Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 37
MORGUNBIiADIÐ,ÞRIÐJUBAGUR 9. OKTÓBHH >
37i
Óþekktur Rússi stal senunni
Greinarhöfundur með Alpaskörð í baksýn. Þegar Leifur Jósteins-
son tók myndina var fyrsta umferð mótsins að hefjast og móts-
haldarar höfðu þungar áhyggjur af því að ,við hefðum lent á villi-
götum uppi í fjöllunum.
__________Skák_______________
Margeir Pétursson
NÝFENGIÐ ferðafrelsi Sovét-
manna hefur haft mikil áhrif í
skákheiminum og það er komið
í ljós að margir óuppgötvaðir
snillingar hafa leynst þar eystra.
Einn slíkur, hinn 44 ára gamli
Alexander Tsjúdinovskíj opin-
beraði sig nú fyrir. skömmu á
opna alþjóðamótinu í San Bern-
ardino í Sviss. Hann varð í efsta
sæti með sjö vinninga af níu
mögulegum ásamt Vlastimil
Hort og undirrituðum, en var
úrskurðaður sigurvegari á stig-
um.
Það þarf reyndar ekki að koma
neinum á óvart að í Sovétríkjunum
leynist margir öflugir skákmenn.
Skráðir meðlimir í skákfélögum
þar voru um tíma fimm milljónir
talsins! Lífshlaup Tsjudinovskíjs er
nokkuð athyglisvert. Á árunum
1963-65, þegar hann var tæplega
tvítugur, var hann í læri hjá Vikt-
or Kortsjnoj í Leningrad og var
þá mjög efnilegur. Tókst þá með
þeim Kortsjnoj vinátta sem enn
stendur. Hann varð unglingameist-
ari Rússlands 1964 og um þetta
leyti hafði hann náð þeim árangri
gegn Anatoly Karpov að vinna
hann tvisvar og gera tvö jafntefli.
Um þær skákir er þó ekki getið í
riti þar sem allar skákir Karpovs
sem ekki hafa glatast eru birtar.
E.t.v. gerir Tsjudinovskíj athuga-
semd við næstu útgáfu.
En frekari frami lét á sér standa
og hann gerðist rafmagnsverk-
fræðingur og hafði skákina aðeins
sem áhugamál. Babb kom í bátinn
þegar Kortsjnoj vinur hans flúði
landi 1976. Tsjudinovskíj neitaði
að fordæma hann og féll í ónáð,
missti t.d. vinnuna fjórum sinnum.
Nú starfar hann í Kirov, 1.200 km
norðan við Moskvu. Ferð hans í
lest og áætlunarbíl upp í sviss-
nesku alpana tók sex daga! Það
var reyndar Kortsjnoj sem bauð
honum á mótið og launaði honum
þar með tryggðina forðum. Annars
hefði Tsjudinovskíj ekki getað ver-
ið með, því menn lifa ekki lengi í
Sviss af rússneskum mánaðarlaun-
um. Mótið í San Bernardino er
að mörgu leyti mjög frábrugðið
öðrum slíkum. Það er haldið í
smábæ í 1.600 metra hæð í ítalska
hluta Sviss. Aðbúnaður keppenda
er mjög glæsilegur, bæði hvað
varðar húsakynni og fæði. Nokkr-
um stórmeisturum, í þetta sinn 13
er boðið til leiks, en. aðrir keppend-
ur verða að standa straum af þátt-
tökunni sjálfir. Eru þeir flestir frá
Þýzkalandi, Sviss, Frakklandi og
Ítalíu og eiga það allir sameigin-
legt að hafa mikla ánægju af iðk-
un skáklistar, þó styrkleikinn sé
misjafn. Vegna plássleysis er þátt-
takendafjöldi takmarkaður við 80
og varð í þetta sinn að hafna ijöl-
mörgum umsóknum. Það er Wern-
er Widmer, útgefandi hins út-
breidda skákvikurits “Schachwoc-
he“ sem heldur mótið.
Sumir þátttakendur taka ár eft-
ir ár þátt í mótinu svo þar mynd-
ast mjög góður andi. Þar sem allir
snæða saman er margt skrafað og
áhugamönnunum gefst kostur á
að ráðfæra sig við stórmeistarana.
Þarna er iandslag líka stórbrotið'
og margar frábærar gönguleiðir í
boði auk aðstöðu til heilsuræktar
og íþróttaiðkana. Þetta minnir að
mörgu leyti á aðstæður á þeim fjöl-
mörgu mótum sem haldin hafa
verið á háfjallahótelinu í Gausdal
í Noregi, en að frændum vorum
ólöstuðum hafa Svisslendingarnir
vinninginn hvað varðar aðbúnað
og þjónustu.
En víkjum nú að keppninni
sjálfri. Ég var mjög seinn í gang
og hafði aðeins hlotið fjóra vinn-
inga eftir sex umferðir, m.a. misst
af vinning gegn sænska stórmeist-
aranum Hellers og einnig af væn-
legri leið gegn hinum gamalreynda
júgóslavneska stórmeistara Ciric.
