Morgunblaðið - 27.10.1990, Side 27
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Hrun á sovéska
síldarmarkaðinum
Upplausnin og efnahags-
hrunið í Sovétríkjunum
hefur nú bein og alvarleg áhrif
hér á landi, eftir að sovésk
yfirvöld hafa skýrt frá því, að
gjaldeyrisskortur hamli síldar-
kaupum. Eins og fram kemur
í Morgunblaðsfrétt á fimmtu-
dag telja síldarsaltendur þetta
reiðarslag fyrir sig og at-
vinnulífíð í heild. Óskar Vig-
fússon, formaður Sjómanna-
sambands íslands, segist
felmtri sleginn yfir tíðindun-
um og nú verði að beita öllum
ráðum til að leiða Sovétmönn-
um fyrir sjónir hvaða þýðingu
það hafi fyrir okkar litla land,
ef þeir standi ekki við gerða
samninga.
Þeir sem fylgst hafa með
gangi mála í Sovétríkjunum
undanfarin misseri undrast
ekki, þótt kaupendur á síld frá
íslandi hiki við að skuldbinda
sig til að greiða fyrir slíkan
vaming. Af hruni sovéska
hagkerfisins leiðir, að þar er
ekki lengur til neinn gjaldeyr-
ir, jafnvel ekki fyrir nauð-
þurftum eins og síld og físki.
Biðraðimar setja ekki lengur
sama svip og áður á götur
sovéskra borga, vegna þess
að almenningur veit, að ekki
er eftir neinu að bíða fyrir
utan verslanir. Sovéskir ráða-
menn hafa um önnur og nær-
tækari vandamál að hugsa,
þegar þeir eru sakaðir um að
hafa brotið gerða samninga,
en síldarviðskiptin við ísland.
Ibúar Sovétríkjanna saka þá
einfaldlega um að hafa brotið
alla samninga á sér. Forsjá
ríkisins hefur gjörsamlega
bmgðist í öllu tilliti, ríkið er
orðið skítblankt og það er tek-
ið að liðast í sundur.
Síldarútvegsnefnd sem
annast samningagerð við Sov-
étmenn um sölu á saltsíld
þangað hefur oftar en einu
sinni komið mönnum á óvart
með þeim samningum, sem
hún hefur náð. Óskar Vigfús-
son, sem á sæti í nefndinni
fyrir hönd sjómanna, segir,
að hún muni beita öllum ráð-
um til að tryggja áframhald-
andi saltsíldarsölu. Hvorki
síldarútvegsnefnd né aðrir
breyta ástandinu innan Sov-
étríkjanna. Þar virðist enginn
hafa öll ráð í hendi sér.
Um leið og tekið er mið af
staðreyndum í Sovétríkjunum
er nauðsynlegt að huga að
öðrum mörkuðum fyrir síld
héðan en hinum sovéska. Oft-
ar en einu sinni hafa orðið
umræður um það, hvort ekki
kynni að vera hættulegt að
treysta um of á Sovétmarkað-
inn fyrir síld. Hafa orðið harð-
ar deilur af því tilefni, sérstak-
lega þegar minnst hefur verið
á það, að pólitískar ástæður
hafí ráðið einhverju um inn-
kaup Sovétmanna. Þegar
þannig er um hnúta búið geta
mál einmitt þróast í þá átt,
að fyrirvaralaust sé tekið fyr-
ir viðskiptin, þótt báðir aðilar
hafí í raun hag af þeim og
íbúar Sovétríkjanna hafi meiri
þörf fyrir síld nú en jafnvel
nokkru sinni fyrr, þar sem
hungursneyð kann að vera þar
á næsta leiti.
Ætlunin er að ræða áfram
við Sovétmenn um saltsíldina.
