Morgunblaðið - 09.10.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTOBER 1990
47
Sorgartímar hjá öllu
alvöru skógræktarfólki
eftir Magnús H.
Skarphéðinsson
Ég hélt fram í Mógilsárdeilunni
og Amarflugsmálinu að við ættum
nokkuð röggsaman og heiðarlegan
ráðherra þar sem Steingrímur J.
Sigfússon væri. En í sumar fæddist
hið ótrúlega Mógilsárklúður í land-
búnaðarráðuneytinu og að Hallorms-
stað hjá nýráðnum skógræktarstjóra
þar, Jóni Loftssyni, svo fljótt skipast
veður í lofti. Það ætlar ekki af þess-
um Steingrími J. að ganga. Hvað
ætli komi næst? Fátt gæt' komið
venjulegu fólki á óvart lengur hjá
þessum seinheppna ráðamanni þjóð-
arinnar.
Alvöruskógar á íslandi myndu
gjörbreyta veðurofsanum
Það hafa verið svartir dagar hjá
öllum alvöruskógræktarannendum
undanfama mánuði. Það er kannski
ekkert að marka svona smáborgara
eins og mig og okkur félagana sem
rétt eram búnir að dútla við að planta
um 3 til 4 þúsund tijám undanfarin
sumur til að reyna að hjálpa landinu
okkar að ná sér aftur. En það er
samt ekki annað hægt en að hálf-
grenja yfir öllum þeim doða og að-
gerðarleysi sem einkennir flestalla
opinbera aðila í því að reyna að klæða
landið skógi aftur. Það er eins og
þetta sé þessu fólki ekkert kappsmál
nema síður sé, ef eitthvað er.
Með sama áframhaldi og sama
hraða þá tæki það ca. 300 til 500
ár að koma skógi á holt og mela og
önnur svæði hérlendis sem landinu
væri fyir langbestu að gert yrði sem
allra fyrst. Að ég minnist nú ekki á
hversu veðurfar myndi breytast og
stillast hér ef gróðursett væra ca. 4
til 6 milljarðar alvörattjáa til að stilla
versta veðurofsann sem verið hefur
landlægur hér á landi síðan skógar
klæddu landið hér í fyrndinni og
gert hefur landið hálf óbyggilegt
fyrir bragðið.
Eiga starfsmenn aldrei að geta
sagt hug sinn vegna
atvinnumissis?
Deilan um forræði Mógilsárstöðv-
arinnar er í sinni innstu hnotskurn
deila um hvort nokkram starfsmönn-
um hins svifaseina og sovéskættaða
ríkisfyrirtækis Skógræktar ríkisins
eigi að líðast að gagnrýna vinnu-
brögð stofnunarinnar eða greinarinn-
ar í heild án þess að hljóta vinnu-
missi fyrir. En þar byijaði einmitt
allt þetta sorglega og ljóta mál.
Flæma Jón Gunnar Ottósson for-
stöðumann í burtu með góðu eða illu
og aukinheldur alla hans samhentu
samstarfsrannsóknarmenn með, ef
eitthvað múður verður í kringum
þetta mál og þetta fólk á annað borð.
Hér er starfsreynslu, áhuga og
framtíðarsýn eins helsta vísindahóps
Magnús H. Skarphéðinsson
í skógrækt á íslandi hreinlega sturt-
að niður um skólpræsið í heilu lagi
án þess að depla auga af hálfu ráða-
manna, til þess nú eins að tryggja
engar gagnrýnisraddir í greininni í
framtíðinni: — „Viljið þið sömu með-
ferð?“ mun starfsfólk framtíðarinnar
geta lesið úr andliti þessara ekki-
skógræktarfrömuða landsins þegar
skoðanamunur mun koma upp fram-
vegis í faginu.
Hinn hái plöntukostnaður
Skógræktarinnar drepur
alia skógrækt
Auðvitað var þessi fáránlega
reglugerðarbreyting Steingríms J.
Sigfússonar, ráðherra lambakjöts og
ofbeitar landsins, um breytingar á
yfírstjórn rannsóknarstöðvarinnar að
Mógilsá í vor ekkert annað en liður
í að þagga niður gagnrýnisraddir
sem heyrst höfðu frá rannsóknar-
stöðinni um fáránlega lítil afköst
Skógræktarinnar í plöntuframleiðslu
og ótrúlegum kostnaði því samfara.
Að ekki sé nú minnst á hversu
ómarkvisst flest í fari og starfi Skóg-
ræktarinnar er og hefur langoftast
verið. Dómbær er ég þó ekki á sum
störf Hákons Bjarnasonar, nestors
íslenskrar skógræktar. En samt.
Dropinn sem fyllti mælinn, sem
gerði það nauðsynlegt að flæma Jón
Gunnar forstöðumann Mógilsár-
stöðvarinnar í burtu, var m.a. gagn-
rýni hans í Sjónvarpinu sl. vor á yfir-
stjórn Skógræktarinnar fyrir að hafa
ekki boðið út fleiri af dýrustu og
erfiðustu verkefnum Skógræktarinn-
ar, nefnilega plöntuframleiðsluna
sem allri skógrækt á íslandi stendur
fyrir þrifum. Þetta þarfa mál hefði
í leiðinni hjálpað bændum í sveitum
landsins við að flytja sig yfir í tijá-
plöntuframleiðslu við viðráðanlegar
aðstæður, og fyrir aðeins brot af því
verði sem almennt kostar að fram-
leiða hveija plöntu í forsjá Skógrækt-
ar ríkisins.
