Alþýðublaðið - 02.11.1920, Qupperneq 1
Alþýðublaðið
GeílÖ út aí Aiþýdufiokknum.
1920
Þriöjudagiaa 2. nóvember.
252. tölubl.
Hvern eigum við að kjósa?
b----
Eins og mönnum er kunnugt
eiga kosningar fram að fara hér
á bænum 6. þessa mánaðar, Verða
þar kosnir menn f niðurjöfnunar-
nefnd, og er sjálfsagt að kjósa
•Íista alþýðflokksins, sem birtur var
í blaðinu í gær, B listann, þar eð
á honutn eru einarðir og að öllu
leyti vel hæfir menn, sem líklegt
er að gætu komið lagi á niður-
jöfnunarstarfið, sem nú er í mestu
handaskolum, svo sem kunnugt er,
og margir með sorglegri reynslu
hafa mátt sanna.
En jafnframt því, sem kosning
'S manná í niðurjöfnunarnefnd fer
fram, á að kjósa einn mann í bæj-
arstjórn.
Nú er kunnugt að „Sjálýstjórn“
hia illræmda kosningaklíka nokk-
úrra auðmanna hér í bæ, sem
stofnuð hefir verið eingöngu tii
þess að vinna á móti verkalýðn-
úm, hefir mann í boði. Maður
tessi er Georg Ólafsson, skrif-
stofustjóri Kaupmannafélagsins.
Sennilegt er að hann sé ekkert
verri en aðrir, sem „Sjálfstjórnar“-
^uðvaldsklíkan hefir sent inn í
°æjarstjórn, og líkiegast þó ekki
skárri heldur, því alt bendir á að
^ann sé nákvæmlega sama tóbakið.
En þó maðurinn, sem „Sjálf-
*tjórnar“-klíkan hefði í boði, væri
eitthvað skárri en hin almenna
tegund „Sjálfstjórnar"-húskarla, þá
kæmi það út á eitt, því
enginn alþýðnflokksmaðnr
mnndi vilja líta við þeim
manni, sem „Sjálfstjórn-
ar“-klíkan hyði fram.
Það er því engum blöðum um
það að fletta, að Georg Ólafsson
kjósa alþýðuflokksmenn ekki,
En þá er að athuga hinn
manninn, sem í boði er. Það er
Þórður Sveinsson læknir.
Um hann er það fljólast að
segja, að hann er utanflokkamað-
ur, og er kosning hans studd af
allra stétta mönnum, en þó mest
af millistéttum bæjarins, möanum
sem ekki tilheyra auðmannaklík-
unni, en þó ekki eru alþýðumenn.
Þar eð nú engum dettur í hug
að Þórður læknir verði taglhnýt-
ingur „Sjálfstjórnar“klíkunnar f
bæjarstjóm, eru iíkindi til þess,
að margt fólk af verkalýðnum
kjósi hann, heldur en óbeinlínis að
gefa „Sjálfstjórnar" frambjóðand-
anum atkvæði sitt, með því að
kjósa ekki, og kjósa því Þórð
læknir fremur með glöðu geði,
þar sem hann er þjóðkunnur at-
orku- og gáfumaður, sem er við-
brugðið fyrir hagsýni sína og bú-
hyggju-
€rtni símskeyti.
JKhöfn, 1. nóv.
Jfonungsvalið í Grikklandi.
Símað er frá París, að Páll
hotiungsefni hafi lýst yfir því, að
^a«n tæki því aðeins við konung-
^ó«oi í Grikklandi, að það sýai
^8* að þjóðin óski hvorki eftir
^onstantín, föður hans, né Georg,
íldri bróður hans í konungssætið.
Hðskiftamiðstöð í Khöfn.
Símað er frá Washington, að
fjármálaráðuneytið stingi upp á
því, að komið verði á í Kaup-
mannahöfn alþjóða viðskiftamið-
stöð til þess að sjá um verzlun-
ina við Rússland.
150 ára afmæli Thorvaldsens.
Netnd hefir verið skipuð til þess,
að undirbúa hátíðahöld í tilefni af
150 ára afmæli Thorvaldsens, 19.
nóvember.
Norðmenn ganga í 3. alþjóða-
bandalag verkamanna.
Símað frá Kristianíu, að mið-
stjórn jafnaðarmanna hafí með
miklum meirihluta samþykt að
ganga í 3. alþjóðasamband verka-
manna, en þó með þeim fyrirvara,
að sérstakar tilslakanir verði gerðar.
Belgiskir jafnaðarmenn hafa felt
tillögu um að ganga í sambandið.
jfeira aj Eússnm.
Lygafréttirnar af Rússum, sem
búið er að bera til baka fyrir
löngu í útlendum blöðum, eru nú
fyrst að komá í auðvaldsblöðun-
um hér. Fiuttu bæði Vísir og
Moggi slíkar greinar á föstudag-
inn. Var Vísisgreinin sömu teg-
undar og greinar um útlendar frétt-
ir eru vanar að vera í því blaði,
sem sé þvaður fram og aftur, og
eins er þessi grein sem segir fyrst
að Lenin eða bolsivíkastjórnin sé
rétt að falla, en endar á því, að
„harðstjóranum verði hrundið fyr
eða síðar, hvort sem nú er komið
að því eða ekki“ I
Moggi flytur grein um „Her
Lenins í upplausn“, og er sú fregn
alveg í samræmi við það þegar
blaðið flutti fregn um að 2000
fangar hefðu druknað á Nevafljóti,
meira en mánuði eftir að fregnin
var borin til baka í erlendu blaði.
Fregn þessi sem Moggi flytur f
gær, og upprunalega er komin frá
fréttaritara „Dagens Nyheter" í
Reval, er borin til baka þ. 11. þ.
mán. í dönskum og norskum blöð-
um, meðal annnrs í norska „So-
cial Demokraten“, er flytur þenna
dag svohljóðandi skeyti:
Riga, 10. okt.
Berið til baka allar fréttirnar
um uppreist í hinum rauða flota-
her og annarsstaðar. Sömuleiðis
fregnirnar um að sovjetstjórnin hafi
boðið Vrangel frið. Gagnbylting-
aruppreistarforingi þessi skal fá
sömu endalokin og Koltschak og
aðrir þjóðníðingar.
Kritchevski.