Ef til vill eru íslenskir seljend-
ur reiðbúnir að taka meiri
áhættu en áður í þessum við-
skiptum og treysta því að
Sovétmenn geti staðið í skil-
■um, þótt síðar verði. Til slíkra
samninga er ekki unnt að
ganga nema það liggi skýrt
fyrir, hver ber áhættuna ef
illa fer. Eigi að velta henni
yfír á íslenska skattgreiðend-
ur má ef til vill líta á fyrirhug-
uð viðskipti sem upphaf
íslenskrar neyðarhjálpar við
Sovétríkin. Frumskilyrði er að
um alla þætti málsins sé rætt
opið og af hreinskilni.
Það er ekkert sem bendir
til þess nú, að í bráð verði
Sovétríkin traustur samnings-
aðili, þvert á móti kynni að
vera skynsamlegast að taka
upp viðræður beint við fulltrúa
einstakra sovéskra lýðvelda,
svo sem Rússlands, og kanna
hug þeirra. Við Eystrasaltið
allt var áður góður markaður
fyrir saltsíld. Þar eru nú uppi
áform um að hefja svæðis-
bundna samvinnu og hefur
Bjöm Engholm, forsætisráð-
herra þýska sambandslands-
ins Slesvíkur-Holtsetalands,
gerst sérstakur talsmaður
hennar. Höfum við íslending-
ar sýnt slíkum hugmyndum
nægan áhuga? Er sjónarhom
okkar ekki of þröngt, ef við
einblínum á saltsíldarviðskipti
við fulltrúa sovésku ríkis-
stjórnarinnar í Moskvu?
Nokkrir munanna á sýningunni
en á innfelldu myndinni sést
fiskigildra sem er meðal þeirra
muna sem sýndir eru að Kjarv-
alsstöðum um þessar mundir.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á verkum eskimóa
SÝNING á list inúíta eskimóa frá er hér sýnd á vegum menningar-
Alaska hefst að Kjarvalsstöðum í málanefndar Reykjavíkur og
dag, laugardag. List eskimóanna Menningarstofnunar Banda-
Heimsmeistaraeinvígið í New York:
Jafntefli samið án tafl-
mennsku í biðstöðunni
SKÁK
Karl Þorsteins
EKKERT varð úr frekari tafl-
mennsku í sjöttu einvígisskák
Garrís Kasparovs og Anatolys
Karpovs eftir að skákin fór í
bið. Kasparov innsiglaði 42. leik
sinn. Eftir hálftíma umhugsun
ritaði hann 42. He8 á skorblað-
ið og bauð jafntefli simleiðis
næsta morgun. Eftir drjúgan
umhugsunarfrest kom ung-
verski stórmeistarinn Lajos
Portisch með þau skilaboð úr
herbúðum áskorandans að jafn-
teflisboðinu væri tekið.
Líklega eru hvorki Kasparov
né Karpov fyllilega sáttir við þessi
málalok. Báðum keppendum urðu
á slæm mistök í viðureigninni.
Karpov náði auðveldlega að jafna
taflið og öðlast frumkvæði í skák-
inni. Miðtaflið tefldi hann á hinn
bóginn afskaplega ráðleysislega
og undir lok setunnar missti Ka-
sparov af fremur auðveldum vinn-
ingsleiðum.
Staðan í einvíginu er nú 3— 2
Kasparov í vil. Karpov hefur hvítt
í sjöundu einvígisskákinni sem
tefld verður aðfaranótt laugar-
dags að íslenskum tíma.
ríkjanna, en verkin koma frá
mannfræðideild Snithsonian- há-
skólans í Washington.
Að sögn Kristínar Guðnadóttur,
safnvarðar á Kjarvalsstöðum, eru
flestir munimirá sýningunni upp-
runalegir og höfðu notagildi fyrir
u.þ.b. hundrað áram.
Verkunum er skipt niður í flokka
sem tengjast mismunandi þáttum úr
lífi eskimóanna, m.a. veiðum, versl-
un, fatnaði og heimsmynd. Esk-
imóamir við Beringshafið búa enn í
mörgum gömlu byggðanna og lifa
að mestu á gæðum landsins, þó
gömlu veiðiaðferðimar hafi fyrir
löngu vikið fyrir nokun skotveopna
og gamlar helgiathafnir vikið fyrir
kristinni trú.
