíma bót og betrun fyrir.
Hvað meta nú kirkjuyfirvöld sem
sömdu við hann að hætta þessum
leik sem nú er hafin á ný?“
Próf kjör Sjólf stæðisf lokksins
Kosningaskrifstofa
Þuríðar Pálsdóttur
er í Vatnsholti 10, sími 33989.
Skrifstofan er opin frá kl. 17-21.
Allir velkomnir.
Þuríður á staðnum — kaffi á könnunni.
Tryggjum Þuríði 5. sætið.
Stuðningsmenn.
Veröld tryggir
þér lægstu
faigjöldin til stór-
borga Evrópu
Meö einstökum samningum sínum tryggir Veröld
þér hagstæðustu fargjöldin og úrval vandaðra
hótela í stórborgum Evrópu.
Hvert sem leiðin liggur færðu ferðina
hjá Veröld.
LONDON
Brottfarir í október
með fararstjóra kr.
f;
33.900
PARIS
Victoria Hotel kr.
*
29.690
LUXEMBUR
Hotel Italia kr.
29.690*
G L A S G O
Ingram Hotel kr.
25.290*
Verð m.v. 2ja manna herbergi í 3 naetur.
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK, SÍMI: (91) 622011 & 622200.
••■flíARIÍ
yW^IXIV
FARKHRT FIF