Morgunblaðið - 09.10.1990, Page 31
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands.'Tteusasölu 90 kr. eintakið.
Dagur
Leifs heppna
Vestfirðir:
Karvel tekur ekki sæti á
lista Alþýðuflokksins
KARVEL Pálmason, alþingismaður, greindi frá því á kjördæmis-
ráðstefnu Alþýðuflokksins á Vestfjörðum, sem haldin var á Isafirði
á sunnudag, að hann tæki ekki sæti á lista Alþýðuflokksins fyrir
næstu alþingiskosningar.
Idag, 9. október, minnast
Bandaríkjamenn Leifs
Eiríkssonar. Sameinað
Bandaríkjaþing ákvað 2.
september 1964 að mælast
til þess við Bandaríkjaforseta
að lýsa 9. október ár hvert
dag Leifs Eiríkssonar og hef-
ur George Bush Bandaríkja-
forseti farið að þessum til-
mælum eins og forverar hans
undanfarinn aldarfjórðung. í
tilefni dagsins eru embættis-
mönnum meðal annars gefin
fyrirmæli um að flagga á
opinberum byggingum.
íslendingar og Norðmenn
hafa löngum deilt um það,
hvort Leifur Eiríksson hafi
verið íslenskur eða norskur.
í ófá skipti hefur íslendingum
brugðið, þegar þeir heyra
Norðmenn lýsa yfir því eins
og ekkert sé sjálfsagðara, að
Leifur heppni hafi verið Norð-
maður. Þeir sem kunnugir
eru íslendingasögum vita, að
Leifur Eiríksson fæddist á
íslandi og er því íslenskur;
hann var Dalamaður, þótt
hann hafi átt ættir að rekja
til Noregs eins og aðrir Is-
lendingar á þeim tíma. Leifur
fylgdi föður sínum og ætt-
mönnum vestur um haf og
kannaði auk þess hluta
Norður-Ameríku. Margt
bendir til þess að hann hafi
farið sunnar en til Nýfundna-
lands þar sem ótvíræðar
mannvistarleifar sýna að
víkingar hafi verið á ferð.
Hann kom með suðræna
ávexti til norðlægra stranda.
í Boston er falleg stytta af
Leifi heppna til minningar um
þá fullvissu margra manna
þar um slóðir, bæði fyrr og
síðar, að víkingar hafi verið
þar á ferð og sunnar hafa
þeir vafalaust einnig verið.
í yfirlýsingu sem George
Bush gaf í tilefni af degi
Leifs Eiríkssonar nú tekur
Bandaríkjaforseti í fyrsta
sinn fram, að Leifur hafi ver-
ið íslendingur. í yfirlýsing-
unni segir orðrétt: „í hvert
sinn sem við minnumst Leifs
Eiríkssonar, þessa hrausta
sonar íslands og sonarsonar
Noregs, 9. október, fögnum
við einnig glæstri norrænni
arfleifð þjóðar okkar. Sigl-
ingakappinn hugprúði, með
neista trúboðans, við tengjum
nafn hans svo oft við ævin-
týri og rómantík og hann er
okkur einnig kært tákn um
sterk og váranleg bönd sem
eru á milli íbúa Banda-
ríkjanna og vina okkar á öll-
um Norðurlöndunum.“
Nú eru ekki nema tíu ár
þar til þess verður minnst að
þúsund ár eru frá því að Leif-
ur heppni fann Ameríku og
aðeins tvö ár, þar til efnt
verður til mikilla hátíðarhalda
vegna þess að 500 ár verða
frá því að Kristófer Kólumbus
sigldi til Ameríku. Norrænir
menn eiga að láta að sér
kveða bæði árin 1992 og
2000. Það er rangt að Leifur
þurfi endilega að skyggja á
Kólumbus; eða Kólumbus á
Leif. Þeir eru greinar af sama
meiði. Menningarsaga Evr-
ópu, og þá ekki síst siglingar-
saga álfunnar, er sameigin-
legur arfur þeirra beggja.