Að sögn Kristínar safnaði Edward
W. Nelson flestum gripunum á sýn-
ingunnií kringum 1880, þegar hann
starfaði sem veðurathugunarmaður
í Alaska fyrir Merkjaþjónustu
Bandaríkjanna, en ríkisstjóm Banda-
ríkjanna hafði þá nýlega keypt Al-
aska.
Nelson sendi verkin síðan til Snith-
sonian- háskólans í Wasington þar
sem þau era varðveitt.
Forstöðumaður mannfræðideildar
Snithsonian- háskólans, William
Fitzhugh, mun halda fyrirlestur um
list eskimóanna á sunnudag kl. 16
að Kjarvalsstöðum.
Sýningin er opin alla daga milli
kl. 11 og 18.
Trúnaðarstörf í heil-
brig-ðisráðuneytinu
eftir Sigurð
Björnsson
í fyrstu grein laga um heilbrigis-
þjónustu segir: „Allir landsmenn
skulu eiga kost á fullkomnustu heil-
brigisþjónustu sem á hveijum tíma
era tök á að veita til verndar and-
legri, líkamlegri og félagslegrí heil-
brigði.“
Síðan er í lögunum ítarlega kveð-
ið á um nefndir og ráð og því lýst
hvemig allir þræðir endi í heilbrigð-
isráðuneyti og ioks á borði ráð-
herra. Með slík lög að bakhjarli er
auðvelt fyrir málsvara heilbrigðis-
ráðuneytisins að höfða til þess, að
ráðherra hafi vald til að ákveða
hvað sem honum sýnist eins og
hugmyndafræðingur ráðuneytisins,
Finnur Ingólfsson, gerir í grein í
Mbl. 25. október.
Kerfið
A undanförnum árum hefur mik-
ið verið rætt um vaxandi kostnað
við heilbrigðiskerfið og leiða verið
leitað til að halda honum í skefjum.
Allar breytingar, sem gerðar hafa
verið, miða að auknum ítökum ríkis-
ins og hafa flestar haft í för með
sér aukin útgjöld skattgreiðenda.
Settar hafa verið á laggirnar nýjar
nefndir og ráð víðs vegar um landið
og gerðar kerfísbreytingar á rekstri
heilsugæzlu og sjúkrahúsa, sem
krefjast stóraukins mannafla við
stjórnun og áætlanagerð. Til að
tryggja skilvísi hinnar auknu mið-
stýringar hafa núverandi stjórnend-
ur í. heilbrigðisráðuneytinu valið
skoðanabræður sína í stjórnmálum
til forystustarfa í þessu flókna
stjórnkerfí hvar sem því varð við
komið. Muna menn ekki í annan
tíma eftir svo mikilli flokkspólitískri
áhrifasókn úr því ráðuneyti.
Sjúkrahús
Jafnframt þessu hefur það gerst
að markvisst er dregið úr áhrifum
lækna og annarra heilbrigðisstétta
á stefnumörkun og rekstur spítal-
anna enda má sjá þess glögg dæmi
í skertri þjónustu við sjúklinga á
sama tíma og yfírbygging sjúkra-
húsanna er aukin.
Aukin afköst sjúkrahúsa, sem
nást með betri nýtingu tækja og
aðstöðu og koma fram í aukinni
þjónústu við sjúklinga, eru litin
homauga og svarað með fyrirmæl-
um um aukinn sparnað, sem þýðir
lokanir sjúkrarúma. Undanfarna
mánuði hafa tugir sjúkrarúma á
stóru spítölunum þremur í
Reykjavík þurft að standa auð af
þessum sökum. Niðurskurður hefur
komið verst niður á ýmsum sér-
deildum og leitt til þess að sjúkling-
ar sem bíða eftir bæklunar- og
þvagfæraaðgerðum eru látnir bíða
eftir þjónustu mánuðum eða árum
saman.
