Morgunblaðið - 22.11.1990, Side 15

Morgunblaðið - 22.11.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1990 15 y«- Ai^v-.kvr X vnivvmtn., ; V*r iftmmnw<n*uu{».i .V iK-.TfMns: Ar*%nviHyr. .'v’ fvrtycm^r T>Mr^*lt)4{Aj- • '&nmgr ttVrr^n ■, Vrir «n$rv*n*< , !'■'• ínrtrfr, tvl iVaVj tkw? «vyávcj* Von* fy-í^o*at Vítfmrtc^ oí&fv«T*AHrt«nft*v*V-*r 1*«y<;.ocni»cIwKÍWaý'^^l JÉaX .iw4jvri^t>4n»tytíW\lc»«4*í' f«*Á OUVJttrífc •*mV Mjk - ,ÍUU »^ír*r^w^'tn^kfv*r,^iWf^ACT«54k« «!>««» kv>^nt>jýt \.. jK ' .t-nrv»>ilCVrw^tAré^T-v^.-'' ‘;’'f ,. filsbf%v 'íf" I Skjöl í 800 ár List og hönnun Bragi Asgeirsson r- w .....______________ j : '- ■ • ‘ ;r•• . '■■ ' ■ " -v.%' •. _• -y- * . ' ’ri- '.iv , ,-uf.i.í 'v J ■• • ■'■ ,í'v.s«.?«S,__ PR.,- , " •"*■•• .'•■ ’•■•+.'*' . •« ■;>:•/. I ••■ Ær.;'■•:.:. w •í.j Það er dijúg veizla fyrir augað ásamt ríkulegum fróðleik að skoða sýninguna „Skjöl í 800 ár“, sem um þessar mundir og til 30. nóvember er haldin í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Er hér, svo sem nafnið vísar til, um að ræða sýningu á íslenzk- um skjölum frá 1185-1989 og er það þjóðskjalasafnið, sem stendur fyrir sýningunni. Eins og margur veit þá eru rit- mál og myndlist skyldar listgrein- ar og kemur það ekki síst fram í nútímalist, sem leitar svo mikið til ritmálsins og kalligrafíunnar í hrynjandi og skipulagi. Greinargóðar upplýsingar um eðli sýningarinnar hafa komið í fjölmiðlum, svo það verður ekki endurtekið hér, en rétt er að hvetja alla myndlistarmenn, sem þykjast meðvitaðir um þróun og eðli myndlistar að koma á vett- vanginn. Fyrir utan ótæpilegan fróðleik um sögu þjóðarinnar í aldanna rás, þá er hér svo mikið um mynd- ræn atriði, að ég hreint féll í stafi. Er mér vel ljóst hve mikið af myndrænum atriðum má sækja til liandrita ýmiss konar og þeirra formrænu tilbrigða, sem þar koma fram, hvort heldur í skriftinni sjálfri eða hönnun skjalanna svo og útliti þeirra eftir aldalanga geymslu. Má ég vísa til þess, að margur myndlistarmaðurinn hefur einmitt notfært sér ýmislegt úr smiðju fortíðarinnar, er að þessum atrið- um lýtur til að ná fram þeirri fyll- ingu sem aldur og mismunandi pappírstegundir orsaka. Vissi maður ekki betur gæti maður allt eins verið staddur á núlistasýningu í Evrópu, er maður virðir fyrir sér ýmis forn og máð skjöl og einmitt þetta er t.d. heil- mikill lærdómur fyrir myndlistar- menn og myndlistarnema. Þá er mjög vel að þessari sýn- ingu staðið, og þótt húsakynnin séu ekki stór, er rýmið svo vel nýtt, að maður verður mjög margs vísari við skoðun skjalanna og annarra muna, sem til sýnis eru, ásamt því að í næsta sjónmáli eru ýmis dýrmætustu skjöl og handrit þjóðarsögunnar, sem ættu að sjálfsögðu að vera til sýnis á áber- andi stað í húsakynnum Þjóð- minja- og Þjóðskjalasafnsins. Gætu menn þá farið með útlenda gesti þangað og bent hróðugir á merka viðburði í þjóðarsögunni, eins og t.d. hina frægu fundar- gerð frá þjóðfundinum 1851, þar sem á er rituð hin örlagaríka setn- ing „vér mótmælum allir“. Falleg og greinargóð sýningar- skrá