Engin ástæða er til að ætla
að sagnirnar um vesturför
Leifs og víkinga hafi fallið í
gleymsku og dá í Evrópu,
þótt þeir hafi ekki numið land
vestra. Þvert á móti er margt
sem bendir til þess að Kól-
umbus hafí þekkt þessar
sagnir og þær hafi ekki síst
blásið honum í bijóst löngun
til landafunda. Sumir eru
þess fullvissir að hann hafi
farið til íslands, aðrir benda
á heimildir sem styðja að
hann hafi verið í Bristol á
Englandi og þá kynnst frá-
sögnum íslendinga af landinu
mikla í vestri. Leifur og Kól-
umbus eru þannig báðir liður
í landnámssögu milli Evrópu
og Ameríku, hugprúðir land-
nemar sem stækkuðu jörðina
og víkkuðu útsýni til allra
átta. Þeir eru einnig lýsandi
dæmi um samhengi sögunn-
ar.
Það yrði aðeins til að spilla
fyrir skipulegri þátttöku
norrænna manna í þeim há-
tíðarhöldum sem fyrir dyrum
standa vegna Kólumbusar og
Leifs heppna, ef ágreiningur
yrði mil í Islendinga og Norð-
manm um uppruna Leifs.
Stjórnvöld íslands og Noregs
eiga að sigla í kjölfar Banda-
ríkjaforseta og taka sameig-
inlega af skarið í eitt skipti
fyrir öll um þjóðerni Leifs
Eiríkssonar.
„Ég hef ákveðið að taka ekki
sæti á lista Alþýðuflokksins í
næstu kosningum," sagði Karvel
við Morgunblaðið. Aðspurður um
ástæður sagði hann þær vera
bæði persónulegar og pólitískar.
„Eins og menn vita þá hef ég ver-
ið í andstöðu við hluta af forystu
flokksins frá 1987 og tel að foryst-
an hafi um of sveigt af þeirri braut
sem hún gaf fyrirheit um fyrir
síðustu kosningar. Það er nú einu
sinni svo að ég er þannig gerður
að ég vil yfirleitt standa við gefin
fyrirheit. Mér hefur fundist á þing-
Sjálfstæðis-
flokkurinn:
Arndís Jóns-
dóttir í próf-
kjör á Suð-
urlandi
ARNDÍS Jónsdóttir, kennari og
varaþingmaður, gefur kost á
sér í þriðja sæti í prófkjöri sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi sem
haldið verður þann 27, október
nk. Hún var í fjórða sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins i síðustu
alþingiskosningum.
„Það er nokkuð langt síðan að
ég tók þessa ákvörðun og ég hef
frá upphafi stefnt á þriðja sæti
listans," sagði Arndís við Morgun-
blaðið. Hún hefur starfað lengi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, m.a. ver-
ið í stjórn Óðins á Selfossi, er í
stjórn fulltrúaráðsins í Árneskýslu
og í stjórn kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins á Suðurlandi. Þá
er Arndís varaformaður Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna.
eftirÞorvald
Gylfason
i
í fyrra og í hitteðfyrra vakti ég
máls á því í nokkrum blaðagreinum,
meðal annars hér í Morgunblaðinu,
að ríkjandi bann við innflutningi
allra landbúnaðarafurða, sem hægt
er að framleiða hér heima, jafngilti
þungum skatti á heimilin í landinu
og væri reyndar einsdæmi í okkar
heimshluta. Til að veita hugboð um,
hversu mikill vandinn er að vöxtum,
reyndi ég að meta skattbyrðina,
sem felst I núgildandi banni við
innflutningi kartaflna, eggja, osta
og kjúklinga. Ég notaði sömu að-
ferð og hagfræðingar um allan heim
nota til að meta óhagræði neytenda
af innflutningshöftum og öðrum
viðskiptahindrunum. Niðurstaðan
var sú, að heimilin í landinu greiða
um 60.000 krónum meira á hverju
ári að meðaltali fyrir þessar. vörur
á núverandi verðlagi en þau þyrftu
að gera, ef innflutningur væri fijáls.