Veikt fólk myndar sjaldan sam-
tök og á sér fáa talsmenn. Heil-
brigðisstarfsmenn sjá og fínna
vandann en raddir þeirra heyrast
illa upp kerfísstigann eða eru túlk-
aðar sem sérhagsmunagæzla. Við
sem vinnum á sjúkrahúsum erum
undir stöðugum þrýstingi um að
hindra veikt fólk í að leggjast inn
á sjúkradeildir og að koma þeim
sem inn leggjast sem fyrst út aft-
ur. Biðlistar eftir sjúkrarými vegna
sérhæfðra skurðlækninga lengjast.
Hugmyndafræði
Hugmyndafræðingur heilbrigðis-
ráðuneytisins beitir nokkrum gam-
alkunnum stjórnunaraðferðum. Ein
er að skilgreina óvini kerfisins og
kenna þeim um allt sem aflaga fer.
Þessa óvini kallar hann sérfræðinga
og varar almenning við að leita til
þeirra. Til að ná því marki notar
hann skattpeninga almennings sem
stýritæki, fólk geti farið til annarra
lækna án endurgjalds en hjá hinum
vondu sérfræðingum skal fólk
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
27
íslenskur gítarleikari vek-
ur athygli í Melbourne
Koma Péturs Jónssonar, gítarleikara, til Ástraliu fyrir skömmu
vakti athygli þar í landi. Pétur hélt tónleika í Melbourne auk þess
sem hann kom fram í útvarpi og leiðbeindi þátttakendum í gítar-
keppni. Til Ástralíu kom Pétur frá Nýja Sjálandi þar sem hann hélt
fyrirlestra og kom fram á tónleikum. Nú þegar er farið að huga
að næstu heimsókn Péturs til Ástralíu.
Á tónleikunum í Melbourne vakti
íslensk tónlist mesta athygli tón-
leikagesta. Má þar nefna Jakobs-
stigann eftir Hafliða Hallgrímsson,
Rímur Eyþórs Þorlákssonar, Til-
brigði við Jómfrú eftir Kjartan Ól-
afsson og Veglaust haf Atla Heim-
is Sveinssonar við Ijóð Matthíasar
Johannessen ritstjóra. Texti ljóðs-
ins var fluttur í þýðingu Marshalls
Bremens fyrrverandi sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi. Verkið
var að sögn doktors John Martins,
við háskólann í Melbourne, endur-
flutt vegna eindreginna óska
áheyrenda. Auk tónleikanna kom
Pétur fram í útvarpi, flutti erindi
og leiðbeindi gítarleikuram sem
tekið höfðu þátt í gítarkeppni í
tengslum við hátíðarhöld í Melbo-
urne síðast í september.
Doktor John Martin segir að nú
þegar sé farið að huga að næstu
heimsókn Péturs til Astralíu. Jef-
frey Coster, forseti Klassíska gítar-
félagsins, vilji fá hann til að leið-
beina við háskólann í Melbourne
auk þess sem smærri skólar hafa
sýnt áhuga á að fá Pétur til starfa.
Þess má að lokum geta að Pilliph
Hougton, einn þekktasti tónsmiður
Júlíus Sólnes um nýtt álver:
Aðalatríðið að draga
úr umhverfisáhrifum
JÚLÍUS Sólnes umhverfisráðherra sagði í umræðum um stefnuræðu
forsætisráðherra á Alþingi á mánudag að varðandi mengunarvarnir
í fyrirhuguðu álveri á Keilisnesi væri farsælast að selja fyrst um sinn
ströng mörk um hámarks brennisteinsinnihald rafskauta, en ekki
kröfu um vothreinsibúnað. í starfsleyfinu verði skýr ákvæði um að
verði ekki hægt að fá hrein skaut verði gripið til þess að selja upp
fullkomnasta hreinsibúnað sem þá verði völ á. Aðalatriðið væri að
draga úr umhverfisáhrifum af völdum álversins, en ekki að leggja
áherslu á einhvern sérstakan búnað.
Júlíus sagði aðalatriðið vera
brennisteinsinnihaldið í rafskautun-
um. Ef hægt væri að fá hrein skaut
væri það virkasta ráðið til að halda
brennisteinsmenguninni niðri. Með
mjög hreinum skautum færu um
fjögur þúsund tonn á ári út í and-
rúmsloftið af brennisteinstvífldi, án
vothreinsunar. Hann sagði sam-
bærilegt magn af brennisteini fara
út í andrúmsloftið frá Nesjavalla-
virkjun í formi brennisteinsvetnis.
