Morgunblaðið - 09.10.1990, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 1990
fclk í
fréttum
VANDRÆÐI
Chamberlain illa upplýstur
Richard Chamberlain, leikarinn
umtalaði og umdeildi, var eigi
alls fyrir löngu sérstakur boðsgest-
ur á kvikmyndahátíð í Deauville í
Frakklandi. í upphafi hátíðarinnar
var farið með gestinn á sérstakan
blaðamannafund þar sem frétta-
haukamir spurðu hann spjörunum
úr.
Er Chamberlain hafði leyst úr
spurningum fréttamanna um hríð
var hann spurður með hvaða
franska Jeikstjóra hann gæti helst
hugsað sér að vinna. Eftir stutta
umhugsun svaraði hann: „Truffaut,
Frangois Truffaut." Datt þá allt í
dúnalogn í salnum og mörg löng
og neyðarleg augnablik liðu án þess
að nokkur legði orð í belg. Loks
ræskti einn blaðamannanna sig og
tjáði Chamberlain að það væru sex
ár síðan Truffaut iést þannig að
það ynni enginn lengur með honum
í þessum heimi. Það kom vitaskuld
töluvert á Chamberlain, en hann
hristi það af sér og sagði fyrst lág-
K
Dags. 9.10 1990
*
NR. 173
VAKORT
Númer eftirlýstra korta
4507 4200 0000 8391
4507 4300 0003 4784
4507 4500 0008 4274
4507 4500 0014 4003
4543 3700 0000 2678
4543 3700 0001 5415
4929 541 675 316
Kort frá Kuwait sem byrja á nr.:
4506 13** 4966 66** 4509 02**
4507 13** 4921 04** 4921 90**
4547 26** 4552 41** 4560 31**
4508 70** 4507 77** 4966 82**
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ISLAND
Metaðsókn á vegum þjóðkirlgiimiar
Morgunblaðið/pþ
Æskulýðsfélagið „ÆSKÓ NESKÓ“ úr Neskirkju í Reykjavík fyrir utan eitt af orlofshúsunum í Munaðar-
nesi.
ÆSKULÝÐSFÉLÖG
Landsmót æskulýðsfélaga þjóð-
kirkjunnar fór fram í Munað-
arnesi fyrir skömmu. Sóttu það alls
tæplega 200 þátttakendur með leið-
togum, og er það mesta þátttaka í
landsmóti af þessu tagi. Voru þátt-
takendur frá Akureyri, Hrísey, úr
Möðruvallakalli og af Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Yfirskrift
mótsíns var „í læri hjá LúkasT1, og
var fræðsluefnið tekið úr Lúkas-
arguspjalli.
Aðsóknin á mótið var svo mikil
að það var illgerlegt að finna stað,
sem rúmaði alla með sóma. Aðstað-
an í Munaðarnesi er ágæt fyrir hóp
af þessu tagi, ef nógu margir leið-
togar eru með, þar sem 8 þátttak-
endur og einn leiðtogi voru í hveiju
húsi. Sameiginlegar samverur fóru
fram í matsalnum, og var þá þröng
á þingi, þegar um 200 unglingar á
aldrinum 14-17 ára komu saman í
einum matsal.
Skipulag var allt með ágætum,
og því tókst mótið svo vel, sem
raun bar vitni. Mótinu lauk með
messu í Borgarneskirkju, og fóru
menn til síns heima þaðan.
- pþ
Sinead O’Connor ræðir við
móður sína gegn um miðil
Richard Cliambérlain
um rómi: „Afsakið, ég vissi það
ekki.“ Og síðan brosti hann breitt
og sló öllu upp í grín. „Nú, jæja,
ég tel nú að hver og einn eigi rétt
á einni vænni „bommertu" á blaða-
mannafundi án þess að himinn og
jörð farist.“ Féllu orð hans í góðan
jarðveg og leikarinn var ekki skor-
inn við trog í frönskum blöðum
daginn eftir ...
Sinead O’Connor, hin geysivin-
sæla írska poppsöngkona,
fékk virtan miðil fyrir skömmu til
þess að reyna að hafa upp á fram-
liðinni móð ur sinni. Hún lést í
bílslysi fyrir fimm árum. Sinead
og móðir hennar voru aldrei neinir
sérstakir mátar og íjölskyldan átti
erfitt uppdráttar alla æsku Sinead.
Eftir andlát móður hennar og þeg-
ar Sinead reyndi sjálf hversu erfitt
það getur verið að vera einstæð
móðir fylltist hún löngun til þess
að komast í samband við móður
sína og tjá henni að hún elskaði
hana þrátt fyrir rysjótt samskipti
þeirra.
Sinead telur jafnframt að móðir
sín hafi fundið fyrir hræringunum
í sér og reynt að ná s.ambandi.
Hurð sem móðirin gekk oftar um
en aðrir á heimilinu átti það til að
skellast þótt enginn væri trekkur-
inn og postulínsplattar á veggjum,
sem móðirin hafði átt, tóku upp á
því að detta á gólfið af óskiljanleg-
um ástæðum. Á miðilsfundinum
var nafn móðurinn ritað á blað
með óskiljanlegum hætti, en Sine-
ad sagði önnur tjáskipti hafa verið
erfið og illskiljanleg. Hún telur þó
að hún hafi komið sínum skilaboð-
um áleiðis og sé því rórri. Hún
hafi engu að síður í hyggju að
efna aftur til miðilsfundar og
freista þess að ná betra sambandi.
RÆKTARSEMI
50 þúsund trjám plantað
Niðjar Katrínar Brynjólfsdóttur
ljósmóður og Sæmundar Guð
brandssonar hreppstjóra komu
saman í Lækjarbotnum í Landsveit
í sumar. Mótið var haldið í suður-
hlíðum Skarðsfjalls og gróðursettar
voru tæplega fimm þúsund tijá-
plöntur.
Með þessu vildi Lækjarbotnaætt-
in minnast þess átaks Sæmundar
og Landmanna um miðja síðustu
öld að veita Stóruvallalæknum
þvert á uppfok sveitarinnar niður í
yindásós við Þjórsá. Að sögn Eddu
Ágústsdóttur er það talið eitt fyrsta
átak sveitarfélags gegn gróðureyð-
ingu á landinu.
Plönturnar voru gróðursettar í
fimmtíu hektara afgirt svæði. Lækj-
arbotnaættin mun halda áfram með
Fólk af Lækjarbotnaætt við gróðursetningu.
uppgræðsluátakið enda er talið að
helmingur Landsveitarinnar hafi
orðíð sand og uppfoki að bráð á
síðustu öid, að sögn Eddu.
DULSPEKI
Sinead á miðilsfundinum.
Sinead og sonurinn Jake.
„Þegiðu Bea!“
Hluti bresku konungsljölskyl-
dunnar var viðstaddur skrúð-
göngu eina mikla í Lundúnum fyrir
skömmu. Gat þar að líta Díönu
prinsessu ’og prinsana hennar tvo
að ógleymdri hinni tveggja ára
gömlu Beatrice sem er dóttir her-
togahjónanna af Jórvík og var hún
í pössun hjá Díönu við þetta tæki-
færi. Þegar hvað mesta fjörið var
í skrúðgöngunni hóf Bea litla hávær
frammíköll og gall svo hressilega í
litlu skottunni, að Harry prins þótti
nóg um. Greip hann þá til þess
ráðs sem hann telur duga til að
þagga niður í hávaðasömu kven-
fólki, það er að grípa um vit þess
og halda sem fastast. Á myndinni
má þó glöggt sjá, að Díana er í
þann mund að skakka leikinn!