Morgunblaðið - 09.10.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
27
Azerbajdzhan:
Brezhnevs-sinni vinnur
stórsignr í kosningum
Moskvu. Reuter.
GEIDAR Alíjev, einn af helstu samstarfsmönnum Leoníds Brez-
hnevs, er var leiðtogi Sovétríkjanna um margra ára skeið, vann fræki-
legan sigur í þingkosningum í Azerbajdzhan í lok september. Að
sögn fjölmiðla hlaut Alíjev 95% atkvæða í kjördæmi sínu.
Alíjev er 67 ára gamall og var
eitt sinn háttsettur foringi í öryggis-
lögreglunni, KGB. Hann lagði sig
fram um að koma sér í mjúkinn
hjá Brezhnev og er enn vitnað til
þess að tveim vikum fyrir dauða
leiðtogans 1982 hrósaði Alíjev
Brezhnev í alls 133 skipti í einni
og sömu ræðunni. Árið 1987, tveim
árum eftir valdatöku Míkhaíls Gor-
batsjovs,' var'Alíjev vikið úr stjórn-
málaráði kommúnistaflokksins en
ráðið var þá valdamesta stofnun
ríkisins.
Blaðið Komsomolskaja Pravda-
sem er hlynnt róttækum umbóta-
sinnum, segir að sigur Alíjevs geti
klofið kommmúnistaflokk Az-
erbajdzhans. Alíjev gæti orðið leið-
togi klofningshóps harðlínumanna.
Lokaúrslit eru ekki kunn en kornrn-
únistar verða að líkindum í meiri-
hluta á þingi. Að sögn blaðsins
fengu róttækir umbótasinnar Lýð-
ræðisfylkingarinnar aðeins 26 af
350 sætum. Vegna átaka í landinu
undanfarin tvö ár gilda herlög á
mörgum sviðum og fjölmiðlar hafa
átt erfitt með að fylgjast með fram-
kvæmd kosninganna.
Discovery flutti sólkönnun-
arhnöttinn Ulysses á braut
Allt gekk eins og í sögu þegar geimskutlunni Discovery var skotið
á loft á laugardag með sólkönnunarhnöttinn Ulysses innanborðs. Ulys-
ses var kominn á braut sína sex klukkustundum eftir flugtak. For-
gangshlutverk hans verður að senda til jarðar fyrstu þrívíddarmyndirn-
ar um sólvirknina. Áhöfn geimskutlunnar, fimm manns, var þegar
tekin til við ýmis vísindastörf úti rgeimnum á sunnudag.
Nílján manns klifu
Everest um helgina
Nepal. Reuter.
NÍTJÁN fjallgöngumenn frá sex löndum komust á tind Everest,
hæsta fjalls heims, um helgina, að sögn ferðamálaráðuneytisins í
Nepal.
Fjallgöngumennirnir voru frá
Bandaríkjunum, Kanada, Júgó-
slavíu, Suður-Kóreu, Frakklandi og
Nepal. Tveir komust á hinn 8.848
metra háa tind sl. fimmtudag, átta
á föstudag, fimm á laugardag og
Qórir á sunnudag. Garparnir voru
í fjórum leiðangrum.
Á meðal fjallgöngumannanna
vom júgóslavnesk hjón og í franska
hópnum var kona, Christine Janin,
en hún er fyrsta franska konan sem
sigrast á Everest. Einn félaga henn-
ar, Marc Batard, hugðist dvelja
næturlangt á tindinum en óstaðfest-
ar fregnir herma að hann hafi snú-
ið til baka eftir klukkustundar vist
þar sem mjög kólnaði í veðri og
hann óttaðist að fijósa í hel.
I VARSJÁ - Pólska lögreglan
hefur handtekið Miroslaw Milew-
ski, harðlínukommúnista og fyrrum
innanríkisráðherra, og hefur hann
verið ákærður fyrir mútuþægni.
Þetta er í fyrsta sinn sem háttsett-
ur embætíismaður á valdatíma
kommúnista er handtekinn frá því
stjórn undir forystu Samstöðu
komst til valda í fyrra. Fleiri hand-
tökur eru ráðgerðar.
■ SHENZHEN, Kína - Fyrsti
McDonalds-hamborgarastaðurinn í
Kína var opnaður í borginni Shenz-
hen, við landamærin að Hong Kong,
í gær. Eigendur skyndibitastaðarins
eru frá Hong Kong og vonast þeir
til að geta opnað 500 staði í Kína
í framtíðinni.
■ TRIPOLI - Forsætisráðherra
og utanríkisráðherra Líbýu létu af
embætti á sunnudag er mikil upp-
stokkun var gerð á stjórn landsins.
Sjö háttsettir ráðherrar til viðbótar
urðu að víkja, svo og seðlabanka-
stjóri landsins. Engar ástæður voru
gefnar fyrir uppstokkuninni.
■ YAMOUSSOUKRO, FÍIa-
beinsströndinni - Felix Houp-
houet-Boigny, forseti Fílabeins-
strandarinnar, lýsti því yfir í gær
er flokkur hans útnefndi hann sem
forsetaframbjóðanda í sjöunda sinn
að þetta yrði í síðasta skipti sem
hann yrði í framboði. Houphouet-
Boigny, sem er 84 ára gamall, hef-
ur verið forseti í þijá áratugi og fær
nú í fyrsta sinn mótframboð þar
sem eins flokks kerfi var afnumið
í landinu eftir mikil mótmæli fyrr
á árinu.
■ PRAG - Tékkneska stjórnin
hefur fyrirskipað Heimssambandi
verkalýðsfélaga, sem aðhyllist
kommúnisma og hefur verið stjórn-
áð frá Prag, að fara úr landinu.
Sambandið var stofnað 1945 ogtók
fljótlega að fylgja Moskvustjórninni
að málum með þeim afleiðingum
að vestræn verkalýðsfélög sögðu
sig úr því 1949 og- stofnuðu Al-
þjóðasamband fijálsra verkalýðs-
félaga. Öll tékknesku verkalýðs-
félögin hafa sagt sig úr Heimssam-
bandi verkalýðsfélaga.
EIMSKIP
HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
kt. 510169-1829
Pósthússtræti 2, Reykjavík
Hlutabréfaútboð
Útboðsfjárhæð kr. 41.315.802.-
Sölutímabil frá 8.-19. október 1990
Gengi hlutabréfa að nafnverði kr. 5.000 til 25.000 er 5,60.
Heimilt er að gera tilboð í hlutabréf að nafnverði frá 25.000 og allt
að einni milljón króna á ekki lægra gengi en 5,60.
Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.
SIEMENS
Sjónvarpstœki
| Sjónvarps-
| myndavélar
Hljómtœkja-
samstœður
Útvarpsvekjarar
Gœðatœki fyrir
þig og þína!
SMUH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300