Hann sagði að nýtni vothreinsi--
búnaðar til að hreinsa brenni-
steinstvífldi væri 80% til 90% og
um leið og krafist yrði vothreinsi-'
búnaðar félli krafan um hrein skaut
um sjálfa sig. Þá mætti búast við
því að með mjög óhreinum skautum
gæti brennisteinstvííldismengunin
engu að síður orðið allt upp í tvö
þúsund tonn á ári. Að auki mundi
fylgja veraleg mengun af þung-
málmum og öðram éfnum sem
kæmu með skautunum og færa
beint í sjóinn. „Mig hryllir við þeirri
hugsun að dæla miklu magni af
vanadíum þungmálmi og öðrum
óþverra út í hafið við hliðina á ein-
hveijum bestu og hreinustu fiski-
miðum heims,“ sagði Júlíus Sólnes.
Pétur Jónsson gítarleikari.
Ástralíu, hefur óskað eftir að semja
verk fyrir Pétur.
Frá Melbourne hélt Pétur til
Adelaide, Sydney, Darwin og Sin-
gapoore heim á leið.
Nemendaleikhúsið
sýnir Dauða Dantons
NEMENDALEIKHÚS Leiklist-
arskóla Islands frumsýndi í gær-
kveldi leikritið Dauða Dantons
eftir Georg Buchner.
Þýðandi er Þorvarður Helgason,
leikstjóri Hilde Helgason, leikmynd
gerði Karl Aspelund. Tónlist er
eftir Eyþór Arnalds og lýsingu
annaðist Egill Ingibergsson.
í Nemendaleikhúsi 1990-1991
eru: Ari Matthíasson, Gunnar
Helgason, Halldóra Björnsdóttir,
Ingibjörg Gréta Gísladóttir, Magn-
ús Jónsson, Þorsteinn Bachmann,
Þorsteinn Guðmundsson og Þórey
Sigþórsdóttir. Einnig tekur 2.
bekkur þátt í sýningunni og 1.
bekkur sér um tæknivinnu.
Næstu sýningar: 2. sýning 28.
október, 3. sýning 31. október, 4.
sýning 2. nóvember, 5. sýning 3.
1. \ frLv:
: -á
| 1 - Í.M' i N
■M %. K
Eitt atriða úr sýningu Nemenda-
leikhússins.
nóvember og 6. sýning er 6. nóv-
ember.
Sýningar eru í Lindarbæ og
hefíast kl. 20.
Mömmumorgrmr í safnaðarheimili Neskirkju
Ekki er ólíklegt að mikill handargangur verði í öskjunni í safnaðarheimili Neskirkju á svokölluðum mömmu-
morgnum í vetur. Mömmumorgnarnir hefjast klukkan 10 fyrir hádegi á þriðjudögum og standa yfír til hádegis.
I stuttu samtali við Morgunblaðið sagði Guðmundur Óskar Ólafsson, sóknarprestur í Neskirkju, að mömmu-
morgnarnir væru vel sóttir. Hann sagði að fyrirhugað hefði verið að gera hlé í sumar en af því hefði ekki
orðið vegna eindreginna óska mæðranna. Þær nota tækifærið og bera saman bækur sínar á meðan að börn-
in leika sér. Auk þess hlýða mæðurnar á fyrirlestra sem flestir fjalla um meðferð ungbarna. Umsjónarkon-
ur mömmumorgnanna eru Sigríður Óladóttir og Elínborg Lárusdóttir. Til hægri á myndinni er Finnur Fróða-
son innanhúsarkitetkt á tali við nokkrar mæðranna á síðasta mömmumorgni.
