Morgunblaðið - 09.10.1990, Síða 60
KAVÍAR
HRÖKKBRAUÐ
Amarflug fer fram
á greiðslustöðvun
Hlutafé í ísflugi aukið í allt að 300 milljónir
STJÓRN Arnarflugs ákvað á sunnudag að fara fram á tveggja mánaða
greiðslustöðvun. Mun skiptaréttur Reykjavíkur taka afstöðu til þessar-
ar beiðni félagsins í dag. Kristinn Sigtryggsson, framkvæmdasljóri
Arnarflugs, segir að látið verði reyna á hvort þessi tími nægi til að
koma málum Arnarflugs á hreint. Hann vildi ekki tjá sig um hvaða
ráðstafana yrði gripið til á meðan á greiðslustöðvuninni stæði. „Það
verður bara að koma í ljós,“ sagði Kristinn. Hluthafafundur ísflugs,
sem haldinn var í gær, ákvað að aflétta öllum hömlum á viðskiptum
með hlutabréf í félaginu og jafnframt að heimila stjórn þess að bjóða
út nýtt hlutafé þannig að heildarhlutafé geti numið allt að 300 m.kr.
Morgunblaðið/Sverrir
Vytautas Landsbergis, forseti Litháens, ásamt Steingrími Hermanns-
syni forsætisráðherra við komu á Hótel Sögu í Reykjavík í gær.
Landsbergis á Islandi:
. *
Segir Island hafa for-
ystu í sjáJfstæðismálinu
„Þessi ákvörðun stjórnar Arnar-
flugs að óska eftir greiðslustöðvun
'•—Skír í aðalatriðum tengd þeirri leið sem
stefnt er að núna að nýir aðilar safni
hlutafé í ísflug til að taka við rekstr-
inum,“ sagði Kristinn Sigtryggsson
við Morgunblaðið. „Það á að reyna
að gefa Amarflugi lengri tíma til að
endurskipuleggja fjárhag sinn. Ef
það væri gert í of miklum flýti þá
er hætta á að árangurinn yrði sam-
kvæmt því. Því þótti vænlegra að
fara í greiðslustöðvun til að vinna
að öllum þeim aðgerðum sem eru í
gangi til að bæta stöðu félagsins."
Hann sagði að síðar kæmi hugsan-
' '*™Iega til greina að athuga möguleik-
ann á að sameina bæði félögin. Um
það atriði hefði þó .ekkert verið
ákveðið enn sem komið er.
Á hluthafafundi ísflugs var ákveð-
ið að breyta samþykktum félagsins
með þeim hætti að afnema allar
hömlur á sölu og meðferð hlutafjár,
með það að markmiði, að félagið
geti í framtíðinni uppfyllt skilyrði í
skattalögum um skattfrádrátt vegna
kaupa á hlutafé.
Einnig var samþykkt heimild til
stjórnar að bjóða út nýtt hlutafé
þannig að heildarhlutafé geti numið
allt að 300 m.kr. og var stjóm félags-
Hlutafjárútboð
Eimskips:
Utboðsgögn
eru send út í
hundraðatali
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ís-
landsbanka (VIB) sendi í gær frá
sér útboðsgögn um hlutafjárút-
boð Eimskips til um 400 manns
sem höfðu óskað eftir upplýsing-
um um útboðið. Auk þess nálgað-
■-r-ást fjöldi manns útboðsgögnin hjá
VÍB og í útibúum íslandsbanka
víða um land.
Að sögn Svanbjörns Thoroddsen
hjá VÍB er mikill áhugi fyrir hluta-
fjárútboðinu sem hófst í gær og
voru þá allar símalínur rauðgló-
andi. Síðdegis í gær höfðu þegar
borist 50 áskriftarblöð með óskum
um kaup á hlutafé.