Afnám innflutningsbannsins myndi
flokksfundum, að minnsta kosti
hvað mig varðar og fleiri óbreytta
þingmenn Alþýðuflokksins, að þá
stóðum við nánast frammi fyrir
gerðum hlutum. Það var formsat-
riði að ræða það sem stjórnvöld
gerðu hverju sinni.“
Aðspurður um hvort hann færi
með öðrum orðum bæta hag heimil-
anna jafnmikið og fjórðungslækkun
tekjuskatts og eignarskatts að öðru
jöfnu. Ég dró þá ályktun, að dýr
myndi Hafliði allur. Þó gerði ég
alls ekki ráð fyrir því, að innlend
framleiðsla legðist af, heldur myndi
fijáls innflutningur knýja framleið-
endur hér heima til aukinnar hag-
sýni í rekstri og hófsemdar í verð-
lagningu. Aðrir óháðir hagfræðing-
ar tóku í sama streng. Þetta vakti
svolitla athygli, því að hér er um
gríðarlegar fjárhæðir að tefla. En
við fengum kaldar kveðjur úr
stjórnarráðinu: landbúnaðarráð-
herra jós yfir okkur svívirðingum
með dyggilegum stuðningi erind-
reka Stéttarsambands bænda.
II
Nú bregður svo við, að landbún-
aðarráðuneytið sjálft hefur fengið
tilmæli frá GATT, sem er systur-
stofnun Sameinuðu þjóðanna á vett-
vangi viðskiptamála, um að gera
grein fyrir stuðningi ríkisins við
landbúnað hér heima beint og
óbeint, meðal annars með innflutn-
i framboð fyrir annan lista en lista
Alþýðuflokksins sagði Karvel: „Nú
náði mín yfírlýsing ekki lengra en
þetta og tíminn verður að leiða í
ljós hvað kann að gerast.“ ,
Þegar hann var spurður um
hvort sérframboð af hans hálfu
kæmi til greina svaraði Karvel:
„Ég hvorki útiloka né játa því.
Mín ákvörðun var fyrst og fremst
um þetta á þessu stigi málsins.
Hitt verður að koma í ljós hvað
gerist í áframhaldi af þessu.“
„Stuðningur ríkisins
við landbúnað nemur
með öðrum orðum svip-
aðri fjárhæð og allur
tekjuskattur einstakl-
inga og fyrirtækja í
landinu.“
ingshöftum. Ráðuneytið beitir auð-
vitað sömu aðferðum við þetta verk
og við hagfræðingarnir, enda
myndu hagfræðingar og yfirstjórn
GATT ekki geta tekið nokkurt
mark á ráðuneytinu ella. Niðurstaða
ráðuneytisins er sú, að heildar-
stuðningur ríkisins við landbúnað-
inn hér nemi um 13 milljörðum
króna á ári á núverandi verðlagi
eða um 200.000 krónum á ári á
hverja fjögurra manna fjölskyldu í
landinu, jafnvel þött bann gegn inn-
flutningi kartaflna og grænmetis
sé ekki tekið með í reikninginn.
Þessi ijárhæð jafngildir næstum
300.000 krónum á mánuði á hvetja
fjölskyldu í sveitum landsins að
Vígslumessa í Dómkirkjunni
Séra Ólafur Skúlason, biskup íslands, vígði séra Bjarna Karlsson til
þjónustu við kirkjuna við hátíðlegá athöfn í Dómkirkjunni á sunnu-
dag. Biskupinn predikaði við víglsumessuna og Hjalti Guðmundsson,
dómkirkjuprestur, annaðist altarisþjónustu. Séra Bolli Gústafsson í
Laufási lýsti vígslunni en aðrir vígsluvottar voru séra Bernharð Guð-
mundsson, fræðslustjóri kirkjunnar, séra Jón Dalbú Hróbjartsson og
séra Ólafur Jens Sigurðsson. Bjarni Karlsson (annar frá vinstri í fremri
röð) mun þjóna að hálfu leyti sem aðstoðarprestur í Laugarnessókn
við hlið séra Jóns Dalbú Hróbjartssonar sóknarprests. Hann mun einn-
ig aðstoða Ólaf Jens Sigurðsson.fangaprest. ^
Ljós í myrkri
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
31
Skoðanakönnun DV:
Framsókn og Alþýðu-
flokkur auka fylgi sitt
Sjálfstæðisflokkur fengi 47,9% atkvæða
Fulltrúaráð, ásamt framkvæmdastjóra, Listasafns Sigurjóns Ólafssonar á stofnfundi þess 28. mars sl. Frá
vinstri: Jóhann Möller, Pétur Guðmundsson, Hörður Sigurgestsson, Brynja Benediktsdóttir, Ólafur Ó.
