Morgunblaðið - 25.10.1990, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 25.10.1990, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1990 SUND Þrefaldur sigur hjá Ragnheiði í Edmonton Ragnheiður Runólfsdóttir stóð sig vel á sundmóti í Edmonton í Kanada um helg- ina. Hún sigraði í þremur greinum, varð í þriðja sæti í einni og í fimmta sæti í annarri. Ragnheiður sigraði í 100 m bringusundi á 1.15,40, í 200 m bringusundi á 2.40,20 og í 200 m ijórsundi á 2.30,62. Hún synti 400 m fjórsund 'a5.16,48 og varð í þriðja sæti og fékk tímann 34,9 í 50 m bringusundi. Ragnheiður. KNATTSPYRNA / FRAKKLAND Amór líklega með Bordeaux gegn Nancy Arnór Guðjohnsen, sem skrif- aði undir fjögurra ára samn- ing við franska liðið Bordeaux sl. mánudagskvöld, spilar líklega með liðinu gegn Nancy í frönsku 1. deildinni í Bordeaux á laug- ardaginn. Frá Bernharöi Valssyni í Frakkiandi Gérard Gili, þjálfari Bordeaux, sagði við franska fréttamenn í vikunni að Arnór yrði líklega í byrjunarliði Bordeaux gegn Nan- cy. Það eykur enn á möguleika Arnórs að landsliðsmaðurinn í liði Bordeaux, Jean-Philippe Durand, meiddist í Evrópuleiknum gegn Magdeburg í fyrra kvöld og verð- ur frá í minnst tvær vikur. Dur- and, sem var í franska landsliðs- hópnum sem kom til íslands í sumar, er tengiliður og ætti Arnór því að geta tekið stöðu hans á miðjunni. HANDKNATTLEIKUR Varnar barátta Hvor verður sterkari Vals- eða Víkingsvörnin? Stórleikur í Laugardalshöll í kvöld VÍKINGSLIÐIÐ hefur tekið miklum stakkaskiptum frá því að það var ífallbaráttu ífyrra. Víkingar hafa ekki tapað leik í 1. deildarkeppninni í vetur og hafa fengið fjórtán stig, en það er einu stigi meira en þeir fengu allt sl. keppnistímabil. „Það er nú mun léttara yfir mönnum en þegar við vorum í öldudalnum þá,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson, þjálf- ari Víkinga, sem verða í eldlín- unni í Laugardalshöllinni í kvöld, en þá mæta þeir Vals- mönnum sem hafa heldur ekki tapað leik. Breytingarnar hafa verið ótrú- legar hjá Víkingum. „Það mun- ar mest um að við höfum breytt vamarleik okkar - erum byijaðir að leika fimm plús einn vörn, eða svipaðan varnarleik og Sovétmenn leika. Lykilmaður okkar í vörninni er Sovétmaðurinn Alexej Trúfan og þá fengum við hinn eitilharða varn- armann Hilmar Sighvatsson aftur til okkar frá Vestmannaeyjum,“ sagði Guðmundur, sem tók við lið- inu á miðju sl. keppnistímabili af Slavko Bambir. „Það var erfitt að taka við liðinu eins og þá var. Leik- menn vom í lélegri líkamlegri æf- ingu og engin leikkerfi voru notuð. Það tók langan tíma að ná okkur upp úr miklum öldudal. Aftur á móti höfum við getað undirbúið okkur vel fyrir þetta keppnistíma- bil og þá sérstaklega varnarleikað- ferðina sem er ný hér á landi.