Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
29
Síðasta
rallkeppm
ársins
SÍÐASTA rallkeppni ársins,
Armstrong Rally Hjólbarðahall-
arinnar fer fram á sunnudag-
inn. Tvær áhafnir eiga mögu-
leika á íslandsmeistaratitli í
rallakstri en þó því aðeins að
báðar áhafnir verða að sigra í
keppninni, segir í frétt frá Bif-
reiðaíþróttaklúbbi Reykjavíkur.
Efstir að stigum til íslands-
meistara eru þeir feðgar Rúnar
Jónsson og Jón Ragnarsson með
65 stig en fast á hæla þeirra koma
Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guð-
mundsson með 60 stig.
Sunnudaginn 28. október kl.
08.40 verður fyrsti bíll ræstur inn
á fyrstu sérleið sem kallast Tröll-
háls og liggur frá Þingvöllum til
norðurs að Kaldadal. Einn af öðr-
um aka þeir svo sömu leið til baka
kl. 9.40, Lyngdalsheiði frá Gjá-
bakka v/Þingvelli og að Laugar-
vatni fer fyrsti bíll kl. 10.30 og til
baka kl. 11.30.
Kl. 13.00 verður ekin sérleið við
Skútuvog frá verslun Halldórs
Jónssonar og í áttina að Mikla-
garði v/Sund. Leiðin verður ekin
tvisvar. Eftir hádegishlé verður
sérleiðin framhjá Djúpavatni og
að Krísuvík ekin tvisvar. Akstur
þar hefst um kl. 14.30.
Endamark verður svo við Hjól-
barðahöllina við Fellsmúla kl.
18.00 en þá fyrst verða úrslit í
íslandsmeistarakeppninni í rall-
akstri ráðin.
Hljómsveit
konunglega
breska
landgöngu-
liðsins
væntanleg
HLJÓMSVEIT konunglega
breska landgönguliðsins heldur
tónleika í húsi íslensku Ópe-
runnar við Ingólfsstræti
fimmtudaginn 1. nóvember
klukkan 20.
Hljómsveitin hefur reglulega
komið til íslands um árabil og
haldið tónleika á Keflavíkurflug-
velli og undanfarin tvö ár hefur
hún einnig haldið tónleika í Kringl-
unni í Reykjavík fyrir fjölda áheyr-
enda. Þá lék hljómsveit land-
gönguliða af drottningarskipinu
Brittania fyrir hundruð áheyrenda
á Ægisgarði í tengslum við opin-
bera heimsókn Bretadrottningar í
sumar.
Að tónleikunum standa Breska
sendiráðið og Hekla hf. Miðar eru
seldir í miðasölu íslensku óperunn-
ar við Ingólfsstræti frá 25. októ-
ber, alla daga nema mánudaga,
frá klukkan 13-18. Miðar kosta
600 krónur en 400 krónur fyrir
börn, ellilífeyrisþega og hópa.
Hljómsveitin kemur fram endur-
gjaldslaust en hugsanlegum ágóða
verður varið til góðgerðarstarf-
semi.
Leiðrétting
Þau mistök áttu sér stað í frétt um
könnun á verði bílavarahluta að
heimilisfang GS-varahluta var
rangt en þeir eru til húsa á Hamars-
höfða 1. Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á þessum mistökum.
ÍSLENSKUR
TÓNUSTARDAGUR
Kringlan kl. 12:30
Rarik-kórinn syngur
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar
Opið hús að hraunbergi 2 milli kl. 13:00 og 15:00
fyrir forskólanemendur og foreldra.
Hljóðfærakynning, tónleikar og fundur með foreldrum.
íslensk tónlist á afsláttarverði
í hljónraplötuverslunum.
Tónlistarskóli Miðneshrepps, Sandgerði
Sameiginlegur tónfundur kl. 14:00
Ríkisútvarpið heldur upp á íslenskan tónlistardag frá morgni til kvölds
og fjallar um málefni tónlistar með ýmsu móti.
Rás 1
Árdegis: Spuni, þar sem leiknar verða upptökur frá Tónlistarskóla
Grundarfjarðar.
Miðdegis: Þáttur Hönnu G. Sigurðardóttur í tilefni dagsins.
Síðkvölds: Laugardagsflétta Svanhildar Jakobsdóttur.
Rás 2
íslensk tónlist í fyrirrúmi
Borgarleikhúsið
Blústónleikar í forsalnum milli kl. 15:00 og 17:00.
Fram koma Kristján Kristjánsson og Þorleifur Guðjónsson.
Kaffiveitingar.
Tónlistarskóli FÍH
Opið hús að Rauðagerði 27 frá kl. 14:00 til 16:00.
Púlsinn tónlistarbar
Valgeir Guðjónsson heldur tónleika milli kl. 16:00 og 18-00
0
A bláum nótum frá ki. 21:30 tii 03-.oo.
Bláir englar, Kristján Kristjánsson og Þorleifur Guðjónsson.
Óperuhátíð á Hótel íslandi
Sunnudaginn 28. október verður Óperuhátíð á Hótel íslandi, þar sem
fram koma margir þekktir söngvarar og hljóðfæraleikarar.
Opin æfing verður á sal Söngskólans í Reykjavík, Hverfisgötu 44,
í dag frá kl. 13:00 til 14:00.
FTT FÍH
Félag tónskálda og textahöfunda Félag íslenskra hljómlistarmanna
FÍT TBÍ
Félag íslenskra tónlistarmanna Ríkisútvarpið Tónlistarbandalag íslands
Samband hljómpiötuframleiðenda STEF