Morgunblaðið - 09.10.1990, Side 51
MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1999
5Í
fylgja mér og mínu fólki meðan
ævi endist.
Ég bið góðan Guð að vernda
systur mína og veita dætrum þeirra
og barnabörnum styrk.
Karl Eiríksson
I dag er til moldar borinn vinur
okkar og velgerðarmaður, Kristinn
Guðjónsson, og kvaddur hinstu
kveðju.
Okkur hjónum er.það ljúft og
skylt að flytja honum, að leiðarlok-
um, þakkir fyrir allt, sem hann var
okkur og börnum okkar. Fyrir
hjálpsemina, góðvildina og skemmt-
unina.
Margs er að minnast og margt
að þakka. Arið 1955 var unglings-
stúlka á heimleið stödd í Kaup-
mannahöfn og beið eftir Gullfossi.
Fréttist þá, að skipið væri bilað og
að viðgerð gæti tekið nokkurn tíma.
Þá voru góð ráð dýr. Ferðasjóðurinn
tæmdur og gjaldeyrir ekki á lausu
frá Islandi. Kemur þá ekki skeyti
um aukayfirfærslu, veitta af gjald-
eyrisyfirvöldum, vegna tafa skips-
ins.
Hver hafði þá algerlega óbeðinn
Iagt á sig fyrirhöfn og fj'árútlát
annar en Kristinn Guðjónsson.
Hver tróð þremur föðurlausum
telpum í bílinn sinn og Iét þær aldr-
ei finna að þær ættu ekki sama
rétt og hans eigin dætur.
Mörgum árum seinna er ein telp-
an orðin fullorðin og býr með fjöl-
skyldu sinni í Bandaríkjunum, þar
sem maðurinn stundar framhalds-
nám. Kristinn skynjar í fjarlægð
að það kreppir að hjá þessu fólki.
Hann sér námsstyrk auglýstan og
tekst með dugnaði sínum að útvega
dágóða hjálp. Allt gert orðalaust
og einskis þakklætis vænst. Þannig
var Kristinn.
Alla ævi var hann veitandinn.
Alltaf veitti hann af rausn á
glæsilegu heimili sínu og glæsilegr-
ar eiginkonu sinnar, Sigurveigar.
Öllum mönnum var hann fyndn-
ari og skemmtilegri, vinirnir margir
og alltaf glatt á hjalla.
Nú er hljóðnað í stofunum á Víði-
mel, en eftir lifir minningin um
góðar og glaðar stundir.
Hafðu þökk.
Iljördís og Olafur
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af fegsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI48. SIMI76677
Eftir langan æviferil er í dag til
grafar borinn Kristinn Guðjónsson
forstjóri Stálumbúða hf. Þessar
línur eru ritaðar til að þakka sam-
vistir þau ár, sem við höfum haft
sambýli hér á Víðimelnum.
Fyrstu kynni okkar Kristins urðu
við störf í Ljóstæknifélagi Islands.
Því félagi vann hann mörg þýðing-
armikil og dijúg störf. Þá óraði
okkur ekki fyrir því að síðar yrðum
við sambýlingar í húsinu, sem hann
ásamt félaga sínum byggði fyrir
um hálfri öld.
I langri og erfiðri sjúkdómslegu
urðum við vitni að andlegum styrk
Kristins og umhyggju hans fyrir
fjölskyldu sinni. Þessara kynna er
ljúft að minnast. Hlýlegt viðmót
þeirra hjóna, Sigurveigar og Krist-
ins, hefur mótað það notalega and-
rúmsloft sem ríkir hér í húsinu og
skapað hefur vináttutengsl sem
þakkað er fyrir.
Kæra Sigurveig, megi góðar
minningar um ljúfan dreng vera
þér, dætrum og barnabörnum ykkar
huggun í sárum söknuði.
Börn okkar og við hjónin vottum
ykkur öllum innilegustu samúð og
þökkum Kristni gott og eftirminni-
íegt sambýli.