Hin dauða og afkastalitla hönd
ríkisskógræktarinnar
Mér er alveg sama hvaða góð og
falleg störf Jón Loftsson skógrækt-
arstjóri hefur sýnt af sér á Hallorms-
stað eða við önnur staðbundin verk
fyrir austan eða annars staðar. Það
hefur greinilega sýnt sig að maður-
inn hvorki ræður við umfang alvöru
skógræktar á íslandi né þolir nokkra
gagnrýni á störf sín. Og svoleiðis
starfsmann hefur alvöra skógrækt-
arfyrirtæki hvað þá yfirstjórn skóg-
ræktarmála á íslandi ekkert við að
gera. Nær hefði ráðherranum verið
að losa sig við slíkan skrifræðissinna
úr starfí skipulag'smála skógræktar
á íslandi, í stað þess að bola Jóni
Gunnari og hans starfsfólki í burtu.
Fróðlegt væri að láta fara fram
úttekt á afköstum Skógi'æktarinnar
og skógræktarfélaganna í gegnum
tíðina. Athuga afköst, kostnað,
stjórnun og árangur. Það gæti orðið
fróðleg samantekt. Það er sannfær-
ing mín að þá sæju menn hluta af
því sem Jón Gunnar hefur alltaf ver-
ið að segja; Það er bara platskóg-
rækt stunduð á íslandi í dag. Afköst-
in, framkvæmdahraðinn og vinnu-
brögðin sýna það best svart á hvítu.
Nei. Það er engin hætta á að slík
úttekt verði gerð. Þess í stað skipar
sómamaðurinn Steingrímur J. Sig-
fússon, uppblástursráðherra, Ríkis-
endurskoðun að liggja yfir öllum
mögulegum símareikningum og
frímerkjareikningum gagnrýnend-
anna sem flæmdir voru frá Mógilsá,
til þess nú eins að reyna að finna
einhveija hnökra hjá þessu fólki eft-
irá og reyna að réttlæta tilvist síns
sjálfs og halda andlitinu gagnvart
agndofa skógræktarunnendum og
heiðarlegum athugasemdarmönnum
yfir þessu hreint ótrúlega framferði
ráðuneytisins í málinu.
Tileinkum Steingrími og
kerfisbræðrum hans skóg-
lausu svæðin
Ég legg til að menn minnist þess
í framtíðinni þegar skógrækt ber á
góma eða skýtur upp í huga þeirra
að þakka réttum aðilum fyrir aðgerð-
arleysið í málinu. Þar eiga Steingrím-
ur Sigfússon og allir hans kerfis-
hugsanabræður ekki minnstan heið-
urinn.
Ég ætla a.m.k. að hafa þetta í
huga þegar ég sé alla uppblásnu
melana framvegis þegar ég ferðast
um landið.
Ég tel líka við hæfi að hér eftir
verði skóglausu svæðin á landinu
kölluð ýmist Steingrímsauðnir eða
Jónsloftssonarbörð, eða bara Svein-
bjarnarmelar (eftir Sveinbirni Dag-
finnssyni ráðuneytisstjóra landbún-
aðarráðuneytisins) svona til að feðra
þessar óþarfa auðnir og uppblástur
rétt hér eftir.
Höfundur er fyrrverandi
vagnstjóri SVR og nemi í HI.
Lægsta verð á Encyclopedia Britannica hingað til.
Nú er dollarinn hagstæður til kaupa á Britatmica 1990.
33 stór bindi - yfír 33000 blaðsíður - mikill fjöldi litmynda
1989 útgáfan kostaði kr. 95.000,-
Við bjóðum þér 1990 útgáfuna í vönduðu, brúnu bandi á aðeins
kr. 69.000,- gegn staðgreiðslu, eða á kr. 77.000,- með afborgunum.
Þetta einstaka tilboð gildir meðan núverandi birgðir endast.
BERGSTAÐASTRÆTI1, SÍMI 12030. OPIÐ 1-6 eh.
SIEMENS
Frystikistur og frystiskápar
Siemens frystitækin eru eins og aðrar
vörur frá þessu öndvegisfyrirtæki:
traust, endingargóð og falleg.
Lítið inn til okkar og skoðið úrvalið.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Ætlar þú að tiefja
GOLF
leiki tiína næsta vor eins og
á vordegi eða vilt pú auka frekar við
GOLF
leikni fiína með úví að æfa öðru hvoru í
GOLF
heiminum okkar í vetur?
KEILU S ALURINN
ÖSKJUHLÍÐ
S: 62 15 99
Ath! Frúartímar - kennslutímar
Betra verð en nokkru sinni fyrr
Dæmi: Leiki 4 menn í t.d. 2 klst.
greiðir hver um síg aðeins kr. 550,-