Johnson, Ingi R. Helgason, Birgitta Spur, Kristján Guðmundsson, Anna Einarsdóttir og Karólína Eiríks-
dóttir. Á myndina vantar Björgu Þorsteinsdóttur, Erling Jónsson og Gísla Sigurðsson.
Listasafn Siguijóns Olafsson-
ar verður sjálfseignarstofnun
ÞANN 21. október nk. verða lið-
in tvö ár frá vígslu Listasafns
Siguijóns Ólafssonar, en það var
á áttræðisafmæli listamannsins
árið 1988.
Síðan þá hefur safnið verið opið
almenningi og sýnt verk lista-
mannsins, bæði úr eigu safnsins og
annarra. Samhliðá sýningunum
Samtök um jafnrétti
og félagshyggju:
Stefnt að fram-
boði í öllum
kjördæmum
SAMTÖK um jafnrétti og félags-
hyggju stefna að því að bjóða fram
um allt land í næstu alþingiskosn-
ingum en í síðustu kosningum
buðu samtökin einungis fram á
Norðurlandi eystra og fengu einn
þingmann kjörinn, Stefán Val-
geirsson.
Hann sagði við Morgunblaðið um
helgina hefði fólk úr sex kjördæmum
hist á vegum samtakanna og verið
einhuga um að stefna að framboði í
öllum kjördæmum. „Það kom fram
hjá flestum að þeir töldu mjög góðan
grundvöll nú eins og stendur á í þjóð-
félaginu fyrir slíku framboði," sagði
Stefán Valgeirsson.
hefur safnið sinnt alhliða menning-
arstarfsemi svo sem tónleikahaldi
og bókmenntadagskrám og tekið
að öðru leyti beinan þátt í menning-
arstarfi borgarinnar.
Safnið, sem fyrstu árin var rekið
sem einkasafn, hefur nú að ósk eig-
anda þess, verið gert að sjáífseign-
arstofnun og var skipulagsski'á
hennar samþykkt af dómsmála-
ráðuneytinu þann 30. nóvember
1989. Samkvæmt henni stjórrtar
stofnandinn, Birgitta Spur, safninu
ásamt tólf manna fulltrúaráði sem
hún í upphafi velur, en endurnýjar
sig sjálft er tímar líða. Fimm manna
stjórn er skipuð Birgittu Spur,
tveimur aðilum sem hún tilnefnir,
ásamt tveimur sem kosnir eru af
fulltrúarráðinu. Stofnfundur Full-
trúaráðs Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar var haldinn í safninu
28. mars og var það þá þannig
skipað: Anna Einarsdóttir, Björg
Þorsteinsdóttir, Brynja Benedikts-
dóttir, Erlingur Jónsson, Gísli Sig-
urðsson, Hörður Sigurgestsson,
Ingi R. Helgason (formaður full-
trúaráðsins), Jóhann Möller, Ka-
rólína Eiríksdóttir, Kristján Guð-
mundsson, Ólafur Ó. Johnson og
Pétur Guðmundsson. Fyrsti aðal-
fundur þessarar nýju sjáfseignar-
stofunar var haldinn 29. maí á sama
stað. Þar tilnefndi Birgitta Spur þau
Aðalstein Ingólfsson og Hlíf Sigur-
jónsdóttur í stjórn safnsins auk sín
og Geirfinn Jónsson til vara, en
fulltrúaráðið Önnu Einarsdóttur og
Gísla Sigurðsson, en Karólínu
Eiríksdóttur til vara. Starfsemi
Styrktarsjóðs Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar ’ er óbreytt og stjórn
sjóðsins skipa Birgitta Spur, sem
er formaður, Baldvin Tiyggvason
og Matthías Johannessen.