Sigríður og Skúli Norðdahl
Fyrstu kynni mín af Kristni Guð-
jónssyni hófust þegar ég settist í
stjórn Félags íslenskra iðnrekenda
árið 1978, en þá var Kristinn heit-
inn varaformaður félagsins. Þau
kynni voru skemmtileg. Kristinn
var ráðagóður og skemmtilegur í
öllu samstarfi þannig að einstak-
lega létt var að vinna með honum.
Kristinn sat f stjórn Félags
fslenskra iðnrekenda frá 1969-
1979, þar af sem varaformaður frá
1974. Fyrir félag íslenskra iðnrek-
enda gegndi Kristinn ýmsum trún-
aðarstörfum. Sat hann m.a. í stjórn
Húsfélags iðnaðarins frá 1973—
1990, var fulltrúi iðnaðarins í
bankaráði 'Iðnaðarbankans, og’ í
sýningarnefnd vegna Iðnsýningar
’83 sem haldin var í tilefni þess að
50 ár voru frá stofnun FÍI. Fyrir
störf sín í þágu Félags íslenskra
iðnrekenda var Kristinn sæmdur
gullmerki félagsins árið 1987.
Kristinn átti langa starfsævi við
íslenskan iðnað. Tæplega tvítugur
að aldri var hann ráðinn fulltrúi og
síðar skrifstofustjóri í vélsmiðjunni
Héðni þar sem hann starfaði til
ársins 1942 er hann stofnaði fyrir-
tækið E. Ormsson hf. Arið 1948
stofnaði Kristinn fyrirtækið Stál-
umbúðir hf. og var forstjóri þess í
liðlega fjörutíu ár.
Fyrstu starfsár fyrirtækisins
voru stáltunnur aðalframleiðsluvar-
an auk framleiðslu stálofna og eld-
húsvaska úr ryðfríu stáli ásamt
flúrlömpum sem síðar urðu megin-
framleiðsla Stálumbúða, en Krist-
inn var meðal þeirra fyrstu er hófu
framleiðslu flúrlampa á Norður-
löndum.
Störf Kristins á vettvangi
íslensks iðnaðar voru metnaðarfull
og verða seint fullþökkuð.
Við fráfall hans minnumst við
iðnrekendur góðs félaga sem reynd-
ist okkur og félagi okkar traust
stoð í tæplega 60 ár.
Eftirlifandi eiginkonu Kristins
frú, Sigurveigu Eiríksdóttur, og
dætrum þein-a vottum við okkar
innilegustu samúð.
Kristins Guðjónssonar og metn-
aðar hans fyrir hönd íslensks iðnað-
ar verður sárt saknað á okkar vett-
vangi, en eftir stendur meðal okkar
björt og skemmtileg minning um
góðan dreng.
Víglundur Þorsteinsson formaður
Félags íslenskra iðnrekenda.
Kveðja frá
Ljóstæknifélagi Islands
í dag verður Kristinn Guðjónsson
jarðsettur. Kristinn varð 83 ára. Á
sinni starfsævi skilaði hann miklu
og margþættu starfi, sem þó verður
ekki rakið hér nema að einu leyti
þ.e. að því er varðar hans þátt í
að veita ljósi og birtu til annarra í
bókstaflegri merkingu.
En Kristinn var einn frumkvöðl-
anna hér á landi í framleiðslu lampa
hverskonar. Lampaframleiðsla var
alla tíð snar þáttur í framleiðslu
fyrirtækis Kristins, og hann sjálfur
mjög vakandi fyrir því hve mikla
þýðingu bætt lýsing hefði fyrir allt
umhverfi, svo sem í aukinni vellíðan
starfsfólks, minnkaðri slysahættu
og bættu mannlífi.
Það tar því eðlilegt framhald
daglegra starfa að Kristinn varð
einn af frumkvöðlum og stofnend-
um Ljóstæknifélags íslands 1954
og í fyrstu stjórn þess félags, sem
hann var alla tíð mjög virkur í.
M.a. í stjórn árin 1958 til 1973 og
hann ,var endurskoðandi reikninga
félagsins til 1988.