“ „Þurfum ýmislegt að lagfæra11 „Auðvitað eru menn ánægðir þessa dagana, en við munum ekk- ert slaka á þó að vel hafi gengið. Við vitum að ýmislegt þarf að bæta og lagfæra í leik okkar. Við eigum eftir að verða sterkari,“ sagði Guð- mundur. Þrír nýir leikmenn eru í herbúð- um Víkinga frá sl. keppnistímabili. Trúfan, Hilmar og Björgvin Rún- arsson, sem kom frá Eyjum eins og Hilmar. „Við erum með sterkan hóp og það er alltaf mjög mikil- vægt að hafa tvo góða leikmenn í hverri stöðu. Þegar Bjarki Sigurðs- son meiddist tók Rúnar stöðu hans og hann hefur staðið sig mjög vel,“ sagði Guðmundur. „Hörkuleikur“ Hvað segir Guðmundur um mót- heijana - Valsmenn: „Það sem Valsmenn hafa fram yfir okkur er að þeir eru með sama mannskap og í fyrra. Þeir hafa reynslumikla leik- menn, sem hafa verið lengur saman og eiga því auðveldara með að vinna úr hlutunum. Varnarleikur Vals er sterkur og hraðupphlaup stór- hættuleg. Við verðum því að vanda okkur í sóknarleiknum. Þetta verð- ur hörkuleikur tveggja liða sem leika gjörólíkan varnarleik. Vals- menn sex núll, en við fimm plús einn. Spurningin er því hvor varnar- leikaðferðin reynist betur í því að loka leiðinni að markinu," sagði Guðmundur. Stórleikurinn hefst í Laugardals- höllinni kl. 20. Þrír þjálfarar aðstoða landsliðsnefnd SSÍ Búið að velia A-landslið og unglingalandslið SUNDSAMBAND íslands hefur fengið þrjá þjálfara til að að- stoða landsliðsnefnd SSÍ til að undirbúa sundlandslið íslands. Þeir eru Albert Jakobsson frá KR, Richard Kursch frá Ægi og Martin Rademacher, SFS. Iupphafi var áætlað að fá einn þjálfara til að keyra þetta tíma- bil, en vegna lélegrar fjárhagsstöðu vildi stórn SSÍ reyna að fresta því í lengstu lög að ráða landsliðsþjálf- ara, en þess í stað finna tvo tií þijá þjálfara sem væru tilbúnir að að- stoða landsliðsnefnd við undirbún- ing landsliðsins sem best. Nú hefur tekist að fá þrjá þjálfara, frá KR, Ægi og SFS til samstarfs. Fyrstu æfingabúðirnar, sem þessir þrír of- angreindu þjálfarar stjórnuuðu, fór fram um síðustu helgi. Eftirtaldir sundmenn hafa verið valdir í A- og B-hóp auk A-lands- liðs: A-hópur: Magnús Már Ólafsson, SFS, Ragn- heiður Runólfsdóttir, ÍA, Ragnar Guðmundsson, Ægi, Eðvarð Þór Eðvarðsson, SFS og Arnþór Ragn- arsson, SH. B-hópur: Bryndís Ólafsdóttir, Þór, Helga Sig- urðardóttir, Vestra, Logi Kristjáns- son, Ármanni, Ævar Örn Jónsson, SFS, Arnar Freyr Ólafsson, Þór og Gunnar Ársælsson, IA. A-landslið, auk ofangreindra í A- og B-hópi, eru: Arnoddur Erlendsson, ÍBV, Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir, Ægi, Auð- ur Ásgeirsdóttir, ÍBV, Birna Björns- dóttir, SH, Davíð Jónsson, Ægi, Elín Sigurðardóttir, SH, Elsa Guð- mundsdóttir, Óðni, Eygló Trausta- dóttir, Ármanni, Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir, UMFB/ÍA, Hörð- ur Guðmundsson, Ægi, Ingibjörg Arnardóttir, Ægi, Kristgerður Garðarsdóttir, Selfossi, Óskar Guð- brandsson, ÍA og Ævar Örn Jóns- son. Unglingalandslið hefur einnig verið valið. Eftirtaldir skipa ungl- ingalandslið SSÍ: Dagný Kristjánsdóttir, Ármanni, Erla Sigurðardóttir, SH, Erna Jóns- dóttir, UMFB, Eygló A. Tómasdótt- ir, SFS, Garðar Örn Þorvarðarson, ÍA, Geir Birgisson, UMFA, Gísli Pálsson, Óðni, Halldór Sigurðarson, Vestra, Hlynur Tryggvi Magnús- son, Vestra, Hlynur Túliníusson, Óðni, Hrafnhildur Hákonardóttir, UMFA, Hörður Guðmundsson, Ægi, Ingibjörg ísaksen, Ægi, Kristján Sigurðsson, UMFA, Magn- ús Konráðsson, SFS og Þorgerður Benediktsdóttir, Óðni. