Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 39
Á láð úr lofti
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó:
Dag'ai' þriuminnar — “Days of
Thundér“
Leikstjóri Tony Scott. Aðal-
leikendur Tom Cruise, Robert
Duvall, Nicole Kidman.
Bandarísk. Paramount 1990.
Öllum leyfð.
í rauninni er Dagar þrumunn-
ar enn eitt innleggið í framhalds-
myndafár sumarsins, því þó hún
eigi ekki samnöfnu að forvera
er hún hreinræktað framhald
hinnar geysivinsælu Top Gun
(’86), en að þessu sinni færist
atburðarásin á láð úr lofti. Og í
stað rennilegra orrustuþotna sjó-
hersins geysist söguhetjan um
kappakstursbrautir Banda-
ríkjanna á „upptjúnuðum" Chev-
rolet Lumina, sjálfsagt besta
Chevy-auglýsing um árabil. Að-
standendur myndarinnar hafa
þó löngum hamrað á því að hér
sé ekki Top Gun II á ferðinni,
heldur öllu mannlegra drama.
Og vissulega fer ekki nema hluti
myndarinnar fram á brautunum,
en mergur málsins er sá að þeir
kaflar standa uppúr, hlaðnir
mergjaðri spennu sem hleypa
fjöri í adrenalínstarfsemina. En
þrátt fyrir framlag hins virta
handritshöfundar Towne, er
dramað utan brautanna innan-
tóm og óspennandi sápuópera
um piltung sem er að reyna að
finna sjálfan sig og ástarævin-
týri hans við heilaskurðlækni —
endurtek heilaskurðlækni, minna
mátti nú ekki gagn gera, sem
eftir útlitinu að dæma hefur hrist
eitt mest krefjandi og erfíðasta
nám sem um getur, fram úr er-
minni í menntó. Annað eftir því.
Persónurnar éru ótrúlega þunnar
í roðinu og samtölin kauðsk.
Söguþráðurinn gamalkunn
blanda spennu og drama í anda
Rocky-mynda. En meðan „þorri
manna þegir“, einsog Danival
sagði um árið, fátt annað heyrist
en þrumugnýr kappakstursbíla
og atburðarásin fer fram á
brautunum, er Dagar þrumunnar
prýðileg afþreying þar sem fer
saman frábær tækni og feikilega
útsjónarsöm kvikmyndataka og
hljóðstjórn.
Vandfundin
eru velsæm-
ismörkin
Bíóhöllin:
Töffarinn Ford Fairlane —
„The Adventures of Ford Fa-
irlane"
Leikstjóri Renny Harlin.
Handrit Daniel Waters, James
Cappe, David Arnott. Aðal-
leikendur Andrew Dice Clay,
Wayne Newton, Priscilla Pres-
ley, Robert Englund.
Bandarísk. 20th Century Fox
1990.
Aldeilis makalus maður er
nefndur Andrew Dice Clay. Hef-
ur hann um nokkur misseri vald-
ið ólgu í bijóstum landa sinna
um Bandaríkin þver og endilöng.
Tilheyrir þeirri stétt skemmti-
krafta sem upp treður á sviði,
frammi fyrir áhorfendum vítt og
breitt og reynir að fá þá til að
hlæja. En oftar en ekki hefur
múgurinn ærst, því þó Kanar sém
ýmsu vanir af þessum spaugur-
um, hefur enginn nálgast kauða
í trantinum. Honum ku ekkert
heilagt; á sviðinu hæðir hann og
spotfyr flest alla minnihlutahópa
á jörðu hér, einkum fá þó negr-
ar, gyðingar og hommar það
óþvegið hjá klámkjaftinum. En
það sem fer fyrir brjóstið á einum
yljar öðrum um hjartaræturnar,
bróðurkærleikurinn fer oft fyrir
bí hjá sumum þeirra sem hafa
horn í síðu niggara, júða og hom-
matitta, sem þeir gjarnan nefna
þessa meðbræður sína. Og svo
getur Clay verið absúrd og ámát-
lega fyndinn ef því er að skipta
og gerir blessunarlega grín að
sjálfum sér. Svo leiðin hlaut að
liggja til Hollywood, og þessir
jákvæðari þættir einkenna sem
betur fer það dæmalausa sams-
ull sem nefnist Töffarinn Ford
Fairlane. Og nota bene, Fox ligg-
ur á annarri mynd með Dice og
átti að fylgja í kjölfar þessarar.
Sú er tekin á skemmtun hjá sorp-
kjaftinum í essinu sínu og fljúga
frá honum þvílíkar svívirðingar
á allt og alla að sagt er að Eddie
Murphy í stuði sé einsog klumsa
kórdrengur við hliðina á honum.
