Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 26
MORGI1TNBLÁ0IÐ ÞRIÖJUDAlGLK'9.(OKTÓBER 1990'
2B
Reuter
Andófsmenn í Rúmeníu með skýrslu alþjóðlegu mannréttindasamta-
kanna Amnesty International um brot stjórnvalda í Búkarest á rétt-
indum stjórnarandstæðinga. A spjaldinu í baksýn stendur: „Við heimt-
um að pólitískir fangar fái frelsi!"
Maimréttíndabrotum stjórn-
valda í Rúmeníu mótmælt
Búkarest. Reuter.
HÓPAR andófsmanna sðfnuðust saman á helstu torgum Búkarest
á laugardag til að mótmæla meintum brotum stjórnvalda á mann-
réttindum og krefjast þess að pólitískir fangar yrðu látnir lausir.
Mörg hundruð manns veifuðu fánum og borðum með eitruðum
athugasemdum um framferði stjórnar Ions Iliescus forseta. Þetta
eru fyrstu mótmælaaðgerðirnar síðan allir útifundir voru bannaðir
um hríð í kjölfar blóðugra átaka Iögreglu og andófsmanna í ágúst sl.
Á einum borðanum stóð: „Það
eru fleiri fangar núna en á tímum
Ceausescus.“ Að sögn lögreglu
fengu aðstandendur aðgerðanna
heimild til fundahaldanna. Þau
hófust með þögulli stund við minn-
isvarða um fórnarlömb átakanna
þegar Nicolae Ceausescu einræðis-
herra og skylduliði hans var steypt
af stóli í desember í fyrra. Haldið
var á spjaldi með teikningu af
hundi sem mígur á rós en yfir
henni er stóll með námamanna-
hjálmi. Rósin á að tákna Endur-
reisnarhreyfinguna sem tók völdin
í byltingunni en flestir leiðtogar
hennar eru fyrrverandi kommún-
istar; stjórnarandstæðingar segja
að ráðamenn hagi sér enn eins og
stalínistar þrátt fyrir loforð þeirra
um lýðræðið. Hjálmurinn á að
minna á að stjórnvöld gerðu út
þúsundir námamanna til að beija
á andstæðingum Iliescus og sam-
starfsmanna hans í júní sl. Eftir
þagnarsstundina var gengið að
byggingu rúmenska sjónvarpsins,
þar sem hörðustu slagsmálin urðu
í júní, og hrópuð slagorð. Nokkrir
leiðtogar göngumanna fóru inn og
vildu ræða við forsvarmenn sjón-
varpsins um tjáningarfrelsi sem
stjómarandstæðingar segja stór-
lega skert með beinum og óbeinum
hætti.
„Það eru engin mannréttindi við
lýði í Rúmeníu,“ sagði Nica Leon,
leiðtogi flokks Fijálsra demókrata,
við fréttamenn. „Fólkið sem barð-
ist í desemberbyltingunni og lagði
sig fram um að koma þessum
mönnum til valda er nú í fangelsi
innan um ótýnda afbrotamenn."
Talið er að meira en 80 stjórnar-
andstæðingar sitji enn í fangelsi
en alls voru um 1.000 handteknir
í júní. Dagblaðið Romania Libera
segir að sumir hinna handteknu,
er bíða þess að réttað verði í mál-
um þeirra, hafi kvartað undan illri
meðferð í fangavistinni. Blaðið
hafði eftir einum þeirra, Dumitru
Dinca, að beitt væri „líkamlegum
og andlegum hrottaskap" og hefði
hann sýnt fulltrúum dómsyfirvalda
krús, fulla af lúsum er hann hefði
veitt í klefanum til að sýna hvern-
ig aðstæðurnar væru.
Lech Walesa.
Lech Wal-
esa fylgis-
meiri en
forsætis-
ráðherrann
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa Samstöðuleiðtogi
nýtur meira fylgis en Tadeusz
Mazowiecki forsætisráðherra
vegna forsetakosninganna 25.
nóvember nk. samkvæmt nýrri
skoðnakönnun, að sögn pólsku
fréttastofunnar PAP.
Pólska sjónvarpið skýrði frá því
í gær að óháð stofnun hefði kann-
að hug kjósenda til forsetafram-
bjóðendanna og samkvæmt því
nyti Lech Walesa Samstöðuleið-
togi stuðnings 36,9% en 31,8%
styddu Mazowiecki. Óákveðnir
voru 11,8% en 19,5% aðspurðra
sögðust myndu velja aðra fram-
bjóðendur.
