Morgunblaðið - 09.10.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
Akureyrarhöfn;
Gerð fjögurra ára áætl-
un um framkvæmdir
HAFNARSTJÓRN hefur samþykkt fjögurra ára áætlun vegna
nýframkvænida, en samkvæmt þeirri áætlun er gert ráð fyrir að
íýframkvæmdir við hafnir nemi rösklega 131 milljón króna.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að
^erður verið 70 metra langur stál-
)ilsbakki sem tengist vöruhöfn suð-
ur á Tanga. Einnig verði haldið
ífram dýpkun í fiskihöfninni og
unnið við deiliskipulag fiskhafnar,
hafnar við Krossanes og við vöru-
höfn.
Árið 1992 verður samkvæmt
áætluninni lokið við gerð stálþils-
bakkans og byrjað verður á fram-
kvæmdum við Krossanes þar sem
keyra á út gijótgarð. Árið 1993
verður haldið áfram við gijótgarð
í Krossanesi og dýpkun í fiskihöfn,
en það efni sem þar fæst verður
flutt í Krossanes þar sem fylla á
upp land jafnframt gerð gijótgarðs-
ins. Uppfyllingin kemur að hluta
til á árinu 1994, auk þess sem þá
verður einnig gerður 60 metra stál-
þilsbakki í Krossanesi.
„Þetta er það sem hafnarstjórn
hefur ákveðið að gera, en síðan fer
það eftir því út hvaða ijármagni
við höfum að spila hvernig áætlun-
in stendst. Ríkisframlög er ákveðin
frá ári til árs og því erfitt að byggja
ijögurra ára áætlun á þeim, en
þetta er sú röð sem menn sjá fyrir
sér hvað varðar verkefni við hafn-
irnar,“ sagði Guðmundur Sigur-
björnsson hafnarstjóri.
Áætlaður kostnaður við nýfram-
kvæmdir á árinu 1991 er 46 milljón-
ir, árið 1992 23 milljónir, en 25,5
milljónir á árinu 1993. Á árinu
1994 er áætlað að veija 37 milljón-
um króna til nýframkvæmda.
SAMSTARF
FYRIRTÆKJA
Á NORÐURLANDI
RÁÐSTEFNA
verður haldin á Akureyri laugardaginn 20. októ-
ber um samstarf fyrirtækja á Norðurlandi.
DAGSKRÁ:
Ávarp:
Haraldur Sumarliðason, forseti Landssambands iónaðarmanna:
Staða og uppbygging atvinnulífs á Norðurlandi, hlut-
verk atvinnuþróunarfélaga í eflingu atvinnulífs:
Ásgeir Leifsson, framkvstj. Iðnþróunarfélags Þingeyinga.
Sigurður P. Sigmundsson, framkvstj. Iðnþróunarfélags Eyfirðinga.
Unnur Ólafsdóttir, framkvstj. Iðnþróunarfélags Norðurlands
vestra.
Hvernig vinna fyrirtæki saman í fyrirtækjanetum?
Kristján Jóhannsson, rekstrarhagfræðingur hjá VSÍ.
Samstarf fyrirtækja í sjávarútvegi og iðnaði:
Guðmundur Guðmundsson, verkfræðingur hjá Li.
Er fjarlægðin frá Reykjavík kostur eða hindrun?
Pétur Reimarsson, framkvstj. Sæplasts hf.
Samstarf í markaðshóp um útflutning:
Torfi Guðmundsson, framkvstj. Vélsmiðjunnar Odda hf.
Samstarf í byggingariðnaði:
Hilmar Kristjánsson, framkvstj. Stíganda hf.
Stuðningur Byggðastofnunar við að efla samstarf
fyrirtækja á Norðurlandi:
ValtýrSigurbjarnarson, forstöðum. Byggðastofnunará Akureyri.
Hugmyndir um skiptingu landsins í þjónustu- og at-
vinnusvæði:
Ingimar Hansson, verkfræðingur.
Fjármögnun smáfyrirtækja á íslandi og í Evrópu:
Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá Li.
