Alþýðublaðið - 25.01.1959, Qupperneq 10
íff§
3 1 ti 1
háskolándi — fyrirliggjandi.
Sighvafur Einarsson & Co.
Skipholti 15. Símar: 24-133 og 24-137.
4
Dýraverndunarfélags íslands
verður haldinn í dag kl. 14 í Breiðfirðinga-
búð (uppi).
STJÓRNIN.
I m
sp
W]
vantar nú þegar á St. Jósefsspítala, Landa-
%■ koti. — Upplýsingar hjá Príórinnunni.
M
"' vti&v -
■■■:■■
.
svart og galv. — fyrirliggjandi.
Sighvafur Einarsson & Co.
Skipholti 15. Símar: 24-133 og 24-137.
—‘Zi'- .
Lausn Hannibais
(Framhald af 5. síðu)
bægja miklum voða frá dvrum.
Á þessu Alþýðusambandsþingi
eru um 300 fulltrúar núver-
andi stjórnarflokka og aðeins
um 50 stjórnarandstæðingar.
Ef stjórnarsinnar samstilla vel
kraftana, geta þeir auðveldlega
leyst þennan mikla vanda.
, Aðstaðan til að leysa málið
nú, er öll hin ákjósanlegasta.
Verðlag erlendra vara á heims-
markaðinum er stöðugt. Verð-
lag íslenzkra afurða heldur
hækkandi, Öll okkar fram-
leiðsla selst eftir hendinni.
Framleiðsla okkar er meiri en
nokkru sinni fyrr.
Nú þarf að deila byrðunum
á bök allra íslendinga. Fram-
leiðslan getur sjálf tekið á sig
nokkurn hluta byrðarinnar.
Ríkissjóður á að sýna nokkra
viðleitni til sparnaðar, og auk
þess getur hann vel staðið und-
ir nokkurri niðurgreiðslu nauð
synjavara. Álagningu í heild-
sölu og smásölu á að færa aft-
ur í sömu prósentiitölu og s.
1. ár. Ríki, sveitarfélög og ein-
síakbngar „eiga að draga nokk-
uð úr fjárfestingu á næsta ári.
Bændur eiga að lækka fram-
leiðsluvörur sínar um nokkur
vísitölustig — með því eykst
sala þeirra — og því eiga verka
menn að svara með því að falla
frá nokkrum vísitölustigum af
kaupi sínu. Nýja vísitölu á að
taka upp í stað þeirrar gömlu.
Takmarkið með þessu öllu á
að vera það, að kaupgjald og
verðlag nemi staðar, þar sem
það nú er, svo að atvinnulífið
geti haldið áfram án nýrrar
tekjuöflunar eftir þessa aðgerð
— og þjóðartekjurnar geti hald
ið áfram að vaxa, eins og þær
gerðu á þessu ári. Það er raun-
ar það eina, sem tryggt getur
varanlegar kjarabætur.
Beifingameíin
Vantar strax á bát> sem rær frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 50-565.
ikkunarsfúikur
vantar strax.
Hraðfrystihúsið FROST H.F
Hafnarfirði. — Sími 50-165.
Yiljum selja effirfaldar
bifreiðar:
Chevrolet vörubifreið 2T4 t.
Dodge Cariol 7 manna m.. framdrifi
Rússneskur jeppi.
Bifreiðarnar verða til sýnis í dag, sunnu-
dag, kl. 1—3 á bílastæðinu við Arnarhvol,
og á morgun kl. 1—3 að Álfhólsvegi 1 í Kópa
vogi.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu okkar fvrir
kl. 5 síðdegis á mánudag 26. þ. m.
Verklegar framkvæmdir h.f.
Laufásveg 2.
■--ÁSÁ-:.
BARNAGAMAN
BARNAGAMAN
15
Sigurbjörn Sveinsson :
Blástakkur
(Framh.).
„Ónei, þau eru ekki
nema níu,“ sagði skess-
an hróðug, Hún hvolfdi
úr skjóðunni og taldi
hornin, svo að Ása sá,
og þau voru ekki nema
níu.
Þá sagði Ása: „Fæ ég
þá aldrei framar að sjá
pabba: og mömmu, afa
og ömmu og Blástakk
'bróður minn?“
„Nei aldrei, aldrei,“
sagði skessan.
— Nei, aldrei, aldrei,
sagði skessan.
— Fæ ég þá aldrei
framar að sjá.sólina og
tunglið? sagði Ása.
— Nei, aldrei, aldrei,
'sagði skessan. — Þú
mátt aldrei koma ut
fyrir dyr. Þú átt að sópa
gólfið og elda mat.inn
fyrir mig á hverjum
degi og vera í snúning-
um fyrir mig, sérstak-
•íega þegar skessur og
jötnar koma að heim-
s;,ekja mig.