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Víkings. Mim FOLK ■ BARCELONAMENN voru ekki ánægðir með leik sinn gegn Fram. Þeir vildu kenna slæmum velli um og að knötturinn hafi verið illa pumpaður. Þetta kom fram í blöðum á Spáni í gær. ■ SAMBANDSÞING íþróttfé- lags fatlaðra var haldið á Horna- firði fyrir skömmu. Alls sátu 44 fulltrúar þingið. Ný stjóm ÍF var kjörin áJnnginu og skipa hana eftir- taldir: Ólafur Jensson, formaður, Ólafur Þ. Jónsson, Kamilla Th. Hallgrímsson, Svava Árnadóttir og Sigríður Sæland. í vara stjórn voru kosnir: Sveinn Áki Lúðvíks- son, Sigurður Björnsson og Þórð- ur A. Hjaltesteð. ■ MARGRÉT Bjarnadóttir var endurkjörinn formaður Fimleika- sambands íslands á ársþingi sam- bandsins í Aratungu fyrir skömmu. Aðrir í stjórn voru kosnir: Elsa Jónsdóttir, Heimir Gunnarsson, Birna Björnsdóttir, Hanna Dóra Márkúsdóttir, Gyða Kristmanns- dóttir og Erla Lúðvíksdóttir. ■ JÓHANN Torfason, sem þjálf- aði BÍ frá ísafirði í 3. deild knatt- spyrnunnar síðasta keppnistímabil, verður ekki með liðið næsta sumar. Ekki hefur enn verið gegnið frá ráðningu þjálfara hjá BI. H EYJÓLFUR Jónsson, ungur kylfingur úr Garðabæ, sigraði í fyrstu firmakeppni golfklúbbs Garðabæjar sem fram fór 22. sept- ember. Leiknar voru níu holur og keppt Eyjólfur fyrir Endurskoð- unnarmiðstsöðina hf. N. Manscher. Arangur er vinna Vegna greinar Conrad’s Cowley í Morgunblaðinu þann 18. okt. síðastliðinn langar mig að eftirfar- andi komi fram. Ut frá fyrirsögn viðkomandi greinar má draga þá ályktun, að ég hafi sagt að íslenskt sundlíf væri í afturför. Staðreyndin er í raun allt önnur, þó alltaf sé erfitt að segja til um hvort að við íslendingar munum í náinni framtíð eignast sundmenn á alþjóðlegum mælikvarða. Nú í dag eigum við mjög frambærilega unga sundmenn sem ég tel að með réttu hugarfari og mikilli vinnu gætu náð langt. Menn verða að gera sér grein fyrir að sundmaður verður að eyða 5-6 klukkustundum á dag í æfingar til að verulegur árangur náist. Þá er allur stuðningur bæði frá íþróttafor- ystunni og einnig skólum, bæjarfé- lögum og fyrirtækjum mjög mikil- vægur. Ef þessir þættir eru til stað- ar getur allt gerst. I greininni kemur einnig fram að fyrrverandi þjálfari minn hafi breytt tækni minni í baksundinu rétt fyrir Ólympíuleikana 1988. Það rétta í málinu er að ég og Friðrik, þjálfari minn, ákváðum í sameiningu að breyta tækninni í febrúar 1988,-en sáum síðan í maí 1988 að þessi breyting átti ekki við mig, tækniað- ferðinni var því ekki breytt rétt fyr- ir leikana eins og fram kemur í grein Conrad’s. Með sundkveðju. Eðvarð Þór Eðvarðsson. SUND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.