(Fréttatilkynning.)
SAMKVÆMT skoðanakönnun
sem DV gerði um helgina á fylgi
stjórninálaflokkanna liafa tveir
ríkisstjórnarflokkanna, Fram-
sóknarflokkur og Alþýðuflokk-
ur, aukið við fylgi sitt miðað við
sainbærjlega könnun blaðsins í
ágúst. í könnuninni var spurt
hvaða lista fólk myndi kjósa ef
gengið væri til kosninga nú.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns. Af öllu úrtakinu sögðust
8,2% ætla að kjósa Alþýðuflokk,
11,2% Framsóknarfiokk, 27,2%
Sjálfstæðisflokk, 4,7% Alþýðu-
bandalag, 0,2% Samtök um jafn-
rétti ogfélagshyggju, 4,2% Kvenna-
lista, 0,2% Flokk mannsins og 1,0%
Þjóðarflokk. Enginn ætlaði að kjósa
Borgaraflokkinn. 4,3% aðspurðra
neituðu að svara og 39% voru óá-
kveðnir.
Ef einungis er tekið mið af þeim
sem tóku afstöðu fengi Framsókn-
arflokkur 19,7% sem er 4,4% meira
en í ágústkönnun DV og 0,8% meira
en í síðustu kosningum. 14,4% sögð-
ust ætla að kjósa Alþýðuflokkiníi
sem er 3,8% meira en í síðustu
könnun og 0,8% minna ep í kosning-
unum. Sjálfstæðisflokkurinn fengi
47,9% atkvæða. Það er 4,3% minna
en í síðustu skoðanakönnun DV en
20,7% meira en í alþingiskosning-
unum 1987.
Fylgi Alþýðubandalagsins hefur
minnkað um 1,9% miðað við síðustu
könnun DV og er nú 8,2%. -
Kjördæmissamtök
iingra sjálfstæðis—
manna á Vesturlandi:
Framboðslisti
verði valinn í
profkjori
AÐALFUNDUR kjördæmissam-
taka ungra sjálfstæðismanna á
Vesturlandi var haldinn í Borg-
arnesi á laugardag. Var á fundin-
um samþykkt ályktun þess efnis
að æskilegasta formið við val á
framboðslista væri prófkjör.
Á morgun, miðvikudag, verður
haldinn fundur í kjördæmisráði sjálf-
stæðismanna á Vesturlandi, þar sem
ákvörðun verðurtekin um fyrirkomu-
lag við val á framboðslista fyrir
næstu alþingiskosningar.
Jón Jósafat Björnsson, frá Borg-
arnesi, var kjörinn nýr formaður
kjördæmissamtaka ungra sjálfstæð-
ismanna á Vesturlandi á aðalfundin-
um á laugardag og tekur hann við
af Benjamín Jósefssyni, frá Akra-
nesi.
Bókin „Ingibjörg á
Löngumýri“ komin út
NOKKRU eftir sumarmál kom
út í fallegri útgáfu bókin „Ingi-
björg á Löngumýri“.
Nokkrir nemendur Ingibjargar
frá báðum skólum hennar, Staðar-
felli og Löngumýri, ákváðu að beita
sér fyrir því að gefa út þessa bók
í heiðursskyni við hana í tilefni 85
ára afmælis hennar 1. júní sl. og
þjóðkunnra starfa.
Efni bókarinnar er tvíþætt. í fyrri
hlutanum er æviágrip og starfssaga
Ingibjargar skráð af hr. Sigurbirni
Einarssyni biskupi, ásamt umsögn-
um nokkurra starfsmanna hennar
ognemenda.
