Morgunblaðið - 09.10.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTOBER 1990
45
LÍFSBRAUTIN
eftir Guðjón R.
Sigurðsson
Að taka sér fyrir hendur að skrifa
um lífíð er ekki svo auðvelt fyrir
okkur hina ólærðu. En öll fáum við
í lífsnesti hinn ódauðlega neista frá
Guði almáttugum föður alls lífs, sem
er tengt hvað öðru allt í gegn.
Það er ekki yfirleitt skoðað sem
lærdómur lífið sem við förum í gegn-
um, jafnvel þó það verði 90 ár. En
maðurinn sem lífvera er forðabú sem
geymir að minnsta kosti minningarn-
ar,
Það er einkennileg hugsun margra
að þótt þeir sjálfir hafi sama og eng-
an skilning á lífinu þá eru þeir tilbún-
ir til að troða heimsku sinni í sak-
lausar bamssálir, beinlínis til að nið-
urlægja bam sem ekki hefur sjálft
þroska og er því opið fyrir því
óþekkta.
Við hinir ólærðu fömm út í lífið
með misjafnt veganesti. Fái bamið
ekki ást í sitt unga hjarta þá verður
það því til hömlunar að finna ham-
ingju, því ást er grundvöllur alls lífs.
í okkar einfalda daglega iífi fínnum
við það. Það vom ekki menn sem
kenndu mér að finna kærleikann.
Hundamir vom oft erfiðir að
höndla, þar ríkti afbrýðisemi, þeim
fannst að ég ætti aðeins að vera
góður þeim, þótt þeir reyndu að
drepa hina hundana, sem ég líka
strauk og var góður við. En eftir að
ég hafði barið þá fyrir hatrið á hinum
hundunum þá sleiktu þeir hendur
Guðjón R. Sigurðsson
„Það er ekki yfirleitt
skoðað sem lærdómur
lífið sem við förum í
gegnum, jafnvel þó það
verði 90 ár. En maður-
inn sem lífvera er
forðabú sem geymir að
minnsta kosti minning-
arnar.“
mínar og var sem þeir segðu: „Við
elskum þig nú samt.“ Er þetta svona
í okkar viðskiptum við aðra menn í
daglegu lífi? Og eru menn þakklátir
fyrir það sem þeim er gott gert?
Fengu ekki kennarar styrki til að
fara í útlenda skóla og koma svo
útþandir af vísdómi sem ríkið borg-
aði fyrir. En það gleymist að við öll
erum ríkið. Við erum öll fjölskyldan
sem þurfum að haldast í hendur á
hinni mjóu braut til þroska andans,
þroska þess kraftar sem tekur okkur
upp á hærri svið og sem á eftir að
leiða okkur til heilagleikans hæða.
Gleymum ekki að við erum að
mynda framtíð lífsins á þessari litlu
plánetu sem er aðeins eins og dropi
í hafinu í samanburði við allt það sem
er úti í geimnum, sem allt eru verk
hins sama föður er sendir okkur út
á lífsbrautina þar sem við mætum
svo mörgum ólíkum mannverum og
saklausum lífverum úti í náttúrunni.
í minni fávisku ráfaði ég út á hina
breiðu götu þar sem þú getur fundið
bæði gott og illt, bæði sannleikann
og það sem er falskt. Þar mætti ég
hálærðum með gríðar stóra poka.
Poka fulla af vísdómi sem enginn fær
að njóta nema þeir sjálfir og heimta
meira kaup en aðrir því þeir séu svo
lærðir. Og þar var karl með hrossat-
að í poka til að hlúa að birkiplöntum,
til að fegra landið.
Einfeldnin og sakleysið verður
ekki dæmt í peningum.
Höfundurbýrá Fagurhólsmýri
og stundar tréskurð.
Akranes:
Umskipti í verslunarrekstri
Akranesi.
MIKLAR hræringar hafa verið í
verslunarrekstri á Akranesi að
undanfömu og verslanir ýmist
skipt um eigendur, flutt í nýtt
húsnæði eða jafnvel hætt rekstri.
Tvær rótgrónar verslanir, skó-
verslunin Staðarfell og Úra- og
skartgripaverslun Helga Júlíussonar,
hafa á undanförnum mánuðum skipt
um eigendur en þær höfðu verið í
eigu sömu aðila um áratuga skeið.
Það var Elías Guðjónsson kaupmaður
og fjölskylda hans sem ráku verslun-
ina Staðarfell en Elías lést á síðasta
ári. Skóverksmiðj an Strikið á Akur-
eyri keypti verslunina og voru samn-
ingar undirritaðír fyrir skömmu.
Hafa hinir nýju eigendur nú þegar
tekið við rekstrinum.
Úra- og skartgripaverslunin hefur
um langan tíma verið í eigu Helga
Júlíussonar úrsmiðs en hann hefur
nú dregið sig í hlé og selt Guðmundi
Hannah gullsmiði verslunina og rek-
ur hann jafnframt versluninni við-
gerðaraðstöðu fýrir úr og skartgripi.
Einnig hefur Haraldarbúð sem
Haraldur Haraldsson kaupmaður
rak, en var áður matvöruverslun
Sláturfélags Suðurlands, verið lokað,
en sú verslun hafði verið í rekstri
um langan tíma.
En það eru líka til nýjar verslanir
því fyrir skömmu var opnuð gler-
augnaverslun á Akranesi sú fyrsta
sinnar tegundar. Verslunin er við
Skólabraut og er nafn hennar Sjón-
glerið.
Þá hefur gamla kaupfélagshúsið
við Kirkjubraut, sem síðustu árin var
eign Sambandsins, verið selt og er
kaupandi þess eigandi verstunarinn-
ar PC-tölvurnar og mun hann fiytja
rekstur sinn í húsnæðið á næstunni.
Myndbandaleigan Ás sem verið hefur
til húsa í Kaupfélagshúsinu hefur
keypt gamla bæjarhúsið handan göt-
unnar og flytur þangað á næstunni.
- J.G.
s
*
3
«
NÚ ER TIL MIKILS
AÐ VINNA!
Vertu með í verölaunasamkeppni norrænu krabba-
meinsfélaganna um að hætta aö reykja!
Fáðu þér upplýsingabækling með eyðublaðl fyrir
þátttökutilkynningu, fylltu það út og settu ófrímerkt
í póst í síðasta lagi 15. október. Þann dag byrjar þú
fjögurra vikna líf án tóbaks og átt möguleika á glæsi-
legum verðlaunum.
Bæklinginn færðu í apótekum, á heilsugæslustöðv-
um, á bensínstöðvum Olís og Shell, í Kringlunni og
mörgum stórverslunum, hjá Krabbameinsfélaginu og
víðar.
Krabbameinsfélagið
Landsbanki
íslands