hefur verið gefin út í tilefni framtaksins og eru sýningargestir hvattir til að festa sér hana og gefa sér rúman tíma til að skoða það sem til sýnis er. Fjórar frumsamdar bækur frá Isafold BÓKAÚTGÁFA ísafoldarprentsmiðju hf. mun senda frá sér fjór- ar frumsamdar bækur fyrir komandi jól. Bækurnar eru Herná- mið - hin hliðin, eftir Louis E. Marshall, Fórnarpeð, eftir Leó E. Löve, Þegar stórt er spurt..., eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur, og Endurfundir, eftir Erlend Jónsson. í bókinni Hernámið - hin hliðin segir Louis E. Marshall frá dvöl sinni á íslandi á síðari hluta stríðs- áranna, en hann var þá yfirmaður í Bandaríkjaher. Fórnarpeð eftir Leó_ E. Löve er önnur saga höfundar. í henni segir frá ungum blaðamanni sem kemst á snoðir um fjármálahneyksli. Barnabókin Þegar stórt er spurt... er sjálfstætt framhald bókarinnar Þið hefðuð átt að trúa mér! sem Gunnhildur Hrólfsdóttir sendi frá sér fýrir síðustu jól. Endurfundir er smásagnasafn eftir Erlend Jónsson en áður hefur ísafold gefið út smásagnasafn Er- lendar, Farseðlar'til Argentínu. Samtök herstöðvaandstæðinga: Enn þörf á baráttu þrátt fyrir breytingar „NIÐURSTAÐA umræðna á ráðstefnu okkar um helgina var sú, að þó forsendur séu vissulega breyttar þá sé enn þörf á þrýsti- hópi, sem berst fyrir því að erlendur her fari af landi brott,“ sagði Ingibjörg Haraldsdóttir, formaður Samtaka herstöðvaand- stæðinga. Á ráðstefnu samtakanna var rætt hvort aðstæður í heiminum hefðu breyst svo, að tímabært væri að leggja samtökin niður. Ingibjörg sagði að sumir hefðu túlkað þíðu í heimsmálum þannig, að herinn færi' fljótlega af landi brott. „Það var einróma álit ráð- stefnugesta, að ólíklegt væri að herinn færi án frekari baráttu og því ákváðum við áframhaldandi starf. Það feist meðal annars í Keflavíkurgöngu í ágúst á næsta ári, að því tilskildu að ekki verði hér heræfingar þá, eins og heyrst hefur. Verði æfingar munum við einbeita okkur að því að mótmæla þeim.“ Ingibjörg sagði að um tvö þúsund manns væru félagar í Samtökum herstöðvaandstæðinga, þó ekki væru þeir allir virkir. „Breyttar for- sendur í heimsmálum hafa í för með sér breytt rök gegn starfsemi ókkar. Áður heyrðum við oftast að ef bandarískt herlið færi kæmi rúss- neskt í þess stað. Nú eru rökin þau, að Islendingar hafí ekki efni á að láta herinn fara, af efnahags- legum ástæðum. Aronskan hefur tekið við af Rússagrýlunni.“ HEFUR ÞU flHUGfl A HUSNÆÐIA SPAHI Nú erum við mættir ú nýjun leik ásamt íslenskri hjálparhellu, Helgu ióhannsdóttur. Kauptu beint frd byggingaraðilanum — engir milliliðir Hér gefst einstakt tækifæri tii að sjá framboðið af einbýlishúsum, raðhúsum og íbúðum, - og ef þú leikur golf, þá eru hér tveir golfvellir - þeir bestu á Spáni! EINSTAKT TÆKIFffiRI Ef þú ákveður þig í þessum mánuði þá býðst5% afsláttur af heildarverðinu. Við útvegum bankaábyrgð á byggingartímanum, 15 ara ábyrgð á húsnæðinu INTERNATIONAL HB INTERNATIONAL S.A. Þtl ÆTTIR ÞÁ AÐ KOMA Á SÝNINGU OKKARA Hótel Sögu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.