Þá fór Ása að gráta,
en skessan skipaði henni
að þegia.
— Ég læt þig í pok-
ann minn. ef þú hættir
ekki að hrína. sagði hún.
Að svo mæltu fór
hún með Ásu inn í stór-
an afkima, innst inni í
jarðhúsinu. Þar átti
Ása að sofa á mosabing
um nóttina. Hún las
bænirnar sínar og sofn-
aði vært, því að hún
var orðin svo þreytt.
Um miðja nótt vakn-
aði hún við það, að éitt-
hvað mjúkt kom við
kinnina á henni. Hún
settist upp og fór að
þreifa fyrir sér. Snati
var þá kominn til henn-
ar og dinglaði rófunni
vingjarnlega. Hann
hafði skriðið inn til
hennar gegnum dálitla
smugu, og lagði ofur-
litla glætu inn í afkim-
ann gegnum smuguna.
— Farðu nú, Snati
minn, og láttu hann
Ása leysti sokkaband-
ið af hægri fætinum á
sér, batt því um rófuna
á Snata og sagði:
Blástakk bróður minn
vita, hvar ég er, svo að
hann geti komið að
hjá’pa mér.
—Voff! Voff! sagði
Sna'i og skreið út um
"smuguna,
— Hver er að gelta
barna hiá henni Ásu?
sagði skessan. Hún
hljóp út, greip Snata og
kastaði honum niður í
djúpa gjótu, rétt fyrir
innan dyrnar á jarðhús-
inu og lét síðan stóra
hellu yfir gjótuna.
Ása las bænirnar sín-
ar í annað sinn og sofn-
aði vært. En eftir litla
stund vaknaði hún við
það, að eitthvað mjúkt
kom við kinnina á
henni. Hún settist upp
og fór að þreifa fyrir
sér. Kisa var þá komin
til hennar og nuggaði
sér vingjarnlega upp að
vanga hennar.
Ása leysti sokkaband-
ið af vinstra fætinum á
sér, batt því um rófuna
á kisu og sagði:
— Farðu nú, kisa
mín, og láttu hann Blá-
stakk bróður minn vka,
hvar ég er, svo að harin
geti komið áð hjálpa
mér.
— Mjá, mjá, sagði
kisa og skreið út um
smuguna.
— Hver er að mjálma
Blástakkur —-2
þarna hjá henni Ásu?
sagði skessan. Hún hljóp
út, greip kisu og fleygði
henni ofan í gjótuna til
3nata.
Ásá las bænirnar sín-
ar í þriðja sinn og sofn-
aði vært, en eftir litla
siund vaknaði hún við
það, að eitthvað hart
kom við kinnina á
henni. Krummi var þá
kominn til hennar og
var að brýna gogginn á
vanga hennar.
Ása átti ekki fleiri
sokkabönd, en hún var
með hvítan skýluklút
yfir höfðinu. Tók hún
nú skýluklútinn, batt
honum yfir krumma og
sagði:
— Farðu nú, krummi
minn, og láttu hann
Blástakk bróður minii
vita, hvar ég er, svo að
hann geti komið að
hjálpa mér.
—■ Krunk! Krunk!
i sagði krummi og flaug
j út um smuguna.
1 — Hver er að krunka
þarna hjá henni Ásu?
--"ði skessan. Hún
hljóp út og ætlaði að
g * ;a krurnma, en hann
, faug svo hátt, að hún
i náði ekki til hans.
j Snautaði hún því inn aft
ur með ólund og iagðist
niður í bælið sitt.
En nú er að segja frá
krumma. Hann flaug
þangað til hann sá Blá-
stakk, þar sem hann var
þeysandi á honum Sörla
sínum. Krummi lækk-
aði flugið, settist á öxl-
ina á honum og krunk-
aði hátt í eyrað á hon-
um,-
Blástakkur fór að
skoða krumma og sagði:
— Þetta er skrýtinn
fugl. Það er hrafn og
meira að segja hvítur
hrafn. Það eru sjaldséð-
ir hvítir hrafnar!
En þegar hann gætti
betur að, sá hann hvern
ig í öllu lá og leysti
klútinn • af krumma.
Hann sá, að þetta var
hvíti skýluklúturinn
hennar Ásu litlu.
Þá sagði Blástakkur:
■— Fljúgðu nú á und-
an mér kruihmi minn,
svo að ég geti fundið
hana Ásu systur mína.
Framh.
10 25. jan. 1959 — Alþýðublaðið