Stuðningsmenn Tadeusz
Mazowieckis forsætisráðherra
hófu kosningabaráttuna í gær.
Miðstöð þeirra verður í Jagiellon-
ian-háskólanum í Kraká og meðal
þeirra sem hófu störf þar í gær
voru fyrrum leiðtogar neðanjarð-
arhreyfingar Samstöðu, Zbigniew
Bujak og Wladyslaw Frasyniuk.
Ennfremur hafa tveir ráðherrar
sagt af sér til þess að helga sig
kosningabaráttunni fyrir Mazowi-
ecki.
Þá lýsti Bronislaw Geremek,
leiðtogi Samstöðu á þingi og einn
áhrifamesti stjórnmálamaður Pól-
lands, yfir stuðningi við framboð
Mazowieckis í gær.
Der Spiegel ræðir við Karpov og Kasparov:
Tölvur eiga meiri framtíð fyr-
ir sér við skákborðið en konur
Kasparov og Karpov í Hamborg þar sem þeir ræddu við blaðamenn þýska vikuritsins Der Spiegel.
HEIMSMEISTARINN í skák,
Garrí Kasparov, og áskorand-
inn, Anatólíj Karpov, settust í
gær að tafli í New York þar
sem hófst fyrsta skákin í ein-
víginu um heimsmeistaratitil-
inn. Nokkru áður gáfu þeir sér
tíma til að mæta í sameiginlegt
viðtal við þýska fréttatímaritið
Der Spiegel. Hér birtist út-
dráttur úr viðtalinu.
Karpov er fyrst spurður hvað
hann myndi gera ef hann kæmi
ásamt konu sinni inn á veitinga-
stað þar sem öll borð væru upp-
tekin nema hvað tvö sæti væru
laus við hliðina á Kaspárov-hjón-
unum. „Dögum saman get ég
sleppt því að nærast,“ svarar
Karpov. Þeir eru spurðir hvers
vegna samband þeirra sé svona
slæmt. Karpov svarar því til að
samband skákmeistara, einkum
heimsmeistara, hafi löngum verið
mjög flókið. Nú sé skákin hins
vegar mun vinsælli en áður fyrr
og því vekji úlfúð milli skákmanna
meiri athygli en áður. Hvað
spennuna milli þeirra tveggja
varði þá megi skýra hana með
því hversu ólíkir persónuleikar
þeir séu. Kasparov segir hins veg-
ar að í fyrstu hafi fjandskapurinn
stafað af því að þeir voru and-
stæðingár við skákborðið, tveir
sterkustu skákmenn heims. Síðar
hafi Karpov orðið að tákni fyrir
gamla kerfíð í Sovétríkjunum
þ.e.a.s. þess sem hann hefði helg-
að líf sitt baráttunni gegn.
íþróttanefndin hirðir
bróðurpartinn
Talið berst nú að fjármálum.
Kasparov segist fjármagna undir-
búning einvígisins sjálfur. Karpov
á hinn bóginn fær stuðning frá
sovésku íþróttanefndinni. Karpov
segir að það sé ekki nema eðlilegt
því hann borgi dijúgan hluta af
tekjum sínum til ríkisins en það
hafi Kasparov ekki gert undanfar-
in tvö ár. Karpov gagnrýnir harð-
lega hina miklu skattiagningu:
„Skatthlutfallið er ekki fyrirfram
ákveðið heldur er því breytt í hvert
skipti. Því er iýst yfir með hátí-
ðlegum blæ að ríkisstjórnin hafi
ákveðið að taka tillit til hinna
sérstöku afreka Kasparovs og
Karpovs í þágu útbreiðslu skákar-
innar og auglýsingar sovéska
lífsstílsins. Sá sem les þetta gæti
haldið að skattahlutfallið yrði
lækkað okkur í hag. En þvert á
móti þýddi þetta að hlutfallið var
hækkað úr 65%, sem er venju-
legt, í 85%. Semsagt ef við hefðum
staðið okkur verr þá hefðum við
fengið að halda meiru — svoleiðis
er nú rökfræði þessara manna.“
Karpov nefnir annað dæmi.