Kristinn Guðjónsson var einrómaí
kjörinn heiðursfélagi Ljóstæknifé-
lagsins árið 1987, sem var lítill
þakklætis- og viðurkenningarvottur
af hálfu þess til að láta í ljósi mat
á miklu framlagi þessa mikilvirka
manns til bættrar lýsingar í landinu.
Við í LFÍ þökkum Kristni mikil
og góð störf í þágu félagsins og
minnumst góðs drengs, jafnframt
því að við vottum fjölskyldunni sam-
úð.
F.h. stjórnar Ljóstæknifélags ís-
lands,
Egill Skúli Ingibergsson,
formaður.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2.1iæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt
skáld, og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er birt-
ur. Meginregla er sú, að minn-
ingargreinar birtist undir fullu
nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir,
dóttir og stjúpdóttir,
Ó. P. ANNA HALLGRÍMSDÓTTIR,
Erluhólum 5,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju í dag, þriðjudaginn 9. október,
kl. 13.30.
Hreinn Sumarliðason,
Sigurlina Hreinsdóttir, Reynir Hilmarsson,
Ágústa Hreinsdóttir, Sigurður Ómar Sigurðsson,
Jóna Margrét Hreinsdóttir, Sigurður Baldvin Sigurðsson,
Hallgrímur G. Björnsson, Margrét Þorvaldsdóttir
og barnabörn,
svo og fyrir hönd systkina og fóstursystkina.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR ÓLAFSSONAR
læknis.
Annella Stefánsdóttir,
Stefán Ágúst Magnússon, Ragnheiður Ólafsdóttir,
Ólafur Friðrik Magnússon, Guðrún Kjartansdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
RUNÓLFS GUÐMUNDSSONAR
Ölvisholti.
Ennfremur sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands
og Ljósheima fyrir frábæra umönnun.
Ögmundur Runólfsson, Heidi Runólfsson,
Kjartan Runólfsson, Margrét Kristinsdóttir,
Sveinbjörn Runólfsson, Lilja Júlíusdóttir
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúð og heiðr-
uðu minningu eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður,
INGÓLFS GUÐBRANDSSONAR,
Nýbýlavegi 90,
Kópavogi,
með nærveru ykkar, blómum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Stefanía Stefánsdóttir,
Guðbrandur Ingólfsson,
Björn Ingólfsson, Erla Friðþjófsdóttir,
Þuríður Ingólfsdóttir, Jóhannes Pétursson.
+ Þökkum af alhug samúð og vináttu við andlát og útför sonar
okkar, dóttursonar, bróður, mágs og frænda,
MATTHÍASAR SKJALDARSONAR,
Skriðustekk 7.
Þórhildur Hólm Gunnarsdóttir, Gunnar S. Hólm, Ásthildur Skjaldardóttir, Skjöldur Þorgrímsson,
Birgir Aðalsteinsson,
Guðbjörg Skjaldardóttir, Guðrún Viktoría Skjaldardóttir, Sigurður Árnason,
Una Svava Skjaldardóttir, Þorgrímur Skjaldarson, Tryggvi Lúðvík Skjaldarson, Chuck Rogers, Halla María Árnadóttir
og systkinabörn.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar eftir hádegi í dag,
þriðjudaginn 9. október, vegna jarðarfarar
KRISTINS GUÐJÓNSSONAR, fyrrverandi forstjóra.
Elding Trading Company.
Lokað
Skrifstofum okkar verður lokað eftir hádegi í dag,
þriðjudaginn 9. október, vegna jarðarfarar
FRÚ ÖNNU HALLGRÍMSDOTTUR.
Kaupmannasamtök íslands.
Lokað
Lokað í dag frá kl. 13.00-15.00 vegna jarðarfarar
ÖNNU HALLGRÍMSDÓTTUR.
Kjörbúðin Laugarás,
Norðurbrún 2.
Lokað
Skrifstofur Bræðranna Ormsson hf., verða lokað-
ar í dag, þriðjudaginn 9. októbér, milli kl. 13.00
og 15.00 vegna jarðarfarar KRISTINS GUÐJÓNS-
SONAR.
Bræðurnir Ormson hf.