Samstarf um vöruþróun, kröfur til stjórnenda,
hugvit og hönnun:
Örn D. Jónsson, forstöðum. Sjávarútvegsstofnunar Háskóla
íslands.
Umræður með þátttöku sveitarstjórnamanna á Norður-
landi.
Ráðstefnustjóri: Tómas Ingi Olrich, menntaskólakenn-
ari á Akureyri.
Ráðstefnan verður haldin í Alþýðuhúsinu á Akureyri,
4. hæð. Ráðstefnugjald er kr. 4.500,- Innifalið í ráð-
stefnugjaldi eru gögn, kaffi og hádegisverður.
Tími: Laugardagurinn 20. október kl. 8.30-17.30.
Skráning á ráðstefnuna fer fram á Svæðisskrifstofu iðn-
aöarins á Akureyri, sími 96-11222, og hjá Landssam-
bandi iðnaðarmanna, sími 621590, fyrir 16. október.
SVÆÐISSKRIFSTOFA IÐNAÐARINS
Á NORÐURLANDI
LANDSSAMBAND IÐNAÐARMANNA
Morgunblaðið/Benjamín
Kjörsljórn í Öngulsstaðahreppi að störfum. Frá vinstri:
Kristján H. Theodórsson hreppstjóri Brúnum, Baldur H.
Krisljánsson Ytri-Tjörnum og Krislján Sigfússon Ytra-Hóli.
Á innfelldu myndinni greiðir Helga Björg Haraldsdóttir í
Víðigerði í Hrafnagilshreppi atkvæði í kosningum um sam-
einingu hreppanna þriggja framan Akureyrar.
Samþykkt í kosningn
að sameina þrjá hreppa
Ytri-Tjörnum.
KJÖRSÓKN var heldur dræm í kosningum um sameiningu hrepp-
anna þriggja í Eyjafirði á laugardag, en hún var 53,7%. Alls kaus
341 og voru 280 samþykkir sameiningu, en 57 á móti. Augljóst var
að fólk vildi kenna væntanlegt nýtt sveitarfélag við Eyjafjörð, því
nöfnin Eyjafjarðarbyggð, Eyjafjarðarsveit og Eyjafjarðarhreppur
fengu flest atkvæði í skoðanakönnun sem efnt var til á meðal íbúa
hreppanna jafnhliða kosningunum.
í Hrafnagilshreppi voru 209 á
kjörskrá og kusu 116 eða 55,5%.
Samþykkir sameiningu voru 95 eða
81,9%, en andvígir voru 20 eða
17,2%.
í Saurbæjarhreppi greiddu 90
atkvæði af 166 á kjörskrá eða
54,2%. Samþykkir voru 83 eða
92,2%, en andvígir voru 6 eða 6,6%.
í Öngulsstaðahreppi greiddu 135
atkvæði af 260 á kjörskrá, eða
51,9% og voru 102 samþykkir eða
75,5% og 31 var andvígur eða
22,9%.
Samhliða kosningunum var einn-
ig efnt til skoðanakönnunar um
nýtt nafn á væntanlegt sveitarfélag,
en alls stóð vaiið á milli 14 nafna.
Greinilegt var að fólk vildi kenna
hið nýja sveitarfélag við Eyjafjörð,
því flestir merktu við nafnið Eyja-
fjarðarbyggð eða 58 talsins, en ein-
um færri eða 57 merktu við Eyja-
fjarðarsveit. Þá merktu 52 við Eyja-
fjarðarhrepp. Grundarþing kom
næst en því nafni greiddu 49 at-
kvæði og Staðarbyggð völdu 26
manns. Það verður síðan í valdi
SJÖ ÁRA gömul stúlka slasaðist
lítillega þegar hún ók á hjóli aft-
an á bifreið á ferð í Ólafsfirði á
sunnudag.
Stúlkan ók á hjóli sínu á eftir
bifreiðinni en þegar komið var að
mótum Ægisbyggðar og Bylgju-
núverandi sveitarstjórna í hreppun-
um að ákveða nýju sveitarfélagi
endanlegt nafn.