Hlutafjárútboð Eimskips fer
fram með þeim hætti að kaupendur
skrá sig fyrir hlutafé. A.m.k. helm-
ingur bréfanna verður seldur í fjár-
hæðum að nafnverði 5-25 þúsund
’krónur á genginu 5,6. Þeir sem
óska eftir hlutabréfum umfrám 25
þúsund og allt að einni milljón geta
gert tilboð í bréfin á gengi ekki
lægra en 5,6. Áskriftarfrestur renn-
ur út 19. október.
VÍB hefur umsjón með þessu al-
menna útboði hlutabréfa, en út-
boðsgögn liggja einnig frammi hjá
útibúum íslandsbanka og Fjárfest-
ingarfélagi Islands.
ins falið að ákveða í hvaða mæli hún
nýtti sér þessa heimild. Hlutafé ís-
flugs í dag er ellefu milljónir króna.
Segir Víglundur Þorsteinsson að
áætlað sé að þurfi 170-180 m.kr. til
að uppfylla þær kröfur sem settar
eru um eigið fé til að fá flugleyfi og
sé stefnt að því að selja hlutafé fyr-
ir um 180 m.kr. á þessu stigi.
Víglundur Þorsteinsson sagði að-
spurður um hvaða áhrif greiðslu-
stöðvunarbeiðni Arnarflugs hefði á
Kjúklingakvótinn er ákveðinn af
framleiðsluráði landbúnaðarins en
framleiðslumagn hvers árs miðast
við heildarneyslu í landinu. Allt árið
í fyrra mátti hver framleiðandi
framleiða 50% af sínum kvóta og
fékk endurgreiðslu á fóðurbætis-
gjaldi, 44 krónur á kíló, sem því
nam. Nokkrir frámleiðendur fóru
fram úr kvótanum á síðasta ári og
fengu endurgreiðslu af umfram-
ísflug að þetta væri sjálfstætt mál
stjórnar Árnarflugs. „Isflug mun
síðan eiga viðræður við Arnarflug
og stjórn þess og forstöðumenn um
þætti sem koma til álita eins og leigu-
mál á aðstöðu og ýmsu þess háttar,
bæði Isflugi til hagsbóta og síðan til
að verðmæti geti skapast úr eigum
Arnarflugs sem hugsanlega gætu
allar tapast ef ekki tekst til með fjár-
hagslega endurskipulagningu,“ sagði
Víglundur. „Það er ljóst að það er
mjög knappur og skamrnur tími til
að vinna öll málin því að ísflug þarf
að leggja fram öll gögn sem fylgja
vérða umsókn um flugleyfi fyrir há-
degi mánudaginn 15. október nk.“
Ný stjórn Isflugs var kosin á hlut-
hafafundinum. I henni eiga sæti
Víglundur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri, Þuríður Sigurðardótt-
ir, flugfreyja, Jón Magnússon, lög-
maður, Kristmundur Magnússon,
flugstjóri, og Pétur Andrésson, yfir-
maður fraktdeildar Arnarflugs.
framleiðslunni eftir að stjórn kjúkl-
ingabænda samþykkti að fara fram
á það við framleiðsluráð landbúnað-
arins. Þeir aðilar sem framleiða
mest umfram kvóta sitja í stjórn
kjúklingabænda. Endurgreiðsla
fóðurbætisgjalds er nú 75% kvótans
hjá framieiðendum en þessir sömu
aðilar sitja í kvótanefnd kjúklinga-
bænda sem hefur fengið samþykkta
hækkun á viðmiðun á endurgreiðslu
FORSETI Litháens, Vytautas
Landsbergis, kom í þriggja daga
heimsókn til Islands um þrjúleytið
í gær í boði Steingríms Hermanns-
sonar forsætisráðherra. Hann
mun dveljast hér fram á fimmtu-
dag. Landsbergis segir að heim-
sóknin sé mikilvæg því að í sjálf-
fóðurbætisgjalds úr 50% í 75%. Við
þetta styrkist offramleiðslan að
mati þeirra sem vilja fara eftir kvót-
anum.