í síðari hlutanum er margs konar
athyglisvert efni, sem Ingibjörg
hefur skráð, og er það aðalefni
bókarinnar.
Sigurður Gunnarsson, fyrrver-
andi skólastjóri, bekkjarbróðir Ingi-
bjargar, hefur dregið saman og
skipulagt meginefni bókarinnar og
lesið það fyrir skólasystur sína, sem
hefur verið alblind nokkur síðustu
árin. Allt, sem þar er birt, er því
valið í nánu samráði við hana.
Bókin fæst nú í nokkrum bóka-
búðum í Reykjavík. Þeir sem kynnu
að vilja fá hana með áskriftarverði,
geta sent um það skriflega pöntun
til Sigurðar Gunnarssonar, Álf-
heimum 66; 104 Reykjavík, og fá
hana þá senda í pósti með gíróseðli.
(Fréttatilkynning)
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Þorvaldur Gylfason
jafnaði, hvorki meira né minna.
Jafnvel þótt niðurgreiðslur séu ekki
taldar með, nemur kostnaður al-
mennings vegna annarra styrkja til
landbúnaðarins um 150.000 krón-
um á ári á hvert heimili í landinu
og rösklega 200.000 krónum á
mánuði á hvert heimili til sveita.
Til samanburðar má geta þess, að
Þórólfur Matthíasson lektor hafði
áður greint frá þeirri niðurstöðu í
vikuritinu Vísbendingu, að heildar-
stuðningur ríkisins við landbúnað
væri á bilinu 12-17 milljarðar króna
á núverandi verðlagi. Það er
ánægjulegt, að landbúnaðarráðu-
neytið skuli nú loksins hafa komizt
að sömu niðurstöðu og við hagfræð-
ingarnir. Samkvæmt tölum ráðu-
neytisins sjálfs nemur stuðningur
ríkisins við landbúnað, þegar allt
er talið, svipaðri fjárhæð og öll
framlög ríkisins til menntamála
samkvæmt fjárlögum. Þessi fjár-
hæð er litlu lægri en heildarframlag
ríkisins til heilbrigðismála á þessu
ári. Stuðningur ríkisins við landbún-
að nemur með öðrum orðum svip-
aðri fjárhæð og allur tekjuskattur
einstaklinga og fyrirtækja í landinu.
Ágreiningi ráðuneytisins við okkur
hagfræðingana í Háskólanum og
annars staðar um það, hversu mik-
ið núverandi landbúnaðarstefna
kostar ríkið og þar með þjóðina, er
lokið — með fullum sigri okkar.
III
Nú hlýtur það að vera næsta
skref fyrir skynsama menn í stjórn-
málaflokkunum að snúa bökum
saman og létta þessari þungu byrði
af herðum fólksins í landinu smám
saman. Fyrsta skrefið ætti að vera
að afnema útflutningsuppbætur á
landbúnaðarafurðir strax á næsta
ári; það nær auðvitað engri átt að
halda áfram að greiða útlendingum
stórkostlegar fjárhæðir ár eftir ár
fyrir að kaupa íslenzkar afurðir
langt undir kostnaðarverði. Því
næst ættum við að afnema innflutn-
ingsbannið og taka upp tolla í stað-
inn og lækka þá síðan í áföngum,
þannig að þeir verði orðnir mjög
lágir eða jafnvel horfnir eftir 10
ár. Innflutningsbann er fráleit tíma-
skekkja í nútímaþjóðfélagi; engin
nálæg þjóð bannar til dæmis inn-
flutning á osti, eins og við gerum.
Loks ættum við að gera áætlun um
afnám niðurgreiðslna landbúnaðar-
afurða smám saman á 5-7 árum,
eins og til dæmis Svíar hafa nú
áform um. Það mætti jafnvel hugsa
sér að fara enn hægar í sakirnar.