Nýjar sveitarstjórnarkosningar
eru fyrirhugaðar 17 nóvember
næstkomandi og er líklegt að einn
listi verði í kjöri, sem myndaður
verði úr nýverandi sveitarstjórnum
hreppanna. Alls verða sjö manns í
væntanlegri sveitarstjóm og fengi
núverandi Öngulsstaðahreppur þijá
fulltrúa, en hinir hrepparnir tvo
hver.
byggðar ætlaði bíllinn að beyja.
Hún áttaði sig ekki á því að bíllinn
hægði á sér og ók aftan á hann.
Stúlkan hlaut áverka á höfði og
vott af heilahristingi og var hún
flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri þar sem hún var yfir nótt,
en hún fékk að fara heim í gær.
- Benjamín
Ólafsfjörður;
Stúlka ók hjóli á bifreið
FN hefur keypt skrúfuþotu
FLUGFÉLAG Norðurlands hefur
fest kaup á 19 sæta hraðfleygri
skrúfuþotu af gerðinni Fairchild
Metro III. Vélin er með jafnþrýsti-
klefa og er einkum ætluð til flugs
á lengri leiðum innanlands og til
útlanda. Kaupverð vélarinnar er
75 milljónir króna, en vélin er
keypt notuð af bandarísku flugfé-
lagi.
Metro 111-vélin verður hraðfleyg-
asta flugvélin í innanlandsflugi hér
á landi með yfir 500 km hraða á
klukkustund. Farþegaklefinn held-
ur óbreyttum sjávarmálsþrýstingi
upp í 17 þúsund feta hæð, eða
venjulega flughæð á innanlands-
leiðum. Burðargeta vélarinnar er
mjög góð og hentar hún því vel til
blandaðra flutninga, farþega og
farms, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá FN. Stórar vörudyr
eru aftast á skrokknum og sérstak-
ar dyr fyrir farþega fremst. Vélin
getur notað allar góðar malarflug-
brautir sem ná 1.000 m lengd.
Metro III-vélinni er ætlað að
bæta samkeppnisstöðu Flugfélags
Norðurlands og mun koma hennar
gera félaginu kleift að taka að sér
ný verkefni, auk þess sem vélin
mun leysa Twin Otter-vélarnar af
hólmi'í sumum verkefnum sem þær
hafa sinnt.
Vélin er væntanleg hingað til
lands um miðjan nóvember, en þá
verður lokið þjálfun flugáhafna og
flugvirkja og er reiknað með að
vélin verði strax tekin í notkun.
Þrennir tónleikar hjá
Passíukómum í vetur
ÁTJÁNDA starfsár Passíukórsins á Akureyri er að hefjast, en efnis-
skrá kórsins í vetur verður fjölbreytt, flutt verður tónlist allt frá
barrokktimanum og að jazzi. Haldnir verða þrennir tónleikar í vetur.
Fyrstu tónleikarnir verða í des-
ember þegar flutt verður messa
fyrir átta raddir eftir Charpentier,
en hún er óvenjuleg í hljómagangi
og hljómasetningu.
Næstu tónleikar verða í mars,
þegar frumflutt verður „New hope
jazz mass“ eftir finnska jazzsaxó-
fónleikarann og tónskáldið Heikki
Sarmanto, en á tónleikunum fær
kórinn til liðs við sig nokkra af
færustu jazzleikurum landsins,
Stefán S. Stefánsson, Sigurð Flosa-
son og einnig er búist við að Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngi með kórnum.
Þriðju tónleikarnir verða í júní,
með alheimsfrumflutningi á
„Strengleikum“ eftir Björgvin Guð-
mundsson, sem Roar Kvam stjórn-
andi kórsins útsetti fyrir kór og
hljómsveit, en tónleikarnir verða
haldnir í tilefni af 100 ára afmæli
Björgvins.
Stefnt er að öflugu félagslífi inn-
an kórsins í vetur. Æfingar verða
tvisvar í viku, á miðvikudögum frá
kl. 20-22 og á laugardögum frá kl.
15-17.
(Úr fréttatilkynningu.)