Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTOBER 1990
43
Hans Jordens, framkvæmdastj. 21. Ólympíuleikanna færir niðurstöður
keppninnar inn I tölvu, jafnóðum og fararsljórar og dómnefndir urðu
ásáttar með fyrirgjöfina, og fylgist grannt með dreifingu einkunnanna.
Krislján Leósson, annar frá vinstri, tekur við sérstakri viðurkenningu
fyrir góðan árangur á 21. Ólympíuleikunum í eðlisfræði.
Carlos Silfredo Barrios, fararstjóri kúbanska liðsins, með ferðáætlun
Kúbananna á skrifstofu Ólympíuleikanna í eðlisfræði.
dögum sem ætlaðir eru til aðlögunar
að tímamismun. 2 dagar eftir leikana
eru einnig ætlaðir til aðlögunar að
heimatíma þátttakenda svo samtals
4 dögum af 11 er ráðstafað vegna
tímamismunar. Júlí á Kúbu er sér-
lega mildur, 27°C og 75% raki,“
sagði Carlos brosandi og leit út í
rokið og rigninguna sem einkenndu
veðurfarið í Groningen á meðan á
21. Ólympíuleikunum í eðlisfræði
stóð.
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
að halda Ólympíuleikana í
eðlisfræði á íslandi
í reglum Ólympíuleikanna í eðlis-
fræði er kveðið á um skyldur sér-
hverrar þátttökuþjóðar til að lýsa
því yfir innan 5 ára frá fyrstu þátt-
töku að leikarnir verði - haldnir í
heimalandi hennar tiltekið ár í fram-
tíðinni eða eiga ella á hættu að verða
visað frá keppninni. íslendingar tóku
nú þátt í Ólympíuleikunum í 7. sinn
ög hefðu því átt í síðasta lagi í fyrra
að tilkynna um vilja sinn en af því
varð ekki.
Á Ólympíuleikunum í ár lögðu
íslendingar fram yfirlýsingu Svavars
Gestssonar um vilja menntamála-
ráðuneytisins til að stuðla að sh'kum
leikum á íslandi að beiðni Eðlisfræði-
félags íslands og Félags raungreina-
kennara. Ríkisstjórnin staðfesti
síðan viljayfirlýsinguna um miðjan
júlí síðastliðinn og stefna félögin að
því að 29. Ólympíuleikarnir í eðlis-
fræði verði haldnir á íslandi 1998.
Fjárhagsáætlun hefur þegar verið
gerð og mun undirbúningsnefnd
skipuleggja leikana og afla styrkta-
raðila.
Framtíð Ólympíuleikanna í eðlis-
fræði virðist tryggð með vinnu
Ólympíunefndarinnar undir forsæti
pólska fararstjórans Waldimar
Gorzkovsky. Ólympíuleikarnir hafa
öðlast alþjóðlegan sess með þátttöku
sífellt fleiri þjóða og reglulegri
áheyrn fulltrúa UNESCO og Sam-
tökum eðlisfræðifélaga í Evrópu.
Röð gestgjafa fram til ársins 2000
liggur nær óslitið fyrir: 1991 á Kúbu,
1992 í Finnlandi, 1993 í Banda-
ríkjunum, 1994 líklega í Kína, 1995
líklega í Ástralíu, 1996 í Noregi,
1997 er óráðstafað, 1998 á íslandi,
1999 er óráðstafað, 2000 í Bretlandi.
„Ólympíuleikar á íslandi verða
vítamínsprauta fyrir
eðlisfræðikennslu í landinu"
„Aldrei fyrr hafa jafnmargar þjóð-
ir verið fyrir neðan okkur og af
Evrópuþjóðum sem 'stóðu sig lakar
en við má nefna Noreg, Belgíu og
Spán. Þó er engin ástæða til að of-
metnast, Islendingar eru taisverðir
eftirbátar Vestur-Evrópuþjóða og
skiptirþar mestu að námstími í eðlis-
fræði er skemmri hér á landi en
annars staðar. Við leggjum ekki
næga rækt við vísindagreinar í
skólakerfinu og byrja ætti fyrr á
kennslu eðlisfræði í grunnskóla og
hafa strangara stærðfræði- og eðlis-
fræðinám á hveiju ári framhalds-
skólans," sagði dr. Einar Júlíusson,
aðal fararstjóri í tilefni af besta ár-
angri íslenskra keppenda á Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði síðan 1984.
Þjálfunin síðastliðið vor fyrir
keppnina stóð frá morgni til kvölds
í 4 vikur og var úrsiitaatriði í góðum
árangri íslensku keppendanna. Einar
telur að þannig þjálfun verði að fara
fram á hveiju ári en dýr myndi hún
verða ef ætti að bæta keppendum
til fulls tapið af sumarvinnunni, og
greiða kennurum laun fyrir þjálfun-
ina. „Það eru viss vonbrigði að illa
gekk í fræðilegum hluta Ólympíu-
leikanna þar sem íslendingar lentu
neðarlega, en í verklega hlutanum
stóðu drengirnir sig mjög vel og
náðu upp í miðjan keppendahópinn.