Signrður Björnsson
„Við sem vinnum á
sjúkrahúsum erum
undir stöðugum þrýst-
ingi um að hindra veikt
fólk í að leggjast inn á
sj úkradeildir. “
borga. Þar sannast það sem margir
vissu, það er erfítt að vera með
asthma, krabbamein, liðagigt, syk-
ursýki. Þá á hugmyndafræðingur-
inn erfitt með að sætta sig við að
almenningur geti valið sér þann
lækni, sem hann treystir bezt hveiju
sinni, án þess að fá til þess leyfi
annars læknis eða ráðuneytisins.
Önnur stjórnunaraðgerð í uppá-
haldi hjá hugmyndafræðingnum er
hin mikilvirka aðferð: Deildu og
drottnaðu.
Með aðgerðum stjórnvalda er
reynt að etja saman:
1. Heilsugæzlulæknum og sjálf-
stætt starfandi heimilislæknum.
2. Sérfræðingum og heimilis-
læknum.
3. Nú síðast sjúkrahúsunum
þremur í Reykjavík með sameigin-
legri fjárveitingu og skipan æðsta
ráðs. Að því máli vann hann af
slíkum trúnaði að hann telur sig
nú eiga vísar enn frekari trúnaðar-
stöður fyrir flokkinn.
Á yfirstandandi kjörtímabili hafa
ráðuneyti heilbrigðis- og ijármála
lagt í einelti þann rekstur í heil-
brigðiskerfinu, sem enn er ekki al-
farið undir stjórn ríkisvaldsins.
Sjálfstætt starfandi heimilislæknar,
sérfræðingar sem reka eigin lækna-
stofur og spítalar, sem hafa haft
nokkurt sjálfstæði varðandi rekstr-
arfyrirkomulag svo sem Landa-
kotsspítali, hafa verið gerðir tor-
tryggilegir í augum álmennings.
Þótt ekki hafí verið fundið að þjón-
ustu þessara aðila við sjúklinga
hefur áróðurinn gegn þeim verið
mjög beinskeyttur. Stjórnvöld á ís-
landi eiga nær ótakmarkaðan að-
gang að fjölmiðlum en þeir sem
fyrir þeim verða eiga oft erfítt með
að bera hönd fyrir höfuð sér. Undir-
búningur fyrir yfirtöku ríkisins á
þessari starfsemi hefur verið mark-
viss.
Hvað hefur gerzt?
Á undanförnum tveimur áratug-
um hafa fjöldamargar breytingar
verið gerðar á heilbrigðiskerfinu,
margar til bóta en því miður einnig
margar vanhugsaðar og má þar
nefna:
1. Afnám sjúkratryggingakerf-
isins, þar sem fólk greiddi iðgjöld
og ávann sér réttindi. Ríkið lagði
undir sig almannatryggingarnar.
Nú greiðir fólk skatta, ávinnur sér
ekki réttindi og hugmyndafræðing-
ar stjórnvalda geta notað skattpen-
inga almennings sem stjórntæki til
að framkvæma pólitísk áhugamál
sín. Gildir þá einu hvort útgjöld
ríkisins aukast um 100 milljónir
króna eins og gerðist þegar fellt
var niður gjald sjúklings er vitjar
heimilislæknis.
2. Yfirtöku ríkisins á öllum
rekstri heimilislækninga og sjúkra-
húsa. Þessu hefur fylgt mjög aukin
yfirbygging og aukinn kostnaður.
Ekki hefur verið hugað að breyting-
um á framleiðni og virkni kerfisins
samfara þessari breytingu.
3. Miðstýrt launakerfi. Ekkert
tillit er tekið til aðstæðna og stærð-
ar héraða, sem veldur því að von-
laust er að fá fólk til starfa víða
um land, einkum í afskekktari og
smærri byggðarlögum. Sveigjan-
leiki til að umbuna duglegu starfs-
fólki er lítill þar sem órafjarlægir
embættismenn í ráðuneytum þurfa
að skoða hvert slíkt mál og ákvarða.
Hugsanlega þyrfti ráðherra síðan
að leggja fyrir Alþingi beiðnimm
aukafjárveitingu.