Sala á kjúklingum hefur aukist
að undanförnu með lækkuðu verði
en framleiðendur telja verðið of lágt
og ekki fyrir kostnaði. „Það er eng-
inn vandi að selja kjúklinga fyrir
skít á priki ef maður þarf hvorki
að borga fóður, unga eða það sem
þarf til rekstrarins. Þetta verð er
algjört bijálæði," sagði Rafn Har-
aldsson kjúklingabóndi á Bræðra-
býli í Ölfusi. Hann benti á að upp-
stæðisbaráttu Litháens hafi ís-
lendingar nánast verið í forystu-
hlutverki á alþjóðavettvangi.
í gærkvöldi snæddi Landsbergis
kvöldverð á heimili forsætisráðherra
en í dag fundar hann með forsætiráð-
herra og utanríkisráðherra, Jóni
Baldvin Hannibalssyni. Forsetinn
mun snæða hádegisverð með forseta
íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, og
fara í skoðunarferð um Þingvelli,
klukkan 17.30 verður blaðamanna-
fundur. Á miðvikudag ræðir Lands-
bergis við fulltrúa Kvennalistans og
Þorstein Pálsson, formann Sjálfstæð-
isflokksins, en Þorsteinn ávarpaði
sem kunnugt er setningarfund lit-
háíska þingsins fyrir skömmu. For-
setinn verður viðstaddur setningar-
fund Alþingis sama dag og snæðir
kvöldverð í boði utanríkisráðherra.
Sjá ennfremur viðtal við Lands-
bergis á bls. 29.
Kærði
nauðgnn
TVÍTUG stúlka kærði tvo menn
fyrir nauðgun aðfaranótt laugar-
dagsins. Stúlkan kvaðst hafa ver-
ið á gangi á leið heim til sín í
Breiðholti þegar hún þáði bílfar
með tveimur mönnum sem hún
kannaðist við.
Mennirnir óku með stúlkuna á
afvikinn stað, komu þar báðir fram
vilja sínum við hana og skildu hana
síðan eftir.
Rannsóknarlögreglan vinnur að
málinu.
gefið heildsöluverð hjá framleiðslu-
ráði væri 469 krónur og skilaverð
til bænda af því ætti að vera 285
krónur. Ungakostnaður væri 70-75
krónur og 160 krónur kostaði í fóðri
að framleiða eitt kíló af kjúklinga-
kjöti.
„Þetta verð nægir engan veginn
fyrir kostnaði og getur ekki haldist
til lertgdar. Okkur þykir þetta súrt
sem viljum framleiða eftir kvótan-
um,“ sagði Logi Jónsson fram-
kvæmdastjóri ísfugls.
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Rúnar Antxinsson
5 bíla árekstur á Akureyri
Fimm bílar skemmdust í árekstri á Hörgárbraut rétt norðan við Glerárbrú á Akureyri um fimm leytið í
gær. Engin slys urðu á mönnum. Áreksturinn varð með þeim hætti að ökumaður fólksbifreiðar stöðvaði
bíl sinn til þess að hleypa gangandi vegfaranda yfir götuna á gangbraut. Ökumaður næstu bifreiðar náði
ekki að stöðva bíl sinn og rann aftan á bifreiðina en á eftir komu þijár fólksbifreiðar sem runnu hver á aðra.
Míkíð verðfall hefur orðið á
kjúklingum á síðustu viknm
• •
„Þetta verð er algjört bijálæði,“ segir kjúklingabóndi í Olfusi
Selfossi.
VERÐ á kjúklingum hefur fallið á síðustu vikum úr 570-630 krónum
kílóið í tæpar 400 krónur. Ástæða þessa er offramleiðsla þrátt fyrir
að kvóti sé á framleiðslunni hjá bændum. Kjúklingar eru nú seldir
undir kostnaðarverði við framleiðsluna.