Allt virtist því stefna í áframhald-
andi klúður, sem hefur fylgt mér
síðasta hálfa árið eða svo. En þá
small skyndilega allt í liðinn og
mér tókst að vinna þrjár síðustu
skákirnar nokkuð örugglega.
Tsjudinovskíj fór mjög vel af stað
og eftir sigra gegn tveimur stór-
meisturum af yngri kynslóðinni,
þeim Barbero, Argentínu og Klin-
ger, Austurríki, dugði honum að
gera jafntefli í síðustu skákunum.
I þeim tveimur skákum kom glögg-
lega í ljós að þótt Rússinn hafi
geymt ljós sitt undir mælikeri í
25 ár eða svo, þá tók hann and-
stæðingunum langt fram í fræði-
þekkingu og stöðuskilningi. Með
því að gera jafntefli í hörkuskák
við stigahæsta keppandann í
síðustu umferð, Viktor Gavrikov
frá Litháen, sýndi Rússinn sig vel
að efsta sætinu kominn.
Vlastimil Ilort, okkar gamli vin-
ur frá einvíginu við Spasskíj hér í
Reykjavík 1977, er hann vann hug
og hjörtu íslenskra skákáhuga-
manna með drengilegri framkomu,
var seinn af stað. I næstsíðustu
umferð rambaði hann á barmi glöt-
unar gegn Joe Gallagher, nýjasta
stórmeistara Englendinga. En
Hort bjargaði sér í jafntefli og hinn
vonsvikni Gallagher var mér nokk-
uð auðveld bráð í síðustu umferð-
inni. Þá tók Hort einnig á hinum
stóra sínum, vann landa sinn og
kollega Eduard Meduna, sem leitt
hafði mótið frá upphafi.
Lokastaðan varð því þessi: 1-3.
Tsjudinovskíj, Hort og Margeir
Pétursson 7 v. af 9 mögulegum.
4-9. Meduna (Tékkósl.), Vaiser
(Sovétr.), Hellers (Svíþjóð), Klin-
ger (Austurríki), Gavrikov (Sov-
étr.) og Groszpeter (Ungvetjal-
andi) 6’A v.
10-13. Gallagher (Englandi), Du-
treeuw (Belgíu), Schwartzman
(Rúmeníu) og Nemet (Júgóslavíu)
6 v.
Eftir að hafa heyrt um góðar
aðstæður á mótinu slóst Leifur
Jósteinsson, bankaútibússtjóri á
Grundarfirði, með mér í förina og
stóð sig framan af með prýði, hafði
hlotið fjóra vinninga af sex mögu-
legum. En þá fór róðurinn að
þyngjast hann tapaði klaufalega
fyrir a-þýzka stórmeistaranum
Vogt og síðan einnig tveimur
síðustu skákunum. Við Leifur
höfðum reyndar ekki réttar upplýs-
ingar um upphaf mótsins í höndum
og eftir skemmtilega ökuferð um
Alpaskörð mættum við okkur til
skelfingar í lok fyrstu umferðar-
innar. Til að bjarga málum var
okkur gefinn kostur á að gera stutt
jafntefli í fyrstu umferð, til að
þurfa ekki að byija með núll.
Ég læt hér fylgja athyglisverða
skák mína við a-þýzka stórmeistar-
ann Lothar Vogt úr næstsíðustu
umferð, er við þurftum báðir nauð-
synlega á vinningi að halda. Þetta
er reyndar síðasta skák mín gegn
Austur-Þjóðveija, þótt Þýzkaland
muni reyndar senda tvær sveitir á
væntanlegt Ólympíumót.
Hvítt: Lothar Vogt
Svart: Margeir Pétursson
Kóngsindversk árás
I. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d3 -
Rf6 4. g3 - d5 5. Rbd2 - g6
6. Bg2 - Bg7 7. 0-0 - 0-0 8. c3
— dxe4 9. dxe4 — Dc7 10. Hel
- Hd8
Upp er komin Kóngsindversk
vörn með skiptum litum. Vegna
opnunar d línunnar er mjög erfitt
fyrir hvít að ná meira en jöfnu tafli.
II. De2 - Rg4 12. Rc4 - b6 13.
Bf4 — Rge5 14. Rfxe5 — Rxe5
15. Re3
Eftir 15. Bxe5 - Bxe5 16. f4
— Bg7 17. e5 — Bb7, eða 16.
Rxe5 - Dxe5 17. f4 - Dc7 18.
e5 — Bb7 jafnar svartur taflið
nokkuð auðveldlega.
15. - e6 16. Bg5! - Hd7 17. f4
- h6!
Mjög mikilvægur millileikur.
Mótspilsmöguleikar svarts í fram-
haldinu byggjast upp á því að geta
lokað þennan biskup inni á h4.
18. Bh4 - Rd3 19. Hedl - Ba6!
Markmið hvíts er að hertaka f6
reitinn og því nær hann eftir 19.
