Morgunblaðið - 27.10.1990, Síða 11

Morgunblaðið - 27.10.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 11 Viðbrögð Alumax- manna eru skiljanleg - segir Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra JON SIGURÐSSON iðnaðarráðherra segir skiljanleg viðbrögð Roberts G. Miilers aðstoðarforstjóra Alumax við þeim umræðum sem orðið hafa um orkusamninginn á íslandi, og skipunar sérstakr- ar samninganefndar stjórnar Landsvirkjunar. „Þeir Alumax-menn óttist að þetta kunni að tefja málið og valda þar miklum vanda, vanda sem ég tel raunar að sé fyrst og fremst okkar vandi. En ég tók eftir því að Miller sagði í viðtali við Morg- unblaðið, að hann vonaði að þetta væri skref í rétta átt, og hann vonaði að þetta yrði ekki til að tefja málið. Eg deili þessum vonum með honum og tel mjög mikilvegt að þarna gerist ekkert sem veiki þann trúnað sem skapaat hefur á milli samningsaðilanna þann tíma sem samningarnir hafa staðið,“ sagði Jón.. Hann sagði að fulltrúar Lands- virkjunar hefðu unnið að samning- unum og stjórn Landsvirkjunar hefði haft fullan aðgang að öllu sem þar gerðist, og nú riði á miklu að stöðugleiki í samskiptum milli opinberra fulltrúa íslands og er- lendra aðila gæti staðist. „Ég leyfi mér að vona að þessi innri nefnd Landsvirkjunar muni starfa að málinu eins og lýst hefur verið yfir af hennar hálfu, að kynna sér samninginn og kanna hvernig haga megi best þeim tveimur meginatriðum sem ólokið er, annars vegar sanngirnisákvæði og endurskoðunarrétti og hins vegar um ábyrgðir sem fyrirtækin gefa fyrir því að staðið verði við samninginn af þeirra hálfu. Það er hvorttveggja komið vel á veg, en það þarf að ljúka því og ég vona að það geti tekist á næstu vikum.“ - Ertu með þessu að gefa í skyn að þú hafír efasemdir um tilgang þessarar nefndar þar sem samningarnir séu nánast tilbúnir? „Nei, ég hef engar efasemdir um hennar starf að öðru leyti en því að ég sé ekki ástæðu til þess að starfsemi hennar eigi að tefja þetta mál mikið,“ sagði Jón Sig- urðsson. Þegar Jón var spurður, hvort hann væri ekki með þessu að segja að ekki væri hægt að hnika miklu til frá þeim samningsgrundvelli sem þegar liggur fyrir, svaraði hann, að í efnisatriðum samnings- ins yrði ekki miklu breytt, einfald- lega vegna þess að það er búið að ná áfangasamkomulagi um stærstu efnahagsþætti málsins. „En það á eftir að ljúka mjög mikilvægum atriðum sem varða öryggið í orkusamningnum. Þetta þarf að gera mjög vandlega úr garði og það verður líka gert. En Landsvirkjunarstjórn á, þarf og skal sýna fýllstu varkárni og að- gát í þessum samningum en hún verður einnig að neyta á meðan á nefinu stendur." E g vona að ummæli Millers séu mistök - segir Birgir ísleifur Gunnarsson „ÉG VONA að ummæli Millers séu mistök af hans hálfu, enda ætlar nefnd Landsvirkjunar ekki að breyta samningsgrundvellin- um, heldur vinna úr þeim flóknu drögum sem liggja fyrir,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, sem sæti á í nefnd þriggja sljórnar- manna Landsvirkjunar. Nefndinni er ætlað að yfirtaka samnings- gerð um orkusölu til nýs álvers. Haft var eftir Robert G. Miller, aðstoðarframkvæmdastjóa Alum- ax, að öll tormerki væru á því að gera miklar breytingar á þeim samningsgrundvelli um orkuverð, sém fyrir liggur og málið þyldi ekki miklar tafír. „Eg er undrandi á þessum ummælum,“ sagð Birgir ísleifur. „Samningsdrögin eru mjög flókin og ítarleg og enn á eftir að ná samkomulagi um tjöl- mörg atriði. Því er ekki hægt að segja að eitthvert eitt atriði samn- inganna sé frágengið.