Lífið er langt. Með þessu móti er
hægt að bæta hag heimilanna í
landinu smám saman um 200.000
krónur að jafnaði — ekki í eitt
skipti, heldur á hveiju ári til fram-
búðar. Jafnframt þessu þyrfti áð
gera ráðstafanir til að auðvelda
bændum að semja sig að nýjum
siðum og til að tryggja sómasam-
legt jafnvægi í byggð landsins.
IV
Hér er í raun og veru um svo
sjálfsagða hluti að ræða, að þeir
ættu ekki að þurfa að vefjast fyrir
skynsömu fólki. Alls staðar í lönd-
unum í kringum okkur leita stjórn-
völd nú leiða til þess að koma viti
í úrelta landbúnaðarstefnu, sem er
þó ekki nærri því eins þungur baggi
á almenningi þar og hér. Þegar
starfsbræður mínir í öðrum löndum,
til dæmis á öðrum Norðurlöndum,
bera fram góðfúslega gagnrýni á
landbúnaðarstefnuna heima hjá sér,
viðurkenna stjórnvöld það undan-
bragðalaust, að þeir hafi á réttu
að standa, og þakka þeim fyrir
hjálpina. Þar er enginn verulegur
ágreiningur milli stjórnmálaflokka
um þær breytingar, sem nauðsyn-
legt er að gera á landbúnaðarstefn-
unni, en þá eru bændaflokkar að
vísu undanskildir. Hér heima geng-
ur hins vegar ekki hnlfur á milli
hagsmunasamtaka bænda og land-
búnaðarráðuneytisins. Ráðuneytið
hefur sent frá sér greinargerðir á
bréfsefni Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins, eins og ekkert sé.
Ráðuneytið hefur ráðið starfsmann
Stéttarsambands bænda til að vinna
að gerð búvörusamnings milli ríkis-
ins og bænda. Og þegar hagfræð-
ingar utan stjórnkerfisins hafa sagt
almenningi sannleikann um það,
hvað núverandi landbúnaðarstefna
kostar þjóðina, hefur varla mátt á
milli sjá, hvorir hafa fyllzt meiri
vandlætingu, ráðuneytismennirnir
eða erindrekar hagsmunasamtak-
anna. Þessi tengsl ráðuneytisins og
hagsmunasamtakanna virðast vera
svo náin, þegar alls er gætt, að
gt-unur hlýtur að leika á því, að
ráðuneytið telji sig eiga að gæta
hagsmuna bænda gagnvart al-
menningi, en ekki öfugt. Þess vegna
ber nauðsyn til þess, að óvilhöllum
aðila, til dærnis umboðsmanni Al-
þingis, verði falið að kanna þessi
tengsl og afleiðingar þeirra til hlítar [
og gera tillögur um það, hvernig V
rétt sé að búa um þessi samskipti ;
í lögum og reglum í framtíðinni til (
að tryggja það, að hagur neytenda (
og skattgreiðenda sé ekki borinn {'
fyrir borð.
Þáttur stjórnmálaflokkanna og í
forustumanna þeirra í þessu máli f
er kapítuli út af fyrir sig. Þeir hafa I
þverskallazt við að aflétta ríkis- í
verndaðri einokun í landbúnaði, sem i
á sér engan sinn líka í allri Vestur- >
Evrópu. Þeir hafa þagað þunnu
hljóði um upplýsingar óháðra hag- 5
fræðinga um kostnað almennings ■■
vegna þessarar einokunar. Þeir \
hljóta að hugsa sig tvisvar um nú,
þegar sömu upplýsingar hafa borizt i
úr sjálfu landbúnaðarráðuneytinu.
Ef þeir halda áfram að taka þrönga
skammtímahagsmuni bænda fram J,
yfir almannahag til frambúðar, jj,
hvort heldur af ráðnum hug eða í
hugsunarleysi, þá eiga þeir það á ^
hættu, að fólkið í landinu rísi upp
að lokum og hnekki veldi þeirra hér '
eins og í Austur-Evrópu.
Höfundur erprófessor í hagfræöi
við Háskóla lslands. Bók hans,
Almannahagur, ernýkomin útá
vegum Hins islenzka
bókmenn tafélags.