Morgunblaðið - 09.10.1990, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
41
I
FÆST
I BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
. KASTRUPFLUG VELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Æskulýðsleiðtogar
Hjálpræðishersins
heimsækja Island
INGER og Einar Höyland, majórar, sem eru æskulýðsfulltrúar Hjálpræð-
ishersins í Noregi, Pæreyjum og Islandi, halda samkomur á ísafirði
þriðjudaginn 9. október, á Akureyri miðvikudag og fimmtudag 10. og
11. október, á báðum stöðum í samkomusölum Hjálpræðishersins, og
koma svo til Reykjavíkur föstudaginn 12. október.
Æskulýðsleiðtogarnir Inger og Einar Höyland.
í Reykjavík munu þau tala á sam-
komum fyrir foringja Hjálpræðishers-
ins í Færeyjum og á íslandi á foringj-
aráðstefnu, sem stendur yfir föstu-
daginn og laugardaginn. Sunnudag-
inn 14. október verða svo almennar
samkomur í Herkastalanum kl. 11.00
og 20.30, þar sem allir foringjar
Hjálpræðishersins á íslandi og í Fær-
eyjum taka þátt ásamt þeim hjónum
Inger og Einar Höyland.
Inger og Einar Höyland þekkja
land og þjóð mjög vel. Þau veittu
forstöðu starfinu hér í Reykjavík á
árunum 1961-1964, en þar á undan
höfðu þau ábyrgð á starfinu í Þórs-
höfn í Færeyjum. Síðan hafa þau oft
komið hingað í heimsókn.
Leiðtogi Hjálpræðishersins í Fær-
eyjum og á íslandi, majór Daníel
Óskarsson, verður með þessum hjón-
um á ferðalagi þeirra. Viljum við ein-
dregið hvetja sem flesta að koma á
Her og hlusta á þessa fagnaðarboða
Drottins.
(Fréttatilkynning)
hjá afa og ömmu af öllum bama-
börnunum, sem nú era átta. Áður
hafði Þórður eignast son með Krist-
jönu Hjartardóttur frá Hnífsdal,
Grétar Þórðarson, skipstjóra á
ísafirði, kvæntur Katrínu Jónsdótt-
ur, húsmóður, og eiga þau tvo syni.
Þórður Bogason var sannur
Breiðfirðingur í húð og hár og mik-
ill átthagaunnandi. Það kom best í
Ijós með starfí hans í Barðstrend-
ingafélaginu um árabil og þá ekki
síður með stofnun svo nefnds Átt-
hagamóts eyjamanna, þar sem hann
ásamt fleiru dugmiklu fólki úr Flat-
ey hafði staðið að skemmtisamkom-
um eyjamanna hér í Reykjavík í
fjöldamörg ár. Rúmri viku áður en
Þórður lést heimsóttum við hjónin
hann í sjúkrahúsið og var hann þá
örþreyttur og fársjúkur, en eitt af
því sem hann sagði og var skýrt.
Nú verður eyjamannamótið fyrr en
áður. Daginn eftir andlát hans kom
svo bréf frá undirbúningsnefnd um
væntanlegt átthagamót, mánuði
fyrr en venjulega. Þar vantaði eitt
nafnið í undirskriftina, sem áður
hafði verið, og er nú skarð fyfir
skildi á þeim vettvangi.
Saman stóðu þau Lóa og Þórður
í blíðu og stríðu og reyndist hún
honum hinn besti lífsföranautur í
47 ár. Oft var erfitt er baksjúkdóm-
urinn hijáði Þórð sem mest og var
það einmitt þegar verst stóð á er
þau voru að koma sér upp íbúðinni
við Rauðalæk og bömin vora ung.
Má segja að það hafa nánast verið
kraftaverk að það tókst svo giftu-
samlega, enda bæði hjónin lagin og
hagsýn. Heimili þeirra átti eftir að
vera athvarf svo margra góðra vina
og skyldmenna, enda vora þau hjón-
in fádæma vinamörg og gestrisin.
Að leiðarlokum getum við ekki ann-
að en kvatt vin' okkar, Þórð Boga-
son, með þakklæti og söknuð í
huga. Öllum ástvinum Þórðar Boga-
sonar vottum við innilegustu sam-
úð. *
Díana og Ari,
Unnur og Ingólfur
(Míljttfl'?
Iblíiliití
Electrolux
kr. 174.100,- stgr,
ísskápar
★ Klakavél
★ Kaltdrykkjarvatn
★ Engin affrysting
ásamt öðrum Electrolux gæðum
★ Hljóðlátur
★ Góðeinangrun
★ Lengsta ábyrgð á íslandi
fyrir kælitæki
★ Lipur þjónusta
★ Sjón er sögu ríkari
Landsins mesta úrval af kæli- og frystitækjum
Eru þetta ekki kælitæki, sem þú vilt hafa á þínu heimili?
Heimasm
Kringlunni, sími 685440
Electrolux
B3I
Þar sem gæðin sjóst
É; HÚSASMIÐJAN HF.
Skútuvogi, sími 687700