Og er þá mikið sagt. Talið er
að þeir hjá Fox ætli að láta hana
rykfalla, jafnvel þó piltur hafí
slegið aðsóknarmet í sjálfum
Madison Square Garden.
Það væri misskilningur að
fara mörgum orðum um myndina
en ‘strax í upphafi skal þess get-
ið að hún er fárra tesopi. Með
eindæmum kjaftfor, oftast það
ósmekklega að til vandræða
horfir hjá dönnuðu fólki, en á
milli koma meinfyndnir kaflar
sem útskýra aðsóknarmetin
vestra. Efnisþráðurinn er harla
ómerkilegur, erkivitleysa um töf-
farann Fairlane, einkaspæjara
stórmúsíkantanna í Englaborg-
inni í miklum mannraunum og
kvennaslugsi. Hann er aðeins
rammi utanum munnsöfnuð og
látæði þessa brandarakarls fár-
ánleikans. Öllu heila galleríinu
er svo stjórnað af engum öðrum
en Finnanum Harlin (myndina
gerði hann næst á undan Die
Hard II), og gerir hann það með
stíl og heljarinnar húllumhæi.
Reynist ,og vera hinn sannasti
föðurlandsvinur þar sem hann
hefur lætt Finlandiu í báðar
myndirnar; þeirri sem kennd er
við Sibelius í Die Hard II, en hér
skartar sú sem fæst á Lindargöt-
unni.
Allt samkvæmt
uppskriftinni
Stjörnubíó:
Síðasti uppreisnarseggurinn
— „Blue Heat“
Leikstjóri John MacKenzie.
Aðalleikendur Brian Dennehy,
Joe Pantoliano, Jeff Fahey,
Bill Paxton. Bandarísk. Orion
1990. Bönnuð innan 16 ára.
s.
Otrúlegt en satt, en þessari
ósköp hversdagslegu spennu-
mynd er leikstýrt af engum öðr-
um en MacKenzie, sem víðfræg-
ur varð fyrir Long, Good Friday,
einum sérstakasta og frumleg-
asta þriller síðasta áratugar. í
auglýsingu myndarinnar segir,
„hörkuspenna, hasar og harkan
sex“, jú, jú, mikið satt og gott
betur, en það sem vantar svo
tilfinnanlega eru einmitt þau ein-
kenni sem prýddu myndir Bret-
ans fyrir áratug síðan. Höfuð-
galli Síðasta uppreisnarseggsins,
annars meinlausrar og heldur
vandvirknislegrar „löggufélaga-
myndar“, er hvað við höfum séð
þetta alltsaman ári oft áður.
Hefði þótt góð fyrir daga sjón-
varpsins.
Fjórar löggur undir stjórn
Dennehy eru komnir á spor eitur-
lyfjahrings sem reynist eiga
vingott á efstu stöðum. Hug-
sjónamenn í ofanálag. Konur
snökta, menn falla, eru settir af,
snúa til baka á gallabuxunum
sínum og bjarga heiminum.
En sem sagt vita dáðlaust en
ekki beint leiðinlegt. Mannvalið
nokkrir ungir og upprennandi
B-leikarar og fyrir hópnum fer
gamli, góði Dennehy, sem jafnan
stendur fyrir sínu. Hinsvegar
þarf hann bitastæðara efni til
að halda uppi heilli kvikmynd.
Söluíbúðir
aldraðra:
Borgarráð
fjallar um við-
horfskönnun
meðal íbúa
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum á
fimmtudag, að vísa til borgar-
ráðs tillögu borgarfulltrúa
minnihlutans, þar sem lagt var
til að framkvæmd yrði viðhorfs-
könnun meðal íbúa í söluíbúðum
fyrir aldraða.
Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfull-
trúi Nýs vettvangs, mælti fyrir til-
lögunni og kom fram í máli henn-
ar, að þótt ljóst væri að mikill áhugi
væri á söluíbúðum fyrir aldraða
hefði heyrst, að sumir íbúanna
hefðu reiknað með meiri þjónustu
en þar stæði til boða. Könnun á
viðhorfi íbúanna ætti að verða
skipuleggjendum framkvæmda og
þjónustu til leiðbeiningar varðandi
frekari uppbyggingu á þessu sviði.
Páll Gíslason, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, lagði til, að
þessari tillögu yrði vísað til borgar-
ráðs til frekari skoðunar og sam-
þykkti borgarstjórn þá málsmeðferð
samhljóða.
HVAÐ ER
IpIaIrIaIdIoIr!
ÞÝSKAR ÞILPLÖTUR
GÆÐAVARA í STÍL
Fyrirliggjandi
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
39
5JÁLFSTIEDISFLOKKURINN
F É L A G S S T A R F
Aðalfundur Félags sjálf-
stæðismanna f Grafarvogi
Aðalfundur Félags sjálfstæðismanna í Grafarvogi verður haldinn í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, þriðjudaginn 9. október kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Öiinur mál.