4. Rangar ákvarðanir hvað varð-
ar uppbyggingu og rekstrarform
sjúkrahúsa á landsbyggðinni enda
standa sum undirmönnuð og van-
nýtt. Sjaldan eru gamlar ákvarðan-
ir endurskoðaðar í ljósi breyttra
tíma og aðstæðna, t.d. bættra sam-
gangna.
Hvað er til ráða?
1. Endurvekja þarf trygginga-
hugtakið. Öll eram við sammála um
nauðsyn þess að hafa sterkar al-
mannatryggingar sem tryggi að
sjúklingar fái þjónustu, sem þeir
eða samborgararnir hafa í raun
greitt fyrir með iðgjöldum. Greiðsl-
ur fyrir slíka þjónustu væru samn-
ingsatriði milli tryggingafélaganna
og þeirra sem þjónustuna veita.
2. Sporna þarf við ofurtrú
stjórnvalda á miðstýringu og ríkis-
rekstri og tryggja að áhrif sveitar-
félaga og dugmikilla einstaklinga í
heilbrigðismálum glatist ekki.
3. Hlynna þarf að starfsemi
áhugamannahópa, líknarfélaga og
sjálfseignarstofnana innan heil-
brigðiskerfisins og leyfa mismun-
andi rekstrarform. Slíkt hvetur til
heilbrigðrar samkeppni um gæði
þjónustunnar og hagkvæmni í
rekstri.
4. Auka þarf áhuga og þekkingu
löggjafarvaldsins á heilbrigðismál-
um. Á Alþingi situr nú enginn lækn-
ir eða hjúkrunarfræðingur eða ann-
að fólk með sérþekkingu á heil-
brigðismálum. Virðist oft sem laga-
frumvörp úr heilbrigðisráðuneytinu
sigli í gegnum þingið án verulegrar
málefnalegrar umræðu eða breyt-
inga.
5. Auka þarf samráð við heil-
brigðisstéttir og samtök þeirra við
setningu laga og gerð fjárlaga.
Heilbrigðisstarfsfólk frábiður sér
vinnubrögð eins og þau, sem hug-
myndafræðingur heilbrigðismála-
ráðuneytisins viðhafði gagnvart
spítölum í Reykjavík í síðustu viku
þar sem óheilindum og blekkinga-
leik var beitt og síðan borið við trún-
aði við ráðherra. Hvað með trúnað
við fólkið í landinu?
Nú er hafínn undirbúningur al-
þingiskosninga. Starfshættir
stjórnvalda, sem hér hefur verið
lýst hafa gefið mönnum tilefni til
að tjá sig um heilbrigðismál meira
en oft áður og mynda sér skoðanir
og er það vel. Nauðsynlegt er að
frambjóðendur til þings kynni sér
mun betur en verið hefur stefnu-
mörkun þá sem fylgt hefur verið í.
heilbrigðismálum, ofskipulagningu
og miðstýringaráráttu, sem felst í
lagafrumvörpum sem lögð hafa
verið fyrir Alþingi hin síðari ár og
kostnaðaraukann, sem þessu hefur
fyigt.
Þá getur verið gagnlegt að kynna
sér aðferðir og reynslu annarra
þjóða og tileinka sér það sem öðrum
hefur tekizt vel til með en hafna
því jafnframt, sem ekki hefur
reynzt vel. Á örskömmum tíma
hafa hin úreltu kerfi miðstýringar
og ríkisreksturs, sem reist voru á
granni forsjár- og félagshyggju
víða um heim, hrunið hvert af öðru.
Órökstuddar fullyrðingar ráða-
manna um hagræðingu og hundruð
milljóna króna sparnað nægja mér
ekki sem réttlæting fyrir þeim stór-
auknu miðstýringaráformum, sem
við verðum nú vitni að.
Eg tel nauðsynlegt að þjóðin kjósi
til þings menn og konur með sjálf-
stæðar skoðanir og þekkingu á heil-
brigðismálum, fólk sem er reiðubúið
að íhuga og beita sér fyrir öðrum
valkostum en endalaust auknum
ríkisumsvifum.
Höfundur er sjúkmhúslæknir í
Reykjavík.