- c4?! 20. e5 - Hb8 21. Rg4. Nú
getur svartur hins vegar svarað
20. e5 með 20. - Rxf4! 21. Dxa6
— Rxg2 22. Kxg2 — g5 og 20.
Rg4 má einnig svara með 20. —
Rxf4! 20. c4
20. - Re5!
Riddarinn snýr til baka, með
ferðinni til d3 hefur hvítur verið
knúinn til að veikja d4 reitinn og
það skiptir miklu máli eins og sést
af framhaldinu.
21. fxe5 - Hxdl+ 22. Hxdl -
g5 23. Bxg5 — hxg5 24. Rg4 —
Hd8 25. Rf6+
Hér hafði ég reiknað með 25.
Hfl, sem ég ætlaði að svara með
25. — Dd7!?, vegna framhaldsins
26. Rf6+?! - Bxf6 27. exf6 -
Dd4+ 28. Khl - Bxc4 - 29. Dh5
- Bxfl 30. Dxg5+ - Kf8 31.
Dg7+ - Ke8 32. Dg8+ - Kd7
33. Dxf7+ - Kc6 34. Dxe6+ -
Dd6! og endataflið verður gott á
svart.
25. - Kf8 26. b3 - Ke7! 27. Rg4?
Skiljanlega hafði Vogt leitað
logandi ljósi að leíðum til að hrekja
frumlega taflmennsku svarts og
eytt miklum tíma. Hér hafði hann
greinilega misst móðinn, enda
bauð hann jafntefli. Rétt var 27.
Hxd8 — Dxd8 28. Db2!, þó hann
gefi eftir d línuna. í því tilviki virð-
ast möguleikarnir u.þ.b. jafnir,
báðir mega gæta sín.
27. - Hxdl+ 28. Dxdl - Bxe5
29. Rxe5 - Dxe5 30. Dd2 - Bb7
31, Kf2 - f6 32. h4??
í tímahraki gleymdi Vogt því
að svartur má nú taka peðið, en
staða hans var auðvitað orðin mjög
óþægileg.
32. - gxh4 33. gxh4 — Bxe4 34.
Bxe4 - Dxe4 35. Dh6 - Kf7 36.
h5 - e5 37. Dh8 - Df5+ 38.
Kel - Dbl+ 39. Kd2 - Dxa2
40. Kc3 - Dbl 41. h6 - Dcl+
og hvítur gafst upp, því eftir 42.
Kd3 - Dfl+ 43. Kc3 - Df3+ 44.
Kb2 — Dg2+ leikur svartur næst
45. — Dg8 og knýr fram drottn-
ingakaup.
Sveit Landsbréfa
bikarmeistari 1990
Morgunblaðið Amór
Bikarmeistarar Islands í brids 1990. Talið frá vinstri: Jón Þorvarðar-
son, Aðalsteinn Jörgensen, Magnús Ólafsson, Valur Sigurðsson, Jón
Baldursson og Sigurður Vilhjálmsson.
Magnús Ólafsson býr sig undir að kyssa langþráðan grip. Það var
forseti Bridssambandsins, Helgi Jóhannsson, sein afhenti verðlaunin.
Meðspilari Magnúsar, Jón Þorvarðarson, stendur að baki Magnúsi.
____________Brids_____________
Amór Ragnarsson
Sveit Landsbréfa varð bikar-
meistari í brids 1990 eftir snarpa
úrslitaviðureign við sveit S. Ar-
manns Magnússonar. Urslitaleik-
urinn fór fram sl. sunnudag á
Hótel Loftleiðum. í sigursveitinni
spiluðu Valur Sigurðsson, Jón
Þorvarðarson, Sigurður Vil-
hjálmsson, Magnús Ólafsson, Að-
alsteinn Jörgensen og Jón Bald-
ursson.
Leikurinn þróaðist þannig að
jafnt var framanaf, síðan náði sveit
Landsbréfa nokkurri forystu og
hafði 32 punkta forskot fy/ir
síðustu lotuna en liðsmenn S. Ár-
manns skoruðu grimmt í síðasta
fjórðungnum og skildu aðeins 6 stig
sveitirnar að þegar upp var staðið.
Leikurinn endaði í tölum 182 stig
Landsbréfa gegn 176. Segir það
kannski nokkuð til um leikinn
hversu háar tölur þetta eru en hins
vegar er þess að gæta að hér er
um að ræða bikarleik.
Leikurinn var 64 spil og uppgjör
eftir 16 spil.
Landsbréf S.Á.
Magnúss.
l.lota 39 35
2. lota 60 49
3. lota 60 43
4. lota 23 49
Mjög fámennt var á úrslitaleikn-
um, einkum um kvöldið, og er
spurning hvort ekki þarf að fara
að hressa eitthvað upp á keppnis-
formið eða gera einhverjar breyt-
ingar á keppninni þótt ekki sé nema
breytinganna vegna.
Bikarmeistari í fyrra varð sveit
Tryggingamiðstöðvarinnar.