Stjórnin.
ísafjörður
Framhaldsaðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á ísafirði
verður haldinn í dag, þriöjudaginn 9. október, kl. 20.30 í Sjálfstæðis-
húsinu, 2. hæð.
Dagskrá:
1. Framhald aöalfundarstarfa.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði boöar til fundar í dag,
þriðjudaginn 9. október 1990, kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu við
Strandgötu.
Dagskrá: Davíð Oddsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir
stjórnmálaviðhorfin, Jóhann G. Bergþórsson, bæjarfulltrúi, ræðir
bæjarmál. Greint verður frá fundi kjördæmisráðs.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Hafnarfjörður - haustblót
Sjálfstæðismenn f
Hafnarfirði efna til
haustblóts í Skút-
unni föstudaginn
12. október sem
hefst með fordrykk
kl. 19.30. Glæsileg-
ur kvöldverður.
Heiðursgestur: Sr.
Hjálmar Jónsson frá
Saúðárkróki.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi til kl. 3.00.
Veislustjóri: Árni Johnsen.
Miðaverð aðeins kr. 3.000,-. Forsala aðgöngumiða í Sjálfstæðishús-
inu laugardaginn 6. október kl. 10.00 til 13.00. Miðapantanir hjá
Mjöll Flosadóttur í síma 51149 og Pétri Rafnssyni í síma 54998.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði.
Kennsla
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Ath. VR og BSRB styrkja félaga
sína til náms á námsk. skólans.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
I.O.O.F. Rb. 1 =1401098-9.1.
□ FJÖLNIR 599009107 =
□ EDDA 59909107 - 1 Atkv.
□ Sindri 59909107 - Fj.
□ HELGAFELL 59901097IV/V 2
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Samvera fyrir eldri safnaðar-
meðlimi í dag kl. 15.00.
Vanti þig farartæki, hringdu þá
á skristofu safnaðarins.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Miðvikudagur 10. okt.
Myndakvöld
Ferðafélagsins
Fyrsta myndakvöld Ferðafélags-
ins í vetur verður á miðvikudags-
kvöldið 10. otkóber í Sóknarsaln-
um, Skipholti 50a. Pað hefst
stundvíslega kl. 20.30. Á
myndakvöldunum í vetur er ætl-
unin að sýna frá hinum fjölmörgu
ferðum, sem félagið hefur fariö
á árinu, ekki síst sumarleyfis-
ferðunum. Efni þessa mynda-
kvölds er helgað tveimur mjög
sérstökum ferðum frá i sumar.
Fyrir hlé munu Jóhannes I. Jóns-
son og félagar hans sýna mynd-
ir og segja fré gönguferð frá
Vonarskarði um og meðfram
vesturjaðri Vatnajökuls í Jökul-
heima. Þama eru stórkostlegir
staðir utan alfaraleiða, m.a.
Hamarinn og nágrenni hans.
Eftir hlé mun Kristján M. Bald-
ursson sýna myndir frá Noregi,
úr gönguferö Ferðafélagsins um
Jötunheima, þekktasta fjalla-
svæði Norðmanna, siglingu um
Sognfjörð o.fl. Ennfremur sýnd-
ar glænýjar myndir úr haustiita
og grillveisluferð í Þórsmörk.
Spennandi myndasýning frá
tveimur velheppnuðum sumar-
leyfisferðum. Góðar kaffiveit-
ingar í hléi í umsjá félaga Ff.
Allir velkomnir, jafnt félagar
sem aðrir. Ferðafélagsspilin
verða til sölu. Fjölmennið. Ath.:
Okkur vantar iitskyggnur úr af-
mælisgöngunni til sýningar á
myndakvöldi 14. nóvember. Haf-
ið samband við skrifst.
Ferðafélag fslands.
AD-KFUK
Fundur í kvöld kl. 20.30 í Langa-
gerði 1. Stjórn Vindáshlíðar sér
um fundinn. Myndir sýndar úr
kvennaflokki. Hugleiðing: Guð-
rún Edda Gunnarsdóttir.
Allar konur velkomnar.
EMMLU
í Frískanda, Faxafeni 9
Ný byrjendanámskeið hefjast
18. október. Hugleiðsla, Hatha-
jóga, öndunartækni og slökun.
Leiðbeinandi: Helga Mogensen.
Opnir tfmar: Mánudaga-laugar-
daga kl. 07.00. Mánudaga-
fimmtudaga kl. 18.15. Mánu-
daga og miðvikudaga kl. 12.15.
Satsan: Fimmtudaga kl. 20.00.
Upplýsingar og skráning hjá
Mundu (kl. 12-15 i síma 39532),
Heiðu (sími 72711) og Ylfu (á
kvöldin í síma 676056).