Skákmeistaramir ákváðu báðir
að láta verðlaunafé sitt fyrir ein-
vígið í London árið 1986 renna
til sjóðs fyrir fórnarlömb Tsjerno-
byl-slyssinsv íþróttanefndin tók
hins vegar sinn skerf af verð-
launafénu eins og venjulega en
ekki nóg með það heldur hækkaði
hún skatthlutfallið meira en
nokkru sinni. Þegar Karpov
hringdi í varaforseta íþrótta-
nefndarinnar til að biðja um skýr-
ingu á þessu var svarað: „Fyrst
þið ætlið hvort eð er að afsala
ykkur fénu þá hlýtur ykkur að
standa á sama um hvert það renn-
ur.“
Hvað fjármáiin varðar notar
Kasparov tækifærið og mótmælir
þeirri fullyrðingu Karpovs sem
borin var fram í sovésku sjón-
varpi að heimsmeistarinn fái 500
rúblur á dag frá verkalýðsfélög-
unum. „Það er svívirðilegur
áburður í landi þar sem eymdin
breiðist út og margir hafa ekki
meira en 60-70 rúblur á mánuði
... Þetta er lygi.“ Karpov segist
hafa áreiðanlegar heimildir fyrir
orðum sínum. I staðinn mótmælir
hann því sem Kasparov á að hafa
sagt að Karpov neyti lyfja til þess
að ná betri árangri við skákborð-
ið. Kasparov segist aldrei hafa
sagt þetta en hins vegar hafi hann
svarað þegar blaðamaður spurði
um þetta atriði: „Þú verður að
spyija Karpov að því.“ Karpov
segir að þetta sé gott dæmi um
hvernig Kasparov leiði fréttamenn
á villigötur.
Gífurlegur undirbúningur
Kasparovs
Skákmennirnir eru þvínæst
beðnir að meta styrkleika og veik-
leika hvor annars. „Það var mikil-
vægur veikleiki hjá Karpov í und-
angengnum einvígjum og verður
það vonandi áfram að hann teflir
veikar en hann á vanda til í þeim
skákum sem ráða úrslitum," segir
Kasparov. Karpov andmæiir
þessu og segir að rannsókn sín
og aðstoðarmanna sinna á undan-
gengnum einvígjum sýni að það
sé rangt að segja að af sálrænum
orsökum hafi hann alltaf tapað
mikilvægustu skákunum. Þar hafi
þvert á móti verið slakri tafl-
mennsku um að kenna sem átti
sér aðrar skýringar. Um andstæð-
ing sinn segir Karpov: „Garrí er
mjög hættulegur þegar hann hef-
ur undirtökin. En hann sýnir veik-
leika þegar hann lendir í vörn.
Sumir geta notfært sér þetta —
og þar á meðal ég — en aðrir
ekki.“ Karpov nefnir ennfremur
að enginn skákmeistari í sögunni
búi sig jafn vel undir einvígi og
skákmót og Kasparov. „Þar slær
hann jafnvel Botvinnik við.“ Ka-
sparov tekur undir þetta og segir
að þekking sín á byijanafræðum
hafi átt stóran þátt í að hann
varð heimsmeistari og hefur hald-
ið titlinum.
Hefur innsæið fram yfir
tölvurnar
Þegar talið berst að þróun
skákiþróttarinnar spáir Kasparov
því að innan tíu ára gæti svo far-
ið að tölvur ógni sterkustu skák-
mönnum heims. Karpov tekur
undir þetta: „Tölvu stendur á
sama um hvort hún hafi tapað
skák og hún á ekki við svefnleysi
eða krankleika að stríða. Tölvan
teflir alltaf jafn vel en allir menn,
líka heimsmeistarar, eiga sína
góðu og slæmu daga. Bestu tölvu-
forritin eru komin svo langt að
þótt þau sigri ekki á stórmótum
þá vinna þau eina og eina skák
gegn stórmeisturum." Kasparov
segir að hvað reiknihæfileika
varði þá hafi tölvur fyrir löngu
skotið honum ref fyrir rass en
innsæið hafi hann ennþá framyfir
tölvumar. Hann bætir því við að
hann telji að tölvurnar eigi meiri
framtíð fyrir sér við skákborðið
en konur. „í sannleika sagt get
ég ekki ímyndað mér heimsmeist-
araeinvígi í skák milli karis og
konu ... Skýringin er fyrst og
fremst sú hversu mikil harka er
í skákinni. Baráttuviljinn, hið
líkamlega ástand og einbeitingin
sem þarf til að ná árangri eru
einfaldlega eiginleikar sem koma
frekar fram hjá körlum en kon-
um.“ Kasparov er spurður hvort
árangur Polgar-systranna ung-
versku sýni ekki hið gagnstæða
en svarar því til að allt of mikið
hafí verið gert úr hæfileikum
þeirra.