“ Birgir sagði að nefndin ætti eftir að leggja mat á samnings- grundvöllinn. „Aðilar að Atlantsál- hópnum hafa lýst því yfir að þeir séu háðir samþykktum stjórna sinna fyrirtækja og við verðum auðvitað að hugsa málið ítarlega af okkar hálfu líka. Ég vonast til að þetta hafi verið mistök af hans hálfu og trúi því, þar til annað reynist réttara, að skýringin sé sú, að hann hefur ekki tekið þátt í samningaviðræðunum sjálfur. Nefndarskipun Landsvirkjunar á ekki að vera til þess að tefja mál- ið á nokkurn hátt.“ Kirkjuþing’ haldið í Bústaðakirkju KIRKJUÞING Þjóðkirkju Is- lands, hið 21., verður haldið í Bústaðakirkju í Reykjavík 30. október til 8. nóvember. Kirkjuþingið hefst með messu í Bústaðakirkju kl. 14.00. Séra Sig- uijón Einarsson, prófastur Skaft- fellinga, predikar og altarisþjón- ustu annast þeir séra Hreinn Hjartarson og séra Jón Einarsson. Að messu lokinni flytur biskupinn, herra Ólafur Skúlason, þingsetn- ingarræðu sína. Þá mun kirkju- málaráðherra, Óli Þ. Guðbjartsson, ávarpa þingið. I fréttatilkynningu frá Biskups- stofu segir að meðal mála sem Kirkjuráð leggur fram á þessu þingi, sé álitsgjörð um störf djákna í íslensku þjóðkirkjunni, álitsgjörð um messutíma, sem byggð er á könnun Félagsvísindastofnunar, álitsgjörð Rannsóknarstofnunar í siðfræði um dauðaskilgreiningu og ígræðslu líffæra og álit nefndar þar sem borin er saman staða vígðrar og óvígðrar sambúðar í samfélaginu. Það Kirkjuþing sem nú kemur saman er hið fyrsta á nýju kjörtímabili og á þessu þingi verð- ur kjörið nýtt Kirkjuráð til næstu fjögurra ára. A Kirkjuþingi eiga sæti fulltrú- ar leikmanna og presta úr öllum kjördæmum og að auki eiga full- trúar sérþjónustupresta og guð- fræðideildar Háskólans sæti. Þá sitja vígslubiskupar Kirkjuþing. 1 Kjósum Sólveigu Pétursdóttur í þriðja sætið fylgismeiin sjáustæðis- stefinunmir þurfa að eiga sérsteriöai málsmra / rúmlega sextíu ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn og sjálfstæðisstefnan verið kjölfestan í íslensku þjóðfélagi. Undanfarin tvö ár hefur hins vegar setið við völd óvinsælasta ríkisstjórn á íslandi fyrr og síðar. Mál er að linni og að Sjálf- stæðisflokkurinn taki aftur við stjórnartaumunum. Kjarninn í stefnu Sjálfstæðisflokksins er trúin á einstaklinginn og gildi hans. Sjálfstæðisstefnan felst m.a. í því að vilja heilbrigða samkeppni, en jafnframt samvinnu milli stétta og kynja og byggðarlaga. Sjálfstæðisstefnan felst líka í því að tryggja þeim sem höllum fæti standa í lífsbaráttunni viðunandi lífskjör. Þess vegna þurfa sjálfstæðismenn og Reykvíkingar sterkan málsvara sjálfstæðis- stefnunnar á Alþingi. Þess vegna kjósum við Sólveigu Péturs- dóttur í þriðja sæti í prófkjörinu í Reykjavík. Kosningaskrifstofa, símar: 679516, 38300 og 38303

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.