Þetta bendir til þess að verklegri
kennslu sé vel sinnt í íslenskum
framhaldsskólum miðað við erlenda
framhaldsskóla. Þar vantar þó að
auka kröfur í raungreinakennslu þar
sem of mikið mið er tekið af meðal-
nemandanum," sagði Einar um
ástæðu góðs árangurs íslendinga.
Hvaða áhrif telur Einar það hafa
að halda Ólympíuleikana í eðlisfræði
hér á landi? „Islenskir eðlisfræðingar
eru í stakk búnir til að halda leikana
en það er mikil vinna og undirbún-
ingur sem þarf að eiga sér langan
aðdraganda. Gera þarf ráð fyrir að
kaupa eða smíða tæki fyrir verkiega
hlutann fyrir 200 keppendur, því
engin þjóð tekur tæki til keppninnar
ofan úr hillu. íslenskir skólar myndu
njóta góðs af tækjaaðföngum þar
sem þeim yrði dreift um allt land
eftir keppni. Ólympíuleikarnir í eðlis-
fræði verða rnikil lyftistöng fyrir
eðlisfræðikennslu í landinu þar sem
eðlisfræðikennarar yrðu viðloðandi
vinnu við leikana og áhugi fyrir
Landskeppni í eðlisfræði myndi auk-
ast um allt land,“ sagði Einar að
lokum.
Fjölmargir hafa styrkt
þátttöku íslendinga
Á íslandi hefst undirbúningur að
Landskeppni í eðlisfræði í nóvember
á hveiju ári er framkvæmdanefnd
býður öllum framhaldsskólum lands-
ins að taka þátt í forkeppni í eðlis-
fræði. Menntamálaráðuneytið hefur
góðfúslega leyft að keppnin verði
haldin á skólaárinu og eru verkefnin
send í tíma fyrir keppnisdaginn í .
febrúar. Efstu 10 til 15 nemendum
úr forkeppninni er boðið til úrslita-
keppni í Háskóla íslands í mars og
keppa þeir eina helgi í fræðilegri og
verklegri eðlisfræði. Allan kostnað
við Landskeppnina, prentun, dreif-
ingu og verðlaun, greiðir Morgun-
blaðið, en samningu verkefnanna og
yfirferð lausna vinna kennarar við
eðiisfræðiskor Háskólans í sjálfboða-
vinnu.
5 hinum efstu í úrslitunum sem
jafnframt uppfylla aldursskilyrði
Ólympíuleikanna er boðið að fara til
keppninnar erlendis og hefst þjálfun
þeirra að loknum skóla í maí. I ár
var þjálfunin umfangsmeiri en áður
og stóð verkleg og fræðileg þjálfun
yfir frá morgni til kvölds í 4 vikur
auk þess sem síðustu helgina fyrir
þátttöku var farið í þjálfunarbúðir.
Til að bæta fyrir tekjutapið af sum-
arvinnunni styrktu Fjárfestingarfé-
lagið og Seðlabankinn keppendur til
þjálfunarinnar en kennarar við Há-
skólann sinntu þjálfuninni í sjálf-
boðavinnu.
CASIO-umboðið á íslandi gaf öll-
um keppendunum 5 reiknivélar sem
uppfylla skilyrði Ólympíuleikanna og
Glit gaf minjagripi sem íslensku liðs-
mennirnir gáfu keppendum og farar-
stjórum annarra landa á Ólympíu-
leikunum. Menntamálaráðuneytið
greiddi fargjöld til leikanna en gest-
gjafarnir í Hollandi sáu um uppihald
og ferðir innan Hollands.
„Þátttaka íslendinga í Ólympíu-
leikunum í eðlisfræði útheimtir mikla
vinnu sem að langmestu leyti er
unnin af sjálfboðaliðum og útlagður
kostnaður er einnig uintalsverður.
Þeim aðilum sem styrkt hafa keppn-
isþátttökuna færir keppnisliðið bestu
þakkir fyrir stuðninginn sem verið
hefur ómetanleg hvatning fyrir
keppendur og aðstandendur keppn-
innar,“ segir Viðar Ágústsson annar
fararstjóra íslenska liðsins á
Ólympíuleikunum í eðlisfræði og
framkvæmdastjóri Landskeppni i
eðlisfræði.
Texti og myndir:
Viðar Agústsson
Macintosh fyrir byrjendur
Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á
© 15 klst námskeiði fyrir byriendur! Fáið senda námsskrá.
Tölvu- oa verkfræöibiónustan ^
%
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu
FEDERAL
Vinningstölur laugardaginn
6. okt. 1990
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 1 5.493.316
2.4SI« 11 52.795
3. 4af 5 279 3.590
4. 3af 5 7.446 313
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
9.406.269 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
Á VÖNDUÐUM TEPPUM
FYRIR STIGAHÚS OG
SKRIFSTOFUR
TEFLOM
Gram
Teppi
FMDMKS BERTELSEN
FÁKAFENI 9 - SÍMI 686266